Stríð að skella á

Cettafree-photo-of-ddayEitt af gáfnaljósum ESB, og núverandi forsætisráðherra Póllands, Donald Tusk, segir að nú séru fyrirstríðstímar. 

https://www.mbl.is/frettir/erlent/2024/03/29/evropa_nu_a_fyrirstridsarum/

Dómsdagsspámannakór Evrópusambandsins fékk góðan samherja þegar Macronapoleon Frakklandskeisari sagði að gæti þurft að senda franska hermenn til bardaga við Rússa (þeir eru þegar mættir).

Sjálfskipaða spámenn og ofurgáfaða leiðtoga Vesturlanda hefur lengi langað til að splundra Rússlandi og komast í auðlindir þess, Napoleon reyndi 1812, Hitler 1941 og Churchill og Truman mótuðu stríðsstefnu gegn Rússlandi 1946. https://www.frjalstland.is/2024/03/30/ovinur-buinn-til/

Obama og Biden tóku upp stríðsþráðinn 2014 og komu af stað stríði gegn Rússunum í Donbas.


ESB á kaf í mykju

eu-flageurope-1045334_960_720Bændur Evrópusambandsins vilja ekki láta græna bölið verða til þess að þeir verði lagðir niður. https://www.frjalstland.is/2024/02/12/graena-bol-landbunadar-evropusambandsins/

Þeir mótmæla tilraunum sambandsins til að eyðileggja þeirra atvinnugrein með vitfirrtum "grænum" stefnumálum. Þeir mæta til Brussel og dæla mykju á Evrópusambandið.  https://www.youtube.com/watch?v=vwKGlJqmC2A


Hernaður Íslands

nato-26848_960_720Skotfærakaup Íslands 300_milljónir.

Þau fáheyrðu tíðindi berast að Ísland muni kaupa skotfæri handa hryðjuverkastjórn Úkraínu sem nú hefur í heilan áratug rekið tilefnislaust árásarstríð gegn rússneskum borgurum landsins, og nú líka Rússlandi sjálfu, á vegum NATO og ESB. https://www.frjalstland.is/2024/01/27/vaxandi-hernadur-gegn-russlandi/

Sjaldan launar kálfurinn ofeldið en Rússar, sem skotfærin eru ætluð til að drepa, hafa í 8 áratugi verið dygg vinaþjóð, ein mikilvægasta viðskiptaþjóðin og auk þess stuðningsþjóð Íslands og gert Íslandi kleyft að verjast ágengni Breta og fleiri V-Evrópuvelda og verja fiskimiðin.

Íslendingar geta ekki lengur státað af því að vera friðelskandi þjóð. Við erum ekki einu sinni trygg okkar bestu vinum. Það verður rannsóknaefni hvernig þetta gat gerst en ljóst er að áhrifamenn landsins og stjórnmálahreyfingarnar sem komist hafa til valda ráða ekki við að halda merki Íslands á lofti en hafa gert Íslendinga að aumkunaverðum leppum stríðsmangara Evrópusambandsins, Bandaríkjanna og NATO.

Skömm íslenskra ráðamanna verður erfit að afmá.


Lygalaupar of fljótir á sér

kremlmoscow-3617070__340"ekkert bendir til þess nú að Úkraína hafi átt aðild að hryðjuverkinu í Moskvu-" segir aðstoðarlygalaupur Hvíta hússins þegar ódæðið var varla afstaðið. CIA og Hvíta húsið vissu af undirbúningi hryðjuverka í Moskvu fyrir nokkru. Hryðjuverkamennirnir voru ekki neinir hertir hryðjuverkamenn, rússneskir strákar meðal hljómleikagesta náðu einhverjum, tóku af þeim vopnin og börðu þá. Rússarnir náðu svo hryðjuverkamönnunum eftir ódæðið þegar þeir voru á leið til Úkraínu. Þeir höguðu sér ekki eins og hryðjuverkamenn og sögðu strax að þeim hefði verið borgað hálf milljón rúblur.

Það eru aðeins bandarísk og bresk stjórnvöld og leppar þeirra og auðmenn sem borga fyrir hryðjuvek af þessari tegund sem CIA, utanríkisráðuneytið, breska MI6 og ísraelska Mossad geta skipulagt og framkvæmt.

Lygalauparnir í Washington voru of fljótir á sér! Hryðjuverkamenn leita jafnan "heim" þegar þeir hafa lokið sínu ódæði, miðstöð hryðjuverka síðasta áratuginn gegn Rússum er hjá stjórn Úkraínu í Kænugarði og yfirstjórnin og fjármögnunin í Washington sem hefur alið á tilefnislausu Rússahatri í 77 ár.

https://english.almayadeen.net/news/politics/former-cia-analyst-suspects-washington-knew-about-the-attack


Er ESB fyrirmynd?

frakklandsfániNilovpexels-photo-9267417Evrópa þarf nú að búa sig undir stríð við Rússland segir einn af Brusselgáfnaljósunum (hjá ESB þýðir "Evrópa" ESB þó aðeins rúmur helmingur Evrópubúa búi í ESB). Evrópusambandið hefur sagt sínum meðlimum að koma sínum hagkerfum í stríðsham því Rússar muni ráðast á ESB (mbl 20.3.2024)! Eins og margt annað frá ESB er sá spádómur byggður á umfangsmiklum lygavef sem hefur verið spunninn í rótgróinni heimsvaldahyggju V-Evrópu sem hefur ásælst auð Rússlands í aldir.

Macronapoleon Frakklandskeisari og Brusselþursana dreymir um að ESB taki við sríðsrekstrinum gegn Donbas og Rússlandi af Bandaríkjunum sem hafa rekið hernaðinn síðan Obama-stjórnin hóf hann 2014 með stuðningi ESB og NATO. Afskipti ESB og NATO og viðbrögð Rússa við þeim eru að leggja Úkraínu í rúst https://www.frjalstland.is/2024/02/29/ukraina-logd-i-rust/

Ætlar eyríkið Ísland að vera með í stríðshlaupi ESB/NATO gegn Rússlandi? Er ESB sú fyrirmynd sem Ísland þarf, lönd þar búa við meiri vandamál og fátækt en Ísland og þróast nú í átt að múslimaríkjum meðan sjálfum Evrópubúum fækkar. Viljum við lög ESB yfir okkur? Uppbygging iðnaðar og orku er að stranda, landbúnaðurinn er að kikna, samkeppnislög ESB/EES og Samkeppniseftirlitið standa í vegi fyrir þróun atvinnufyrirtækjanna, umhverfistilskipanirnar stöðva uppbygginguna, loftslagstilskipanirnar færa fúlgur fjár til Brusselbáknsins. Og nú er stríðsandinn kominn yfir Vesturevrópuveldin eins og svo oft áður með geigvænlegum afleiðingum. https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/03/22/katrin_fundadi_med_forsaetisradherrum_evropurikja/

Það er löngu kominn tími til að segja Ísland frá valdi Brussel, EES-samningnum og vitfirrtum stríðsæsingi gegn Rússlandi sem hefur verið ein öruggasta vinaþjóð Íslendinga og hefur aldrei gert árás á Vesturevrópu þó þurft hafi að reka Vesturevrópska heri heim eftir að þeir höfðu drepið milljónir Rússa. https://www.frjalstland.is/2024/01/27/vaxandi-hernadur-gegn-russlandi/

 


Bankakerfinu má bjarga

bankarHiteshpexels-photo-1739855Þetta er klárt og málið leyst! Landsbankinn á pening og getur keypt hlut í Íslandsbanka af ríkinu og þarf ekki að fara að braska með einhver tryggingafélög!

Þá verður hægt með timanum að fækka bönkum og stækka Landsbankann og gera hann að öflugum 100% þjóðarbanka án áhrifa áhættusækinna "fjárfesta" sem mundu setja hann á hausinn fyrr eða síðar.

Bábiljuspekingar eru enn til sem vilja einkavinavæða helst allt sem ríkið á, þeir einkavinavæddu gömlu ríkisbankana og komu á regluverki EES sem saman rústaði bankakerfinu og skattgreiðendur fengu allt í fangið https://www.frjalstland.is/2023/10/08/hrunid-fimmtan-ara/ Og nú segja þeir að ríkið eigi að selja sinn hlut í bönkum og nota féð í "innviði".

Gáfnaljósin meðal þessara bábiljuspekinga eru ekki vitrari en svo að þeir átta sig ekki á að bankar eru með mikilvægari innviðum hvers lands. Stór banki í eigu ríkisins mundi leiðrétta á vissan hátt hina glæpsamlegu einkavæðingu bankakerfisins og efla uppbyggingu unga fólksins.

Einkavæðing bankanna var ein af verstu gerðum íslenskra stjórnmálamanna síðari tíma sem ásamt með lögleiðingu EES fór nærri því að setja Ísland í þrot. Þrátt fyrir að neyðarlög hafi tekið EES úr sambandi og Sigmundur Davíð hafi sigrað braskarana og bjargað ríkissjóði standa endursmíðuð bankaflökin og EES-áþjánin í vegi fyrir að unga fólkið geti byggt upp sinn efnahag, regluverkið er hannað fyrir staðnað og fátækt landsvæði ESB. https://www.frjalstland.is/2023/07/01/fataektarmenning/


Rússar öfundaðir

KremlAlesenkopexels-photo-11955349Vestrænir leiðtogar og falsfréttamiðlar eru svo öfundsjúkir út í Rússa fyrir skipulegar og lýðræðislegar kosningar að þeir gelta og froðufella eins og óðir hundar.

https://www.telegraph.co.uk/world-news/2024/03/18/ukraine-russia-war-latest-news2/

https://www.bbc.com/news/live/world-europe 68536879?src_origin=BBCS_BBC

https://edition.cnn.com/videos/world/2024/03/17/russia-voting-polls-defiance-putin-dougherty-nr-vpx.cnn

Rússar héldu lýðræðislegar kosningar undir stöðugum sprengjuárásum leppstjórnar Vesturlanda í Úkraínu og óhróðri vestrænna fjölmiðla og ráðamanna. Kosningarnar voru undir eftrliti kosningaeftirlitsmanna frá mörgum löndum.  Falsfréttamiðlarnir láta sem Navalny nokkur hafi verið útilokaður og drepinn en hefði líklega verið kosinn en vitað er að hann hafði hverfandi stuðning meðal Rússa sem þekktu hann sem þjóf og nýnasista sem fjármagnaður var af bandarískum undirróðursfélögum (s.s. NED, National Endowment for Democracy https://www.ned.org/). Hann átti að koma á valdaráni eins og Bandaríkjastjórn framdi í Úkraínu 2014.

Í helsta lýðræðisríkinu, sem að eigin sögn er Bandaríkin, er aftur á móti stundað umfangsmikið kosningasvindl í "lýðræðislegum kosningum", aðhlátursefni heimsbyggðarinnar. Þar vinna borgaðir erindrekar og embættismenn forsetans að því að stöðva mótframbjóðandann.

Ekki nema von að vestrænir leiðtogar, sem eru upp til hópa þrælar stórfyrirtækjaveldisins (og um leið vopnaframleiðenda) séu öfundsjúkir út í Vladimir Putin. Hann hefur á aldarfjórðungs ferli leitt Rússland úr hruni Ráðstjórnarríkjanna og afskiptum Bandaríkjanna sem komu fyllibyttu, Boris Yeltsin, í forsetastól Rússlands. Rússar eru löngu farnir að þekkja undirróðursöflin sem stöðugt eru að reyna að rífa niður þeirra samfélag. Þeir velja sér til forustu færa menn sem hafa reynslu af að berjst við vestrænu ófreskjuna.

 


3 stríð í gang

hermennKongkamsripexels-photoStríðsríkið stefnir nú á að halda gangandi 3 stríðum: Í Úkraínu, Mið-Austurlöndum og Kína.

Verktökustríð nýnasistanna í Úkraínu á vegum Bandaríkjanna hefur staðið í 10 ár en Evrópusambandið er að reyna að taka við. Stríðið gegn Palestínu, Líbanon, Jemen og Íran fór af stað í byrjun vetrar. En gengið í Hvíta húsinu er nú að munda byssurnar gegn Kína. Bandarískir hermenn eru komnir til Kinmen eyja rétt við strönd Kína. https://asiatimes.com/2024/03/us-green-berets-deploying-to-taiwans-front-line/

Manndráp stríðsríkisins í Írak, Afganistan, Serbíu, Líbíu og Afríku hafa minnkað en manndráp og þjófnaður heldur áfram í Sýrlandi.

Af því að Bandaríkin eru okkar helsta bandalagsríki ættu íslensk stjórnvöld að hætta að naga neglurnar og segja Könunum að hætta þessu áður en við aumingja bandamennirnir fáum líka allan heiminn upp á móti okkur!


Nýtt járntjald

ESB og NATO hafa nú strekkt nýtt járntjald gegnum Evrópu, frá austurlandamærum Finnlands að austurlandamærum Rúmeníu við Svartahaf. Og nú á að reyna að teygja það austur að Don og suður að Svartahafsströnd.

explosion-67557__480Það hefur þegar tekið við af gamla járntjaldi Churchills og Trumans sem gekk í gegnum Berlín og suður í Adríahaf en það var strekkt eftir að Rússar gersigruðu Þjóðverja og hröktu flótta þeirra vestur og tóku Berlín og austurluta Þýskalands og mesta alla Austur-Evrópu undir sitt vald eftir að hafa hreinsað svæðið af Þjóðverjum. Ekki átti að sleppa ófreskjunni aftur af stað til Rússlands.

En ófreskjan villti á sér heimildir en sýnir nú sitt innra eðli. Nýja járntjaldið á að gera það sama og það gamla, útiloka og einangra Rússland og leggja það í framhaldi undir Bandaríkin&leppa til þess að stela auðlindum þess og sleppa auðvaldinu í þær.

ESB sagðist ætla að koma á friði í Evrópu en sýnir nú sinn tilgang og er orðið stríðsbandalag. NATO átti að verja okkur gegn Ráðstjórnaríkjunum sem leystust upp fyrir aldarþriðjungi. En ESB og NATO hefur tekist að koma í veg fyrir samstarf og friðarvilja og hafa haldið Evrópu í innri flokkadráttum og úlfúð og undirbúa nú stríð við Rússland. Hernaðarhreiðrum er nú dritað niður austur við nýja járntjaldið og herflokkarnir flykkjast þangað.

Íslendingar þurfa að segja sig frá stríðsmangi Evrópusambandsins og NATO.

https://www.frjalstland.is/2024/01/27/vaxandi-hernadur-gegn-russlandi/


Pjakkar í stríð

Furusof Napoleonpexels-photo-4204094Það var pjakkur frá Næróbí (Obama) og annar frá krata-Ameríku (Biden) ásamt með skvísu af úkraínskum ættum (Victoriu Nuland) sem hófu Úkraínustríðið með úkraínskum nýnasistum 2014. Markmiðið var að egna Rússland í stríð sem tókst eftir 8 ára laumustríð gegn  rússneskum íbúum Úkraínu og stöðug svik og lygar. Heimskir pjakkar og skvísur fra NATO og ESB-löndum voru með og splæsa fúlgum og senda vopn og hermenn. En allt fór i vaskinn og Biden er búinn að reka aðalskvísuna (Nuland) sem stjórnaði valdaráninu og manndrápunum 2014.

Nú vill einn af pjökkunum í Evrópusambandinu (Macronapoleon) senda heilar hersveitir gegn Rússlandi eins og fyrirrennari hans Napoleon. Ekki er líklegt að þeim sveitum takist að drepa fleiri Rússa en Napoleon tókst. En málið snýst ekki um mannslíf, sem NATO/ESB-pjakkar bera lítið skynbragð á, heldur um gróða vopnaframleiðenda, sem eru stórir atvinnuveitendur, og frægð "sterkra" (les hættulegra) leiðtoga. https://www.reuters.com/world/europe/macrons-ukraine-troop-talk-shakes-up-nato-allies-2024-02-27/

Bretar eru með, þeir hafa ekki misst af neinu tækifæri að komast í stríð og manndráp. Kratadræsurnar sem stjórna Norðurlöndum eru með og óðustu hundarnir/tíkurnar ætla að hækka skatta og senda öll hergögn til Úkraínunasistanna í Kænugaraði. Vitibornir menn í Þýskalandi eru tvístígandi enda hafa þeir ennþá veikt minni af útreiðinni sem þeir fengu af hendi Rússa og láta sér nægja að leika sér með áætlanir um að sprengja mannvirki, að berjast við Rússlandsher munu þeir ekki þora aftur. https://www.frjalstland.is/2024/01/27/vaxandi-hernadur-gegn-russlandi/

NATO-lúðurinn (pjakkur sem hljómar eins og Göbbels) japlar ennþá á að Rússar séu búnir að tapa en samt þurfi að hervæða NATO-ESB upp á nýtt til þess að vinna Rússa!

https://www.reuters.com/world/europe/responding-pope-nato-boss-says-ukraine-needs-weapons-not-white-flags-2024-03-11/

Hræsnin og heimskan eru á sínum stað.


Bjarni í sókn fyrir Ísland

Bjarni Ben var að gera fríverslunarsamning við eitt stærsta og hraðast vaxandi hagkerfi heims, Indland. https://economictimes.indiatimes.com/news/economy/indicators/india-to-remain-fastest-growing-major-economy-in-2024/articleshow/106416321.cms?from=mdr...

Sjálfbærir bændur

Nú á að segja bændum hvernig þeir eiga að búa sjálfbært samkvæmt nýjustu tísku, vísað er í ýmsar spilltar margþjóðastofnanir sérstaklega þær sem þekktar eru af lélegum vísindum s.s. mokstri ofaní skurði.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband