Falsfréttadreifarar

soldiers-1172111_960_720Hildur Þórðardóttir flettir ofan af falsfréttastofum sem móta skoðanir okkar hér á Vesturlöndum (MBL 4.2.2023). Undir hulunni blasir við ógleðivekjandi vefur lygaverksmiðja, áróðursmiðstöðva  og "upplýsingaþjónusta" sem búa til fréttir til þess að fegra hernað á vegum NATO og leppstjórna þeirra. Þessar lygasmiðjur hafa komið sér inn hjá falsfréttastofum, Reuters, AP og AFP sem okkar "hlutlausa" þjóðarútvarp RÚV (og líka ríkisútvarpsstöðvar á Norðurlöndum) lepja gagnrýnislaust upp, fréttir af manndrápum þeirra vondu sem berjast á móti góðu strengjabrúðum NATO.

NATO-lönd eru með skáld á launum, t.d. er Bandaríkjastjórn (Pentagon, CIA) með tugi þúsunda sem framleiða falsfréttaefni og stöðva sannar fréttir frá hernaðaríhlutunum NATO og leppa á þeirra vegum og Bretar eru líka með "task force" sem sér um að framleiða lygar um Rússa og MI5 framleiðir áróður fyrir manndrápum og ránum á vegum NATO (í Sýrlandi, Angóla, Úkraínu og mætti bæta við Afganistan, Myanmar, Libíu, Palestínu, Írak, Íran, Jemen og mest allri Suðurameríku).

Sjálfstæðir óháðir fréttamenn komast lítið að hjá meginfjölmiðlum Vesturlanda. Lygar valdhafa skulu vera sannar!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónatan Karlsson

Líklega hafið þið Hildur gjörsamlega á réttu að standa, en því má auðvitað bæta við, svo fullrar sanngirni gæti, að eðlilega má ætla að andstæðingarnir, eða vondu karlarnir eins og okkur er innrætt að kalla t.a.m. Rússa og Kínverja beiti svipuðum aðferðum þeirra megin.

Auðvitað er sorglegt og til skammar að Íslendingar með þær Katrínu og Þórdísi í fylkingarbrjósti kjörina fulltrúa okkar leggist svo lágt sem raun ber vitni, í stað þess að fylgja þeirri hlutleysis og friðar stefnu sem í orði kveðnu má fullyrða að öll tilurð Lýðveldisins Íslands byggist á.

Jónatan Karlsson, 4.2.2023 kl. 17:33

2 Smámynd: Arnór Baldvinsson

Alltaf fróðlegt að lesa áróðurspistla Pútíns og Co hjá "Frjálsu Landi" og skoða síðustu samsæriskenningar úr búri Kremlar.  Einu sinni voru athyglisverðar greinar hérna, en nú er þetta bara samsæringabull út í eitt.  

Arnór Baldvinsson, 4.2.2023 kl. 18:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband