Blómleg lygaverslun
4.1.2023 | 18:02
"Grænu" orkuframleiðendur okkar eru búnir að selja mikið af lygum handa orkufyrirtækjum í Evrópusambandinu og fá í staðinn lygar um að þeir framleiði "ógræna" orku hér heima. Til þess að fá "græna" orku (fallvatns-, jarðgufu-) verða nú orkukaupendurnir á Íslandi að fara að borga ein 20% aukalega, annars fá þeir bara "ógrænu" lygaorkuna og geta ekki boðið "grænar" afurðir lengur.
(Ath. öfugmæli í orðaforðanum, "græn" orkuver næra ekki grænkuna, það gera flest "ógræn" orkuver!)
Það kemur ekki á óvart að ESB leyfi lygasölu, sambandið starfar samkvæmt lygum að verulegu leyti. En að okkar almannafyrirtæki skuli leyfa sér að reyna að skrúfa upp orkuverð á Íslandi vegna lygakerfis ESB er til skammar og kallar á afnám EES-tilskipananna um orkumál og að þjóðhollir fagmenn verði settir til að sjá um orkukerfið.
https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1826270/?t=979941070&_t=1672851698.3712776
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)