Lokum iðnaðinum!
15.2.2020 | 12:38
Okkar ríkisstjórn vill ekki "mengandi stóriðju". Lokun eins helsta vinnustaðar landsins blasir við. Nú þegar allt er komið í óefni, eftir langa óstjórn og EES-rugl, skipar ríkisstjórnin einhverjar nefndir!
ESB/EES-reglukviksyndið mun verða áfram í gildi. Stjórnvöld okkar ætla ekki að senda orkufyrirtækjunum erindisbréf um ástæðu þess að þau fá að nýta orkuauðlindir þjóðarinnar. Þau munu því áfram leika sér í græðgisvæðingu ESB/EES-regluverksins og setja atvinnufyrirtæki landsins á hausinn.
Eyðilegging orkukerfisins tekur toll
Bloggar | Breytt 16.2.2020 kl. 00:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)