Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Landsölukonur?

handcuffs-964522_960_720Íslenskar konur eru sjálfstæðar, þær fengu frelsi, kosningarétt og sjálfstæði á 20. öldinni með frelsi Íslands frá evrópsku valdi (1904, 1918, 1944) sem þær tóku virkan þát í að berjast fyrir. En nú ber svo við, þegar konur hafa valist til valda, að þær ætla að lögfesta að evrópskt valdabákn fái löggjafarvald æðra valdi Íslendinga, Alþingis.

Ríkisstjórn Íslands, með konu í forsæti og konu sem utanríkisráðherra, ætlar að láta Alþingi samþykkja að EES-valdboð Evrópusambandsins séu æðri íslenskum lögum: "-Ef - lagaákvæði sem réttilega innleiðir skuldbindingu samkvæmt EES-samningnum er ósamrýmanlegt öðru almennu lagaákvæði skal hið fyrrnefnda ganga framar-" https://samradsgatt.island.is/oll-mal/$Cases/Details/?id=3399

Dætur okkar munu skammast sín um ókomna tíð ef konur verða til þess að koma þessu valdahrifsi yfir íslenska þjóð.

Það sem ríkisstjórn Íslands þarf aftur á móti að gera er að árétta við Evrópusambandið að Ísland er ekki lögbundið að lögleiða EES-valdboð (þó landsölumenn og konur haldi að svo sé) eins og Evrópusambandinu var gerð grein fyrir þegar samningurinn var samþykktur.

 


Fátæktarsambandið

homeless-man-4481594_960_720Evrópusambandið hefur þróast í fátæktarverksmiðju vegna bábiljustjórnmála.

Lengi hefur reglugerðaáþjánin og eftirlitsbáknið verið í vexti og hamlað efnahagnum. Misskilin umhverfisvernd og dillur um sjálfbærni hafa rifið niður orkukerfin með útbreiðslu vindmylla og sólarpanela, höft á notkun eldsneytis og lokun þróaðra orkuvera, allt byggt á undirmálsvísindum og bábiljum. En nú er farið að reyna að vinda ofan af mistökunum, vegna kreppuástands, og opna (gas-kola-kjarn-)orkuver aftur. Lélegum tækjum hefur verið vélað inn á almenning með miklum niðurgreiðslum sem teknar eru af skattfé sem almenningur greiðir. Settar eru náttúruspillandi og ofurþungar rafhlöður í bíla, hjól og fleiri tæki þar sem eldsneytisorka er langöruggasta, unhverfisvænsta og hagkvæmasta driforkan.

Og nú síðast hefur Evrópusambandið afhjúpað áform um að gera farþegaflugið of dýrt fyrir almenning með sköttum og flugvélaeldsneyti sem er frameiltt úr rusli og verður því óheyrilega kostnaðarsamt og óöruggt. https://airlines.iata.org/blog/2022/05/making-fit-for-55-fit-for-purpose Það setur Ísland í hlutfallslega einangrun vegna aðildarinnar að EES sem gefur Evrópusambandinu völd yfir flugmálum Íslendinga.

Tekjur fólks í stærstu Evrópusambandslöndum og Bretlandi eru langt undir því sem er í löndum utan ESB (Íslandi, Noregi, Liechtenstein). Fátækt er útbreidd í ESB, 95 milljónir manna, einn af hverjum fimm, glímir við fátækt. ESB kemur Íslandi í fátækt í krafti EES.


Á EES að slátra fluginu?

garbage-5400780_960_720Gáfnaljósin í Evrópusambandinu eru búin að skálda upp tilskipanapakka til þess að gera flug of dýrt fyrir almenning. Við sitjum í súpunni vegna hins glórulausa EES-samnings.

Flugfélögin eiga nú að borga enn meira (en ETS-kvótana sem þau eyða milljörðum í nú þegar) https://frjalstland.blog.is/blog/frjalstland/entry/2287193/  Og nú eiga þau að fara að nota "sjálfbært" eldsneyti úr rusli eða einhverju fjarstæðukenndu hráefni.https://airlines.iata.org/blog/2022/05/making-fit-for-55-fit-for-purpose

Eina eldsneytið sem kemur til greina að nota í farþegafluginu er með sömu samsetningu og núverandi jarðefnaeldsneyti (vetniskolefni C9-16H20-34), þróað og prófað í 80 ár. Það er hægt að búa það til úr "rusli" og fleiri kolefnisinnihaldandi efnum en orkuþörfin við það verður margföld á við orkuna sem fæst út, ósjálfbær eyðsla á orkuauðlindum Jarðar, hráefnisaðgengið ónógt og kostnaðurinn svo hár að eingöngu millar hafa efni á að kaupa flugmiða. Ekki bara draumórar umhverfistrúarsöfnuða og Evrópusambandsgáfnaljósa heldur martröð alls mannkyns.https://www.frjalstland.is/2022/02/11/orkuskiptin-eru-draumorar/

En okkar utanríkisráðuneyti hefur skorið upp herör gegn vitleysunni og hótar jafnvel að hafna tilskipanadræsunni alfarið. Það eru alveg ný tilþrif í sjálfstæðisbaráttunni:

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, segir að fyrirhuguð löggjöf ESB um flugferðir sé stærsta hagsmunamál Íslands frá upptöku EES-samningsins. Utanríkisþjónustan hafi farið í fordæmalaust átak til að reyna að hafa áhrif á löggjöf ESB. Sjálf hefur Þórdís talað við á þriðja tug utanríkisráðherra annarra landa vegna málsins en embættismenn hafa haldið yfir 100 fundi með ólíkum aðilum innan ESB vegna málsins.

Hún segir það aldrei verða samþykkt að samkeppnishæfni Íslands muni skaðast líkt og núverandi löggjöf sem samþykkt hefur verið í ESB ber með sér. https://www.mbl.is/frettir/innlent/2023/03/05/staersta_hagsmunamal_islands_fra_upptoku_ees/


Kanarnir komnir

sldierspexels-photo-280002E-6B Mercury þota Bandaríkjanna, sem er stjórnmiðstöð fyrir kjarnorkustríð, er komin til Keflavíkur. https://twitter.com/hashtag/Iceland?src=hash&ref_src=twsrc%5Etfw

Hermenn Bandaríkjanna eru komnir til Úkraínu til þess að berjast við Rússa með amerískum vopnum sem Úkraínumenn kunna ekki á. Það er ólöglegt samkvæmt amerískum lögum þar eð ekki er aðsteðjandi hætta fyrir Bandaríkin, þingið hefur ekki samþykkt það og ekki hefur verið lýst yfir stríði.

Það er að renna upp fyrir Bandaríkjamönnum hve örlagaríkt svindlið í síðustu forsetakosningum var sem leiddi hættulegan elliæran krata og hans hyski (þ.á.m. hergagnaiðnaðinn) til valda hjá leiðtogaþjóð hins vestræna heims. Hann hefur nú komið af stað stríði við Rússland með okkur í stuðningsliðinu.

Það stefnir  í að stjórnvöld Íslands verði að biðja Bandaríkin að fjarlægja sín tól frá Keflavíkurflugvelli og koma þar ekki aftur svo við lendum ekki á skotmarkalista fyrr kjarnorkusprengjur.

Lagaprófessorinn og dómarinn Andrew Napolitano lýsir glæfralegu athæfi Bidens og upphafi 3. heimsstyrjaldarinnar.

https://www.oann.com/video/oan-contribution/biden-is-reckless-to-send-u-s-troops-to-ukraine/


Hnignun Norðurlanda

víkingaskippexels-photo-8876098Norðurlönd voru einu sinni fyrirmynd smáþjóða heimsins um sjálfstæði og hlutleysi. Nú eru þau búin að tapa sjálfstæðinu og þau síðustu eru nú að tapa hlutleysinu og játast undir stríðsbandalag gömlu nýlenduveldanna. https://www.frjalstland.is/2023/02/22/hnignun-nordurlanda-nordens-forfall/


Þjóðin sóar fyrirtæki þjóðarinnar

_sing696825.jpgLandsnet var stofnað af þjóðinni með því að kljúfa fyrirtæki þjóðarinnar. Þjóðarfyrirtækið Landsvirkjun var klofið (og líka flís út úr Rarik og fleiri minni orkufyrirtækjum) og úr þeim búið til raflínufyrirtækið Landsnet sem skorti afl Landsvirkjunar og dröslast nú með slitnar raflínur þjóðarinnar. Allt í samræmi við EES-samninginn.

Og það er meira EES-rugl: Þjóðin afhenti Landsnet orkufyrirtækjum þjóðarinnar, sem Landsnet fékk eignirnar úr, til eignar.

Hægan, það er meira! Þjóðin keypti Landsnet af fyrirtækjum þjóðarinnar sem þjóðin hafði afhent þeim úr fyrirtækjum þjóðarinnar. Og til að fullkomna EES-ruglið er í bígerð að braskvæða Landsnet, afhenda það "fjárfestum" (lífeyrissjóðum, bönkum, bröskurum ofl.) upp í skuld.

Þannig slátra EES og máttlausir landstjórnendur mjólkurkúm þjóðarinnar og lauma gróðanum til gróðabrallara og þjóðin fær svo reikninginn í formi dýrari og stopulli orku úr auðlindum þjóðarinnar (Mbl 22.2.2023)


Joe í Kænugarði

peace-dove-2667123_960_720Joe dreif sig til Kænugarðs til þess að herða stríðsæsingarnar í leikaranum sem er búinn að fórna bestu hermönnunum sínum fyrir Joe og á nú fáa eftir.

Joe á einn mesta heiðurinn af að hafa komið að fasistískri leppstjórn NATO/ESB í Kænugarði 27. febrúar 2014. Leppstjórnirnar hafa síðan stundað dráp á Rússum Úkraínu með vopnum frá Joe.

Mistakaforsetinn bað grínleikarann þess lengstra orða að semja nú ekki frið við Rússa, menn mistakaforsetans (vopnaframleiðendur vestra) græða nefnilega á tá og fingri.

Heima í Washington voru á sama tíma mótmæli fjölda samtaka gegn stríðsrekstri Bandaríkjanna í Úkraínu. https://www.youtube.com/watch?v=iUvZQkLRpKM

Svo var enn ein "friðarráðstefnan" í Munchen, samkunda uppgjafa stríðsvelda þar sem aðalstríðsmangari Evrópusambandsins, Josep Borrell, sagði að fyrir friðinn væri nú mikilvægast að auka skotfæraframleiðsluna fyrir Úkraínustríðið. https://www.rferl.org/a/european-union-ammunition-russia-ukraine-war/32279406.html

Á sama tíma voru mótmæli í Munchen gegn vopnasendingum til Úkraínu. https://www.youtube.com/watch?v=A12Y80rupyA

Mótmæli gegn stríðsrekstri NATO/ESB í Úkraínu fá ekki mikið rými í meginfjölmiðlum NATO/ESB-landa, það sem kemur er blandað rangfærslum og áróðri.


Evrugildran

eu-flageurope-1045334_960_720Þjóðir geta sameinast um gjaldmiðil ef efnahagslegar og kerfislegar forsendur leyfa, einföld og sígild þekking um það hefur verið til lengi. Fávísir menn vildu láta Ísland "taka upp evru" í Hruninu, og sumir enn, það hefði þýtt að ESB-seðlabankinn í Frankfurt hefði tekið peningamálastjórnina yfir, þ.m.t. réttinn til penngaútgáfu. Íslendingar hefðu þar með misst stjórn á efnahagsmálum landsins. ESB-seðlabankinn stjórnar að mestu eftir hagsmunum stærstu landa ESB

Það vantar allar helstu forsendurnar fyrir að Ísland geti tekið upp evru.

Af 50 Evrópulöndum hafa 31 eigin lögeyri, 19 af 28 ESB löndum hafa tekið upp evru.

Evran hefur valdið efnahagshrörnun í sumum evrulöndum, þeim gekk yfirleitt betur með efnahagsmálin áður en evran var tekin upp. Áköll um að leysa evrusvæðið upp koma frá fræðimönnum og hagsmunaaðilum. https://www.ft.com/content/35b27568-f734-11e9-bbe1-4db3476c5ff0

https://dailynewshungary.com/governor-of-hungarys-central-bank-introducing-the-euro-was-a-mistake/


Af hverju stríð?

cesar-2766395_960_720"Allt sem Zelensky þurfti að gera var að hætta að ráðast á sjálfstjórnarlýðveldin í Donbas, þá hefði þetta aldrei gerst"

segir einn núlifandi afi ESB-valdsins, Silvio Berlusconi.

Árásir Kænugarðsstjórnarinnar hófust strax og hún fékk völdin eftir valdaránið í febrúar 2014 og hafa valdið fjöldadrápum á Rússum Donbas.

Zelensky gerði friðarsamninga við Rússland um Donbas, með ábyrgð Frakka og Þjóðverja. Hann viðurkennir nú að hann (les NATO og ESB) ætlaði aldrei að efna friðarsamningana

  Markmið NATO og ESB er að innlima Úkraínu, Zelenskystjórnin er núverandi leppur og stríðsverktaki þeirra, stjórnað frá Bandaríkjunum. Í ESB eru gamalreyndar stríðsþjóðir sem hafa oft hafið stríð gegn Rússlandi og alltaf tapað.

Ísland er dregið með í stríðsaðgerðir af því að við þorum ekki að standa fast á sjálfstæði og friðarstefnu Íslands.

Friðrik Daníelsson

 


Ríkisstjórnin í sjálfstæðisbaráttu

skjaldarmerkiNú eiga flugfélög á EES-svæðinu, Icelandair þar á meðal, að borga hærri koltvísýringslosunragjöld fyrir ferðir til Vesturheims gegnum Keflavík en flugfélög sem fljúga beint frá ESB vestur. https://www.europarl.europa.eu/news/en/press-room/20221205IPR60611/fit-for-55-deal-on-more-ambitious-emissions-reduction-for-aviation (atriði þessarar samþykktar sýna hve þing og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins er veruleikafirrt og föst í bábiljum og draumórum).

Ríkisstjórnin sér fram á að Ísland missi niður Vesturheimsflugið gegnum Keflavíkurflugvöll og að einangrun Íslands úti í hafi aukist. Hnignun Keflavíkurflugvallar blasir við https://www.mbl.is/frettir/innlent/2023/02/09/ottast_einangrun_og_hota_neitunarvaldi/

Losunarkerfi ESB (kallað ETS) kom upprunalega 2012 en þá voru sett ein verstu ESB-lög sem Alþingi hefur sett en íslensk stjórnvöld ákváðu að vera með í "samfloti" við ESB í loftslagsmálum vegna EES-samningsins. Það voru slæm og óþörf mistök, EES var ekki um loftslag. Samkeppnisstaða flugfélaganna hér versnaði með ETS og mun nú versna enn til muna ef nýju reglurnar ganga í gildi hér (Icelandair borgaði um 3 milljarða í kerfið 2012-2019)

Ríkisstjórnin biður ESB um undanþágur og hótar neitunarvaldi, það yrði í fyrsta skiptið í 29 ára sögu EES sem íslensk ríkisstjórn hafnar valdboðum Evrópusambandsins vegna EES. Með þessum tilþrifum ríkisstjórnarinnar er vonandi að hefjast nýr kafli í sjálfstæðisbaráttu smáþjóðarinnar. https://www.frjalstland.is/2021/01/13/ees-adildin-kostar-idnadinn-og-flugid-storfe/


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband