Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Allar gleðikonur bókaðar
17.1.2023 | 15:57
Kaffifundur laumufélagsins sem vill ráða okkar málum og breyta Jarðarbúum í þögula fátæklinga sem trúa lygum þeirra, er nú í Alpafjöllum.
Þar mæta auðmenn (þ.á.m. skemmdarverkafjárfestar, vopnaframleiðendur, stríðsmangarar, bankaeigendur, loftslagssvindlarar og þrælahaldarar), hagfræðiprófessorar og bábiljustjórnmálamenn. https://public.substack.com/p/davos-is-a-grift-and-a-cult-but-its
Kannski gætir þú fengið að koma og kíkja einhvern tíma en hafðu með þér 4 milljónir til að borga inn. Reyndar munu flestir helstu þjóðarleiðtogar skrópa á þennan fund enda aðallega um loftslagssvindlið og mögulega smá um Rússagrýluna (Úkraínuleikari kallar fram tár). Líklega eru margir þjóðarleiðtogar farnir að átta sig á að draumaheimur afætanna verður aldrei annað en draumaheimur. Og svo eru allar gleðikonur þegar bókaðar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ekki allir ragir
16.1.2023 | 20:04
Það eru akki allir jafn huglausir og okkar stjórnvöld sem þora ekki að gagnrýna okkar "bandamenn" fyrir stríðsmang. En það þorir Zoran Milanovic, foreti NATO-landsins Króatíu og nýjasta Evrópusambands-landsins:
"Bandaríkin og NATO eru þátttakendur í leppstríði gegn Rússlandi á landsvæði Úkraínu - Markmiðið ætti ekki að vera að losna við Putin, markmiðið ætti ekki að vera refsiaðgerðir, refsiaðgerðir eru fáráðnlegar og skila okkur engum árangri. Þeir (Bandaríkin og NATO) gátu ekki einu sinni sigrað Milosevic, þeir fara úr einu stríði í annað. En hvernig ætti mér að líða, eins og þræl Ameríku?"
bloggskrifari Friðrik Daníelsson
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sjálfbær sjálfsblekking?
14.1.2023 | 22:15
"Sjálfbær" er eitt af tískuorðunum, þeir sem nota það mest, t.d. Evrópusambandið, skilgreina það rangt og gefa út tilskipanir gegn eldsneyti, skriffinnahjörðin og stofnagíslar þeirra dreifa bábiljum um að "gróðurhúsalofttegundir" frá brennslu manna hiti upp loftslagið og eldsneytisnotkun sé því ekki "sjálfbær".
Það eru engar mannsathafnir fyllilega sjálfbærar. Virkjanir úreldast, borholur tæmast, vindmyllur, sólorkuver og rafhlöður gefa stopula og dýra orku og eru skammlíf og allt of auðlindafrek að endurvinna, taka upp verðmæt landflæmi og valda umhverfisspjöllum. https://www.frjalstland.is/2021/10/08/vindmyllur-og-orkukreppan/
Jarðgs (jarðefnaeldsneyti) endurmyndast aftur á móti í iðrum Jarðar m.a. úr koltvísýringnum frá brennslu þess, sjórinn tekur hann upp og myndar set sem fer (á löngum tíma) niður í Möttulinn þar sem jarðgasið myndast. En það er grænka jarðar sem tekur obbann af koltvísýringnum, þeim mun meira sem meira er af honum. Aukningin stöðvast því með tímanum.
Framleiðsla, samgöngur, byggingar þurfa orku, "gróðurhúsalofttegundirnar" sem mannfólkið blæs út fara ekkert, þær ganga í hringrásir á Jörðinni sem hvorki gáfnaljós Evrópusambandsins né Sameinuðu þjóðanna geta stjórnað þó haldnar yrðu milljón Parísarráðstefnur.
Jörðin okkar er "sjálfbær" þó Evrópusambandið sendi Alþingi langhundasvaml (EES-tilskipanir) um að fjárfesta nú í "sjálfbærri" starfsemi (sem lendir svo í fangi skattgreiðenda fyrr eða síðar).
https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/PDF/?uri=CELEX:32020R0852&from=EN
https://www.althingi.is/altext/153/s/0463.html
Stjórnmál og samfélag | Breytt 15.1.2023 kl. 20:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
EES 30 ára
12.1.2023 | 14:31
Þennan dag fyrir 30 árum samþykktu 33 af 63 alþingismönnum tilskipanavald Evrópusambandsins yfir Íslandi með sk. EES samningi sem batt enda á hálfrar aldar óskorað fullveldi og sjálfstæði Íslands.
https://www.frjalstland.is/2023/01/12/ees-30-ara/
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Má segja okkur satt um Úkraínu?
9.1.2023 | 18:52
-"Að halda því fram að stríðið í Úkraínu snúist um lýðræði og málfrelsi er vægast sagt furðulegt. Forseti Úkraínu hefur fangelsað stjórnarandstöðuna, bannað frjálsa fjölmiðla og - bannað allan fréttaflutning sem ekki passar inn í opinberu sögurnar frá áróðursráðuneytinu. Sjálfskipaðir þjóðernishreinsunarhermenn hafa tekið völdin og fremja þjóðarmorð á minnihlutum-
-Allar þessar þrjár konur (Matilde Kimer, Alina Lipp, Eva K. Bartlett) eru dæmi um hugrakkt alvörufréttafólk sem finnst sannleikurinn mikilvægur. Sem fer á svæðið og tekur viðtöl við fólk og tekur ekki fréttir úr sögulegu samhengi til að réttlæta málstað. En kannske er skiljanlegt að venjulegt íslenskt fréttafólk vilji frekar þýða beint texta áróðursráðuneytis Úkraínu en að skrifa sannleikann og eiga á hættu að lenda á dauðalista leyniþjónustunnar".
https://www.mbl.is/mogginn/bladid/grein/1826781/
Stjórnmál og samfélag | Breytt 10.1.2023 kl. 01:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fátækraborg
8.1.2023 | 13:32
"Borgarbúar samnýti bílana" (Pawel Bartoszek, Mbl 7.1.2023). Fækka bílastæðum, draga úr bílaumferð, þétta byggð. "Bíllaus lífstíll" (eins og á 19. öld) í nýhönnuðum hverfum Reykjavíkur og liðastrætó (borgarlína) milli biðskýla.
Bara millar úr Garðabæ hafa efni á að kaupa dísil og bensín, verðið er orðið að mestu gjöld og of hátt fyrir fátæklingana. Einfeldningar og borgarstjórnin trúa upphrópunum skriffinna um hættur af mengun frá dísil- og bensínbílum sem fjölmiðlarnir básúna út: "Köfnunarefnisdíoxíð yfir heilsuverndarmörkum" sem eru ómarktækar ágiskanir frá skriffinnum hjá spilltum Sameinuðuþjóðastofnunum og ESB, hræðsluáróður um náttúrulega lofttegund sem jarðvegurinn nýtir fyrir gróðurinn í borginni. En þungir niðurgreiddir rafhlöðu-bílar og -strætóar fá að þeyta upp malbiksryki á kostnað almennings.
Ríkið og EES eru að sliga sveitarfélögin sem þurfa að hirða alla skattpeninga sem þau geta og síhækka álögurnar á íbúana til að borga fyrir ESB-umhverfisvernd, ESB-persónuvernd, ESB-ruslflokkun og fleiri EES-tilskipanir. Þau "henda öllum lóðum í fáeina stóra verktaka sem leggja 50-100% ofan á kostnað sinn-" (Ragnar Önundarson Mbl 2.1.2023). Unga fólkið verður svo að kaupa íbúðirnar á uppsprengdu verði. Bankarnir hjálpa ekki, þeir eru bara að berjast gegn peningaþvætti fyrir Evrópusambandið og láta sig dreymna um "græna" fjárfestingu (yfirleitt óarðbæra).
Reykvíkingar verða leiguliðar eins og fátæklingarnir í fyrirmyndarríki Evrópusambandsins og fara um á hjólum og liðastrætóum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fiskari
5.1.2023 | 17:15
Erindreki Evrópusambandsins (Alþingi) hefur fyrirskipað að sjómenn skuli kallaðir fiskarar! Það komu 7 EES-tilskipanir frá Brussel sem settar voru í lög.
Þý Brussel telur sig nú þess umkomið að afnema hugtak í elsta lifandi tungumáli Norðurálfu og setja í staðinnn orðskrípi sem ekki er til í málinu.
"Fiskari er hver sá eða sú sem starfar eða er ráðinn eða ráðin til vinnu á fiskiskipi, þ.m.t. þau sem ráðin eru upp á aflahlut. Hafnsögumenn, löggæsluaðilar, aðrir aðilar í fastri þjónustu hins opinbera, starfsmenn í landi sem sinna störfum um borð í fiskiskipum eða eftirlitsmenn með fiskveiðum teljast ekki vera fiskarar." https://www.althingi.is/altext/152/s/1307.html
(Brusselþýið hafði þó gáfur til að taka fram að hafnsögumenn og eftirlitsmenn teljist ekki vera fiskarar)
Ath. Á Norðurlöndum er til orðið fiskare og virðist liklegt að einhverjir skrifarar hafi gripið það þaðan.
https://www.mbl.is/200milur/frettir/2023/01/05/sjomenn_segja_fiskara_ut_i_hott/
Stjórnmál og samfélag | Breytt 6.1.2023 kl. 00:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Blómleg lygaverslun
4.1.2023 | 18:02
"Grænu" orkuframleiðendur okkar eru búnir að selja mikið af lygum handa orkufyrirtækjum í Evrópusambandinu og fá í staðinn lygar um að þeir framleiði "ógræna" orku hér heima. Til þess að fá "græna" orku (fallvatns-, jarðgufu-) verða nú orkukaupendurnir á Íslandi að fara að borga ein 20% aukalega, annars fá þeir bara "ógrænu" lygaorkuna og geta ekki boðið "grænar" afurðir lengur.
(Ath. öfugmæli í orðaforðanum, "græn" orkuver næra ekki grænkuna, það gera flest "ógræn" orkuver!)
Það kemur ekki á óvart að ESB leyfi lygasölu, sambandið starfar samkvæmt lygum að verulegu leyti. En að okkar almannafyrirtæki skuli leyfa sér að reyna að skrúfa upp orkuverð á Íslandi vegna lygakerfis ESB er til skammar og kallar á afnám EES-tilskipananna um orkumál og að þjóðhollir fagmenn verði settir til að sjá um orkukerfið.
https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1826270/?t=979941070&_t=1672851698.3712776
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
EES=hærri gjöld
2.1.2023 | 17:48
Gjöld á plastumbúðir hækka um 173%, gjöld á pappírs- og pappaumbúðir hækka um 91% (Mbl 30.12.2022). Við fáum yfir okkur lög um "hringrásarhagkerfið" (hringavitleysuhagkerfið væri nákvæmari nafngift) sem eru gerð fyrir ofurþéttbýl, fátæk og menguð svæði ESB sem dreymir um að nota allt ruslið til að búa til vörur. Það þýðir yfirleitt meiri mengun og mengað frárennsli, lélegar vörur nema endurunnir málmar.
EES-samningurinn er notaður til þess að leggja álögur á Íslendinga og fóðra skiffinnskubáknið sem er eina atvinnukerfið sem hefur verið í vexti í ESB síðustu áratugi. Okkar stjórnvöld ætla að sýna ESB alvöru valdsmennsku og setja hringavitleysuhagkerfið í gang áður en önnur lönd ESB/EES gera það (sjá m.a. EES-tilskipanir no 2018/850, 2018/851, 2018/852, 2019/904)
https://www.althingi.is/altext/stjt/2021.103.html
https://www.frjalstland.is/2021/06/14/vidskilnadur-althingis-13-juni-2021/
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Heimurinn breyttist 2022
31.12.2022 | 16:35
Drottnun gömlu hervelda Vesturlanda, Bandaríkjanna, Evrópusambandslanda og Bretlands, yfir heimsbyggðinni gekk á vit sinna endaloka á árinu 2022. Samningssvik, efnahagsþvinganir og hernaðarafskipti vöktu andstöðu stærsta hluta heimsbyggðarinnar.
Sjálfstæðar þjóðir heims eru farnar að taka sig saman í bandalög um fjölþættari samvinnuleiðir þar sem hótanir, svik, ofbeldi, hernaður og landvinningar hervelda Vesturlanda ráða ekki för.
Dollarinn einokar ekki lengur heimsviðskiptin, því miður of seint fyrir alla þá sem herveldin hafa drepið.
Vitfirring Vesturlanda um að banna jarðefnaeldsneyti strandaði á sandströnd Sinai.
Skerðing Sameinuðu þjóðanna og stjórnvalda margra landa á frelsi borgaranna í "alþjóðlegum" málum (s.s. "loftslagsmálum" og Covid) er nú byrjað að afhjúpa og greina.
Afhjúpun áróðurs og lygaherferða er hafin, nýr eigandi eins af samfélagsmiðlunum hefur vakið almenning. Endurreisn skoðanafrelsis er komin af stað.
Heimsforusta hernaðarvelda Vesturlanda og "alþjóðastofnana" þeirra er að renna sitt skeið á enda.
https://www.frjalstland.is/2022/07/31/vesturlond-glata-forustuhlutverkinu/
Gleðilegt ár!
Bloggið skrifar Friðrik Daníelsson
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)