Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Á asnaeyrunum

donkeypexels-photo-6356968Við látum draga okkur með í stríð, okkur hefur verið skipað í hóp "viljugra þjóða" eða "þjóða sem ekki vilja rjúfa samstöðuna" (eða bara Icesave-þjófa!)

Við tökum þátt í að fórna heilu þjóðunum fyrir valdagræðgi stríðsveldanna.

https://www.frjalstland.is/2022/08/19/island-tekid-i-strid/

 

 

 Bloggið skrifar Friðrik Daníelsson


Í EES og í stríð

EUflageurope-1045334_960_720"Evrópusambandið er að fullu í stríði við Rússland, forgangsmál þess var að gera Úkraínu og Moldovu umsóknarríki til þess að ögra Pútín" segir forseti Serbíu (auðvitað útmálaður sem hægri öfgamaður í fjölmiðlum Vesturlanda).

ESB er orðið stríðsbandalag, skriffinnar þess segja að bandalagið sé í stríði.

Ísland er þátttakandi í aðgerðum og stríðsrekstri ESB vegna EES-samningsins sem veitir ESB ákvörðunarvald um refsiaðgerðir gegn öðrum þjóðum og dregur Ísland í vopnaflutninga til átakasvæðisins.

Íslendingar verða að spyrna við fótum og draga sig úr stríðsrekstri ESB. Rússland hefur lengi verið eitt mikilvægasta samskiptaland Íslendinga með marga sameiginlega snertifleti. Aðild að stríðsrekstri ESB og NATO verður afdrifaríkari með hverjum deginum


Hætta vofir yfir Evrópu

nuclear powerplantpxclimateaction-4168906_960_720Stærsta kjarnorkuver Evrópu er undir stöðugum skotárásum Úkraínuhers. Rússar hafa óskað eftir að Sameinuðu þjóðirnar og Alþjóða kjarnorkustofnunin skerist í leikinn. Án árangurs.

Falsfréttafjölmiðlar Vesturlanda hylma yfir herverk leppstjórnar NATO í Úkraínu eins og þeir hafa gert síðustu 8 árin. Þeir birta óbreytta hugaróra Zelensky sem segir að "rússneskir hermenn sem skjóta á eða í skjóli af orkuverinu verði "sérstök skotmörk" Úkraínuhers. Orkuverið er á yfirráðasvæði Rússa, undir þeirra stjórn og á þeirra ábyrgð, það er því ólíklegt að þeir skjóti á það! Svör Zelensky afhjúpa hverjir skjóta á orkuverið og hversu óábyrg og ómerkileg leppstjórnin í Kænugarði er.

https://www.bbc.com/news/world-europe-62537495


Þórdís stendur uppúr

skjaldarmerkiÞað óvenjulega hefur gerst að okkar ráðherra hefur sýnt sjálfstæði og framtak í utanríkismálum (þrátt fyrir ómarktækar pólitískar yfirlýsingar sem fyrirgefast). Þórdís utanríkisráðherra stendur uppúr söfnuði Norðurlandakrata sem vilja stríð við Rússland. Þórdís bauð fram friðarkraft frá Íslandi, sprengjueyðingu. Með því hefur Ísland sýnt staðfestu og friðarmenningu í verki.

Héruð Úkraínu sem eru byggð Rússum eru orðin löðrandi af jarðsprengjum og fiðrildasprengjum (samskonar og sprengja fætur af krökkunum í Afríku) frá NATO.

Þórdís vill ekki stöðva för venjulegra Rússa hingað þó kratakraðakið reyni það. (Mbl og Féttablaðið 12.8.2022).

Rússar munu muna eftir Þórdísi löngu eftir að stríðsmangarar NATO og ESB hafa flúið líkhraukana og vopnahaugana í Úkraínu og lippast heim með skottið á milli lappanna.


Tvær skýrslur á dag

koma skapinu í lag hjá skriffinnum EES!

LÍ

-"Bankinn sendir tvær skýrslur daglega  - eftirlitskröfur, sem eiga rætur að rekja til Evrópu, valda því að æ fleiri handtök inan bankakerfisins fara í að fylla út skýrslur og svara erindum frá eftirlitsstofnunum-" (Mbl hefur eftir bankastjóra Landsbankans 11.8.2022).

Það er ekki nema von að unga fólkinu gangi hægt að kaupa hús yfir höfuðið, bankarnir hafa allt annað að gera en að sinna þeim, og braskararnir fá að sprengja upp verðið á íbúðunum.

Íslenskum bönkum og öðrum fjármálastofnunum er stjórnað frá ESB samkvæmt sívaxandi haug af EES-reglum. Fjórar ESB-stofnanir fengu völdin yfir fjármálafyrirtækjunum, Fjármálaeftirlitið er umboðsaðili. Auk þess fengu ESA og EFTA-dómstóllinn (mamma og pabbi EES-óvitanna) aðfararhæft dómsvald hérlendis. Alþingi samþykkti það kinnroðalaust þó að það væri brot á stjórnarskránni.

Regluverk EES hefur reynst íslenskum bönkum herfilega. Frá 1994 til 2008 kom það af stað ofbólgu og útrásaræði sem endaði með Hruni.

ESB dylur ekki lengur ásóknina í völd yfir fjármálageiranum

 

Ath. Það er mjög óvenjulegt að hátt settir stjórnendur á Íslandi hafi kjark til að tala sannleikann um EES-samninginn, Lilja bankastjóri Landsbankans er undantekning.


Steinaldarlandbúnaður

sri-lanka-1037002_960_720Á Sri lanka hefur verið hungursneyð, bændur hafa verið látnir taka upp "lífrænan" landbúnað og fá ekki nægan tilbúinn áburð, uppskeran er því rýr. Hollenskir bændur eru næstir, þeir eiga nú að minnka losun gróðurhúsalofttegunda, sérstaklega hláturgass (köfnunarefnissýrings) með því að farga búfé og minnka áburðarnotkun. Kanadískir bændur sjá fram á þrot, leiðtogar landsins eru langt leiddir af loftslagsbábiljum og vilja að bændur fari í búhætti steinaldar. Þó hefur mistakastjórnin sunnan landamæranna vinninginn, hún ætlar að eyða 370 milljörðum í loftslagsvána!

Eins og lesendum Frjáls lands er kunnugt er engin loftslagsvá í aðsigi. Gróðurhúsalofttegundirnar svokölluðu, koltvísýringur og haugloft, frá mönnum hafa ekki mælanleg áhrif á loftslag, sama er að segja um köfnunarefnislofttegundirnar frá húsdýrum, ræktarlandi og áburði, þær verða að jurtanæringu í hringrás Jarðarinnar. Heilaþvegnir stjórnendur Sri lanka, ESB-Hollands, Kanada og Bandaríkjanna eru að reyna að koma á búskaparháttum steinaldar á fölskum forsendum. Þeir verða settir af.

En EES-samningurinn tryggir að röðin kemur að okkur að taka upp steinaldarbúskap.

Valdasjúklingar og gróðabraskarar World Economic Forum hafa tekið grænu tískuna í gíslingu og vilja koma á "Great Reset"-byltingu sem þýðir að við verðum að hætta að borða kjöt.


Ísland í stríð?

soldiers-1172111_960_720Á Ísland að taka þátt í stríði með ESB? Aðildin að EES og veik stjórn utanríkismála hefur flækt landið í vopnaflutninga til stríðs í Úkraínu. Þar eru NATO- og ESB-lönd vopnabirgjar, yfirstjórnendur, fjármagnendur, hernaðarráðgjafar, herþjálfarar, njósnarar, málaliðabirgjar og áróðursskáld. ESB ætlar nú að auka framlög til hermála um hundruðir milljarða evra.

Josep Borrell, utanríksimálastjóri ESB, segir: Innrás Rússa í Úkraínu hefur vakið okkur upp um öryggi og varnir ESB - vegna lítilla fjárfestinga er varnarmáttur okkar ónógur fyrir þær ógnir sem við stöndum frammi fyrir-

https://www.frjalstland.is/2022/05/31/evropusambandid-hervaedist/

Josep má ekki segja en það voru ESB- og NATO-aðilar sem ógnuðu Rússum og byrjuðu ófriðinn: Vopnuð árás NATO- og ESB- aðila með launuðum vígamönnum og öfgaskríl á löglega kjörin stjórnvöld Úkraínu hófust sama dag og Úkraína hafnaði aðild að ESB.

https://www.frjalstland.is/2022/05/05/bloduga-valdaranid-i-ukrainu/

Það hefur löngum verið best fyrir okkur að taka sem minnstan þátt í stríðsbrölti og lygaflækjum ESB-landa.

Bloggið skirfar Friðrik Daníelsson


Siðasta vígi lýðræðisins

clownpexels-photo-8172283Leikarar leppstjórnarinnar í Úkraínu segja að stríðið snúist um að verja lýðræðið! Falsfréttamiðlar Vesturlanda útvarpa gríninu. En lýðurinn í Úkraínu má sín lítils. Zelenskystjórnin hefur afnumið lýðræðið og bannað stjórnarandstöðuna. Úkraínskir menn eru settir fyrir framan byssukjafta Rússa. Og þegar þeir gefast upp skýtur Úrkaínustjórn sprengjum á búðirnar þar sem þeir eru í haldi. En hringja fyrst í Rússana og spurja hvort helv. svikararnir, sem eru að segja frá níðingsverkum í Donbas, séu ekki örugglega komnir í stríðsfangabúðirnar. Sprengjubrot amerísku HIMARS-sprengjanna eru í rústum Yelenovka-búðanna.

Fasistastjórnin í Úkraínu hefur nú framið hryðjuverk í átta ár. Það sem kallað er "her" Úkraínu eru hættulegar illverkasveitir sem skjóta amerískum og enskum sprengjum á íbúðahverfi í Rússahéruðum Úkraínu. Og risakjarnorkuverið í Zaporizhzhya. Flugskeytunum er reyndar stjónað beint frá Bandaríkjunum.

Það eru Bandaríkin og sendlarnir í NATO og ESB sem eru í stríði við Rússland. "Úkraínuher" ræður ekkert við rússneska herinn og hafa Amnesty International vararð við þeim:

"Úkraínuher hefur skapað almennum borgurum hættu með því að koma herstöðvum og vopnum fyrir inni í íbúðahverfum, þar eru skólar og sjúkrahús - Slíkar aðferðir brjóta alþjóða mannréttindalög og setja borgarana í hættu með því að breyta almannabyggð í skotmörk stríðsins-"

https://www.amnesty.org/en/latest/news/2022/08/ukraine-ukrainian-fighting-tactics-endanger-civilians/


Drottnun Vesturlanda að ljúka

fallensoldierspexels-photo-10550031Stríðið í Úkraínu hefur kallað fram andstöðu heimsbyggðarinnar við stríðsrekstur og afskipti Vesturlanda af málefnum þjóða heims.

Vesturlönd glata forustuhlutverkinu


Finnafjörður

oil rigpexels-photo-3207536er framtíðar staður stórskipahafnar við Bakkaflóa, aðdjúpur og hreinn af botnklettum. Þar verða birgðastöðvar fyrir gas og olíu frá Drekasvæðinu, Norður-Íshafi, Barentshafi, Grænlandi, Rússlandi og Færeyjum. Það er þess vegna óþarfa sóun á íslenskum landkostum að leggja þar höfn fyrir hernaðarbrambolt NATO

eins og einhverjum hefur dottið í hug. Hernaðarhöfn yrði bara aðdráttarafl fyrir sprengjur Rússa og Kínverja ef menn trúa óvinaímyndum NATO- og ESB-stríðsmangaranna.

Við Finnafjörð er dýrmætt land undir starfsaðstöðu og innviði (braskararnir eru farnir að leggja það undir sig). Þar verða auk birgðastöðva olíuhreinsunarstöð, petrokemisk stöð og þeirra framvinnslur. Það er ekki mjög langt í jarðhita Axarfjarðar, þarna gæti því vaxið upp fjölbreytt og mannmargt  (með innfluttum verkamönnum) atvinnusvæði.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband