Bretar horfa nú á fríverslunarsamning ESB og Kanada

https://brexitcentral.com/today/brexit-news-monday-24th-september/

ceta

Eðlilegt er að Bretar snúi við blaðinu og ræði fríverslunarsamning við ESB í anda besta fríverslunarsamnings sem ESB segist hafa gert, þ.e. samninginn við Kanada, CETA.

Comprehensive Economic and Trade Agreement (CETA) er fríverslunarsamningur milli Kanada og ESB, þar sem ESB telur eftirfarandi helstu kosti hans: 

Samningurinn fellir niður 98% öllum tollum milli Kanada og ESB. Hagsmunir beggja af samningnum er að:

1. Mynda vöxt og atvinnu

2. Skapa starfsgrundvöll fyrir fyrirtæki, stór sem smá

3. Lækka verð og opna möguleika fyrir evrópska neytendur

4. Lækka tolla fyrir inn-og útflytjendur

5. Lækka annan kostnað fyrir fyrirtæki í Evrópu – án þess að stytta sér leið

6. Auðveldar evrópskum fyrirtækjum að selja þjónustu í Kanada

7. Auðveldar evrópskum fyrirtækjum að bjóða í opinber verk í Kanada

8. Hjálpar evrópsku dreifbýli að markaðssetja vörur sínar

9. Verndar höfundarrétt evrópska frumkvöðla og listamanna

10. Viðurkenning hvers annars atvinnuréttindi

11. Hvetur kanadísk fyrirtæki til að fjarfesta meira í Evrópu

12. Verndar atvinnuréttindi og umhverfi

..og Kanada þarf EKKI að taka upp lög og reglugerðir ESB. 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Þetta er ég búinn að vera að segja í mörg ár og tími að breyta hjá okkur

Valdimar Samúelsson, 26.9.2018 kl. 12:12

2 Smámynd: Bjarni Jónsson

ESB vill hreinar línur; annaðhvort inni eða úti.  Annað telja þau grafa undan einingu sambandsins.  Fríverzlunarsamningur Bretlands og ESB getur orðið fyrirmynd að fríverzlunarsamningi Íslands og ESB.  Ísland og Bretland ættu að gera með sér fríverzlunarsamning með lágmarks tolleftirliti, sem tefur viðskiptin nánast ekkert.

Bjarni Jónsson, 27.9.2018 kl. 13:34

3 Smámynd: Merry

Fríverslunarsamning eins og Canada eru með, væri gott, en EU vill ekki samþykkja hingað til. Annars verður Bretland fara út án samningur held ég.

Merry, 27.9.2018 kl. 22:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband