Við horfum máttlaus á niðurrifið
10.3.2020 | 21:23
Viðskiptum með helstu auðlindina, raforkuna, er stjórnað af ESB-lögum vegna EES. Raforkusamninga þarf að leggja fyrir eftirlitsstofnun EES (ESA). Ef álverið í Straumsvík á að halda sinni samkeppnisstöðu eins og hún var við gerð síðustu samninga þarf orkuverðið að lækka um 30%.
Samkvæmt EES eiga eigendur orkufyrirtækjanna (stjórnvöld þjóðarinnar) ekki að vera með fingurna í rekstri þeirra. Íslensk stjórnvöld eru því orðin áhrifalaus við að skapa íslensku athafnalífi rétta samkeppnisaðstöðu í orkunýtingu. Orkukerfi landsins er mikilvægasti þáttur innviðanna en reglukraðak ESB/EES stendur í vegi fyrir skynsamlegum rekstri og uppbyggingu þess.
-"raforkumarkaður ESB hentar ekki hér - íslenska orkukerfið hefur aðeins eina flutningsleið, raflínur - því er tómt mál að tala um samkeppnismarkað orku hér á landi með sama hætti og í ESB-"
https://www.frjalstland.is/2020/03/08/enn-um-raforkuverd-isal/
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.