Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Á fölskum forsendum

highway-1929866_960_720Jólastússið var erfitt, allstaðar umferðateppur þó nóg landrými sé fyrir götur og verkfræðihönnun umferðakerfisins geti eytt stíflunum. 

Bíllinn er langbesta samgöngutækið, hann kemst alveg frá heimadyrum á áfangastað á mettíma (ef gatnakerfið er í lagi) án þess að farþegar þurfi að eyða tíma í labb og húk í biðskýlum í kuldanum og fá kvef og detti í hálkunni.

Bíllinn eykur lífsgæði, hagkvæmni og þægindi.

Bíllinn er umhverfisvænsti og afkastamesti ferðamátinn ef umferðakerfið er rétt hannað. Bensín- og díeselbílar eyða lítilli orku, eru léttir og rífa ekki upp mikið göturyk og pústa ekki út miklu af hættulegum lofttegundum og eru endurvinnanlegir.

Útrýming einkabílsins er byggð á fölskum forsendum og andstæð vilja og hagsmunum landsmanna.

Herferðin gegn bílnum kemur hingað frá Evrópusambandinu með EES-tilskipunum eins og aðrar vitfirringar í "loftslagsmálum".

Tvö dæmi sem sett voru í íslensk lög Nr 40 2013 um endurnýjanlegt eldsneyti:

https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/PDF/?uri=CELEX:32009L0028&from=en

https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/PDF/?uri=CELEX:32015L1513&from=EN

Lögin eru samin og samþykkt af fólki sem ekki skilur grundvallar eðlislögmál, eldsneyti er ekki hægt að endurnýja en það er hægt að gera eldsneyti úr t.d. jurtum sem spretta af fræjum og útsæði og endurnýja jurtastofninn þannig.


Lygar ársins

pinocchio-2917652_960_720Fjölmiðlarnir, sem gefa sig út fyrir að flytja fréttir, eru samkvæmt gamalreyndum fjölmiðlamönnum farnir að dreifa áróðri í staðinn. John Pilger frá Ástarlíu, sem starfar i London, segist ekki áður hafa séð annað eins áróðursflóð.

Hér á Íslandi erum við ofurseld fjölmiðlum frá Vestur-Evrópu og Norður-Ameríku sem margir reka fastmótaða áróðursstefnu og flytja lesendum sínum oft lygar í staðinn fyrir sanna umfjöllun:

"Tilefnislaus innrás Rússa í Úkraínu" (tilefnið var fjöldadráp á Rússum og brot á friðarsamningum.)

"Putin sprengdi gasleiðslu Rússa" (NATO sprengdi leiðsluna á vegum Bandaríkjastjórnar)

"Innrás Rússa er orsök orkukreppunnar" (kolefnishultleysisstefnan er orsökin, bann á besta orkubirgjann dýpkaði hana)

"Hlýjast frá upphafi mælinga" (ónákvæmar mælingar og tilbúningur)

"Mestu hitabeltislægðir, flóð, skógareldar og þurrkar" (falsáróður ríkis- og Sameinuðuþjóðastofnana)

"Bílar jarðarbúa (um 1,5 milljarðar að tölu) valda hlýnun loftslags" (ágiskun, engar sannanir)


2022 ár sannleikans?

icebergs-932963_960_720Lygarnar sem meginfjölmiðlar á Vesturlöndum flytja okkur eru nú í vaxandi mæli hraktar af sjálfstæðu og kjarkmiklu fólki. Raunveruleikinn og náttúrulögmálin eru ólygin og hjálpa stundum til.

Þriggja áratuga lygi um að loftslag sé að hlýna hefur svæft fyrirhyggjuna. Nú þegar hin náttúrulega loftslagskólnun er hafin aftur reka heilaþvegnir stjórnendur upp stór augu: Snjór upp í klof, 23 stiga frost, vegir og flugvellir lokaðir! (svipað og 1966-1995 þegar núverandi stjórnendur voru með snuð). Skortur á hitaveituvatni, lélegur snjóruðningur, lélegar veðurspár (oft frá útlöndum þar sem stofnanir í gíslingu loftslagsskrumara dreifa ruslvísindum) og flugfélögin fljúga inn í lokanir á flugvöllum.

Landsins Forni Fjandi er að færast nær, snjó- og ísþekja Norðurhvelsins hefur ekki mælst meiri síðan mælingar hófust 1966.

https://www.frjalstland.is/wp-content/uploads/2021/03/Loftslag-%C3%A1-%C3%8Dslandi.pdf


Utanríkismál í ógöngum

puppet-5926178_960_720Samskipti Íslands við umheiminn eru komin í ógöngur Evrópusambandsins:

Peningamoksturinn i loftslagssvindlið vex, nú bætist við mokstur til þróunarlanda fyrir flóð og þurrka sem stafa af ofnotkun þeirra á gróðurlandi.

Refsingar og höft á vinaþjóðir valda samskipta- og markaðsmissi.

Hernaðarstuðningur veldur heimsstyrjaldarhættu og eyðileggur samvinnu við mikilvægar vinaþjóðir.

Hælisleitendastraumurinn, afleiðing af hernaði ESB- og NATO-landa, stjórnast af ESB-regluverki.

Innflutningur fólks er samkvæmt Evrópusambandsreglum og er orðinn glórulaus.

Viðskipti við umheiminn utan ESB eru í höftum.

Við létum véla EES-samningnum á okkur svo nú erum við strengjabrúður gáfnaljósanna í Brussel.

 

https://www.frjalstland.is/2022/12/16/utanrikismal-i-ogongum/

 


Þorskur í svitabaði

codfish-5038905_960_720"Ég held að það megi búast við breytingum á fiskveiðistofnum umhverfis Ísland, fækkun tegunda, til dæmis þorsks sem vill vera í köldu vatni, og aukningu tegunda sem lifa í hlýrra vatni-" (Fréttablaðið 9.12.22 hefur eftir prófessor í Danmörku)

Eins og lesendum Frjáls lands er kunnugt ríkir kólnun í hafinu við Íslandsstrendur. Mesta hlýindaskeið sem komið hefur á síðustu öldum var 1930-1965, þá náði þorskaflinn hámarki og um 1950 var hann tvöfalt meiri en nú. Uppúr 1965 var sjórinn orðinn svo kaldur að síldin frá Noregi komst ekki hingað. Rannsóknir sýna (Páll Bergþórsson) að fiskafli við Ísland minnkar þegar kólnar en vex þegar hlýnar. https://www.frjalstland.is/kolnun-sjavar/

Þegar fréttamiðlar segja frá rannsóknum á náttúrufyrirbærum leggja þeir oft áherslu á að breytingar og váleg áhrif stafi af hlýnun. Vísindamenn fá síður styrk ef þeir játast ekki undir kenninguna um hlýnun, þeir hnýta því oft ágiskunum um það inn í sínar greinar sem fjölmiðlar svo endurvarpa.

Fréttir af óháðum rannsóknum á náttúrufyrirbærum er erfitt að finna í meginfjölmiðlum þó mikið af vönduðum rannsóknum hafi verið gerðar sem afsanna kenningarnar um hlýnun af völdum koltvísýrings frá mönnum.

https://www.frjalstland.is/loftslagsvisindi-hrjad-af-folsunum/


Hestvagnar í Berlín

windmillspexels-photo-10391702Evrópusambandsgáfnaljósin hafa samþykkt verðþak á rússneska olíu, 60 dollara á tunnu. Rússar selja á markaðsverði, það eru nógir kaupendur hvort sem er.  https://www.euractiv.com/section/global-europe/news/eu-agrees-60-russian-oil-price-cap-after-poland-backs-deal/

Enda von, vindmylluhagkerfi Evrópusambandsins slokknar þegar kalt er.

ESB hefur stöðugt verið að gefa út bönn á viðskipti við Rússland. Bönnin eru barnsleg sýndarmennska skriffinna í fílabeinsturni Brussel sem venjulegt fólk og fyrirtæki geta ekki tekið mark á.

Útflutningur Rússlands á olíu og gasi hefur aukist á þessu ári og tekjurnar hækkað. Gasið þarf að flytja með skipum og er dýrara en rörgasið úr leiðslunni sem gáfnaljósin í ESB (les NATO-lepparnir) sprengdu. Bandaríkin stórgræða nú á gasi til ESB í staðinn fyrir gasið úr leiðslunni sem þeir sprengdu.

Ástæða þess að fálm ESB er ómarktækt er að ekkert land getur verið án jarðefnaeldsneytis. Evrópusambandið hefur í hyggju að banna dísel frá Rússlandi 5. febrúar. Það gæti orðið gaman að ferðast um Berlín á hestvögnum í sumar!


Fullveldið varð 75 ára

skjaldarmerkiSjálfstæðið varð 50 ára. Alþingi og forseti framseldu löggjafarvald, framkvæmdavald og dómsvald til Evrópusambandsins 1993 með því að samþykkja samninginn um evróspka efnahagssvæðið, EES. 

Af 63 þingmönnum samþykktu 33 samninginn og forsetinn samþykkti hann. Bæði var meirihluti á þinginu of naumur til að geta veirð trúverðug endanleg þjóðarákvörðun um að afsala sjálfstæði landsins. Og samningurinn reyndist vera brot á stjórnarskránni eins og hann hefur verið framkvæmdur hér og túlkaður af Evrópusambandinu

Íslendingar hafa minna og minna að segja um sín eigin mál. Hnignunin sem hefur verið landlæg í Evrópusambandinu í áratugi, og hefur aukist hratt á þessu ári, hefur ekki enn skollið á Íslandi af fullum þunga vegna fjarlægðar og sterkra íslenskra fyrirtækja. En niðurrifið er hafið með stjórnun Evrópusambandsins á mikilvægum málaflokkum, m.a. orkumálum, umhverfismálum og stjórnkerfismálum. Orkukreppa og meðfylgjandi lífskjarakreppa Evrópusambandsins er ekki komin til landsins ennþá. En fjöldaforheimskunin um "loftslagsmál", "kolefnishlutleysi", "orkuskipti"  og fleiri ranghugmyndir hjátrúarfélaga, sem hafa komist til valda í Evrópsusambandinu, er þegar tekin að ræna okkar ráðamenn skynsemi og hæfni til að stjórna okkar málum.

Að binda endi á EES-samninginn er langstærsta hagsmunamál Íslands nú og til framtíðar.


Varnir Íslands

puppethand-784077_960_720Ísland var innlimað í hernaðarklúbb Bandaríkjanna og Bretlands 1949 undir yfirskini kommúnistahættu. Friðarins menn á Íslandi áttuðu sig strax á að NATO yrði hernaðarklúbbur. Það hefur ræst.

En nú kemur einn kaldastríðs-sjúklingurinn eftir annan og vill efla varnir. Rússlands-kommúnisminn lagði upp laupana á öðrum degi jóla 1991. En NATO var samt ekki lagt niður þó það væri orðið óþarft. Ástæðan er að það var aldrei hugsað sem varnarbandalag heldur hernaðarklúbbur. Leiðtogaþjóðir NATO hafa í meir en hálfa öld rekið stríð að uppskálduðum tilefnum, nú síðast í Írak, Afganistan og Úkraínu í samstarfi við fasista og ný-nasista.

"Helsta stefnumál NATO er að vinna að friði í Evrópu" ("NATO strives to secure a lasting peace in Europe-" https://www.nato.int/cps/en/natohq/topics_68144.htm )

NATO-lönd hafa tekið þátt í og rekið hernað í Evrópu, Serbíu (1999), rússnesku héruðum Austur-Úkraínu (2014-2022) og Rússlandi (2022).

Hernaður NATO-landa hefur valdið flóttamannastraum milljóna manna.

Kalda stríðið var hugarórar stríðsæsingamanna. https://www.researchgate.net/project/The-cold-war-as-political-imagination

Hernaðarveldi leitast við að búa til óvin þó tilefnið sé ekkert. NATO var stofnað með tilbúnum óvin. Það hefur aldrei þurft að verja V-Evrópu eða Ameríku fyrir Rússneskum herjum, Rússar hafa aldrei sýnt áhuga á að ráðast á V-Evrópu að fyrra bragði þó þeir hafi þurft að reka V-evrópska hermenn heim (Svía, Frakka, Þjóðverja, Finna) þegar þeir hafa komið með ófriði á hendur Rússlandi. Rússar hafa aftur á móti oft varið Evrópu fyrir hernaði stríðsvelda.

https://www.youtube.com/watch?v=tAUKGco2wWo

Daður íslenskra ráðamanna við leppstjórnina í Kænugarði á eftir að koma Íslandi illa. Bestu varnir Íslands er að standa utan hernaðarbandalaga.


Hýran í rusl

sauerland-4126916_960_720Við fáum stöðugt EES-tilskipanir um hvernig við eigum að fara með sorp. Og svo gera þeir sem þykjast eiga nóga peninga frá skattgreiðendum (Reykjavíkurborg) dýrar tilraunir til að sýna Evrópusambandinu hvað við erum umhverfisvæn (þær misheppnast allar).

En nú er engin elsku mamma lengur, við þurfum að fara að flokka allt rusl niður í vínberjasteina, eldhúspappír og títuprjóna að skipan ESB https://www.frjalstland.is/2022/11/27/utlend-sorphirda/


Lepparnir snuðaðir

EUflag-3370970_960_720Aumingja skrifararnir í Brussel hafa látið snuða sig enn einu sinni. Refsiaðgeðirnar sem Bandaríkin létu Evrópusambandið og EES setja á besta hráefnabirgjann komu af stað efnahagsþrengingum. https://www.politico.eu/article/vladimir-putin-war-europe-ukraine-gas-inflation-reduction-act-ira-joe-biden-rift-west-eu-accuses-us-of-profiting-from-war/

Bandaríkin láta ESB hætta að kaupa hagstæða hrávöru frá Rússlandi en í staðinn dýrari vöru frá Bandaríkjunum. Bandaríkin framleiða vopn og segja Evrópusambandinu að senda Úkraínu vopn, peninga og hermenn.https://www.frjalstland.is/2022/10/31/efnahagsaras-a-evropusambandid/

Evrópusambandsforsprakkar kvörtuðu í Joe en Joe hélt áfram að horfa út um gluggann.

Færeyingar eru ekki leppar eins og Íslendingar og ESB. Þeir gera áfram viðskiptasamninga við Rússland.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband