Valdaránið í Úkraínu 9 ára

sniper-1009657_960_720Í dag er 9 ára afmæli blóðuga valdaráns Obama-Biden stjórnarinnar í Kænugarði sem kom 27.2.2014 að leppstjórn með aðstoð NATO- og ESB-aðila og stuðningi úkraínskra ný-nasista og fasista. Blóðuga valdaránid í Úkraínu

Aðstoðarutanríkisráðherra Obama-stjórnarinnar, Victoria Nuland,  sá um að "fjárfesta" 5 milljarða dala í valdaráninu en vopnasendingarnar núna á einu ári eru orðnar um 100 milljarðar, nærri tvöföld árleg varnarmálaútgjöld Rússlands. Hernaðaráætlanir NATO og ESB hafa að markmiði að kljúfa Rússland og opna auðlindir þess fyrir rupli fjárfesta í NATO- og ESB-löndum.

Leppstjórnin og arftakar hennar hafa allt frá valdaráninu, undir stjórn NATO (það er hernaðaryfirvalda Bandaríkjanna) rekið hernað gegn rússneskum íbúum Úkraínu og höfðu valdið limlestingum 40.000 og dauða 14.000 manna þegar loks Rússlandsher kom þeim til bjargar. Það var eimitt hið lymskulega markmið með valdaráninu að neyða Rússland í stríð og fá fallega afsökun fyrir áróðursfréttamiðla Vesturlanda fyrir hernaðarrekstri gegn Rússum til þess að "verja frelsið og lýðræðið" en leppstjórnin hefur bannað stjórnarandstöðuna, skert frelsi borgaranna og aukið ofsóknir. Yfir 5 milljónir hafa flúið, flestir til Rússlands, 3 milljónir manna. Meðal baráttuaðferða leppstjórnarinnar eru hryðjuverk (s.s. sprenging á gasleiðslum), manndráp og árásir á verustaði almennings.

Máttlausir og fákunnugir leiðtogar Íslands hafa látið ESB og NATO, í skjóli EES- og NATO-samninganna, leiða herlausa Ísland með í hernaðarrekstur gegn einni traustustu vinaþjóð Íslands. Og ausa milljörðum af fjármunum Íslendinga í hernaðarverktakana í Kænugarði, fjármunum sem ætti að nota til að aðstoða Íslendinga sem þurfa aðstoð. ESB og NATO, sem eru þess valdandi að Austur-Úkraína er að leggjast í rúst, geta sjálf borgað sínum stríðsverktökum.

Rússland er stærsta land Jarðar, Rússar eru stærsta þjóð Evrópu og hafa oft verið í hlutverki útvarða Evrópu gegn árásum, m.a. frá núverandi ESB-löndum, og eru nú að reyna að verja Rússneska íbúa Úkraínu fyrir þeim sömu eftir 9 ára hernað leppstjórnarinnar gegn Donbas í Austur-Úkraínu. Rússar hafa alltaf komið fram við Ísland af virðingu, staðið með Íslandi í lífsbaráttu smáþjóðarinnar og verið ein mikilvægasta viðskiptaþjóð Íslendinga.

Það er vítaverð yfirsjón og svik við nærri aldargamalt trúnaðartraust millum Rússlands og Íslands að láta draga íslensku þjóðina í hernaðarrekstur gegn Rússlandi undir fölsku flaggi baráttu fyrir frelsi og lýðræði. Átökunum í Úkraínu mun ekki ljúka fyrr en ábyrgir leiðtogar hafa tekið við völdum í Bandaríkjunum og ESB eða Rússar afvopnað stríðsverktakana og rekið byssumennina burt. Það gæti tekið áratugi eins og til dæmis í Vietnam eða Afganistan þar sem NATO-lönd hafa stundað hernað.

Friðrik Daníelsson

 

 


Meiri stríðsæsingar

tank-5125073_960_720Leiðtogar í NATO- og ESB-löndum, þar á meðal á Íslandi, hafa í heilt ár gelt eins og óðir hundar á Rússland. Jafnvel æðsta embættisfólk í ríkisstjórn Íslands hefur sent frá sér ritsmíðar sem eru endurprentanir á áróðri NATO og ESB, samsull rangra fullyrðinga byggðar á hættulegri vanþekkingu sem á eftir að verða Íslandi dýrkeypt ef hún fær að vaða uppi miklu lengur. Þjóðarsjónvarp Íslands endurvarpar stöðugt áróðri frá falsanasmiðjum í NATO- og ESB-löndum og sendir fréttamenn til Úkraínu en ekki til Rússlands. NATO og ESB hafa brotið allar umgengnisvenjur siðaðra manna og þjóða og valdið limlestingum og dauða hundruða þúsunda manna og stóraukið hættuna á gereyðingastyrjöld.

Vitiborið fólk í Bandaríkjunum vill stöðva Úkraínustríðið sem okkar ráðamenn geta tekið sér til fyrirmyndar þó þeir nái ekki upp í hvað er að gerast í Úkraínu.

Friðrik Daníelsson


Hnignun Norðurlanda

víkingaskippexels-photo-8876098Norðurlönd voru einu sinni fyrirmynd smáþjóða heimsins um sjálfstæði og hlutleysi. Nú eru þau búin að tapa sjálfstæðinu og þau síðustu eru nú að tapa hlutleysinu og játast undir stríðsbandalag gömlu nýlenduveldanna. https://www.frjalstland.is/2023/02/22/hnignun-nordurlanda-nordens-forfall/


Þjóðin sóar fyrirtæki þjóðarinnar

_sing696825.jpgLandsnet var stofnað af þjóðinni með því að kljúfa fyrirtæki þjóðarinnar. Þjóðarfyrirtækið Landsvirkjun var klofið (og líka flís út úr Rarik og fleiri minni orkufyrirtækjum) og úr þeim búið til raflínufyrirtækið Landsnet sem skorti afl Landsvirkjunar og dröslast nú með slitnar raflínur þjóðarinnar. Allt í samræmi við EES-samninginn.

Og það er meira EES-rugl: Þjóðin afhenti Landsnet orkufyrirtækjum þjóðarinnar, sem Landsnet fékk eignirnar úr, til eignar.

Hægan, það er meira! Þjóðin keypti Landsnet af fyrirtækjum þjóðarinnar sem þjóðin hafði afhent þeim úr fyrirtækjum þjóðarinnar. Og til að fullkomna EES-ruglið er í bígerð að braskvæða Landsnet, afhenda það "fjárfestum" (lífeyrissjóðum, bönkum, bröskurum ofl.) upp í skuld.

Þannig slátra EES og máttlausir landstjórnendur mjólkurkúm þjóðarinnar og lauma gróðanum til gróðabrallara og þjóðin fær svo reikninginn í formi dýrari og stopulli orku úr auðlindum þjóðarinnar (Mbl 22.2.2023)


Joe í Kænugarði

peace-dove-2667123_960_720Joe dreif sig til Kænugarðs til þess að herða stríðsæsingarnar í leikaranum sem er búinn að fórna bestu hermönnunum sínum fyrir Joe og á nú fáa eftir.

Joe á einn mesta heiðurinn af að hafa komið að fasistískri leppstjórn NATO/ESB í Kænugarði 27. febrúar 2014. Leppstjórnirnar hafa síðan stundað dráp á Rússum Úkraínu með vopnum frá Joe.

Mistakaforsetinn bað grínleikarann þess lengstra orða að semja nú ekki frið við Rússa, menn mistakaforsetans (vopnaframleiðendur vestra) græða nefnilega á tá og fingri.

Heima í Washington voru á sama tíma mótmæli fjölda samtaka gegn stríðsrekstri Bandaríkjanna í Úkraínu. https://www.youtube.com/watch?v=iUvZQkLRpKM

Svo var enn ein "friðarráðstefnan" í Munchen, samkunda uppgjafa stríðsvelda þar sem aðalstríðsmangari Evrópusambandsins, Josep Borrell, sagði að fyrir friðinn væri nú mikilvægast að auka skotfæraframleiðsluna fyrir Úkraínustríðið. https://www.rferl.org/a/european-union-ammunition-russia-ukraine-war/32279406.html

Á sama tíma voru mótmæli í Munchen gegn vopnasendingum til Úkraínu. https://www.youtube.com/watch?v=A12Y80rupyA

Mótmæli gegn stríðsrekstri NATO/ESB í Úkraínu fá ekki mikið rými í meginfjölmiðlum NATO/ESB-landa, það sem kemur er blandað rangfærslum og áróðri.


Evrugildran

eu-flageurope-1045334_960_720Þjóðir geta sameinast um gjaldmiðil ef efnahagslegar og kerfislegar forsendur leyfa, einföld og sígild þekking um það hefur verið til lengi. Fávísir menn vildu láta Ísland "taka upp evru" í Hruninu, og sumir enn, það hefði þýtt að ESB-seðlabankinn í Frankfurt hefði tekið peningamálastjórnina yfir, þ.m.t. réttinn til penngaútgáfu. Íslendingar hefðu þar með misst stjórn á efnahagsmálum landsins. ESB-seðlabankinn stjórnar að mestu eftir hagsmunum stærstu landa ESB

Það vantar allar helstu forsendurnar fyrir að Ísland geti tekið upp evru.

Af 50 Evrópulöndum hafa 31 eigin lögeyri, 19 af 28 ESB löndum hafa tekið upp evru.

Evran hefur valdið efnahagshrörnun í sumum evrulöndum, þeim gekk yfirleitt betur með efnahagsmálin áður en evran var tekin upp. Áköll um að leysa evrusvæðið upp koma frá fræðimönnum og hagsmunaaðilum. https://www.ft.com/content/35b27568-f734-11e9-bbe1-4db3476c5ff0

https://dailynewshungary.com/governor-of-hungarys-central-bank-introducing-the-euro-was-a-mistake/


Af hverju stríð?

cesar-2766395_960_720"Allt sem Zelensky þurfti að gera var að hætta að ráðast á sjálfstjórnarlýðveldin í Donbas, þá hefði þetta aldrei gerst"

segir einn núlifandi afi ESB-valdsins, Silvio Berlusconi.

Árásir Kænugarðsstjórnarinnar hófust strax og hún fékk völdin eftir valdaránið í febrúar 2014 og hafa valdið fjöldadrápum á Rússum Donbas.

Zelensky gerði friðarsamninga við Rússland um Donbas, með ábyrgð Frakka og Þjóðverja. Hann viðurkennir nú að hann (les NATO og ESB) ætlaði aldrei að efna friðarsamningana

  Markmið NATO og ESB er að innlima Úkraínu, Zelenskystjórnin er núverandi leppur og stríðsverktaki þeirra, stjórnað frá Bandaríkjunum. Í ESB eru gamalreyndar stríðsþjóðir sem hafa oft hafið stríð gegn Rússlandi og alltaf tapað.

Ísland er dregið með í stríðsaðgerðir af því að við þorum ekki að standa fast á sjálfstæði og friðarstefnu Íslands.

Friðrik Daníelsson

 


Ríkisstjórnin í sjálfstæðisbaráttu

skjaldarmerkiNú eiga flugfélög á EES-svæðinu, Icelandair þar á meðal, að borga hærri koltvísýringslosunragjöld fyrir ferðir til Vesturheims gegnum Keflavík en flugfélög sem fljúga beint frá ESB vestur. https://www.europarl.europa.eu/news/en/press-room/20221205IPR60611/fit-for-55-deal-on-more-ambitious-emissions-reduction-for-aviation (atriði þessarar samþykktar sýna hve þing og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins er veruleikafirrt og föst í bábiljum og draumórum).

Ríkisstjórnin sér fram á að Ísland missi niður Vesturheimsflugið gegnum Keflavíkurflugvöll og að einangrun Íslands úti í hafi aukist. Hnignun Keflavíkurflugvallar blasir við https://www.mbl.is/frettir/innlent/2023/02/09/ottast_einangrun_og_hota_neitunarvaldi/

Losunarkerfi ESB (kallað ETS) kom upprunalega 2012 en þá voru sett ein verstu ESB-lög sem Alþingi hefur sett en íslensk stjórnvöld ákváðu að vera með í "samfloti" við ESB í loftslagsmálum vegna EES-samningsins. Það voru slæm og óþörf mistök, EES var ekki um loftslag. Samkeppnisstaða flugfélaganna hér versnaði með ETS og mun nú versna enn til muna ef nýju reglurnar ganga í gildi hér (Icelandair borgaði um 3 milljarða í kerfið 2012-2019)

Ríkisstjórnin biður ESB um undanþágur og hótar neitunarvaldi, það yrði í fyrsta skiptið í 29 ára sögu EES sem íslensk ríkisstjórn hafnar valdboðum Evrópusambandsins vegna EES. Með þessum tilþrifum ríkisstjórnarinnar er vonandi að hefjast nýr kafli í sjálfstæðisbaráttu smáþjóðarinnar. https://www.frjalstland.is/2021/01/13/ees-adildin-kostar-idnadinn-og-flugid-storfe/


Vindmylluvá

windmills in seapexels-photo-2645343Grænu fyrirtækin fara í þrot þegar þau fá ekki nóg almannafé.

Þau heimta stöðugt meiri ríkisstyrki, eitt það stærsta, Siemens Gamesa sem byggir vindmyllur við strönd, vantar milljarða til þess að fara ekki á hausinn. Fjárfestar setja aðeins fé í vindmyllur þegar tryggt er að almannasjóðir borgi tapreksturinn og tryggi þeim gróða. Auðblekktir ráðamenn moka óaflátlega fúlgum af almannafé í græn verkefni

Smám samarn er reynsla að safnast. Vindmyllur eru ekki aðeins lélegar og dýrkeyptar heldur spilla þær umhverfinu, geta haft vond áhrif á fisk og hval séu þær í sjó. https://www.foxnews.com/politics/massive-green-energy-company-reports-1-billion-losses-calls-further-governmental-action

Vindmyllur eru hættulegar og geta hrunið eins og spilaborgir. https://www.bloomberg.com/news/articles/2023-01-23/wind-turbine-collapses-punctuate-green-power-growing-pains?leadSource=uverify%20wall

Grænir draumar geta valdið miklum skaða verði reynt að láta þá rætast. https://www.frjalstland.is/2023/01/30/hver-borgar-orkudraumana/


Sósueftirlit

eu-flageurope-1045334_960_720Samkeppniseftirlitið fær stöðugar skammir fyrir að stoppa samruna og hagræðingu fyrirtækja, matvælaframleiðenda í þessari lotu. En það er ekki við Samkeppniseftirlitið að sakast, það starfar bara eftir samkeppnislögum frá ESB sem Alþingi varð að samþykkja vegna EES. Það þýðir ekkert að kvarta í íslensk stjórnvöld, þau ráða engu, kvartanir sendist til Brussel. Evrópusambandið og EES-yfirvaldið (ESA og EFTA-dómstóllinn, EFTA óviðkomandi) geta sektað, stefnt og látið dæma íslensk fyrirtæki fyrir að brjóta EES-samninginn ef þau hlýða ekki Samkeppniseftirlitinu.

Samkeppnislögin eru gerð fyrir staðnað risahagkerfi Evrópusambandsins, 1000-sinnum stærra en það íslenska, þau eru gróft brot á stjórnarskrá íslenska lýðveldisins. https://www.althingi.is/lagas/nuna/2005044.html

https://www.frjalstland.is/2021/04/01/samkeppniseftirlitid-skadar-samkeppnishaefnina/


Grænn stríðsundirbúningur

Þýskaland og fleiri ESB-lönd eru byrjuð á miklum stríðsundirbúningi fyrir stríð gegn Rússlandi. Sagan endurtekur sig, Þriðja ríkið byggði upp her Þýskalands af sama tilefni fyrir 90 árum -"við erum í stríði við Rússland-" segir Annalena utanríkisráðherra...

Mannasmygl og námsferðir

Nefndir Alþingis ættu að drífa sig til Rosengård í Málmey eða Norrmalm í Stokkhólmi og læra á innflutning smyglfarþega frá þróunarlöndum. Sænska löggan veitir örugglega lögregluvernd. https://www.visir.is/g/20232359164d Ein Alþingisnefndin fór til...

Falsfréttadreifarar

Hildur Þórðardóttir flettir ofan af falsfréttastofum sem móta skoðanir okkar hér á Vesturlöndum (MBL 4.2.2023) . Undir hulunni blasir við ógleðivekjandi vefur lygaverksmiðja, áróðursmiðstöðva og "upplýsingaþjónusta" sem búa til fréttir til þess að fegra...

Úkraínustríðið afhjúpað

Tucker Carlson, þekkti bandaríski sjónvarpsmaðurinn, afhjúpar helstu stríðsmangarana og lygarana um Úkraínustríðið, Boris Johnson, Lindsey Graham og Jo Biden eftirminnilega. Úkrainustríðið er í andstöðu við fólkið á Vesturlöndum, rekið áfram af óábyrgum...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband