Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Vindmylluvá

windmills in seapexels-photo-2645343Grænu fyrirtækin fara í þrot þegar þau fá ekki nóg almannafé.

Þau heimta stöðugt meiri ríkisstyrki, eitt það stærsta, Siemens Gamesa sem byggir vindmyllur við strönd, vantar milljarða til þess að fara ekki á hausinn. Fjárfestar setja aðeins fé í vindmyllur þegar tryggt er að almannasjóðir borgi tapreksturinn og tryggi þeim gróða. Auðblekktir ráðamenn moka óaflátlega fúlgum af almannafé í græn verkefni

Smám samarn er reynsla að safnast. Vindmyllur eru ekki aðeins lélegar og dýrkeyptar heldur spilla þær umhverfinu, geta haft vond áhrif á fisk og hval séu þær í sjó. https://www.foxnews.com/politics/massive-green-energy-company-reports-1-billion-losses-calls-further-governmental-action

Vindmyllur eru hættulegar og geta hrunið eins og spilaborgir. https://www.bloomberg.com/news/articles/2023-01-23/wind-turbine-collapses-punctuate-green-power-growing-pains?leadSource=uverify%20wall

Grænir draumar geta valdið miklum skaða verði reynt að láta þá rætast. https://www.frjalstland.is/2023/01/30/hver-borgar-orkudraumana/


Sósueftirlit

eu-flageurope-1045334_960_720Samkeppniseftirlitið fær stöðugar skammir fyrir að stoppa samruna og hagræðingu fyrirtækja, matvælaframleiðenda í þessari lotu. En það er ekki við Samkeppniseftirlitið að sakast, það starfar bara eftir samkeppnislögum frá ESB sem Alþingi varð að samþykkja vegna EES. Það þýðir ekkert að kvarta í íslensk stjórnvöld, þau ráða engu, kvartanir sendist til Brussel. Evrópusambandið og EES-yfirvaldið (ESA og EFTA-dómstóllinn, EFTA óviðkomandi) geta sektað, stefnt og látið dæma íslensk fyrirtæki fyrir að brjóta EES-samninginn ef þau hlýða ekki Samkeppniseftirlitinu.

Samkeppnislögin eru gerð fyrir staðnað risahagkerfi Evrópusambandsins, 1000-sinnum stærra en það íslenska, þau eru gróft brot á stjórnarskrá íslenska lýðveldisins. https://www.althingi.is/lagas/nuna/2005044.html

https://www.frjalstland.is/2021/04/01/samkeppniseftirlitid-skadar-samkeppnishaefnina/


Mannasmygl og námsferðir

swedish-flag-3994042_960_720Nefndir Alþingis ættu að drífa sig til Rosengård í Málmey eða Norrmalm í Stokkhólmi og læra á innflutning smyglfarþega frá þróunarlöndum. Sænska löggan veitir örugglega lögregluvernd. https://www.visir.is/g/20232359164d

Ein Alþingisnefndin fór til Skotlands og lærði á vindmyllur (tapfyrirtæki) og vetni (stórslysagas). Alþingisnefnd til Svíþjóðar gæti lært á orkumálin þar í leiðinni en búið er að spilla orkukerfinu með vindmyllum og lokun kjarnorkuvera svo orkan er orðin of dýr og orkuskortur vaxandi. Það er, eins og við mátti búast, hin ónýtu stjórnkerfi ESB, Schengen og orkulög Brussel, sem valda hnignuninni en Svíar lentu slysalega í ESB (Íslendingar lentu í EES) árið 1994. https://www.frjalstland.is/2022/09/15/orkukreppa-esb-er-skollin-a-norurlond/


Falsfréttadreifarar

soldiers-1172111_960_720Hildur Þórðardóttir flettir ofan af falsfréttastofum sem móta skoðanir okkar hér á Vesturlöndum (MBL 4.2.2023). Undir hulunni blasir við ógleðivekjandi vefur lygaverksmiðja, áróðursmiðstöðva  og "upplýsingaþjónusta" sem búa til fréttir til þess að fegra hernað á vegum NATO og leppstjórna þeirra. Þessar lygasmiðjur hafa komið sér inn hjá falsfréttastofum, Reuters, AP og AFP sem okkar "hlutlausa" þjóðarútvarp RÚV (og líka ríkisútvarpsstöðvar á Norðurlöndum) lepja gagnrýnislaust upp, fréttir af manndrápum þeirra vondu sem berjast á móti góðu strengjabrúðum NATO.

NATO-lönd eru með skáld á launum, t.d. er Bandaríkjastjórn (Pentagon, CIA) með tugi þúsunda sem framleiða falsfréttaefni og stöðva sannar fréttir frá hernaðaríhlutunum NATO og leppa á þeirra vegum og Bretar eru líka með "task force" sem sér um að framleiða lygar um Rússa og MI5 framleiðir áróður fyrir manndrápum og ránum á vegum NATO (í Sýrlandi, Angóla, Úkraínu og mætti bæta við Afganistan, Myanmar, Libíu, Palestínu, Írak, Íran, Jemen og mest allri Suðurameríku).

Sjálfstæðir óháðir fréttamenn komast lítið að hjá meginfjölmiðlum Vesturlanda. Lygar valdhafa skulu vera sannar!


Úkraínustríðið afhjúpað

pinocchio-2917652_960_720Tucker Carlson, þekkti bandaríski sjónvarpsmaðurinn, afhjúpar helstu stríðsmangarana og lygarana um Úkraínustríðið, Boris Johnson, Lindsey Graham og Jo Biden eftirminnilega. Úkrainustríðið er í andstöðu við fólkið á Vesturlöndum, rekið áfram af óábyrgum stjórnmálamönnum og óáreiðanlegum nýfrjálshyggjumönnum sem leggja Vesturlönd undir hættu á kjarnorkustríði. Felskjan, blekkingarnar og lygarnar staflast upp: Lindsey Graham styður Úkraínustríðið en segist styðja Donald Trump sem er á móti Úkraínustríðinu og líklegur til að leggja NATO niður en það er einmitt NATO sem er verkfæri stríðsmangaranna til að reka stríð gegn Rússum.

https://www.foxnews.com/video/6319620761112

Í dag, 2. febrúar, eru 80 ár síðan Rússar gersigruðu her frá Vestur-Evrópu, Þýskalandi, og fórnuðu yfir milljón Rússum.


Múgur og margmenni

oldwindmillpexels-photo-6559426gengur með drauma um að reisa vindmyllur og framleiða "vistvænt eldsneyti". Gaman gaman! Meira að segja þeir sem litla þekkingu hafa á orku- og efnaframleiðslu ætla að hjálpa loftslagssvindlurunum að leggja orkukerfið í rúst! https://www.frjalstland.is/2023/01/30/hver-borgar-orkudraumana/

 


Norðmenn finna auðæfi

oil rigpexels-photo-3207536Á botni Noregshafs og Grænlandshafs er að finna gífurlegt magn af verðmætum málmum: Eir, zink, gull, magnesium ofl. Og "reykstromparnir" á Mið-Atlantshafshryggnum dreifa um sig súlfíðum verðmætra málma. Þetta segja Norðmenn. https://www.reuters.com/markets/commodities/norway-finds-substantial-mineral-resources-its-seabed-2023-01-27/

Það hefur lengi verið vitað að gamalt berg eins og er í landgrunni Noregs og Grænlands og að hluta Íslands, inniheldur verðmæta málma. "Reykstrompar" (hverir á hafsbotni) eru margir í lögsögu Íslands og blása út súlfíðum. Norðmenn eru orðnir sjóaðir í að nýta auðlindir hafsbotnsins og ætla nú að bæta verðmætum málmum við olíuna og gasið.

Okkar stjórnvöld ætla að banna leit að "kolvetnum" (auðvitað er átt við vetniskolefni, olíu og gas) til þess að þjónkast "loftslagsstefnu" EES/ESB. Það er því ekki líklegt að við komumst heldur í aðrar auðlindir á hafsbotni. En við getum kannske unnið með Grænlendingum og fengið sneið af kökunni þeirra þangað til við fáum Alþingi og ríkisstjórn sem kunna að vinna að hagsmunum Íslenskrar þjóðar og byggja upp landið til frambúðar en ekki með skammlífri tísku um kolefnishlutleysi, vindmyllur, vistvænt eldsneyti og rafhlöður https://www.frjalstland.is/2022/02/11/orkuskiptin-eru-draumorar/.

 


Þýsku skriðdrekarnir komnir aftur

Leopardtank-2892790_960_720Á steppum Rússlands æddu þýsku skriðdrekarnir fram og slátruðu Rússum í seinni heimsstyrjöldinni. Rússar hafa frá æsku séð myndir og heyrt sögurnar frá Föðurlandsstríðinu gegn Nasistunum, tilfinningin nú að fá aftur þýska skriðdreka vekur upp minningarnar um glæp Þýskalands gegn Rússnesku þjóðinni. Hatrið og reiðin eykur baráttuviljann gegn Úkraínsku leppum Evrópusambandsins og NATO sem hafa herjað á rússnesku íbúana austur við Donets ána í 9 ár.

Reiði Rússa er ekki bara hættuleg þýsku undirlægjum Bandaríkjanna heldur allri heimsbyggðinni. Bandaríkjamenn og Þjóðverjar sem vit hafa, en þeir eru margir, verða nú að koma til skjalanna og láta Joe og Olaf hætta að dæla drápstólum í hættulega fasistíska leppstjórn í Kænugarði og samþykkja að setjast að samningaborði. Að öðrum kosti gæti komið síðasta heimsstyrjöldin. https://www.newsweek.com/trump-warns-nuclear-war-over-west-sending-tanks-ukraine-1776855


Námskeið í kreppugerð

oldwindmillpexels-photo-6559426Ein Alþingisnefndin dreif sig til Skotlands til að læra á orkuskipti, rafbílaumferð og fleiri aðferðir til þess að búa til kreppu.

Bretar eru orðnir svo færir í kreppugerð að fólk króknar heima hjá sér, og jafnvel í rafbílunum, margir eiga varla fyrir mat. https://www.frjalstland.is/2022/04/03/vaxandi-fataekt/

https://www.nytimes.com/2022/12/24/business/britain-energy-crisis-responders.html

En það er til olía, gas og kol í breskri lögsögu en lofslagssvindlararnir hafa komið því til leiðar að vinnsla þeirra hefur verið bremsuð. En þó er nú loksins byrjað að opna gaslindir undan strönd Skotlands til að bjarga einhverju.

Grænjaxlarnir með kolefnishlutleysið, rafbílamistökin og vindmyllutískuna eru orðnir Skotlandi dýrkeyptir. Vindmyllurekendurnir lifa á almannafé og skila stopulli og óhagkvæmri orku. Og fá borgað frá skattgreiðendum  fyrir að slökkva þegar nóg er af orku!. Í fyrra, 2022, þurfti að borga vindmyllueigendum nærri kvartmilljarð punda fyrir að framleiða ekki orku!

"Hvort sem er fyrir algera vanhæfni eða skammarlegt blygðunarleysi hafa ríkisstjórnin, National Grid og Ofgem, komið á orkukerfi sem leyfir framleiðendum endurnýjanlegrar orku að hlunnfara neytendur til hægri og vinstri. Þeir virðast fyrirlíta bresk heimili og fyrirtæki".

https://www.netzerowatch.com/payments-for-windfarms-to-switch-off-soar-to-quarter-billion-pounds/


Landvinningastríð

war-5064697_960_720Evrópusambandið hefur lengi stefnt að innlimun Úkraínu. Samningatilraunir voru gerðar 2012 en löglega kjörin stjórn landsins ákvað í nóvember 2013 að hafna aðild að ESB. Þá frömdu Bandaríkin og ESB blóðugt valdarán og komu leppstjórn til valda sem hóf ofsóknir gegn rússneskum borgurum landsins.

Valdaránið og óeirðirnar fengu nafnið Euromaidan og voru kynnt á Vesturlöndum sem mótmæli gegn stjórn Úkraínu en voru vel undirbúið vopnað valdarán. Victoria Nuland, aðstoðarutanríkisráðherra Barak Obama, sá um framkvæmdina og að borga byssumönnunum en fleiri komu að. Fasistahreyfingar Úkraínu, s.s. Right Sector, Fatherland, Svoboda, Azov herfylkið tóku þátt og studdu leppstjórnina sem hóf strax 2014 árásir á rússnesku héruð landsins. Vestrænir fjölmiðlar hafa þagað kirfilega um þau illvirki. https://www.frjalstland.is/2022/05/05/bloduga-valdaranid-i-ukrainu/

Þegar Rússar loksins skárust í leikinn með löndum sínum í austurhéruðum Úkraínu höfðu 14000 manns verið drepnir. Friðarsamninga, sem gerðir voru í Minsk, ætluðu ESB og leppstjórnin aldrei að efna en voru aðeins til þess að fá tíma til að vopnavæða Úkraínu fyrir stríðið við Rússland, samkvæmt vitnisburðum þáverandi leiðtoga ESB, Francois Hollande og Angelu Merkel.

ESB og NATO reka stríðið í Úkraínu með tröllvöxnum vopna- og hergagnasendingum, hermönnum, njósnum, skotmarkaauðkenningum, skemmdarverkum og morðum utan Úkraínu, fjármagni og áróðri.

Gífurlegum fjármunum hefur verið stolið af Rússum, kallað að "kyrrsetja" og hefur verið gert við önnur lönd sem ESB og NATO hafa ráðist á. Glæpsamlegar refsiaðgerðir gegn Rússum hafa náð út yfir allt sem siðaðar þjóðir hafa hingað til talið sér sæmandi og hafa komið öllum illa.

Gáfnafarið hjá forustumönnum ESB og NATO virðist ekki duga til að skilja að verið er að æsa stærsta kjarnorkuveldi heims til stórstyrjaldar sem er ógn við allt mannkyn. Rússum finnst rússnesku héruð Úkraínu eiga að vera hluti af Rússlandi eins og þau voru. Þeir munu því aldrei samþykkja að leppar ESB og NATO ráði þeim. Rússar tapa ekki stríðum en þeir hafa þurft að fórna milljónum manna til að hrinda árásum landa sem nú leiða ESB og auglýsa sig sem "friðarbandalag" en hafa nú sýnt sitt rétta andlit.

Mikils misskilnings gætir hér á Norðurlöndum og víðar á Vesturlöndum um Úkraínustríðið vegna einhliða áróðurs og gamlagróins ofsóknarbrjálæðis gegn Rússlandi sem þó hefur aldrei að fyrra bragði ráðist á norrænutalandi þjóðir. Úkraínustríðið er ekki "tilefnislaus árás Rússa" eins og CIA, MI5, stríðsmangarar og falsmiðlar Vesturlanda segja heldur landvinningastríð með að markmiði að innlima Úkraínu í ESB og NATO.

Bloggið skrifar Friðrik Daníelsson


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband