Við þurfum nýsköpun
26.3.2020 | 13:04
Stjórnvaldsaðgerðir vegna plágunnar eyðileggja fyrirtæki og atvinnu. Við þurfum sjálfstæði frá alræðisbáknum sem neyða aðgerðum upp á okkur. Og við þurfum nýsköpun til enduruppbyggingar. Vandamálið er að það vantar gróðurmold fyrir skapandi Íslendinga: Stjórnvöld skortir þekkingu á forsendum nýsköpunar. Stjórnvaldsaðgerðir hafa verið rangar og of margar og vald ESB hefur bitnað á viðskiptum, orkumálum, "umhverfismálum", utanríkismálum, atvinnusköpun og nú síðast heilbrigðismálum. Skattar eru of miklir, kvaðir eru of margar. Það vantar öfluga áhættufjárfesta. Verstu hindranirnar fyrir nýsköpun eru EES reglugerðastaflarnir.
Hvaða skref er hægt að taka til að efla íslenska nýsköpun?
"Númer 1, 2 og 3 er einfaldara regluverk" (Helga Viðarsdóttir í viðtali við Fréttablaðið 25.3.2020)
Regluverk EES gerir íslensk fyrirtæki ósamkeppnishæf
Meginflokkur: Evrópumál | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:08 | Facebook
Athugasemdir
Mikið var ég glöð að heyra Kára forstjóra IE minna á fæðuöryggi að gefnu tilefni í viðtali sjónvarps í gær,um leið og ég tek undir þennan mjög góða pistil hér.
Helga Kristjánsdóttir, 27.3.2020 kl. 17:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.