Orkan orðin of dýr

kertipexels-photo-278823.jpgRaforkufyrirtækin, sem eru í okkar eigu, láta okkur borga of mikið fyrir orkuna. Bæði hafa EES-tilskipanirnar klofið fyrirtækin í minni og óhagkvæmari fyrirtæki og hleypt upp kostnaðinum. En líka hafa orkufyrirtækin komist fram með að hækka verð að óþörfu. Stjórnvöld okkar, sem eiga að stjórna orkufyrirtækjunum fyrir okkar hönd, standa sig ekki

"Aðskilnaðurinn var gerður á milli framleiðslu og flutnings á raforku með nýjum raforkulögum 2003. Var það í takt við samninga um aðild Íslands að EES. Fullyrt var við þessa breytingu að þetta væri gert "til að láta samkeppnina leiða til hagræðingar og sjálfbærrar nýtingar á auðlindinni, notendum rafmagnsins og eigendum að auðlindinni til hagsældar". Reynslan fyrir almenna neytendur, sér í lagi í dreifbýli, virðist þó hafa verið þveröfug". (Bbl 28.10.2016).

Stjórnvöld okkar eru farin að reyna að fela óstjórn orkumála með trúarsetningum ESB ( til dæmis "samkeppni og sjálfbær nýting"). Árangurinn í ESB er hæsta raforkuverð í heimi og götubardagar út af háu eldsneytisverði.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Það er orðið álita mál hverra hagsmuna Íslensk stjórnvöld eru að gæta.  Eins og nú þegar ráðuneytisstjóri Forsætisráðherra undirritar skjal frá sameinuðu þjóðunum sem heftir málfrelsi okkar og heimildir til að ráða landamærum okkar.

 Það er ekki alveg ljóst hvaða hvatar það eru sem reka ráðherra til að hefta frelsi okkar og sjálfstæði.  En það er vitað að sumar stórar stofnanir nota peninga sem gulrót og munum þegar Davíð Oddsyni voru boðnar miljónir til að breyta skoðunum sínum en hann hafðir æru og staðfestu og sagði nei.

 

Hrólfur Þ Hraundal, 13.12.2018 kl. 12:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband