Siðasta vígi lýðræðisins

clownpexels-photo-8172283Leikarar leppstjórnarinnar í Úkraínu segja að stríðið snúist um að verja lýðræðið! Falsfréttamiðlar Vesturlanda útvarpa gríninu. En lýðurinn í Úkraínu má sín lítils. Zelenskystjórnin hefur afnumið lýðræðið og bannað stjórnarandstöðuna. Úkraínskir menn eru settir fyrir framan byssukjafta Rússa. Og þegar þeir gefast upp skýtur Úrkaínustjórn sprengjum á búðirnar þar sem þeir eru í haldi. En hringja fyrst í Rússana og spurja hvort helv. svikararnir, sem eru að segja frá níðingsverkum í Donbas, séu ekki örugglega komnir í stríðsfangabúðirnar. Sprengjubrot amerísku HIMARS-sprengjanna eru í rústum Yelenovka-búðanna.

Fasistastjórnin í Úkraínu hefur nú framið hryðjuverk í átta ár. Það sem kallað er "her" Úkraínu eru hættulegar illverkasveitir sem skjóta amerískum og enskum sprengjum á íbúðahverfi í Rússahéruðum Úkraínu. Og risakjarnorkuverið í Zaporizhzhya. Flugskeytunum er reyndar stjónað beint frá Bandaríkjunum.

Það eru Bandaríkin og sendlarnir í NATO og ESB sem eru í stríði við Rússland. "Úkraínuher" ræður ekkert við rússneska herinn og hafa Amnesty International vararð við þeim:

"Úkraínuher hefur skapað almennum borgurum hættu með því að koma herstöðvum og vopnum fyrir inni í íbúðahverfum, þar eru skólar og sjúkrahús - Slíkar aðferðir brjóta alþjóða mannréttindalög og setja borgarana í hættu með því að breyta almannabyggð í skotmörk stríðsins-"

https://www.amnesty.org/en/latest/news/2022/08/ukraine-ukrainian-fighting-tactics-endanger-civilians/


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Fákunnátta þess er þennan pistil skrifar er með eindæmum, enda  þorir höfundur ekki að leggja nafn sitt við hann. Slíkt er venja fávitanna.

Hitt er svo stór spurning; hvernig stendur á því að umsjónarmenn þessarar síðu, sem kölluð er "Frjálst land", skuli heimila málpípum einræðisherra að vaða hér uppi?

Gunnar Heiðarsson, 6.8.2022 kl. 06:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband