Sigurvegararnir

children-593313_960_720.jpgOkkar heilbrigðisfólk og almannavarnir hafa nú gjörsigrað kórónuveiruna í þessu áhlaupi, það verður væntanlega lítið mál að sigra næsta áhlaup líka ef eitthvað kemur. Við áttum aldrei von á neinu öðru en að okkar fólk mundi sigra. Það létust 1/2% af þeim Íslendingm sem smituðust sem er minna en menn óttuðust. Nú finnast varla ný smit þó leitað sé í öllum krókum og kimum. Það er því kominn tími til að hefja aftur líf og starf.

Landsmenn eru að missa heilsuna úr leiðindum og áhyggjum af atvinnu og peningum. Menn þurfa að komast í vinnuna, í sund, í ræktina, í klippingu, í heimsókn, á samkomur og skemmta sér. Og heimsækja aðra eyjarskeggja, Færeyinga, Grænlendinga og Nýsjálendinga sem eru líka búnir að kveða veiruna í kútinn. Kórónuteymið okkar ar búið að kenna okkur gullnu sígildu varnirnar, handþvott og að vera ekki ofan í öðrum eða koma við þá og nota símann meira ef þú ert gamall. https://www.covid.is/flokkar/fordast-smit

Við unnum! Sjáumst í lauginni.


Michael Moore afhjúpar Grænu orkuna

planetofhumans.jpg

 

 

 

 

 

Hinn þekkti kvikmyndaframleiðandi, Michael Moore, sendi frá sér nýja mynd um "grænu orkuna" sem verið er að reyna að banna en er ennþá aðgengileg.

 

Sjá hlekk á heimasíðunni á meðan hægt er:

Michael Moore afhjúpar Grænu orkuna


Aumir Hafnfirðingar

svartseindex.jpgHafnfirðingar fengu stærstu mjólkurkú landsins upp í hendurna fyrir 50 árum: ÍSAL. Þeir bönnuðu álverinu að vaxa og dafna. Nú er Landsvirkjun að setja ÍSAL á hausinn en Hafnfirðingar gera ekkert. Hafnfirðingar fengu líka aðra mjólkurkú, hlut í Hitaveitu Suðurnesja. Nú dettur þeim ekkert annað í hug en selja hlutinn (Mbl 27.4.2020) og ofurselja sig bröskurum sem geta okrað á rafmagninu til Hafnfirðinga í framtíðinn.

Hitaveita Suðurnesja, sem EES-tilskipanirnar klufu i tvennt, á auðvitað að vera í eigu almennings eins og það var og halda gróðanum af auðlindunum hjá almenningi. Og útvega almenningi og fyrirtækjum Reykjanessins raforku á hagstæðu verði eins og fyrirtækið gat löngum gert meðan það var heilt og í almannaeigu.

https://www.frjalstland.is/2020/04/08/ees-er-ad-eydilegja-framleidsluidnadinn/


Ónýt alþjóðastofnun

who-4984801_960_720.jpgAlþjóða heilbrigðisstofnunin, WHO, sem margir hafa lengi treyst, reyndist ófær um að hemja kórónuveiruna. Stofnunin er komin í hóp alþjóðastofnana sem eru alþjóðlegt vandamál.

Ótraustar alþjóðastofnanir


Sannleiksmálaráðuneyti

freedom-of-speech-156029_960_720.png-"skipaður starfshópur til að kortleggja og sporna gegn upplýsingaóreiðu-"

Forsætisráðherra á þingi: "Við erum að sjá ýmiss dæmi til dæmis í nágrannaríkjum okkar um fréttir sem ekki standast skoðun í nágrannaríkjum okkar"

Þeir sem hafa lesið sögu nágrannaríkja okkar, t.d. Þýskalands, eða bók George Orwell, 1984, sjá strax að hér er verið að leggja drög að Sannleiksmálaráðuneyti. Það þýðir afnám skoðana- og tjáningafrelsis og lögleiðingu rétthugsunar skilgreinda af stjónvöldum. Heil!

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2020/04/22/tekist_a_um_ritstyringu_fjolmidla/


Ósjálfstæði Íslendinga- ESA þarf að samþykkja neyðarlán.

„Á þess­um erfiðu tím­um er það for­gangs­atriði okk­ar að tak­ast á við ráðstaf­an­ir sem tengj­ast heims­far­aldri kór­ónu­veiru. Okk­ur hef­ur tek­ist að samþykkja um­rædda ráðstöf­un skjótt, þökk sé góðu sam­starfi okk­ar við ís­lensk stjórn­völd og fram­kvæmda­stjórn ESB,“ seg­ir Bente Ang­ell-Han­sen, for­seti ESA, í frétta­til­kynn­ingu. ESA Samþykkir lán.

Þvílíka orðaþvælu er erfitt að finna stað í raunveruleikanum. ESA getur ekki veitt undanþágu frá ákvæðum ESB tilskipanna um ríkisaðstoð. "Þökk sé framkvæmdastjórn ESB" er lykilinn.

Framkvæmdastjórn ESB var ekki spurð af eigin aðildarríkjum þegar þau hvert fyrir sig brutu næstum öll grundvallarákvæði sambandsins í neyðaraðgerðum fyrir eigin þjóðir.

Ekki þarf skýrari dæmi um ósjálfstæði íslenskra stjórnvalda gagnvart ESB vegna EES samningsins, jafnvel á neyðartímum.

Íslendingar ganga með bænaskjal fyrir umboðsmann (ESA) ESB til að samþykkja neyðarráðstafanir í eigin landi. Minnir mjög á bænaskjölin til danskra konunga í gegnum aldirnar.

Til að breiða yfir skömmina fer utanríkisráðuneytið í skoðanakönnun í miðjum heimsfaraldri til að sýna velvilja Íslendinga til alþjóðasamstarfs. Hins vegar hlýtur ráðuneytið að vera vonsvikið af því að tæpur helmingur þátttakanda er á móti EES samningnum. Þeim samningi sem veldur ósjálfstæði Íslendinga í alþjóðasamstarfi.


Að meiða fugla og spilla umhverfi

birdskilledbywindmills11-dscn0086_1359821.jpgEinhverjir skýjaglópar á EES (frá ESB, Íslandi eða Noregi með íslenska sendla á mála) ætla að reisa vindmyllur hér. Nú hafa 34 vindorkuver verið tilkynnt Orkustofnun en eitt helsta hlutverk hennar er að sjá um að landsmenn hlýði EES-tilskipununum. Mörg vindmylluverkefnin er búið að undirbúa með miklum kostnaði. Sveitastjórnir, sem eru undir stjórn EES/ESB-reglubáknsins í ýmsum umhverfismálum og hafa oft lítið vit á þeim, halda að vindmyllur séu "umhverfisvænar" og hagkvæmar. Sveitarfélögin hafa látið véla sig í að undirbúa vindmyllugarða og jafnvel að útvega lyngmóa og útsýnishæðir undir finngálknin. (Mbl. 18.4.2020).

Það er nóg af virkjanakostum á Íslandi þó umhverfið og fuglarnir séu látin í friði. Vindmyllur eru og verða einn óhagkvæmasti og mest umhverfisspillandi virkjanamáti sem til er. Þær valda miklum hættum, þær meiða og drepa fugla í stórum stíl og hafa slæm áhrif á lífríki svæðanna. Meira að segja umhverfistrúboðarnir eru farnir að vara við þeim.

https://www.bbc.com/future/article/20200302-how-do-wind-farms-affect-bats-birds-and-other-wildlife

 


Bruðl með almannafé í skjóli nætur

girl-shivering-322670_1359749.jpgOkkur vantar nokkur hundruð milljarða til að hafa okkur upp úr Kínapöddunni. En ríkisstjórnin hefur samt lagt fram frumvarp í skjóli nætur (eða réttara meðan allir eru að hugsa um Kínapöddu 19)sem mun kosta þjóðina hluta atvinnulífsins, spilla umhverfinu með vindmyllum, rafbílum og eiturefnum og kosta skattgreiðendur hundruðir milljarða til einskis.

Frumvarpið verður að nýjum EES-lögum um "loftslagsmál", fimbulþvæla af röngum fullyrðingum og barnslegum fyrirmælum á 41 blaðsíðu.  Eins og lesendum Frjáls lands er kunnugt getur ESB ekki stjórnað loftslagi, ekki einu sinni þó Ísland og Noregur hafi asnast með í leikinn a óþörfu,

https://www.frjalstland.is/2019/12/09/island-flaekt-i-loftslagsblekkingar-esb/


Orkulindirnar kannski áfram íslenskar?

burfellsvirkjun_1359637.jpgSamtökin Frjálst land spurðu forsætisráðherra hvort meiningin væri að veita fyrirtækjum í ESB sama rétt og íslensk almannafyrirtæki ríkis og sveitarfélaga hafa ætíð haft til að nýta orkuauðlindir landsins. Eftirlitsstofnunin með EES (ESA) var búin að senda hótanir í mörg ár um að stjórnvöld hér brytu EES-samninginn og leyfðu ESB fyrirtækjum ekki að komast að. Í svari forsætisráðuneytisins segir að frumvarpi um nýtingarleyfi verði frestað.

Það þýðir að enn er möguleiki að við munum áfram geta nýtt auðlindirnar sjálf. EES-þjónustutilskipunin var samþykkt með fyrirvara (mest vegna heilbrigðiskerfisins sem við vitum nú að ESB/EES má ekki koma nálægt) sem nú er hægt að láta reyna á. https://www.mbl.is/frettir/innlent/2020/04/09/frumvarpi_um_nytingu_orkuaudlinda_frestad/

Kannski getum við loksins eftir 25 ára blinda þrælshlýðni við EES haft einhver áhrif á hvernig ESB stjórnar Íslandi. Og varið okkar þjóðareign. Það gerðu Norðmenn og hafa ekki ennþá fengið á sig dóm EFTA-dómstólsins (sem dæmir Ísland, Noreg og Liechtenstein að EES-valdsboðum).

https://www.frjalstland.is/2020/04/10/svar-forsaetisraduneytis-vid-fyrirspurn-um-uthlutun-nytingarrettar-orkuaudlinda/


EES drekkir iðnaðinum

isal_riolki_8005_small_1359603.jpgEin helsta gjaldeyriskýr landsins, ÍSAL, ætlar að loka vegna hás orkuverðs og vanefnda á afhendingu vatnsorku. Landsvirkjun hefur selt frá sér vottorð um vatnsorkuframleiðslu til fyrirtækja í ESB sem nota þau til að ljúga um uppruna sinnar orku. Landsvirkjun þarf í staðinn að ljúga að sín orka sé kolaorka (eða kjarn- eða gasorka) sem er vanefnd við ÍSAL sem selur sitt ál sem vatnsorkuafurð. (Þetta verslunarkerfi lyga er fyrir peningaeigendur í ESB og er þáttur í blekkingaleik ESB um loftslag).

Álmarkaðurinn bætir ekki stöðuna nú í Kínaplágunni, niðurgreiðsla og offramleiðsla Kínverja heldur markaðnum í gíslingu.

Stjórn ESB á orku- iðnaðarmálum Íslands hefur leitt til okurs á raforku og brasks með loftslagsblekkingar sem kemur niður á orkukaupendum hér. Stjórnvöld standa ekki með iðnaðinum en leyfa orkukerfinu að sökkva dýpra og dýpra í reglugerðakviksyndi EES.

EES er að eyðileggja framleiðsluiðnaðinn


Loftlagsstefna ESB dregur Ísland í orkusvaðið.

Loftlagsáætlanir ESB stoppa ekki í Kórónafárinu. Í sl. mánuði birti sambandið flaggskip sitt í loftlagsmálum til 2050 European Climate Law . Kadri Simson, framkvæmdastjóri orkumála í Evrópu sagði að því tilefni: „Green Deal snýst ekki bara um...

Hræðsluáróður

Sameinuðu þjóðirnar voru stofnaðar til að koma á friði sem hefur reynst þeim erfitt. En samtökin eru í staðinn farin að leggja sig í alls kyns mál sem þau ráða enn síður við. Fjöldi af misjöfnum stofnunum er kominn undir hatt Sameinuðu þjóðanna, sumar...

Á Tesla á þinn kostnað

Ef þú hittir Teslaeiganda biddu hann að skutla þér heim, hann er hvort sem er að keyra á þinn kostnað. Rafbílar seljast nú sem aldrei fyrr vegna þess að skattgreiðendur borga undir þá vaskinn, vörugjöld, skatta og ýmiss rekstrargjöld sem fara eiga í...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband