Umboðsstríð

fallensoldierspexels-photo-10550031Stríðið í Úkraínu er umboðsstríð Bandaríkjanna gegn Rússlandi (mætti kalla Seinna Hvítliðastríðið, það fyrra var 1917-1923). Bandaríkin með aðstoð ESB og fjármagns frá aðilum í NATO-löndum hófu stríðið 21. nóvember 2013 með árásum launaðra óeirðaseggja og málaliða á stjórn Úkraínu, á lögregluna og stjórnarbyggingarnar í Kænugarði. Þeir kveiktu elda, skutu úr byssum og komu af stað götubardögum. Þeir drápu fjölda lögreglumanna og meir en 50 borgar féllu í árásunum sem náðu hámarki 18-23 febrúar 2014. Löglega kjörin stjórn Úkraínu var hrakin frá völdum.

Kveikjan að stríðinu var að hin löglega kjörna stjórn Úkraínu hafnaði aðild að ESB í nóvember 2013. Þegar hún hafði verið hrakin frá völdum komu Bandaríkin, með stuðningi ESB, sinni leppstjórn til valda 27.febrúar 2014.

https://www.frjalstland.is/2018/06/30/esb-akvedur-utanrikisstefnu-islands/

Leppstjórnin hóf þegar í febrúar 2014 stríð gegn Rússneskum íbúm austurhéraðanna sem kröfðust sjálfstjórnar, dráp á þúsundum Rússa í Luhansk og Donbas. Í drápsveitum Kænugarðsstjórnar er samsafn öfgamanna. Hluti úr s.k. Azov-herdeild eru enn innilokaðir í Azov-stálverinu með málaliðum og með almenna borgara sem skildi og neita að láta þá lausa.

https://moderndiplomacy.eu/2018/06/04/how-and-why-the-u-s-government-perpetrated-the-2014-coup-in-ukraine/

Rússland fór með her inn í Úkraínu í febrúar 2022 eftir að NATO- og ESB- lönd höfðu svikið loforð um að víkka ekki út NATO til austurs og stjórnin í Kænugarði hafði brotið Minsk-samningin um öryggi Rússa í Austur-Úkraínu.

ESB þátturinn í stríðinu er að koma vopnum, málaliðum, peningum og annarri hernaðaraðstoð til Úkraínu. Og ekki síst að reka áróður. Þekktust er margauglýst blekking um "innlimun" Rússa á Krím sem varð til þess að Rússar settu hömlur á viðskipti við Ísland eftir að ESB/EES fyrirskipaði Íslandi að setja viðskiptabann á Rússland vegna "innlimunar Krím"! Eins og kunnugt er hefur Krím löngum verið hluti Rússlands þar til Úkraínu var "gefinn" skaginn í einhverju innansveitarspili í Ráðstjórnarríkjunum 1954. Strax eftir valdarán leppanna í Kænugarði höfnuðu Krímverjar að vera áfram hluti af Úkraínu í þjóðaratkvæðagreisðslu 16 mars 2014 og ákváðu að verða aftur hluti af Rússlandi enda aðallega Rússar sem búa þar.

https://www.frjalstland.is/2022/03/07/utthensla-nato-og-esb-orlagarik-mistok/

Íslendingar sölumenn dauðans eða friðarins? NATO og ESB ganga nú langt við að auka þjáningarnar. Bönn, höft, útilokanir, eignaupptökur, rán, þjófnaðir, borottrekstur. Og ótakmarkað magn af drápstólum inn á ófriðarsvæðið.

Þegar Íslendingar láta hafa sig í að flytja drápstól að Úkraínu er það ekki bara undirlægjuháttur við stríðsöflin í ESB og NATO. Það er aðild að drápum á Rússum, takmarkalaus lítilmennska og brot á gamalgrónu trúnaðartrausti við þjóð, Rússa, sem hefur aldrei gert Íslandi neitt en staðið með Íslendingum gegn yfirgangi NATO-og ESB-landa í öllum veðrum

Íslendingar eiga að gerast sölumenn friðarins, eins og fyri 36 árum, og bjóða leiðtogum Bandaríkjanna og Rússlands til viðræðna á Íslandi. Það væri ekki lítilmennska.

bloggið skrifar Friðrik Daníelsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Þeir gætu vel gengið að því með þökkum.

Helga Kristjánsdóttir, 29.4.2022 kl. 00:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband