Færsluflokkur: Evrópumál

Vindmyllustórslys

windmillsunnamed_1372844.pngHér koma nýjustu fréttir af "græna hagkerfinu".

Umhverfisverndartrúðarnir básúna stöðugt út að hagkvæmasta orkuframleiðslan sé með vindmyllum og að þær verði hagkvæmari með hverjum deginum! Nú er komin þriggja áratuga reynsla á vindmyllurnar í V-Evrópu og N-Ameríku. Hún er ekki fögur frekar en við var að búast of verkum trúðanna. Danir hafa mikla reynslu, hún er sú að raforkan í Danmörku er sú dýrasta í heimi!

I Englandi hefur Gordon Hughes frá Edinborgarháskóla rannsakað kostnað vindmylla. Og niðurstaðan þar er ekki heldur fögur: Vindmyllurnar eru tvöfalt dýrari og kosta fjórfalt meir að reka nú en fyrir 10 árum.

https://www.ref.org.uk/Files/performance-wind-power-uk.pdf

Svipaða sögu er að segja vestanhafs.

https://www.manhattan-institute.org/dismal-economics-offshore-wind-energy

Umhverfisstórslys er í uppsiglingu. Vindmyllurnar endast stutt, ónýt blöð hlaðast nú upp í tugþúsundatali og ekkert hægt að gera við þau annað en moka yfir.

https://www.bloomberg.com/news/features/2020-02-05/wind-turbine-blades-can-t-be-recycled-so-they-re-piling-up-in-landfills


Reglugerðadræsur

sitelogoEin fljótvirkasta leiðin til að lyfta atvinnu og efnahag upp úr Kóvinu er að einfalda reglugerðirnar og afnema EES-tilskipanir sem snerta rekstur og verðmætasköpun. https://www.frjalstland.is/2018/09/07/regluverk-ees-gerir-islensk-fyrirtaeki-osamkeppnishaef/

Stór hluti, 83%, fyrirtækja í Samtökum iðnaðarins segja í nýrri könnun að regluverkið þurfi að einfalda en eins og kunnugt er kemur góður hluti þess frá ESB/EES milliliðalaust.

"Við söknum þess oft við lagasetningu að lagt sé mat á áhrif löggjafans á atvinnulífið, þar á meðal samkeppnishæfni Íslands" (Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri SI í Mbl 8.9.2021)


Stuðningur frá Noregi

Norwaypexels-photo-141876Þrír af stjórnmálaflokkum Noregs vilja að Noregur styðji baráttu Íslendinga við ESA (EES-eftirlitið). Flokkarnir, SV, Sp og Rödt, gætu komist í ríkisstjórn eftir kosningar í haust. Þeir vilja að Noregur gangi úr EES og gagnrýna stjórnvöld Noregs fyrir undirlægju við ESB og skort á stuðningi við "nokkur hundruð þúsund Íslendinga í baráttunni fyrir fullveldi gagnvart ESB" https://www.aftenposten.no/norge/politikk/i/rE815m/sp-sv-og-roedt-stoetter-island-og-vil-la-norske-lover-gaa-foran-eoes-dir

Íslensk stjórnvöld fá stöðugar ávirðingar frá ESA. Í mars 2011 kom bréf um að þau leyfðu ekki fyrirtækjum í ESB/EES að fá aðgang að orkuauðlindunum og brytu þar með gegn EES. Ríkisstjórnin var búin að búa til frumvarp til að hlýða ESA en dró það til baka í fyrra https://www.frjalstland.is/2020/04/10/svar-forsaetisraduneytis-vid-fyrirspurn-um-uthlutun-nytingarrettar-orkuaudlinda/

En Noregur hefur þegar hafnað kröfunni frá ESA. https://www.frjalstland.is/wp-content/uploads/2021/04/190604-Svar-fra-dept-til-esa.pdf

Í apríl 2012 kom bréf um að Ísland þyrfti að útskýra af hverju dómar Hæstaréttar væru ekki samkvæmt ESB-lögum. Því bréfi var ekki svarað þá. Og áfram bréfastraumur: Þann 30. september 2020 sendi ESA "rökstutt álit" í 79 liðum um að Ísland hafi látið undir höfuð leggjast að láta innleidd EES-lög verða æðri íslenskum lögum. Ríkisstjórnin hafði svarað samskonar bréfi 10.9.2020 og sagt að ekki væri tímabært að huga að breytingum á lögum meðan óvissa ríkir almennt í málum á EES- https://www.frjalstland.is/2020/10/15/esb-log-aedri-islenskum-logum/


Vetnisdraumurinn

Birdskilledbywindmills11-DSCN0086Draumurinn um að vetni verði orkumiðlari mannkyns er kominn að fótum fram. Hann rætist ekki. Ástæðan er að vetni er ómeðfærileg gastegund og lélegt eldsneyti (orkuinnihald um 3 en í jarðgasi 10 Wh/L). Bara raforkan til að framleiða "græna" vetnið kostar 5-10 sinum meira en jarðgasið. Það þýðir að sauðsvartur þarf að borga 10-20 falt jarðgasverð fyrir grænt vetni. https://www.frjalstland.is/2020/10/28/graent-vetni/

Orkukerfi ESB er að stirðna í "grænum orkugjöfum", fúafeni grænna skatta, grænna styrkja, losunarkvóta, losunarkredits. Jarðgasverðið stökk nýlega upp í ($12,5/MMBtu) 7-falt verðið í fyrrasumar þó það verði væntanlega ekki viðvarandi. En ESB ætlar að banna allt gott eldsneyti og niðurgreiða "grænt" vetni í staðinn, framleitt með vindmyllum og sólpanelum.  Fyrirtæki þaðan ætlar að framleiða vetni í Hvalfirði handa ESB með vindmyllum á Laxárdalsheiði og Múla, lélegum orkuverum sem framleiða dýra og stopula orku og spilla landsfegurð og umhverfi og drepa fugla.

Það er auðvitað ekki hægt að breyta okkar tækniþróaða hagkerfi í vetnishagkerfi með vindi nema einhverjir borgi fyrir skemmtunina. Það er vel líklegt að ESB geti látið lafhrædda skattgreiðendur og hlýðin fyrirtæki (og heimska Íslendinga) borga í einhvern tíma. En þegar sannleikurinn kemst í hámæli og orkuverðið, húskuldinn og fátæktin verða komin á það stig að lýðurinn hættir að trúa bábiljunum, og atvinnufyrirtækin verða farin, hrynur blekkingavefurinn. Eins og hjá Napóleon og Hitler. Þá er betra fyrir íslensk orkuver, sem nota fallvötn og jarðhita, að halda sig við að selja orkuna til einhvers sem vit er í. https://www.frjalstland.is/2021/08/27/hvernig-a-ad-nyta-islenska-raforku/


Ónýt utanríkisstefna

moscow-2105606_960_720Rússlandsmarkaður keypti mikið magn og greiddi gott verð. Vörur sem áður fóru til Rússlands hafa í staðinn leitað inn á markaði m.a. í Afríku þar sem ómögulegt er að fá jafn hátt verð. Á þessum sex árum hefur rússneskur sjávarútvegur styrkst töluvert og ég hugsa að það sé enginn sérstakur áhugi þar fyrir því að fá innfluttan íslenskan fisk í samkeppni við innlenda framleiðslu (Úr viðtali við Stefán Friðriksson, framkvæmdastjóra Ísfélags Vestmannaeyja, Mbl.28.8.2021)

ESB kallaði sína undirsáta á fund í Brussel í mars 2014 til að samþykkja refsiaðgerðir gegn Rússum eftir að Úkraína neitaði að sækja um aðild að ESB í nóvember 2013. Rússum var kennt um. Þeir svöruðu í sömu mynt og settu viðskiptabönn á ESB og undirsáta.

En Færeyingar héldu sig fyrir utan. Þeir flytja nú út mikið af fiskafurðum til Rússlands, hin fámenna þjóð þorir að verja sína hagsmuni á meðan við látum ESB véla okkur í als kyns vitleysu eftir glas af frönsku víni.

Því verr gefast heimskra manna ráð sem fleiri koma saman (Úr Laxdælu)

https://www.frjalstland.is/2018/06/30/esb-akvedur-utanrikisstefnu-islands/


Viltu rafeldsneyti?

gufaEin af heimskulegustu hugmyndunum (á eftir rafbílum, vindmyllum og endurheimt mýravilpna) í "loftslagsaðgerðum" ESB/EES er að framleiða "rafeldsneyti". Það er í sjálfu sér hægt að búa til eldsneyti með rafmagni þó engum efnaverkfræðingi detti það í hug. En ef hægt er að láta óvitandi almúgann, eða einhver platkvótakerfi, borga "orkuskiptin" eða "kolefnishlutleysið" er alls kyns vitleysa framkvæmanleg.

Þú gætir fengið raf-tréspíra (metanól framleitt úr reyk og vatni) á bílinn þinn. Ef tankurinn tekur 50 lítra af bensíni þarftu nýjan 110 lítra tank undir tréspírann ef þú villt komast jafn langt og á bensíninu. En passaðu að það séu einhverjir aðrir sem borga fyrir áfyllinguna. Og hafðu með þér grímu og eldhemjandi hanska, tréspíri er eitraður og eldfimur.

https://www.frjalstland.is/2021/08/27/hvernig-a-ad-nyta-islenska-raforku/


Pútín kaupir atkvæði

nátttröllpexels-photo-7797151Þegar okkar stjórnmálamenn auka greiðslur til ellilífeyrisþega er ekki sagt að þeir séu að kaupa atkvæði en ef Pútín gerir það er málið annað: Þá segir pressan í V-Evrópu að Pútín sé að kaupa atkvæði (frétt Mbl vísar í AFP: Gefur_ellilifeyrisþegum_pening_til_ad_auka_fylgi

Nátttröllin úr Kaldastríðinu bera stöðugt níð á Rússa í fjölmiðlum Vesturlanda. Kannske er það til að leiða athyglina frá atkvæðaþjófnaði þeirra sem eru að eyðileggja traust heimsins á Vesturlöndum.


Að missa bankakerfi

door-green-closed-lockEkki margar þjóðir vita hvernig er að missa bankakerfi. En Ísland tapaði sínu 8.10.2008 þegar Bretar kyrrsettu eignir bankanna, þ.m.t. eignir Seðlabanka íslenska ríkisins. Bankarnir voru þá farnir að starfa samkvæmt regluverki ESB sem var ein aðalástæða hrunsins. Það þurfti neyðarlög til að taka þá aftur undir íslenk lög. En það sem ennþá vekur ugg er að íslenska fjármálakerfið er enn og aftur farið að lúta að miklu leyti regluverki og eftirlitsbákni ESB/EES.

Og nú eru stjórnvöld okkar enn og aftur lömuð og horfa upp á greiðslumiðlunarfyrirtækin hverfa úr landi eitt af örðu. Kannske þurfum við annað Hrun til að okkar ráðalausu ráðamenn fái kjark til að taka af festu á stjórn fjármálakerfisins. https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2021/08/18/ur_hondum_islendinga/


Óbundin af EES?

euflageurope-1045334_960_720.jpgForsætisráðherrann þegar Alþingi samþykkti EES-samninginn segir að Ísland geti hafnað lögum ESB (það hefur ekki verið gert hingað til) og sé óbundið af EFTA-dómstólnum.

"Forsenda EES-samningsins er í fullu gildi

Íslendingar eru sem sé ekki einir um að kokgleypa sífellt stærri hluta sinnar lagasetningar algjörlega ólesnar, og þeir eru til sem glamra út í loftið um að grundvallarákvæði um að Íslendingar gætu hafnað því sem þeir vildu af aðsendri löggjöf frá ESB giltu ekki lengur. Þau hefðu gufað upp!? Sá afgerandi fyrirvari tryggði að EES-samningurinn stæðist íslenska stjórnarskrá. Gufi hann upp fyrir aumingjadóm er samningurinn ekki lengur til og enginn Íslendingur bundinn af honum-

-Þeir sem tryggðu meirihluta fyrir EES samningi á þinginu kynntu það ítrekað að Ísland væri ekki bundið af þessum dómstól-" (Davíð Oddsson í Reykjavíkurbréfi 8.8.2021)


Metanól úr vatni

heavy-burden-young-man-casual-carrying-elephant-his-back-51903259.jpg"Alþjóðlegt orkufyrirtæki" ætlar að framleiða tréspíra úr vatni og koltvísýring úti á Reykjanesi. 15_milljarðar_i_metanol_framleiðslu_á_Reykjanesi

Svo vill til að vatn og koltvísýringur myndast þegar tréspírinn er notaður sem eldsneyti. Að taka útblásturinn, eða efni eins og eru í honum, og breyta honum aftur í eldsneytið dettur engum í hug nema trúaröfgamönnum eða þeim sem eru að véla okkur til að borga sér fyrir "kolefnishlutleysi".

Hugmyndirnar um "rafeldsneyti" eru reistar á svo miklum vitsmunaskorti og svo fjarri vísindaþekkingu nútímans að minnir á margra alda gamlar trúarkreddur. En það er í sjálfu sér hægt að framleiða eldsneyti úr útblæstri, það þarf bara einhvern sem borgar því engir kaupendur munu vilja borga það sem framleiðslan kostar. Framleiðendurnir verða að fá "losunarkredit" og als kyns framlög frá almannasjóðum eða "loftslagskerfum". Ónýt bákn, eins og ESB, hvað þá smáríki eins og Ísland, munu ekki lengi geta borgað margfalt verð fyrir lélega og óþarfa orkumiðla.

Kíló af metanóli gefur rúma 5 kwt þegar það er notað sem eldsneyti en það þarf um 10 kwt til að framleiða vetnið í kílóið! Og þá á eftir að útvega orku, hráefni og aðra þætti til framleiðslunnar. "Orkufyrirtækið" færi beina leið á hausinn nema saklausir skattgreiðendur eða heimskir fjárfestar, sem búið er að ljúga fulla um að jarðefnaeldsneyti skemmi loftslagið, taki sig til og borgi eldsneytisframleiðendunum fúlgur fyrir lélegt eldsneyti sem við þurfum ekki. Það er nóg til af góðu jarðefnaeldsneyti sem gefur meir en tvöfalt meiri orku (13 kwt/kg) en tréspírinn.

Orkulindir íslensku þjóðarinnar á að nota í annað en lélegt og óþarft eldsneyti á kostnað almúgans.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband