Nýr alheims einvaldur

icebergs-932963_960_720Sameinuðuþjóðirnar voru stofnaðar til þess að koma á friði meðal þjóða. Það geta samtökin ekki, þau eru orðin að valdagráðugu bákni og oki á herðum Jarðarbúa.

Stöðug stríð eru í Miðausturlöndum og Afríku. Gyðingar derpa börn Araba og Arabar fremja hryðjuverk. Bandaríkin með NATO (það erum við) og ESB drepa fólk og ræna olíu í Sýrlandi og víðar og halda gangandi hernaði gegn minnihlutahópum í Úkraínu og víðar.

Sameinuðuþjóðirnar geta aftur á móti rekið hræðsluáróður og hótað íbúum heimsins að þeir muni farast nema þeir fórni sínum lífsgæðum og heilsu vegna valdagræðgi spilltra skriffinnskudrauga samtakanna.

Sameinuðuþjóðirnar eru farnar að vinna eins og einvaldur harðstjóri sem heldur þegnunum í ótta til þess að geta kúgað þá. Samtökin ætla nú að eyðileggja orkunotkun, fæðuframleiðslu og flutningakerfi heimsins og spilla þarmeð frelsi og velsæld almennings meðan ruplararnir og þotuliðið flýgur á þúsund kílómetra hraða um heiminn á steinolíuhákum og belgir sig út á áróðurssamkomum með lygasögum og ruslvísindum um loftslag. Og græðir á nýjum háum en óþörfum embættum, kvótabraski, sólarpanelaframleiðslu, vindmyllustyrkjum, rafhlöðuframleiðslu, grænum verkefnum sem almenningur þarf að kosta.

Falsanasamstæða fjölmiðla dælir út blekkingum um ógnir loftslagsbreytinga. Og okkar forustumenn mæta á samkundur einvaldsins og þeysa úr sér þvælu um loftslag meðan kólnar á Klakanum og hafísinn nálgast aftur.

https://www.unicef-irc.org/publications/1787-children-and-the-cost-of-living-crisis-how-food-and-energy-inflation-has-increased-poverty-in-households-with-children-in.html

https://www.frjalstland.is/2023/07/01/fataektarmenning


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband