Er Ísland í skammarkróki EES?

Getur verið að hræðsla við Norðmenn og ESB í EES samstarfinu sé ástæðan fyrir einbeittum vilja stjórnarliða að innleiða 3OP?

Af hverju heldur Utanríkisráðherra því fram að ef við innleiðum ekki 3OP, lendum við í ESB?

Af hverju hafa þingmenn lýst áhyggjur af refsiaðgerðum ESB ef við höfnum 3OP, þrátt fyrir ákvæði um deilulausn í samningnum?

Eru orð utanríkisráðherra vegna þess að búið sé að gefa í skyn að með niðurfellingu EES samningsins fái Ísland enga samninga (Brexit style) og hann sjái þá enga aðra leið fyrir Ísland, en að ganga í ESB?

Telja íslenskir ráðamenn að þetta megi ekki koma fram fyrir þjóðina? Séu ráðalausir?

Skýrir þrýstingur þessi sérkennilegu viðbrögð og málflutning stjórnarliða um 3OP?

Munum heimsókn utanríkisráðherra Noregs í fyrra til að ræða 3OP, sérstakan fund Katrínar og Solberg í vetur um 3OP, núna heimsóknir æðstu manna Þýskalands.

Munum einnig orð fv. forseta EFTA dómstólsins um þreytu Norðmanna að halda uppi EFTA/ EES kerfinu.

Það eru engar tilviljanir í svona málum.

Viðsnúningur forystumanna og þingmanna ríkisstjórnar-flokkanna eftir sameiginlegan fund í ráðherrabústaðnum er óeðlilegur, allar efasemdarraddir þögnuðu, formenn Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks sem höfðu haft uppi efasamdir og gagnrýni nokkrum mánuðum fyrir fundinn snéri við blaðinu ganga gegn flokkssamþykktum og andstöðu grasróta flokkanna. Forysta VG þegir þunnu hljóði í stórmáli sem markaðsvæðir orkugeirann og hefur í för með sér mikil umhverfisáhrif í kapphlaupi virkjunarframkvæmdum. 

Kannski var eitthvað að baki því þegar í upphafi var helsti hræðsluáróðurinn um að EES samningurinn væri í hættu?

ER BETRA AÐ FÆRA ESB STJÓRN ORKUMÁLA Á ÍSLANDI OG BRJÓTA STJÓRNARSKRÁNNA, TIL AÐ HALDA Í ÓNÝTAN SAMNING?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Þetta er alls ekki fjarstæðukend kenning. Hef sjalf verið að gæla við hana vegna þessa skyndilega og outskyrða viðsnunings sem xD hefur bitið sig fastan við. Ef við stöndum t.d. frammi fyrir að borga, segjum 20% af reikningnum i stað 3.5-4% þa myndu renna tvær grimur a mannskapinn. 

Ragnhildur Kolka, 12.8.2019 kl. 21:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband