Að missa bankakerfi

door-green-closed-lockEkki margar þjóðir vita hvernig er að missa bankakerfi. En Ísland tapaði sínu 8.10.2008 þegar Bretar kyrrsettu eignir bankanna, þ.m.t. eignir Seðlabanka íslenska ríkisins. Bankarnir voru þá farnir að starfa samkvæmt regluverki ESB sem var ein aðalástæða hrunsins. Það þurfti neyðarlög til að taka þá aftur undir íslenk lög. En það sem ennþá vekur ugg er að íslenska fjármálakerfið er enn og aftur farið að lúta að miklu leyti regluverki og eftirlitsbákni ESB/EES.

Og nú eru stjórnvöld okkar enn og aftur lömuð og horfa upp á greiðslumiðlunarfyrirtækin hverfa úr landi eitt af örðu. Kannske þurfum við annað Hrun til að okkar ráðalausu ráðamenn fái kjark til að taka af festu á stjórn fjármálakerfisins. https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2021/08/18/ur_hondum_islendinga/


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Oh! HADJ. - blót ekki smekklegt en er bara svo svekkjandi.

Helga Kristjánsdóttir, 18.8.2021 kl. 18:52

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Regluverkið orsakaði ekki hrunið heldur var það misnotkun á regluverkinu og háttsemi sem braut í bága við það. Á grundvelli þess regluverks var svo hægt að dæma (suma) hina seku til refsingar fyrir að brjóta gegn regluverkinu.

Guðmundur Ásgeirsson, 18.8.2021 kl. 19:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband