Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

EES-lirfur

worms-4277522_960_720"Hringrásarhagkerfi" EES/ESB kemur íslenskum heimilum í nýja atvinnugrein, lirfueldi. Kerfið er frá Brussum og á að vera til þess að sporna gegn loftslagsbreytingum en hefur þveröfug áhrif. Og afnemur hreinlæti íslenskra heimila (nánari upplýsingar og EES-tilskipunina má finna hér: https://www.frjalstland.is/2020/07/04/reglur-esb-um-urgang-henta-ekki-fyrir-island/ )

Það er glórulaust að flokka heimilssorp, það á að urða, örverur jarðvegsins brjóta það niður og breyta í jarðveg, meira að segja plastið brotnar niður með tímanum og það sem ekki brotnar niður verður skaðlaust umhverfinu og gefur ekki frá sér skaðleg efni. Önnur aðferð er að brenna heimilissorpinu. Fyrri aðferðin gefur af sér metan (haugloft)sem veldur ekki auknum gróðurhúsaáhrifum (þegar mettuð), seinni aðferðin gefur koltvísýring sem ekki heldur veldur auknum gróðurhúsðáhrifum (líka mettuð) en bætir gróðurvöxt.


Þar fór hreinlætið

pasturepexels-photo-440731Hreinlætið er nú að hverfa í ginið á Evrópusambandinu sem fyrirskipar flokkun heimilissorps. Allt í samræmi við aðstæður í ESB, þéttbýli og fátækt þar í löndum.

Við EES-undirsátar höfum nú fengið yfir okkur "hringrásarhagkerfi", eitt vitlausasta stjórnkerfi sem ESB/EES hefur ungað út og Alþingi stimplað í lög https://www.althingi.is/altext/stjt/2021.103.html

Kámugar hendur setja nú kámugar umbúðir í kámuga  dalla sem þvælast fyrir heimilismönum. Eldhúsið löðrandi eftir leka pappírspoka með matarleifum. Lyktin berst um allt hús. Flugurnar eru komnar. Hreinlætið er fyrir bí. Og hólfaskiptu nýju sorptunnurnar alltaf fullar. Og borgin tottar meiri peninga af okkur.

Plast-, pappírs-, pappa- og álumbúðir eru forsenda góðs nútíma hreinlætis. Rétta og umhverfisvænsta leiðin til að farga úrgangi frá þessari notkun er vel skipulögð urðun eða brennsla. Íslendingar senda út mikið af sorpi til eyðingar í öðrum löndum og borga fúlgur fjár þó hægt væri að urða eða brenna því hér.https://www.frjalstland.is/2022/11/27/utlend-sorphirda/


Við kjölturakkar

kjölturakki bulldog-1846380_960_720Forsætisráherrar Norðurlanda hittu Joe Biden eftir NATO-fundinn í Vilníus en þar hafði hann svamlað eins og hann er vanur og sagt að -"Rússland ætti að hætta sínum ómanneskjulegu árásum á Rússland-". Við norrænu ráðherrana sagði hann -"Putin þegar búinn að tapa-". Meira svaml kom út úr Joe enda reyna hanns fyrrum stuðningsmenn að losna við hann  https://www.currentaffairs.org/2023/02/democratic-voters-want-to-get-rid-of-biden-but-will-the-party-let-them

NATO- fundurinn í Vilnius gaf af sér 4000 blaðsíðna ógnvekjandi draumóra um heimsyfirráð og 300.000 manna viðbragðsher til þess að koma þeim á, Kína er næst á eftir Rússlandi á aftökulistanum.

Bandaríkin, ESB og NATO, sem hafa staðið að stríðsrekstri Úkraínuhers gegn Rússunum í Donbas síðan 2014, eru í raun búin að tapa stríðinu. Sjálfstjórnarhéruðin  í Austur- og Suður-Úkraínu hafa nú þegar ákveðið lýðræðislega að sameinast Rússlandi og obbinn af landsvæðum þeirra hefur verið frelsaður undar leppstjórninni í Kænugarði þó gríðarlegt verk sé eftir við að hreinsa upp vígvöllinn.

En norrænu kjölturakkar Bandaríkjanna voru smeðjulegir þegar þeir hittu Joe í Helsingfors og tóku undir stríðsæsingarnar og ræddu líka "loftslagsmál" (það er að segja hvernig á að afsaka meiri fjáraustur almannafjár í loftslagssvindlið meðan hafísinn nálgast, rostungarnir synda yfir vökina og miðsumarsnjórinn kælir).

Síðustu hlutlausu og sjálfstæðu Norðurlöndin eru að sogast inn í stríðsbáknið NATO sem stefnir framtíð norræns öryggis, sjálfstæðis og menningar í hættu https://www.frjalstland.is/2023/02/22/hnignun-nordurlanda-nordens-forfall/

NATO hefur í 74 ár herjað á óvini Bandaríkjanna og staðið í vegi fyrir samstarfi og eðlilegri þróun Evrópu og hefur með tilefnislausum stríðsæsingum einangrað okkur frá hinni öflugu og auðugu rússnesku Evrópu. NATO þarf að leysa upp sem gæti orið eftir eitt og hálft ár ef ábyrgur forseti kemur í Hvíta Húsið.

BLoggritari Friðrik Daníelsson


Saklaust fólk

baby-933097_960_720Meir en 3/4 landsmanna virðast leggja trúnað á umfjöllun fjölmiðla um Úkraínustriðið meðan minna en 1/3 íbúa nágrannalanda Úkraínu, Slóveníu og Ungverjalands, trúa fjölmiðlum samkvæmt könnun NATO.

NATO hefur verið að hugsa um að stofna útibú í Asíu. Fyrrum forsætisráherra Ástralíu, Paul Keating, segir: NATO hélt áfram eftir að Kalda Stríðinu lauk og hefur þegar komið í veg fyrir að friðsamleg samvinna tækist innan Evrópu. Að flytja það illkynja æxli til Asíu væri ígildi þess að Asía byði heim plágu. Aðalritari NATO, Jens Stoltenberg, er æðsta flón og erindreki Ameríku"- https://english.news.cn/asiapacific/20230710/a04a0237594c4fe8922ffb3c560d200b/c.html

 


Grænjaxlar.

nato-26848_960_720EUflag-3370970_960_720

 

 

 

 

NATO gerði könnun meðal aðildarríkja og fékk fram að mikill stuðningur er við klúbbinn og mikill stuðningur við stríðsreksturinn í Úkraínu og mikið hatur á Rússum. Og það sem er merkilegast, NATO-könnunin sýndi að stór hluti trúir umfjöllun meginfjölmiðla um stríðið og að Íslendingar eru manna trúgjarnastir. Grænjaxlar!

https://www.nato.int/nato_static_fl2014/assets/pdf/2023/7/pdf/2300707-pre-summit-research-2023.pdf

"Könnun" gerð af NATO um sitt eigið ágæti og sín eigin stríð er álíka trúverðug og svörin sem kvalararnir fá frá föngunum í Gvantanamo.

Forsprakkar NATO hittast nú ekki langt frá þar sem þýska riddarareglan var gersigruð af Pólsk-Litháiskum her fyrir sex öldum. Markmiðið er að undirbúa innlimun Úkraínu í NATO og ESB og leggja drög að heimsstyrjöld vopnaframleiðendanna. https://english.news.cn/asiapacific/20230710/a04a0237594c4fe8922ffb3c560d200b/c.html Bandaríkjamenn segja að betra sé að sprengja fæturna af krökkunum með klasasprengjum en að láta Rússa vinna stríðið (Rússar áttu stærstan þátt í að vinna síðasta stríð og forða núverandi NATO-löndum frá Nasistum). En forseti Þýskalands hefur ekki í hyggju að mótmæla klasasssprengjum til Úkraínu þó hans land hafi samþykkt klasasprengjubannið.

Lærdóm er hægt að draga af þessu: Meginfjölmiðlum Vesturlanda hefur tekist að halda lifandi tilefnislausu hatri á Rússum og hvítþvotti um landvinningahernað NATO og ESB í Úkraínu sem er nú að verða 10 ára. Íslenskir fjölmiðlar standa sig greinilega vel í áróðrinum gegn Rússlandi og sjá til þess að stór huti landsmanna lifir í lygi stríðsmangara NATO og ESB.


Grínleikari Heljar

apocalypse-6559868_960_720Úkraínuher, NATO og ESB, hafa verið að skipuleggja sprengjuárás til þess að koma af stað stórslysi geislamengunar í stærsta kjarnorkuveri Evrópu í Zaporozhie. Nýnasistastjórnin í Kænugarði er búinn að tapa stríðinu gegn Rússunum í Donbas og einbeitir sér nú að hryðjuverkum. https://tass.com/politics/1642779

Zelenski, sem leikur núna forseta Úkraínu á vegum NATO og ESB, sendir sína hryðjuverkamenn vítt og breitt til þess að fremja dráp og gera árásir á almenning í rússneskum héruðum. Eyðilegging á mannvirkjum, vatnsorkuverum í Dnépr og brúm á Krím, eru gerðar undir stjórn NATO/ESB. Og jafnvel líka valdaránstilraunir málaliðaforsprakka.

Fjölmiðlar á Vesturlöndum þegja þunnu hljóði um hryðjuvrk Úkraínustjórnar nema þegar hægt er að ljúga þeim uppá Rússa. Kænugarðsstjórnin hefur í meir en ár reynt að skemma kjarnorkuverið í Zaporozhie, sem er undir stjórn Rússa, og tekist að kenna rússneska hernum um árásirnar (þótt NATO-sprengjubrot finnist á staðnum) með aðastoð lygaverksmiðjanna og fjölmiðla í NATO/ESB. En nú á að gera skurk og koma af stað stórslysi og kenna Rússunum um.

Kænugarðsstjórnin notar nú vopnin frá NATO/ESB til þess að drepa rússneska borgara í Donbas og Rússlandi. Fréttir af því berast okkur ekki vegna þess að falsfréttamiðlar NATO/ESB þegja þunnu hljóði um það en flytja okkur æfðar og leiknar rangfærslur um vonsku Rússa.

Mesta hætta sem steðjar að okkur er hernaðarrekstur NATO/ESB í sögulegum lendum Rússa sem hafa (kjarnorku)vopn til að leggja Vesturevrópu í rúst. https://www.youtube.com/watch?v=1BTDkCWN3pc

Bloggskrifari Friðrik Dníelsson


Sæluríki barnanna

Leopardtank-2892790_960_720Orka og matur hækka stöðugt í verði í Evrópusambandinu sem veldur því að vaxandi fjöldi barna lifir í fátækt. https://www.unicef-irc.org/publications/1787-children-and-the-cost-of-living-crisis-how-food-and-energy-inflation-has-increased-poverty-in-households-with-children-in.html

Sefna ESB í orkumálum, bygging óhagkvæmra orkuvera og lokun hagkvæmra, veldur stöðugum verðhækkunum orku sem bitnar á fátækum og verst á börnunum. Matvælaframleiðlan verður kostnaðarsamari. Um 100 milljónir fátæklinga eru í ESB og um 20 milljón börn eru í fátækt.

https://www.dw.com/en/1-in-4-children-at-risk-of-poverty-in-europe-report-says/a-64904952

Dýrustu baráttumál Evrópusambandsins eru s.k. loftslagsmál sem eru utan valdsviðs sambandsins en kosta himinháar upphæðir, og hernaður gegn rússneskum íbúum Donbas sem kostar margfalt það sm þarf til að halda börnunum nærðum. Stjórn ESB langar að stela 200 milljörðum dala af Rússum, sem þegar er búið að "frysta". Ekki er líklegt að það fé fari í börnin heldur í vorpnaframleiðendurna. https://www.frjalstland.is/2023/07/01/fataektarmenning/


Fátæktarmenning

garbage-4252118_960_720Virkjanaframkvæmdir stöðvaðar. Hvalveiðar bannaðar.

Sendiherra viðskiptaþjóðar rekinn ur landi. Skattaokur á eldsneyti. Íslendingar gerðir að ruslaflokkurum eins og börn á ruslahaugunum í fátækum löndum.

Sértrúarsöfnuðir í nágrannalöndum Íslands hafa komist til pólitískra valda og innleiða nú sínar bábiljur. Ísland hefur smitast og fengið yfir sig fátæktarmenningu sem leiðir af sér sóun auðlinda, mengun og umhverfisspjöll.


NATO vill heimsstyrjöld

segir Jeffrey Sachs, prófessor við Columbia háskólann og einn virtasti hagfræðingur Bandaríkjanna https://www.youtube.com/watch?v=Y-C9Un-uHD0

end-time-1539429_960_720

 

 

 

 

 

 

 

 Bloggið skrifar Friðrik Daníelsson


Kúaloftslag

cowsÍrskum kúm, 200.000, verður slátrað til þess að uppfylla "markmið Evrópusambandsins um kolefnishlutleysi".

Írar hafa lengi verið trúhneigðir og virðast nú hafa snúist til villutrúar umhverfisverndarloddaranna. Fyrirætlanirnar eru svo vitfirrtar að Elon Musk og bændur eru farnir að sýna vígtennurnar. https://www.foxnews.com/world/elon-musk-farmers-torch-ireland-government-proposal-slaughter-200k-cows-meet-eu-climate-change-goals

Loftslagssvindlið, sem Evrópusambandið er einn helsti rekstraraðilinn að, segir haugloftið (metanið) sem kemur úr meltingarvegi kúnna valda hlýnun loftslags. Raunin er auðvitað að grasið brotnar niður og gefur af sér metan hvort sem er í maga kúnna eða ónotað í jarðveginum á túninu.

Eins og lesendum Frjáls lands er kunnugt hefur metanlosun frá mannsathöfnum hverfandi áhrif á loftslag. Metanið sem er nú í lofthjúpnum (heil 0,00019%) tekur nú þegar upp alla varmageislun sem metan á annað borð getur tekipð upp en það er á bylgjulengdunum 3,3 og 7,7 míkrón. Varmatapið úr lofthjúpnum er mest um 10 míkrón sem metanið getur ekki fangað. https://www.frjalstland.is/loftslagsvisindi-hrjad-af-folsunum/ 

Metanið ildist í koltvísýring og verður þannig fæða lífhjúps Jarðar. Hringrás koltvísýrings og metans á Jörðinni er tröllvaxin og milljarða ára gömul og utan áhrifasviðs mannkyns. "Kolefnishlutleysi" er hugmynd heimskra manna og svindlara sem valda- og peningagráðugir menn nýta sér til að kúga venjulegt fólk og spilla viðurværi þess.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband