Blása lofti í Jörðina

carbfix1086947.jpgNú hefur Orkuveitan og nokkrir háskólar fengið evrópsk verðlaun fyrir að blása lofti í Jörðina. Loftið er aðallega koltvísýringur sem vantar hér til góðurhúsaræktunar. Meiningin er að koma í veg fyrir að hlýni hjá okkur vegna "gróðurhúsaáhrifa" sem væri þó gott, það er farið að kólna. https://www.mbl.is/frettir/innlent/2020/05/29/carbfix_vinnur_til_althjodlegra_verdlauna/

Móðir Jörð losar sjálf um 1000.000.000.000 tonn af koltvísýringi út í loftið á ári hverju, án þáttöku mannanna. CarbFix hjá Orkuveitunni gæti kannske tekið við um 10.000 tonnum (áður en Hellisheiðin fer að bólgna og freta!). Að binda loft í grjóti á Íslandi er svo háfleygt að varla næst upp í það. Það virðast engin takmörk fyrir hvað umhverfistrúarbrögð og háskólamenn í fílabeinsturnum geta komið af stað fánýtum rannsóknum. Ekki heldur hvað einhver félög í Brussel geta klappað mikið fyrir "vísindunum" um loftslagsblekkingar ESB.

https://www.frjalstland.is/loftslagsvisindi-hrjad-af-folsunum/


Vindmyllur fá 1,6 milljarða fyrir að loka!

vindmyllur_telegraphtelemmglpict000070202577_trans_nvbqzqnjv4bqbbjl5r1mdojaw4t7xsphtshkdfsqwnxma9jgzm2jpvi.jpgEin mest umhverfisspillandi og óhagkvæmasta aðferð sem til er við að framleiða rafmagn er með vindmyllum. https://frjalstland.blog.is/blog/frjalstland/entry/2248875/

"Í Bretlandi er staðan orðin þannig að of mikið er af óstjórnanlegum vindmyllum og sólpanelum sem hafa gert orkukerfið brothætt og ósveigjanlegt og ófært um að mæta óvæntum aðstæðum á ásættanlegum kostnaði fyrir neytendur. Kostnaður við stjórn orkukerfisins er þegar orðinn skelfilegur og við sumarlok verður hann orðinn geigvænlegur" (Dr. John Constable) https://www.telegraph.co.uk/news/2020/05/23/wind-farms-paid-record-93m-switch-turbines/


EFTA-dómstóllinn í ljósi lýðræðishalla

Hörð gagnrýni helstu lögspekinga á þróun EES samningsins. Þingmenn standa ekki undir ábyrgð sinni.

Eftir Eyvind G. Gunnarsson prófessor við lagadeild Háskóla Íslands og Stefán Má Stefánsson prófessor við lagadeild Háskóla Íslands.

"Eftir fyrrgreinda dóma EFTA-dómstólsins ríkir ójafnvægi milli samningsaðila EES-samningsins, Íslandi og öðrum EFTA/EES ríkjum í óhag, sem ekki hefur verið veitt nægileg athygli. Ójafnvægið veldur m.a. því að aðildarríki ESB standa betur að vígi heldur en EFTA/EES ríkin hvað varðar viðskipti með landbúnaðarvörur og möguleikum til að halda uppi ríkum kröfum um verndun á heilsu manna og dýra.

Niðurstaða EFTA-dómstólsins í þeim málum sem að framan eru rakin er ekki sannfærandi. Því má m.a. halda fram að með því að horfa alfarið fram hjá tilvísun 18. gr. EES-samningsins til 13. gr. hafi dómstóllinn í raun breytt EES-samningnum. Þetta vekur upp spurningar um það hvort dómstóllinn hafi haldið sér innan valdmarka sinna. Síðari dómar í málum E-2/17 og E-3/17 hafa ekki bætt úr því. Í þessu sambandi er mikilvægt að hafa í huga að EES-samningnum verður ekki breytt nema með þeim hætti sem samningurinn áskilur í þeim efnum."

https://ulfljotur.com/2018/04/10/efta-domstollinn-i-ljosi-lydraedishalla/


Landakaup útlendinga má ekki banna

anonymus-1235169_1920_1361073.jpgEigur þjóðarinnar fara ein af annarri í súginn, undir huldufjárfesta og útlendinga sem leggja undir sig land með virkjana-, vatns- og veiðiréttindum.

Okkar stjórnvöld geta ekki stjórnað landinu lengur. Þau segjast ætla að setja lög gegn kaupum útlendinga á landi.

 

Það er sýndarmennska og hluti af lygavefnum um EES. Allar lagasetningar um landakaup eiga jafnt við um Íslendinga sem EES-aðila meðan EES-samningurinn er enn í gildi.

https://www.frettabladid.is/frettir/telur-frumvarp-um-jardakaup-i-andstodu-vid-ees-samning/


Ausið úr sjóðum almennings

vi_jarpreview16.jpgStjórnmálamenn okkar treysta sér ekki til að stjórna landinu sjálfir heldur sitja fastir í viðjum framandi regluverks sem EES hefur leitt yfir landið.

Stjórnvöld okkar þykjast geta bjargað afleiðingum Kínaveiru-19 með fjáraustri úr sjóðum almennings. Aðrar skilvirkari stjórnvaldsaðgerðir þora menn ekki að fara í af því að þær samrýmast ekki reglufargani ESB/EES.

Viðjar erlends valds í plágunni


Dýrkeypt að hunsa WHO!

who-4984801_960_720_1361034.jpgsegir aðalritari Sameinuðu þjóðanna á þingi stjórnar WHO sem fer nú fram í fjarfundatækjum.

Dýrkeypt_ad_hunsa_leidbeiningar

Fulltrúi Kína, þar sem covidfaraldurinn kom upp og sem hylmdi yfir meðan WHO var í kaffi, er þegar búinn að flytja ræðu á þinginu.

Fulltrúi Taivan flytur enga ræðu. Kínastjórn bolaði Taivan úr félagsskapnum. En það var Taivan sem fyrst þjóða varaði við Covid-19 og náði fyrst tökum á faraldrinum. Ef einhver ætti að flytja ræðu um Covid-19 á stjórnþingi WHO er það Taivan.

Það er orðið dýrkeypt að treysta WHO. Það þarf að sótthreinsa stofnunina, frelsa hana frá Sameinuðu þjóðabákninu og endurræsa með óspilltu fólki og færustu vísindamönnum fyrir næstu Kínaplágu.


Það er ESB sem gerir viðskiptasamning Íslands við Breta

euflageurope-1045334_960_720.jpgViðskiptaráðherra okkar ætlar að gera "yfirgripsmikinn fríverslunarsamning" við Breta (Mbl 16.5.2020). Gott og vel, viðleitnin er góð og árangurinn verður einhver. En Ísland verður áfram innan viðskiptamúra ESB/EES sem þýðir að viðskipti Íslands við Breta munu áfram lúta viðskiptahindrunum ESB. Í samningaviðræðum Breta við ESB sem eru í gangi krefst ESB þess að aðstaða ESB-fyrirtækja verði jöfn aðstöðu breska fyrirtækja ("level playing field" á barnaskólaensku ESB). Það þýðir að ESB vill að bresk fyrirtæki undirverpi sig regluverki ESB sem er útilokað að Bretar samþykki.

Það verður ekki núverandi utanríkisráðherra okkar sem gerir yfirgripsmikinn viðskiptasamning við Breta fyrir okkar hönd, það verður ESB. Við bara hlýðum og höldum áfram að kaupa dýrt dót með CE merki og öðrum gagnslausum stimplum meðan EES er enn í gildi en Bretar komnir í frjáls viðskipti við allan heiminn.


Ömmur heimsins hirta Ungverja

spinster-156097_960_720.pngHinar góðu ömmur heimsins, Norðurlönd, telja sig þess umkomin að hirta Ungverja fyrir að auka völd forsætisráðherrans. Norðurlönd hafa, allt frá dögum Olof Palme til pabba Gretu Thunberg, talið sig þurfa að vanda um fyrir þeim sem ekki eru rétthugsandi.

Norðurlöndin skrifuðu bréf til að sýna þrælshollustu við ESB og sendla þeirra sem hafa horn í síðu Ungverja af því að þeir eru ekki nógu hlýðnir og rétthugsandi. Mun verðugra verkefni fyrir Góðu ömmurnar hefði verið að reyna að ala ESB upp svo það hætti að auka stöðugt völd sín. En til þess þurfa stjórnmálamenn Norðurlanda að safna bæði kjark og stjórnmálaviti.

https://www.mbl.is/frettir/erlent/2020/05/11/sakar_radherra_um_ad_dreifa_falsfrettum/


Samkeppniseftirlitið afturhald

brimindex.pngGuðmundur í Brim, einn tilþrifamesti útgerðamaður landsins, getur ekkert gert á Íslandi, Samkeppniseftirlitið heldur honum stöðugt upp á snakki.

Langaði_í_stríð_vid_samkeppniseftirlitið

Guðmundur ætti ekki að þurfa að eyða kröftum í Samkeppniseftirlitið sem er að reyna að fá hann til að hlýða erlendum lagaþvælum sem voru settar hér í trássi við landslög og stjórnarskrá.  Samkeppnislögin og eftirlitið með þeim, hönnuð fyrir ESB/EES, hafa valdið miklum skaða á fyrirtækjamarkaði og staðið í vegi fyrir þróun og hagræðingu.

Samkeppnislögin standa í vegi fyrir þróun


ESB ætlar að segja veirufræðingunum okkar fyrir verkum!

labpexels-photo-2280549.jpgNú ætlar ríkisstjórnin að láta Alþingi samþykkja enn eina glórulausa EES-lagasmíðina sem fyrirskipar okkar vísindamönnum að nota rannsóknatækni ESB í veirurannsóknum. Eins og kunnugt er dregst ESB meir og meir aftur úr í vísindum sem þýðir að okkar fyrstaflokks vísindamenn, sem hafa skarað framúr í Covid-19 faraldrinum, dragast niður í svaðið og verða að hætta að nota þróuðustu tækni. Heilbrigðiskerfið fær kjaftshögg og veikist.

EES-tilskipanir 2017/745 og 746

https://www.frjalstland.is/2020/05/06/ees-spillir-syklarannsoknum/


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband