Heim

fagradalsfjall1263974Löggan okkar ætlar nú að leyfa Grindvíkingum að vera heima hjá sér. Það var mikið að eitthvert vit kemst til Grindavíkur.

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/02/19/grindvikingum_frjalst_ad_dvelja_i_baenum_a_eigin_ab/

Okkar forræðishyggjustjórnmálamenn í Reykjavík vilja gera  Grindavík að "stærsta verkefni Íslandsögunnar" og ausa 100 milljörðum af skattfé í það til þess að geta skreytt sig með að hafa bjargað Grindvíkingum. En Grindvíkingar geta vel tekið ábyrgð á sjálfum sér og sínum, auðugt og blómlegt samfélag sem þarf að vinna úr högginu sem umhverfisöflin greiddu því.

Þann 28. desember 1908, varð mikil jarðskjálfti í Messina á Sikiley, af 150.000 íbúum fórst meir en helmingur. Stjónvöld ætluðu að færa borgina en íbúanir sem eftir voru sögðu nei takk! Og byggðu borgina upp á nýtt en þar búa nú 220.000 manns.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband