Óþarfur EFTA-dómstóll

climbing_in_bureaucracy__alfredo_martirenaEin af blekkingunum um EES-samninginn er að Fríverslunarsamtökin EFTA hafi einhvers konar dómsvald um EES með svokölluðum EFTA-dómstól. Sannleikurinn er sá að dómstóllinnn hefur ekkert með EFTA að gera, hann er aðallega úrskurðar- og álitsnefnd um klögumál frá eftirlitsstofnuninni ESA, annarri dulbúinni EES-skrifstofu. Viðbótarhártogun er að dómstóllinn sé "alþjóðlegur"! Aðild að honum eiga eingöngu Noregur, Ísland og Liechtenstein þrátt fyrir að hann dæmi að lögum ESB. Fulltrúar þjóðanna þriggja eru "sjálfstæðir" sem þýðir á máli ESB að þeir mega ekki taka tillit til laga landsins sem þeir eru fulltrúar fyrir.

Gamall dómsforseti EFTA-dómstólsins fer nú með ásakanir gegn eftirmanni sínum og vænir hann um að hafa "glatað sjálfstæðinu" af því að hann gaf ríkisstjórn Íslands ráð í neyðarástandi Covid 19 sem orsaki að dómstóllin hafi nú minna vægi en áður. Greinilega hefur fortíðarþrá gripið gamla forsetann eftir þeim dögum þegar menn héldu að EFTA-dómstóllinn væri merkilegur. Dómar hans eru ekki aðfararhæfir, íslenskir dómstórlar geta sinnt verkefnum sem hann fær. Ásakanir gamla dómsforsetans gegn eftirmanni sínum eru ekki stórmannlegar en hafa blæ persónuárása gegn virtum íslenskum dómara og áróðurs fyrir EES-samningnum sem er orðinn jafn úreltur og "EFTA-dómstóllinn"


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) er ekki dulbúin heldur hefur skilgreint samningsbundið hlutverk sem er opinbert og öllum ljóst sem vilja vita það.

Aðild að að EFTA dómstólnum eiga ekki aðeins Ísland, Noregur og Lichtenstein, heldur einnig Evrópusambandið með öllum sínum 27 aðildarríkjum.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem samtökin "Frjálst land" byggja málflutning sinn á rangfærslum sem eru til þess fallnar að vega að EES-samningnum.

Ef þið viljið segja EES-samningnum upp ættuð þið bara að koma hreint fram með það í staðinn fyrir að setja fram stoðlausar upphrópanir (lýðskrum).

Frjálst land verður aldrei byggt á blekkingum.

Guðmundur Ásgeirsson, 5.8.2021 kl. 02:09

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Hárrétt, algerlega óþarft apparat

Halldór Jónsson, 5.8.2021 kl. 18:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband