Á málfundi

biden-5996594_960_720Sameinuðu þjóðanna sagði Bandaríkjaforseti: "-rússneski forsetinn hefur blygðunarlaust brotið gegn sáttmála Sameinuðu þjóðanna þegar hann réðst inn í nágrannaríkið Úkraínu"- (mbl.is)

Biden er orðinn gleyminn, það var hann og Barak Obama sem réðust inn í Úkraínu og frömdu vopnað valdarán 2013, flæmdu lýðræðislega kjörna stjórn Úkraínu frá völdum og komu að fasistískri leppstjórn sinni. Það var hún sem hóf Úkraínustríðið, drápin á rússneskum borgurum Úkraínu.

Sameinuðu þjóðirnar eru stökkpallur Bandaríkjanna, Bretlands og ESB til að reka áróður. Gamanleikarinn frá Úkraínu fær jafnan að betla og blekkja á samkundum þeirra. Fjölmiðlar Vesturlanda eru samsekir, þeir þegja um gagnrýni sem kemur fram á málfundum SÞ. Suður-Afríka benti á hræsnina sem felst í að Vesturlönd reka hernað víðsvegar en telja sig umkomna að gagnrýna aðra fyrir hernaðarþátttöku.  Serbía rifjaði upp tvískinunginn gagnvart Serbíu og dráp NATO á Serbum.

Núverandi mistakaforseti Bandaríkjanna, umkringdur af niðurrifsmönnum, stríðsmöngurum og hergagnaframleiðendum, verður ásamt Bretum og Brusselblókum æ ósvífnari í áróðri og stríðsæsingum.  Það er orðið mjög brýnt að fasistíska leppstjórn NATO í Úkraínu fari frá völdum og NATO kalli heim hermeninna sem stjórna stríðinu og dragi sig úr því. Það þarf að endurreisa lýðræðið í Úkraínu og hreinsa landið af stærsta vopnasafni sem sést hefur í 80 ár, að mestu orðið að brotajárnshaugum sem nú liggja eins og hráviði um Rússabyggðir Ukraínu sem þarf að frelsa undan skothríð fasistanna sem fyrst.

Friðarsinnaðir Íslendingar og margir líkaþenkjandi Vesturlandabúar hafa um árabil þurft að horfa upp á að samstarfslönd, og samtök sem Ísland og fleiri lönd þvældust með í, hafa tekið þátt í stríðsrekstri víða um heim á fölskum forsendum. Heimsbyggðin horfir á með vaxandi ógleði og hatri sem springur út í ofbeldisverkum og flóttamannaflóðum þegar minnst varir (The Secret History of the American Empire. John Perkins 2007. Penguin Books Ltd)

bloggið skrifaði Friðrik Daníelsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ari Tryggvason

 Gott og hressilegt yfirlit. Getur verið að samlíking sé nú með adraganda að fyrri heimsstyrjöldinni? Þá má mögulega draga þá ályktun að Þýskaland hafi verið í svipaðri stöðu og Rússland í dag. Breska heimsveldið eða einstaklingar innan þess (Milner's Group,einskonar leynifélag sem tengdist Suður-Afríku, Round Table) vildi allt til þess vinna að koma í veg fyrir samkeppni frá Þýskalandi sem var rísandi veldi og áttu alla möguleika á að verða breska heimsveldinu fremra á öllum sviðum. Þýskaland hafði þá ekki tekið þátt í hernaði síðan 1871. Ennfremur er rétt að minna á samlíkinguna við Rússland Nikulásar II í aðdraganda Bolsevíkabyltingarinnar. Er Pútín í svipuðum sporum nú og hann var þá? Í það minnsta var mikill fjölmiðlaáróður gegn keisardæminu þrátt fyrir að Nikulás hafi gert mikið í því að t.d. bæta hag bænda þar sem fjöldi leiguliða urðu sjálfseignabændur. 

Sagan endurtekur sig, fjölmiðlaáróðurinn gegn rússneskum stjórnvöldum er hald ég fordæmalaus, í það minnsta í mínu minni. John Pilger sagðist aldrei hafa séð annan eins áróður sem nú er í gangi gegn Rússlandi og er þá langt til jafnað.

Ari Tryggvason, 24.9.2022 kl. 04:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband