Færsluflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál
Hvað eru Bandaríkin að gera í Úkraínu?
11.6.2024 | 13:16
Af hverju eyða moðskuldug Bandaríkin stjarnfræðilegum upphæðum í hernaðarrekstur í Úkraínu? Eru þau að verja frelsi, lýðræði eða sjálfstæði landsins?
Annað slagið koma ráðamenn fram og afhjúpa sannleikann, viljandi eða óviljandi. Einn helsti leiðtoginn á Bandaríkjaþingi fer ekki í grafgötur með ástæður hernaðarins í Úkraínu:
"-They are sitting on 10 to $12 trillion of critical minerals in Ukraine - they are sitting on a gold mine-" = Úkraínumenn sitja á 10-12 trilljóna dollara virði af mikilvægum málmum - þeir sitja á gullnámu-" (Lindsey Graham á CBS) https://www.cbsnews.com/news/lindsey-graham-senator-south-carolina-face-the-nation-transcript-06-09-2024/
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 13:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hernaður Íslands
30.5.2024 | 17:35
Hernaðarstuðningur Íslands kostar þjóðina mannorðið sem vopnlaus friðarþjóð og auk þess viðskiptasambandið við eitt besta viðskiptalandið á lýðveldistímanum. Hernaðarrekstur NATO og ESB gegn rússneskum íbúum Úkraínu og nú Rússlandi sjálfu hófst af uppskálduðu tilefni snemma árs 2014 með sviðsettri uppreisn og vopnuðu valdaráni á vegum ríkisstjórnar Obama og bandamanna. Markmiðið er að taka Úkraínu inn í NATO og ESB. Og ekki síst, egna Rússa til styrjaldar sem fávísir NATO/ESB-forsprakkar halda að hægt sé að vinna!
Sum NATO- og ESB-lönd hafa aukið stríðsæsingarnar og Stoltenberg (framkvæmdastjóri NATO) er einn háværasti stríðsmangarinn. Hann er "hættulegur maður" segir ríkisstjórn Ítalíu. https://ground.news/article/italian-deputy-pm-calls-nato-boss-a-dangerous-man
https://www.youtube.com/watch?v=eptbaN4npaA
Stríðsæsingarnar gegn Rússlandi nú eru álíka tilefnislausar og síðustu heila öldina https://www.frjalstland.is/2024/03/30/ovinur-buinn-til/. Aftur á móti er full ástæða til að óttast hernað NATO- og ESB-landa eins og menn vita í Viet Nam, Írak, Serbíu, Sómalíu, Libíu, Afganistan, Sýrlandi, Jemen, Palestínu----
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 31.5.2024 kl. 01:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Dísa í undralandi
18.5.2024 | 15:40
Dísa og tveir Austurseltingar blönduðu sér í innanríkismál Georgíu með áróðursræðum í mótmælagöngu gegn Georgiskum lögum um erlenda erindreka. Irakli Garibashvili, leiðtogi ráðandi stjórnmálaflokks Georgíu, segir að um sé að ræða móðgun við Georgíu.
Georgíumenn eru ekki heimskir (Stalín, Schevardnatse ofl. gáfumenn voru frá Georgíu) svo íslenskar og eystrasalts- slettirekur ættu að vara sig á að abbast upp á þá, þeir stjórna sínum málum sjálfir. Spillingaröflin i NATO/ESB stefna að svipaðri "litabyltingu" í Georgíu, Slóvakíu og Hvítarússlandi og þau frömdu í Úkraínu fyrir 10 árum sem var upphaf Úkraínustríðsins.
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Vindmyllur ekki lengur í tísku
16.4.2024 | 14:17
Andstaða gegn vind- og sólorkuverum er alþjóðleg og vaxandi, orkuverin eru óhagkvæm og byrði á sínum samfélögum þó umhverfisprelátar haldi öðru fram. Þau valda hljóðmengun, fuglameiðslum, mengunarslysum og eitruðum úrgangi og fleiri umhverfisspjöllum og valda oft rafmagnsleysi. Aðild Íslands að EES opnar á að fyrirtæki í Evrópusambandinu og þeirra umbar hér byggi og reki vindmylluver á Íslandi og fái styrki af almannafé.
Um allan heim er nú verið að hafna vind-og sólorkuverum.
Í Englandi hefur svo mörgum sólorkuverum verið hafnað að erfitt er að halda reiður á. Svæðisstjórnir í Cambridgeshire, Holbeach, Kent, Herefordshire og Coventry hafa hafnað sólorkuverum.
Í Bandaríkjunum hefur amk. 639 vind- og sólorkuverum verið hafnað síðan 2015.
Þeir einu sem vilja vindmyllur og sólarpanela eru umhverfistrúðarnir og fyrirtækin sem fá ríflega almannastyrki til að byggja og reka "grænu orkuverin"
https://www.frjalstland.is/2024/04/16/vaxandi-andstada-gegn-vindmyllum-og-solorkuverum/
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Kjarnorkuheimsendir, forleikur
6.4.2024 | 12:49
Elon Musk sgir að loforð Washington til Úkraínu um NATO-aðild sé forleikur að kjarnorkustyrjöld og heimsendi.
https://www.yahoo.com/news/elon-musk-compares-nuclear-apocalypse-083500688.html?guccounter=1
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna og hans strengjabrúður í Evrópusambandinu gelta hátt um að innlima Úkraínu í NATO (það var reynt 2010 en þá var lýðræðislega kjörin stjórn og þing í Úkraínu sem hafnaði aðild þann 3.júní). Bretar, Frakkar og Pólverjar vilja meira og stærra stríð og Danir eru orðnir svo blóðþyrstir að þeir ætla að setja sín ríkisútgjöld til hermála beint í vopnakaup hryðjuverkastjórnarinnar í Úrkaínu og jafnvel hækka skatta til þess að auka úthellinginn. Stríðsæsingurinn í Danmörku er orðin slíkur að ekki er einu sinni hægt að hemja NATO-flugskeytin í dönsku herskipunum, þau skjóta sér bara sjálf!
https://www.mbl.is/frettir/erlent/2024/04/05/ottudust_ad_flugskeyti_faeri_a_loft/
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 7.4.2024 kl. 00:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Stríðsfélag 75 ára
4.4.2024 | 13:30
Í mars fyrir 75 árum fóru forustumenn Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Krataflokksins (Alþýðu-) til Washington á fundi með stríðsstjórum Bandaríkjanna. Stjórnmálamenn sem börðust fyrir hlutleysi og herleysi Íslands voru útilokaðir og skildir eftir heima. En þessir þrír létu draga Ísland inn í NATO án þess að spyrja þjóðina.
Þeir sögðust hafa fengið loforð um að ekki yrði herstöð á Íslandi á friðartímum og aðeins þegar Íslendingar sjálfir ákveddu. Þetta var að sjálfsögðu svikið eins og við var að búast. Hlutverk NATO átti að vera að efla heimsfriðinn og berjast gegn útþenslu Moskvu-kommúnistmans. Fagurgalinn https://www.nato.int/cps/en/natohq/official_texts_17120.htm var eins og venjulga ekki alveg það sem varð. NATO var sett á af Bandaríkjunum af tilefni "járntjaldsræðu" Churchill og "Truman-kenningarinnar" sem urðu afsökun fyrir tilefnislausri hernaðarstefnu Bandaríkjanna gegn Ráðstjórnarríkjunum sem fyrir framan nefið á þeim höfðu sigrað Nasistmann og lagt undir sig Austur-Evrópu í herferðinni til Berlínar. https://www.frjalstland.is/2024/03/30/ovinur-buinn-til/
Það voru götubardagar á Íslandi út af aðildinni að NATO sem var komið á með ólýðræðislegum hætti að undirlagi klíku þriggja stjórnmálamanna. Í Noregi og Danmörku urðu líka mótmæli. Þeir sem best þekktu til áttuðu sig á að NATO var ekki varnarbandalag 12 þjóða heldur hernaðarsamvinnufélag Bandaríkjanna til þess að fá óheftan aðgang að auðlindum og mörkuðum.
NATO hefur á sínum 75 ár ferli aldrei varið neinn eða neitt. NATO hefur ekki staðið fyrir friði, þvert á móti hefur NATO verið í hernaði og manndrápum oft af upplognu tilefni. NATO-lönd hafa tekið þátt í manndrápum Bandaríkjanna í Írak, Afganistan, Sýrlandi, Jemen, Libíu og fleiri Afríkulöndum. NATO hefur kastað sprengjum á Evrópuþjóð, Serbíu, og verið virkt í hernaði Kænugarðsstjórnarinnar gegn rússneskum íbúum Úkraínu frá 2014. NATO æsir nú til útvíkkaðs stríðs gegn Rússlandi sem hóf hernaðaríhlutun 2022 gegn árásum Kænugarðsstjórnarinnar á Donbas þar sem stór hluti íbúanna eru Rússar en þau svæði hafa á lýðræðislegan hátt ákveðið að sameinast Rússlandi.
NATO hefur þróast í stríðsfélag sem er hættulegt heimsfriðnum. Undirbúningur vaxandi stríðsrekstrar í Mið-Austurlöndum, Kína og Rússlandi er í fullum gangi í félagi við Evrópusambandið sem NATO hefur gleypt með skít og skinni.
NATO varð óþarft fyrir 33 árum þegar Ráðstjórnarríki kommúnismans voru leyst upp 1991 og ætluð þenslustefna hans þar með. NATO þarf að leysa upp áður en það veldur meiri manndrápum. https://www.frjalstland.is/2023/12/19/stridsundirbuningur/
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 5.4.2024 kl. 02:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kennedy
2.4.2024 | 12:39
Robert Kennedy býður sig fram til forseta Bandaríkjanna og segir að Biden sé verri hætta fyrir lýðræðið en Trump. Hans helstu stefnumál eru að tryggja öryggi landamæra Bandaríkjanna, vinda ofanaf hernaðarbákninu og útrýma sjúkdómum.
Hann er bróðursonur Kennedy forseta sem var drepinn 1963 af CIA að sögn Roberts. Pabbi Roberts, Robert eldri, var drepinn 1968 þegar Robert var 14 ára.
Töfrar John F. Kennedy forseta og Roberts eldri eru enn lifandi vestra sem þýðir að Robert hefur mikinn stuðning þó hann sé ekki frambjóðandi annars af tveim stjórnmálaflokkum sem hafa tröllriðið bandarísku lýðræði.
https://www.foxnews.com/politics/rfk-jr-says-biden-much-worse-threat-to-democracy-than-trump
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 12:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Stríð að skella á
30.3.2024 | 17:59
Eitt af gáfnaljósum ESB, og núverandi forsætisráðherra Póllands, Donald Tusk, segir að nú séru fyrirstríðstímar.
https://www.mbl.is/frettir/erlent/2024/03/29/evropa_nu_a_fyrirstridsarum/
Dómsdagsspámannakór Evrópusambandsins fékk góðan samherja þegar Macronapoleon Frakklandskeisari sagði að gæti þurft að senda franska hermenn til bardaga við Rússa (þeir eru þegar mættir).
Sjálfskipaða spámenn og ofurgáfaða leiðtoga Vesturlanda hefur lengi langað til að splundra Rússlandi og komast í auðlindir þess, Napoleon reyndi 1812, Hitler 1941 og Churchill og Truman mótuðu stríðsstefnu gegn Rússlandi 1946. https://www.frjalstland.is/2024/03/30/ovinur-buinn-til/
Obama og Biden tóku upp stríðsþráðinn 2014 og komu af stað stríði gegn Rússunum í Donbas.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 31.3.2024 kl. 16:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hernaður Íslands
26.3.2024 | 10:31
Skotfærakaup Íslands 300_milljónir.
Þau fáheyrðu tíðindi berast að Ísland muni kaupa skotfæri handa hryðjuverkastjórn Úkraínu sem nú hefur í heilan áratug rekið tilefnislaust árásarstríð gegn rússneskum borgurum landsins, og nú líka Rússlandi sjálfu, á vegum NATO og ESB. https://www.frjalstland.is/2024/01/27/vaxandi-hernadur-gegn-russlandi/
Sjaldan launar kálfurinn ofeldið en Rússar, sem skotfærin eru ætluð til að drepa, hafa í 8 áratugi verið dygg vinaþjóð, ein mikilvægasta viðskiptaþjóðin og auk þess stuðningsþjóð Íslands og gert Íslandi kleyft að verjast ágengni Breta og fleiri V-Evrópuvelda og verja fiskimiðin.
Íslendingar geta ekki lengur státað af því að vera friðelskandi þjóð. Við erum ekki einu sinni trygg okkar bestu vinum. Það verður rannsóknaefni hvernig þetta gat gerst en ljóst er að áhrifamenn landsins og stjórnmálahreyfingarnar sem komist hafa til valda ráða ekki við að halda merki Íslands á lofti en hafa gert Íslendinga að aumkunaverðum leppum stríðsmangara Evrópusambandsins, Bandaríkjanna og NATO.
Skömm íslenskra ráðamanna verður erfit að afmá.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 11:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Lygalaupar of fljótir á sér
24.3.2024 | 14:09
"ekkert bendir til þess nú að Úkraína hafi átt aðild að hryðjuverkinu í Moskvu-" segir aðstoðarlygalaupur Hvíta hússins þegar ódæðið var varla afstaðið. CIA og Hvíta húsið vissu af undirbúningi hryðjuverka í Moskvu fyrir nokkru. Hryðjuverkamennirnir voru ekki neinir hertir hryðjuverkamenn, rússneskir strákar meðal hljómleikagesta náðu einhverjum, tóku af þeim vopnin og börðu þá. Rússarnir náðu svo hryðjuverkamönnunum eftir ódæðið þegar þeir voru á leið til Úkraínu. Þeir höguðu sér ekki eins og hryðjuverkamenn og sögðu strax að þeim hefði verið borgað hálf milljón rúblur.
Það eru aðeins bandarísk og bresk stjórnvöld og leppar þeirra og auðmenn sem borga fyrir hryðjuvek af þessari tegund sem CIA, utanríkisráðuneytið, breska MI6 og ísraelska Mossad geta skipulagt og framkvæmt.
Lygalauparnir í Washington voru of fljótir á sér! Hryðjuverkamenn leita jafnan "heim" þegar þeir hafa lokið sínu ódæði, miðstöð hryðjuverka síðasta áratuginn gegn Rússum er hjá stjórn Úkraínu í Kænugarði og yfirstjórnin og fjármögnunin í Washington sem hefur alið á tilefnislausu Rússahatri í 77 ár.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 15:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)