Tvær skýrslur á dag

koma skapinu í lag hjá skriffinnum EES!

LÍ

-"Bankinn sendir tvær skýrslur daglega  - eftirlitskröfur, sem eiga rætur að rekja til Evrópu, valda því að æ fleiri handtök inan bankakerfisins fara í að fylla út skýrslur og svara erindum frá eftirlitsstofnunum-" (Mbl hefur eftir bankastjóra Landsbankans 11.8.2022).

Það er ekki nema von að unga fólkinu gangi hægt að kaupa hús yfir höfuðið, bankarnir hafa allt annað að gera en að sinna þeim, og braskararnir fá að sprengja upp verðið á íbúðunum.

Íslenskum bönkum og öðrum fjármálastofnunum er stjórnað frá ESB samkvæmt sívaxandi haug af EES-reglum. Fjórar ESB-stofnanir fengu völdin yfir fjármálafyrirtækjunum, Fjármálaeftirlitið er umboðsaðili. Auk þess fengu ESA og EFTA-dómstóllinn (mamma og pabbi EES-óvitanna) aðfararhæft dómsvald hérlendis. Alþingi samþykkti það kinnroðalaust þó að það væri brot á stjórnarskránni.

Regluverk EES hefur reynst íslenskum bönkum herfilega. Frá 1994 til 2008 kom það af stað ofbólgu og útrásaræði sem endaði með Hruni.

ESB dylur ekki lengur ásóknina í völd yfir fjármálageiranum

 

Ath. Það er mjög óvenjulegt að hátt settir stjórnendur á Íslandi hafi kjark til að tala sannleikann um EES-samninginn, Lilja bankastjóri Landsbankans er undantekning.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grímur Kjartansson

Þær eru margar skýrslurnar og sumar margar blaðsíður
en reikna má nu með að stór hluti af þessum "skýrslum" séu hlutir sem bankarnir eru með skráð hjá sér

svo það er bara að ýta á send takkann

Grímur Kjartansson, 12.8.2022 kl. 09:24

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Tölvunni í bankanum er engin vorkunn að þurfa að eiga samskipti við vefþjónustu á annarri tölvu tvisvar á dag.

Hitt er svo annað mál að EFTA dómstóllinn færði íslenskum almenningi góða sigra í tveimur þýðingarmestu málunum sem þangað hafa ratað, annars vegar um Icesave og hins vegar um verðtryggðu lánin.

Verst er þó að ESB virðir niðurstöðuna í Icesave málinu að vettugi og Hæstiréttur Íslands gerði hið sama varðandi verðtryggðu lánin og hlífði jafnframt ríkinu fyrir bótaskyldu vegna brotsins.

Guðmundur Ásgeirsson, 12.8.2022 kl. 15:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband