Barnarán

little-girl-2516578_960_720-"þarna er verið að taka börn þúsundum saman, fara með þau og ala upp sem eitthvað allt annað en þau eru-" segir formaður utanríkismálanefndar Alþingis (Mbl 30.5.2023) eftir að hafa hlustað á áróður Úkraínustjórnar á fundi í Tallín þar sem rússahatur er nokkurs konar skylda.

Illa upplýstir nefndarmenn Alþingis eru þarna að gera sig breiða yfir fréttum sem þeir geta ekki staðfest og hafa ekki þekkingu til að meta, í þessu tilfelli stríðsáróður sem sjaldnast er áreiðanlegur. Það sem hefur gerst í Úkraínu síðustu 9 árin er að Úkraínuher hefur verið látinn reka hernað á vegum NATO og ESB gegn rússneskum íbúum Úkraínu sem varð að stríði þegar rússneski herinn skarst í leikinn. Milljónir manna hafa flúið , langflestir (yfir 3 milljónir manna) til Rússlands (vestrænir fjölmiðlar láta skína í að flestir fari til Póllands). Rússnesk yfirvöld hafa kerfisbundið reynt að koma stríðshrjáðum börnum í skjól, þau eru langflest af rússnesku bergi brotin og verða "alin upp" sem Rússar áfram, þau eru stór hluti af flóttamannastraumnum.

Alþingi getur fordæmt stríð og kúgun en það er ekki í þágu svinnra Íslendinga að löggjafi þeira fordæmi góðverk sem einhver áróðursvél framleiðir lygar um. Stærsti hluti heimsbyggðarinnar veit að NATO og ESB eru að níðast á rússneskum íbúum Úkraínu, og fórna Úkraínumönnum til þess, og að Rússland er að reyna að veita flóttafólkinu hjálp.

Utanríkismálanefnd Alþingis þarf að finna sér verðug verkefni sem nefndarmenn hafa vit og þekkingu til að ráða við. Meðreiðar í stríðsæsingum eru Íslendingum ekki sæmandi.

Friðrik Daníelsson

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Úkraína hefur yfirhöndina í áróðurs stríðinu. En það er líka það eina sem þeir leysa með glans. 

Ragnhildur Kolka, 30.5.2023 kl. 21:31

2 Smámynd: Grímur Kjartansson

Hvernig börn hafa það í Úkraínu og hvað gerðist þar fyrir 100 árum
þykjast alþingismenn hafa vita á 
en verðbólga og annar vandi á Íslandi
er ofar þeirra skilningi

Grímur Kjartansson, 31.5.2023 kl. 19:57

3 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Það sem hann sagði.

Guðjón E. Hreinberg, 1.6.2023 kl. 14:27

4 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Gott að þið eruð vakandi og getið vonandi bjargað okkur í gömlu heimskunni frá okkur sjálfum. 

Dómarinn verði Kallinn með skeggið. 

Þegar ekki verður pláss fyrir illsku í heiminum, verðum við að hafa eitthvað gott til að geta verið í nýja heiminum. 

Við biðjum Kallinn með skeggið að gefa okkur góðleika, svo að við getum lært í nýja heiminum. 

Bestu kveðjur. 

Egilsstaðir, 08.06.2023   Jónas Gunnlaugsson

Jónas Gunnlaugsson, 8.6.2023 kl. 13:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband