Færsluflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál
Er ESB fyrirmynd?
22.3.2024 | 14:22
Evrópa þarf nú að búa sig undir stríð við Rússland segir einn af Brusselgáfnaljósunum (hjá ESB þýðir "Evrópa" ESB þó aðeins rúmur helmingur Evrópubúa búi í ESB). Evrópusambandið hefur sagt sínum meðlimum að koma sínum hagkerfum í stríðsham því Rússar muni ráðast á ESB (mbl 20.3.2024)! Eins og margt annað frá ESB er sá spádómur byggður á umfangsmiklum lygavef sem hefur verið spunninn í rótgróinni heimsvaldahyggju V-Evrópu sem hefur ásælst auð Rússlands í aldir.
Macronapoleon Frakklandskeisari og Brusselþursana dreymir um að ESB taki við sríðsrekstrinum gegn Donbas og Rússlandi af Bandaríkjunum sem hafa rekið hernaðinn síðan Obama-stjórnin hóf hann 2014 með stuðningi ESB og NATO. Afskipti ESB og NATO og viðbrögð Rússa við þeim eru að leggja Úkraínu í rúst https://www.frjalstland.is/2024/02/29/ukraina-logd-i-rust/
Ætlar eyríkið Ísland að vera með í stríðshlaupi ESB/NATO gegn Rússlandi? Er ESB sú fyrirmynd sem Ísland þarf, lönd þar búa við meiri vandamál og fátækt en Ísland og þróast nú í átt að múslimaríkjum meðan sjálfum Evrópubúum fækkar. Viljum við lög ESB yfir okkur? Uppbygging iðnaðar og orku er að stranda, landbúnaðurinn er að kikna, samkeppnislög ESB/EES og Samkeppniseftirlitið standa í vegi fyrir þróun atvinnufyrirtækjanna, umhverfistilskipanirnar stöðva uppbygginguna, loftslagstilskipanirnar færa fúlgur fjár til Brusselbáknsins. Og nú er stríðsandinn kominn yfir Vesturevrópuveldin eins og svo oft áður með geigvænlegum afleiðingum. https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/03/22/katrin_fundadi_med_forsaetisradherrum_evropurikja/
Það er löngu kominn tími til að segja Ísland frá valdi Brussel, EES-samningnum og vitfirrtum stríðsæsingi gegn Rússlandi sem hefur verið ein öruggasta vinaþjóð Íslendinga og hefur aldrei gert árás á Vesturevrópu þó þurft hafi að reka Vesturevrópska heri heim eftir að þeir höfðu drepið milljónir Rússa. https://www.frjalstland.is/2024/01/27/vaxandi-hernadur-gegn-russlandi/
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 23.3.2024 kl. 01:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Rússar öfundaðir
18.3.2024 | 15:00
Vestrænir leiðtogar og falsfréttamiðlar eru svo öfundsjúkir út í Rússa fyrir skipulegar og lýðræðislegar kosningar að þeir gelta og froðufella eins og óðir hundar.
https://www.telegraph.co.uk/world-news/2024/03/18/ukraine-russia-war-latest-news2/
https://www.bbc.com/news/live/world-europe 68536879?src_origin=BBCS_BBC
Rússar héldu lýðræðislegar kosningar undir stöðugum sprengjuárásum leppstjórnar Vesturlanda í Úkraínu og óhróðri vestrænna fjölmiðla og ráðamanna. Kosningarnar voru undir eftrliti kosningaeftirlitsmanna frá mörgum löndum. Falsfréttamiðlarnir láta sem Navalny nokkur hafi verið útilokaður og drepinn en hefði líklega verið kosinn en vitað er að hann hafði hverfandi stuðning meðal Rússa sem þekktu hann sem þjóf og nýnasista sem fjármagnaður var af bandarískum undirróðursfélögum (s.s. NED, National Endowment for Democracy https://www.ned.org/). Hann átti að koma á valdaráni eins og Bandaríkjastjórn framdi í Úkraínu 2014.
Í helsta lýðræðisríkinu, sem að eigin sögn er Bandaríkin, er aftur á móti stundað umfangsmikið kosningasvindl í "lýðræðislegum kosningum", aðhlátursefni heimsbyggðarinnar. Þar vinna borgaðir erindrekar og embættismenn forsetans að því að stöðva mótframbjóðandann.
Ekki nema von að vestrænir leiðtogar, sem eru upp til hópa þrælar stórfyrirtækjaveldisins (og um leið vopnaframleiðenda) séu öfundsjúkir út í Vladimir Putin. Hann hefur á aldarfjórðungs ferli leitt Rússland úr hruni Ráðstjórnarríkjanna og afskiptum Bandaríkjanna sem komu fyllibyttu, Boris Yeltsin, í forsetastól Rússlands. Rússar eru löngu farnir að þekkja undirróðursöflin sem stöðugt eru að reyna að rífa niður þeirra samfélag. Þeir velja sér til forustu færa menn sem hafa reynslu af að berjst við vestrænu ófreskjuna.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 15:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3 stríð í gang
16.3.2024 | 13:09
Stríðsríkið stefnir nú á að halda gangandi 3 stríðum: Í Úkraínu, Mið-Austurlöndum og Kína.
Verktökustríð nýnasistanna í Úkraínu á vegum Bandaríkjanna hefur staðið í 10 ár en Evrópusambandið er að reyna að taka við. Stríðið gegn Palestínu, Líbanon, Jemen og Íran fór af stað í byrjun vetrar. En gengið í Hvíta húsinu er nú að munda byssurnar gegn Kína. Bandarískir hermenn eru komnir til Kinmen eyja rétt við strönd Kína. https://asiatimes.com/2024/03/us-green-berets-deploying-to-taiwans-front-line/
Manndráp stríðsríkisins í Írak, Afganistan, Serbíu, Líbíu og Afríku hafa minnkað en manndráp og þjófnaður heldur áfram í Sýrlandi.
Af því að Bandaríkin eru okkar helsta bandalagsríki ættu íslensk stjórnvöld að hætta að naga neglurnar og segja Könunum að hætta þessu áður en við aumingja bandamennirnir fáum líka allan heiminn upp á móti okkur!
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 13:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýtt járntjald
14.3.2024 | 13:46
ESB og NATO hafa nú strekkt nýtt járntjald gegnum Evrópu, frá austurlandamærum Finnlands að austurlandamærum Rúmeníu við Svartahaf. Og nú á að reyna að teygja það austur að Don og suður að Svartahafsströnd.
Það hefur þegar tekið við af gamla járntjaldi Churchills og Trumans sem gekk í gegnum Berlín og suður í Adríahaf en það var strekkt eftir að Rússar gersigruðu Þjóðverja og hröktu flótta þeirra vestur og tóku Berlín og austurluta Þýskalands og mesta alla Austur-Evrópu undir sitt vald eftir að hafa hreinsað svæðið af Þjóðverjum. Ekki átti að sleppa ófreskjunni aftur af stað til Rússlands.
En ófreskjan villti á sér heimildir en sýnir nú sitt innra eðli. Nýja járntjaldið á að gera það sama og það gamla, útiloka og einangra Rússland og leggja það í framhaldi undir Bandaríkin&leppa til þess að stela auðlindum þess og sleppa auðvaldinu í þær.
ESB sagðist ætla að koma á friði í Evrópu en sýnir nú sinn tilgang og er orðið stríðsbandalag. NATO átti að verja okkur gegn Ráðstjórnaríkjunum sem leystust upp fyrir aldarþriðjungi. En ESB og NATO hefur tekist að koma í veg fyrir samstarf og friðarvilja og hafa haldið Evrópu í innri flokkadráttum og úlfúð og undirbúa nú stríð við Rússland. Hernaðarhreiðrum er nú dritað niður austur við nýja járntjaldið og herflokkarnir flykkjast þangað.
Íslendingar þurfa að segja sig frá stríðsmangi Evrópusambandsins og NATO.
https://www.frjalstland.is/2024/01/27/vaxandi-hernadur-gegn-russlandi/
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 17:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Úkraína lögð í rúst
29.2.2024 | 19:38
Afskipti ESB- og NATO-landa hafa leitt hörmungar yfir Úkraínu. Stór hluti íbúanna er farinn, flestir til Rússlands, heilu árgangar ungra manna eru sem næst horfnir. Ukraínumenn eru smám saman að átta sig á hvað hefur gerst þrátt fyrir að einhliða áróður stjórni umfjölluninni.
Hernaður NATO-landa í Írak, Júgóslavíu, Afganistan, Líbíu, Sýrlandi, Yemen, Palestínu er gegn smáþjóðum sem geta ekki rönd við reist. En nú eru stríðsherrarnir í Washington, London og Brussel farnir að kássast uppá helsta kjarnorkuveldi heims, Rússland, og stórþjóðir Asíu, Kína, Indland, Íran.
Okkar bandamenn eru ekki bara aumkunarverðir heldur líka heimskir og hættulegir.
https://www.frjalstland.is/2024/02/29/ukraina-logd-i-rust/
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 20:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Zelensky í forsetann
25.2.2024 | 13:45
Íslenskir áhrifamenn eru svo hrifnir af Zelensky forseta Úkraínu að þeir mega vart vatni halda. Nú er að verða ljóst að gúanókratarnir í Bandaríkjunum geta ekki stoppað Trump sem þýðir að Zelensky verður rekinn ("you are fired") nema Úkraínumenn sjálfir verði búnir að hlutleysa hann fyrir að vera lélegur betlari. Það liggur því beint við að fá Zelensky til að taka að sér forsetaembættið á Íslandi áður en hann flytur í lúxusvilluna í Florida sem Biden reddaði. Prófessorar, sérfræðingar, ráðherrar og kaldastríðsleppalúðar eru nú sammála, og hafa verið það í 78 ár allt frá því elliæringinn Churchill ýtti Kalda Stríðinu úr vör, um að Rússar ætli sér að sprengja Keflavík. Það er því nauðsynlegt að hafa sterkan Rússahatara sem leiðtoga Íslands. Evrópusambandið væri líklega til í að borga launin hans og Kanarnir mundu væntanlega grafa kjarnorkubirgi undir Bessastaði fyrr hann.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 26.2.2024 kl. 01:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10 ára hörmungar Úkraínu
23.2.2024 | 14:54
Upphaf Úkraínustríðsins var valdarán Bandaríkjanna í Kænugarði sem heppnaðist að lokum þessa febrúardaga 2014 eftir að leigumorðingjar Bandaríkjanna höfðu drepið marga af lögreglumönnum og embættismönnum Kænugarðs.
Þegar svo Bandarikjastjórn hafði bak við tjöldin látið spillta lögreglu Kænugarðs skjóta á vopnlausan mannfjölda til þess að gera þáverandi Úkraínustjórn að blórabögglum og fá afsökun til þess að flæma hina "spilltu" rússavinveittu "mannadrápastjórn" frá völdum, var komið færi til þess að koma leppstjórn til valda. Þagar forsetinn hafði flúið undan morðingjunum komu erindrekar Obama/Biden-stjórnarinnar, með aðstoð nýnasista, að leppstjórn í Kænugarði sem hóf strax hernað gegn rússneskum borgurum þáverandi Úrkraínu.
Undirbúningur að stríðinu hafði staðið í árafjöld, byssumenn og launmorðingjar þjálfaðir, vopnabirgðum safnað, mútur höfðu kostað utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna 5 milljarða dala og spillingin orðin heimsmet eins og þekkt er frá málum Biden-feðga.
Ísland var dregið inn í refsiaðgerðir gegn Rússlandi, einu besta viðskiptalandi Íslands, á upplognum forsendum strax vorið 2014 undir forræði EES/ESB og NATO. Rússar voru m.a. sagðir hafa innlimað Krím (byggt Rússum), það rétta var að Krímverjar ákváðu sjálfir að sameinast aftur Rússlandi.
Þegar Rússlandsher kom Donbas loksins til varnar 2022 urðu forustumenn Vesturlanda að flokk óðra hunda https://frjalstland.blog.is/blog/frjalstland/entry/2276171/ sem réðust á Rússland úr öllum áttum og brutu alla alþjóðasamninga sem máli skiptu. Nú tveim árum eftir að hundaæðið braust út eru forustumenn NATO og ESB-landa ennþá eins og dekurrakkar í hráskinnaleik og búnir að valda efnahagshrörnun og voli heima hjá sér og orðnir að athlægi mest allrar heimsbyggðarinnar.
En þjáning Úkraínufólksins heldur áfram þó það hafi ekkert til saka unnið nema að trúa lygum NATO og ESB.
https://www.frjalstland.is/2023/11/21/10-ara-strid/
https://www.frjalstland.is/2023/12/19/stridsundirbuningur/
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 24.2.2024 kl. 01:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Frelsun Avdeevka
21.2.2024 | 14:25
Rússar halda áfram að frelsa svæði í Donbas undan Kænugarðsstjórninni, síðast iðnaðarborgina Avdeevka.
https://www.rt.com/russia/592738-triumph-in-avdeevka/
Bardagar byrjuðu þar fyrir 10 árum þegar Kænugarðsstjórnin, þá orðin leppstjórn Obama-stjórnarinnar í Washington, hóf hernað gegn rússneskum borgurum í Donbas eftir valdaránið í Kænugarði. Okkar falsfréttamiðlar sögðu að "eðlileg" fjöldamótmæli í Kænugarði hefðu orðið fyrir tilefnislausri árás lögreglu Úkraínustjórnar sem hafi fengið fyrirmæli um að skjóta á almenning.
Það rétta er að gegnumspillt löregluyfirvöld borgarinnar fengu fyrirmæli frá Obama-stjórninni um að skjóta á almenning 20. febrúar, 2014, sk. Berkut-sveit fékk verkefnið, til þess að fá afsökun til að flæma löglega stjórn landsins frá völdum. Þar á undan höfðu morðsveitir á vegum Utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna (Victoriu Nuland) drepið á annað hundrað starfsmenn löglegrar stjórnar Ukraínu. Löglega kjörinn forseti Úkraínu komst undan morðingjum og flýði land 22.febrúar, 2014.
https://www.frjalstland.is/2023/11/21/10-ara-strid/
Aðkoman eftir að búið var að reka Kænugarðshermennina út úr boragrrústum Avdeevka var ömurleg. Lík og særðir úkraínuhermenn skildir eftir út ut um allt. Um 1000 hermenn voru teknir til fanga. NATO/ESB hermennirnir komust burt og skildu eftir sig mikið af skotfærum
https://www.rt.com/russia/592825-nyt-avdeevka-retreat-hundreds-ukrainian-pows/
Rússneski fjölmiðillinn RT gefur ágæta og í meginatriðum meira sannfærandi mynd af atburðunum en falsfréttamiðlarnir hér á Vesturlönduum geta boðið upp á, þeir eru undir ægivaldi áróðursskrifstofa NATO/ESB-landa, því er vísað í RT hér í blogginu.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 18:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þýskalandskanslari í stríðsham
14.2.2024 | 16:11
Þýskalandskanslari vill fjöldaframleiðslu vopna til hernaðarreksturs gegn Rússlandi og fá fleiri stríðsþjóðir úr ESB og NATO í púkkið.
Olaf, 37.kanslari Þýskalands, vill feta í fótspor 25. kanslarans, Adolfs, og hefja fjöldaframleiðslu vopna sem hægt er að nota gegn Rússlandi. https://www.mbl.is/frettir/erlent/2024/02/12/hvetur_til_fjoldaframleidslu_vopna_i_evropu/
Bretar, sem komu í veg fyrir friðarsamninga Úkraínu og Rússlands 2022, hafa nú gert "varnarsamning" við Kænugarðstjórnina. https://www.reuters.com/world/europe/ukraine-britain-sign-security-agreement-kyiv-2024-01-12/
Þjóðverjar og Frakkar, sem voru aðilar að því að svíkja friðarsamninga Úkraínu við Rússland 2014-2015 (sk. Minsk-samninga sem þeir báru ábyrgð á) ætla líka að gera varnarsamning við Kænugarðsstjórnina. https://kyivindependent.com/germany-france-ukraine-security-guarantees/
Framkvæmdastjóri NATO (þessi sem hljómar eins og Göbbels) hvetur NATO-lönd til meiri hervæðingar. https://www.mbl.is/frettir/erlent/2024/02/13/nato_rikin_herda_varnarmalarodurinn/
Eðli stríðsþjóðanna segir til sín. https://www.frjalstland.is/2024/01/27/vaxandi-hernadur-gegn-russlandi/
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 17:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Lygasmiðjur fóru á taugum
10.2.2024 | 13:01
Viðtal Tucker Carlsons við Vladimir Putin tók vestrænar lygamsiðjur og falsfréttamiðla á taugum.
Carlson er nú úthúðað þar og sakaður um alls kyns ósvinnu og að vera áróðursmaður Pútíns en Tucker er vinsælasti viðtalsþáttastjórnandi Bandaríkjanna og þegar hafa á annað hundrað milljónir séð viðtalið. Og Pútin er eins og venjulega sakaður um alls kynns illvirki og svikar. Til dæmis birti BBC nokkrar greinar, greinilega skrifaðar af þjálfuðum falsfréttamönnum um Rússland, sem sögðu útlistingar Pútíns um tilurð Úkraínu vitlausar (nonsensical) þó þær hafi aðeins verið upprifjun á löngu þekktri sögu. Þýskalandskanslari sagði það "absurd"! En meginfjölmiðlarnir fjalla ekki mikið um mikilvægustu atriðin í viðtalinu: Orsök og upphaf Úkraínustríðsins, höfnun NATO á tilbúnum friðarsamningum 2022 og opnun Putins á nýja friðarsamninga í viðtalinu.
Vonandi fá illa upplýstir og lygafullir ráðamenn NATO- og ESB-landa einhverja kunnáttumenn til að útskýra fyrir sér hvað kom fram í viðtalinu áður en þeir gera sömu mistökin og Napoleon og Hitler.
Nú geta þeir sem skilja ensku fengið að heyra milliliðalaust frá Putin, en ekki gegnum falsfréttamiðlana, hvað er að gerast í Úkraínu og Rússlandi.
https://twitter.com/TuckerCarlson/status/1755734526678925682
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 18:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)