Færsluflokkur: Bloggar

Fótasár ESB

shot in the footistockphoto-487526123-612x612Evrópusambandið er búið að skjóta sig svo oft í fótinn að batahorfur eru litlar. Stærsta skotgatið er frá því það bannaði sínum meðlimum og leppum að versla við Rússland vegna stríðsins í Úkraínu þó það hafi sjálft átt upptökin ásamt með Obamastjórninni. https://www.frjalstland.is/2022/05/05/bloduga-valdaranid-i-ukrainu/

Fyrirtæki í V-Evrópu verða nú að kaupa dýrari orku og aðföng frá fjarlægari stöðum

Annað stórt skotgat á fæti ESB, gamalt en ógróið, er græna vitfirringin gegn eldsneyti sem hafði eyðilagt orkumál ESB áður en sambandið lokaði á Rússland. Þegar svo ESB og NATO reyndu að véla heimsbyggðina til að styðja stríðsreksturinn í Úkraínu skaut sambandið sig enn einu sinni í fótinn. Heimsbyggðin mest öll hunsaði Vesturlönd enda þekkja mörg lönd hernaðarfýsn, valdagræðgi, lygaherferðir og græna eyðileggingarofbeldi Vesturlanda.

Vesturlönd eru að einangrast frá öðrum löndum jarðarkringlunnar með valdagræðgi og stríðsórum og eru búin að króa stærstu þjóð Evrópu út í horn með svikum, lygum og vopnavæðingu fasista og vígamanna. Heimsbyggðin utan Vesturlanda er nú í óða önn að bindast hagsmunaböndum gegn hernaðarbrölti og valdagræðgi ESB og NATO-landa https://impakter.com/brics-expansion-five-new-members-in-2023/

Úthafseyjan Ísland, sem lenti undir valdi ESB/EES og er þar enn, dregst með í stríðsreksturinn andstætt hagsmunum og öryggi landsins.

https://www.frjalstland.is/2022/05/31/evropusambandid-hervaedist/


Eðlið segir til sín

soldiers-1172111_960_720Það hefur reynst erfitt að bæla eðlið, það segir yfirleitt til sín á endanum. Eðli Evrópusambandsins hefur nú verið að segja til sín. Grafin er hugsjónin um friðelskandi Evrópusamband gamalla stríðsþjóða V-Evrópu. Stríðseðlið er nú aftur að koma upp á yfirborðið og skín í gegnum skinhelgina um frið og manngæsku. Stríðsmangararnir eru farnir að rymja eins og fyrrir 80 árum.

Þau lönd V-Evrópu sem hafa drepið flesta hafa nú áform um mikinn hernaðarundirbúning. Afsökunin er eins og áður, Rússagrýlan, heimatilbúnir hugarórar sem hafa það hlutverk að skapa óvinamynd. Stríðsæsingarnar eru kærkomnar fyrir ráðamenn ESB- og NATO-landa, þeir eru búnir að koma sínum þjóðum í lífskjara- og siðmenningarkreppu og þurfa að beina athyglinni annað.

Rússar hafa aldrei haft áhuga á að gera árás á V-Evrópu. Og Kína er óþarfi fyrir V-Evrópu að brýna kutana gegn, þeir hafa ekki haft frumkvæði að heimsstyrjöldum og eru á hernaðaráhrifasvæði Bandaríkjanna.

https://www.frjalstland.is/2022/05/31/evropusambandid-hervaedist/

Falsfréttaáróðurinn leynir manndrápum, Úkraínuher skaut 62 sprengjum á íbúðahverfi í Donesk, eins og þeir hafa gert í 8 ár. Drápu 5 og særðu 20.

Falsfréttaóhróðurinn blæs út sprengingu Rússa á skriðdrekageymslu í Kænugarði. Enginn dó. https://www.bbc.com/news/world-europe-61695244

Ófréttnæmt fréttnæmt. Fréttnæmt ófréttnæmt!

bloggið skrifar Friðrik Daníelsson


Einkabíllinn bestur

bus-3665491_960_720Ert þú farin að hlakka til að fara með borgarlínunni?. Það verður nóg pláss, langir harmoníkuvagnar sem fáir vilja fara með, þú hefur mörg sæti að velja úr. Sætanýtingin er nokkur prósent, yfirleitt nokkrar hræður í vögnunum.  Þeir fá sérstakar götur svo þú blússar fram úr umferð almúgans sem situr fastur í umferðateppum af því að það er búið að taka af þeim akreinar undir borgarlínuna. Þú hefur gaman af að keyra um en brogarlínan skilar þér aldrei heim eða á áfangastað, bara í biðskýli. https://borgarlinan.is/

Einkabíllinn hefur verið borinn röngum sökum af trúarfrömuðum og skipulagsnefndum byggt á vanþekkingu eins og venjulega.

Einkabíllinn hefur kosti sem engin önnur samgöngutæki hafa: Hann skilar þér i öllum veðrum með öryggi alla leið frá upphafsstað á áfangastað milliliðalaust á mettíma fyrirhafnarlítið með litlum kostnaði. Engin tímasóun, ekkert stress, ekkert kvef af að bíða í biðskýli, ekkert labb yfir umferðagötur, lítil mengun, lítið vegaslit, engar tafir (þú lendir reyndar í stoppi þar sem borgaryfirvöld hafa ekki staðið sig við að hafa götukerfið í lagi). Einkabíllinn er kominn með góða útblásturshreinsun og léttir bensínbílar hleypa ekki upp miklu ryki (sem er hættulegasta mengunin). Í lítilli vindbarinni borg eins og Reykjavík er einkabíllinn besti, umhverfisvænsti og afkastamesti umferðamátinn. Allflestir vilja eiga einkabíl þó yfirvöld skattpíni bílaeigendur og þykist vera að vernda umhverfið.

Sumir umhverfistrúðar vilja láta okkur ferðast á rafskutlum eða hjólum sem eru yfirleitt stórhættulegar slysagildrur sem íþyngja heilbrigðiskerfinu.


Heyrðu í Rússunum!

stríðsrústirpexels-photo-11797375Hvernig væri að hlusta í nokkrar mínútur á áróður Rússa sem er allt öðruvísi en hroðinn sem falsfréttamiðlar í NATO bera á borð. https://www.rt.com/shows/news/553823-rtnews-april-14-09msk/

Stríðið í Úkraínu hófst fyrir alvöru þegar leppstjórn NATO og ESB tók við völdum í Kænugarði fyrrihluta árs 2014. Drápssveitir, Asov og fleiri, á vegum nýju leppstjórnarinnar mögnuðu stríð á hendur íbúum austurhéraðanna, margir rússneskumælandi, sem vildu losna undan leppstjórninni.  Hernaðarátökin hafa nú breiðst út eftir að rússneski herinn skarst í leikinn. Hernaður Úkraínustjórnar er kynntur, vopnaður og fjármagnaður fyrir opnum tjöldum af stríðsæsingaöflum NATO-landa. Drápssveitir Úkraínustjórnar eru þjálfaðar, klæddar og fæddar af NATO-löndum og betrumbættar með málaliðum og drápsfúsum mönnum þaðan. Þeir sem græða, vopnaframleiðendur, taka virkan þátt í áróðri NATO, þar á meðal stjórnmálamenn sem eru hluthafar.

Eða er þetta kannske bara enn ein lygaþvælan?

https://www.frjalstland.is/2022/03/07/utthensla-nato-og-esb-orlagarik-mistok/

bloggið skrifar Friðrik Daníelsson


Ómarktækir leiðtogar

usfalgfourth-of-july-394504_960_720Bandaríkjamenn eru okkar mikilvægustu bandamenn, við treystum á þá. Það er þess vegna ógnvekjandi þegar forseti Bandaríkjanna kemur fram eins og ómarktækur krati og fer með glórulausar yfirlýsingar sem túlka má sem stríðsyfirlýsingar hins mikla herveldis.

Hann heimsótti eitt af mörgum herhreiðrum NATO, í Póllandi ekki mjög langt frá kjarnorkuflaugaskotpöllum Rússa sem heilsuðu honum með að sprengja, hárnákvæmt, tvær birgðastöðvar Úkraínu nálægt landamærunum. Forsetinn talaði við hermenn sína um Úkraínu:

-"þið sjáið þegar þið eruð þar-". Hermennirnir héldu að nú ætti að senda þá inn í Úkraínu. https://www.dailymail.co.uk/news/article-10653329/White-House-corrects-Biden-suggested-troops-sent-Ukraine.html

Síðan hélt forsetinn aðra ræðu og sagði að yrði að koma stjórn Rússlands frá! https://www.telegraph.co.uk/world-news/2022/03/26/joe-biden-us-president-vladimir-putin-russia-power-ukraine-invasion/

Sem betur fer er ameríska stjórnkerfið öflugra en svo að óráðshjal forsetans geti sett af stað heimsstyrjöld. Hvíta Húsið hefur staðið í ströngu við að bera til baka bullið í Biden.

En við spyrjum, hvernig má það vera að okkar öflugu bandamenn hafi fengið slíkan forseta í Hvíta Húsið?


Að framselja fullveldið.

Úr Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins 19. febrúar 2022

"Það er mikið áhyggju­efni að ís­lensk­ir stjórn­mála­menn, óháð flokk­um, hafi sætt sig við að verk­efni þeirra hef­ur að mestu verið fært öðrum. Hörm­ung­ar­stjórn Jó­hönnu og Stein­gríms ætlaði sér að læða ís­lensku þjóðinni lemstraðri inn í ESB, af því að hjú­in vissu að upp­rétt færi hún þangað aldrei.

En stjórn­in rann á rass­inn þegar hún horfði fram­an í ís­lensk­an veru­leika. En fram að því var búið að færa reglu­verk EES-samn­ings­ins að þess­ari inn­göngu, í svo­kölluðum samn­ing­um, sem voru þó al­gjör­lega ein­hliða leiðsögn búró­krata frá Brus­sel. Fyrst óynd­is­rík­is­stjórn­in hrökklaðist frá með fall­ein­kunn frá kjós­end­um í lág­marki, sem ekki hafði áður sést, þá bar að færa reglu­verkið aft­ur til þess sem það var, varðandi EES og reynd­ar allt verk­ferlið, sem ut­an­rík­is­ráðuneyti ESB við Rauðar­ár­stíg hef­ur staðið í til þess að þurrka smám sam­an burt all­an mun sem vera skal á milli samn­ings sem tryggði full­veldi þjóðar og hins veg­ar þess sem fleygði því á haug­ana.

Nú sjá­um við bet­ur hversu illa var staðið að orkupakka­mál­inu. Norðmenn súpa seyðið af slíku og reynd­ar Evr­ópa öll, þar sem orku­vand­ræðin vaxa hratt.

Orkukreppa Evr­ópu set­ur orkupakka á rétt ljós.

Formaður Sjálf­stæðis­flokks­ins gladdi flest flokks­systkini sín stór­lega þegar hann lýsti því yfir, úr ræðustól Alþing­is, sem óskilj­an­legu rugli, ætluðu menn sér að samþykkja orkupakka­málið. Flokks­menn voru alls hug­ar fegn­ir, og uggðu því ekki að sér fyr­ir vikið, þegar ekk­ert reynd­ist að marka gleðiefnið. Þetta er eitt af þeim stjórn­mála­legu undr­um sem ekki hafa verið út­skýrð. En það er þó ekki brýn­ast held­ur hitt að snúa af þess­ari óláns­braut og lag­færa það sem skemmt var í full­komnu heim­ild­ar­leysi af óheilu und­ir­máls­liði."


Græðgi og gervimennska

27krugman1-superJumboPaul Krugman segir: " Ef hlutafjármarkaður er ekki efnahagslífið,..sem hann er ekki,..þá eru gervimynt eins og Bicoin það heldur ekki. Samt eru gervimyntir orðar ansi stór eignaflokkur (og skilaði mörgum kaupendum miklum söluhagnaði); síðasta haust hafði samanlagt markaðsvirði gervimynta náð tæpum 3 billjónum dollara.." nytimes.com

Gervimennskan og græðgin hafa skapað eitthvað sem gráðugt fólk verslar með og hefur náð Landsvirkjun til að selja sér orku til gagnavera á Íslandi til að "grafa" eftir Bitcoin og skapa rafmagnsskort í kerfinu.

Orku­stofnun telur í nýrri spá 2021-2060, að orku­þörf gagna­ver­anna muni halda áfram að aukast og árið 2022 verði afl­þörf gagna­vera orðin um 1.260 GWst. Það er 20% meiri rafmagnsþörf en til heimila (823 GWst) og landbúnaðar (230 GWst) samanlagt á Íslandi.

Bitcoin framleiðsla er skemmdaverkastarfsemi sem kemur í veg fyrir vöxt verðmæta og atvinnusköpunar alvöru framleiðslufyrirtækja. Hver er ábyrgð Landsvirkjunnar?


2021 glatað ár

sinkpexels-photo-6858665Kínaveira og fálm stjórnvalda á Vesturlöndum, vangeta og spilling hjá Sameinuðu þjóðunum, ollu víðtækum áföllum. Heimurinn færðist nær stórátökum og styrjöld. Kína og fleiri einræðisríki héldu áfram að vaða yfir aðrar þjóðir og hervæðast. NATO og ESB héldu áfram með stríðsæsingar gegn Rússum og ögrunum um að innlima Úkraínu. Bandaríkin komust undir áhrif niðurrifsafla og vinstriöfgamanna með elliæran forseta. Öfgaflokkar með hættuleg stefnumál óðu uppi á Vestulöndum með skemmdarverkum og hótunum. Sameinuðu þjóða stofnanir (Alþjóða heilbrigðisstofnunin, Milliríkjanefnd um loftslagsbreytingar og fleiri) reyndust spilltar og ekki vaxnar hlutverki agaðra alþjóðastofnana. Kverkataki umhverfisofsatrúarflokka var ekki hægt að hrinda, niðurrif efnahags Vesturlanda heldur áfram með "orkuskiptum" heimskra manna. Flóðbylgjur þróunarlandamanna og trúaröfgalýðs skella áfram á siðmenntuðum löndum Evrópu og Norður-Ameríku. Offjölgunin i örbirgðar- og ofsatrúarheiminum stöðvast ekki og hryðjuverkaógnin vex í siðmenntaða heiminum.

Ísland þraukar áfram vegna öflugra fyrirtækja þrátt fyrir valdalítil stjórnvöld landsins. Lítil meirihátar uppbygging varð á árinu en þeim mun fleiri heimskulegar hugmyndir komust á kreik. Vonandi nær þekking og framfaravilji yfirhöndinni á árinu 2022.


Jólakveðja

Sendum öllum bloggurum og lesendum þeirra ósk um gleðileg jól.

Gleðileg Frjálst land


"Sjálfstæðisflokkurinn þarf að stoppa"

BB febSjálfstæðisflokkurinn þarf að stoppa Viðtal við Guðmund í Brim, sem gagnrýnir endalaust flæði ESS tilskipanna og innleiðingu 3ja OP.

Það eru ekki margir ESB sinnar í sjávarútveginum, því ESB samningurinn gaf sjávarútveginum lítið til viðbótar við tollasamning Íslands og ESB.

Árið 1973 sömdu Íslendingar um fríverslun með iðnvarning við Efnahagsbandalag Evrópu, forvera Evrópusambandsins. Í bókun 6 við þann samning var meðal annars kveðið á um fullt tollfrelsi á frystum flökum og lifur frá Íslandi, auk rækju, mjöls og lýsis.- Þessi samningur er enn í gild og íslenskar sjávarafurðir eru tollafgreiddar inn í ESB samkvæmt honum.

Eina markverða viðbótin fyrir sjávarútvegin í EES samningnum var lækkun tolla á saltfiski og ferskum fiskflökum, sem var fyrst og fremst til Bretlands og nú hefur verið samið um við Breta.

BÁBILJAN UM AÐ EES SAMNINGURINN HAFI GEFIÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI MIKIÐ ER ÁRÓÐURSBULL ESB SINNA.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband