Færsluflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál

Íslenskir útsendarar

skriffinnskatax-consultant-3094819_960_720Ísland sendir nú erindreka til þess að hjálpa til við að innlima Úkraínu í Evrópusambandið. Löglega kjörin stjórn Úkraínu hafnaði Evrópusambandsaðild 21. nóvember, 2013, og var þá steypt af stóli af Bandaríkjunum og Evrópusambandinu í blóðugu valdaráni.

Í Úkraínu herskar nú ólögleg stjórn, kjörtímabil forsetans rann út í maí siðastliðnum. Íslensk stjórnvöld leggjast svo lágt að gerast útsendarar ríkjasambandsins ESB sem traðkar á sínum aðildarríkjum, hunsar alþjóðasamþykktir og lætur ólöglega stjórn Úkraínu reka hernað gegn eigin þegnum. Afsökun útsendaranna er að Ísland hefur reynslu af EES (hvílík blessun!)

Það nær auðvitað engri átt að Ísland sé að leggja landvinningum Evrópusambandsins (og um leið hernaðarklúbbnum NATO) lið í Úkraínu. Úkraínumenn eiga um sárt að binda vegna ófriðar sem hefur geisað þar síðan valdaránið í febrúar 2014. Þeir (það er um helmingur þeirra enn eftir í landinu) bíða eftir að ESB og NATO hætti hernaðarrekstrinum í Úkraínu, þá munu manndrápin hætta.

(Sjá frétt Mbl 30.7.2024)


Ómarktæk Ólympía

olympiaspot-runs-start-laÓlympíuleikarnir í París verða ómarktæk montsýning. Mesta íþróttaþjóðin, sú sem ætíð vann flest gull, er meinað að taka þátt vegna óhlýðni við gamla herveldið Frakkland og stórveldin í Norðurameríku og Vesturevrópu og meintrar tilefnislausrar innrásar Rússa í Úkraínu. Ísrael fær aftur á móti að vera með þó að þeir drepi börn í tugþúsundavís í Palestínu. 

Það eru mótshaldararnir Frakkar og aðrar stríðsþjóðir Vesturevrópu og Ameríku í NATO og ESB sem útiloka stærstu íþróttaþjóðina, Rússa, frá ólympíuleikunum og bera við fölskum rökum um "tilefnislausa innrás Rússa í Úkraínu"

Það voru ærin tilefni til afskipta Rússlands af manndrápum NATO/ESB í Úkraínu: Obama-stjórn Bandaríkjanna rak löglega ríkisstjórn Úkraínu frá völdum með blóðugu valdaráni 2014 og kom af stað hernaði leppstjórnarinnar, sem sett var á koppinn eftir valdaránið, gegn rússneskum íbúum Austurúkraínu. NATO, ESB og Úkrínuleppstjórnin sviku alla samninga við Rússland um útþenslu NATO og ofsóknir gegn Úkraínurússunum. Eina úrræði Rússa var að koma Úkraínurússunum til varnar.

Það eru 10 ár síðan her leippstjórnarinnar í Úkraínu gerði árás á almenna borgara i borginni Gorlovka í Donesk, sem varð 22 að bana og særði marga, í byrjun hernaðarins gegn Úkraínurússunum.

 

Hræsnin og tilefnislausar stríðsæsingar NATO- og ESB-landa haldast í hendur og friðsama Ísland tekur þátt í ómarktækum ólympíuleikum stríðsþjóðanna.

Sjá mynd á framsíðu Morgunblaðsins 27.7.2024.

 


Ógnin við heimsfriðinn

nuclear-explosion-356108_960_720Hernaðarklúbburinn NATO hélt nýlega stríðsæsingasamkundu gegn Rússlandi og Kína og öðrum sem ekki hlýða Bandaríkjunum eða gömlu heimsveldunum í NATO. Vitgranni mistakaforseti Bandaríkjanna fór fyrir stríðskórnum og hvatti kjölturakka sína í NATO til frekari hernaðar og vígtólasöfnunar.

Hann bauð "Putin forseta" velkominn (það var hinn útrunni forseti Úkraínu) og hældi sínum varaforseta, Trump (varaforsetinn er Kamala Harris). Hann kann ekki mannasiði heldur móðgar þjóðarleiðtoga (t.d. er Putin "brjálaður morðingi").

Á meðan þetta gerist heldur Ísraelsher áfram að myrða börn í Palestínu og ólögleg leppstjórn Úkraínu að senda þegna landsins til Rússlands til að drepa og vera drepnir, allt í skjóli vitgranna mistakaforsetans og NATO.

Í gær var svo komið að því að myrða Donald Trump sem er eini forsetaframbjóðandinn sem getur boðið hernaðarfinngálkninu og bankaeigendunum birginn. Vitibornir menn Bandaríkjanna (t.d. Tucker Carlson) hafa varað við að þegar demokratarnir, erindrekar hernaðarbáknsins og bankaeigenda, hefðu reynt allt annað sem dóms- og löggæslukerfið, gerspillt af þeim, gat komið af stað, yrði reynt að myrða Donald Trump.

NATO og Bandaríkin eru lang stærsta ógnin við heimsfriðinn. NATO-fundurinn í Washington nýlega sýndi að NATO er veruleikafirrt stríðsæsingabákn sem byggt er á uppsöfnuðu geðrofi vestrænna forustumanna síðustu 8 áratugina og er að rotna innanfrá undan egin heimsku og líða undir lok.


Stríðsráðið fundar

fallensoldierspexels-photo-10550031NATO heldur nú fund, málefnið er það sama og síðustu 78 árin: Yfirvofandi innrás Rússa í Evrópu. Markmiðið er að auka stríðsæsingarnar og fá Evrópulönd til að koma í alvöru stríð við Rússland. Í því tilefni hafa falsfréttamiðlar þegar verið virkjaðir og bera nú út að Rússar hafi í gær sprengt Okhmatdyt barnaspítalann í Kænugarði! (hið rétta er að það var NASAMS-loftvarnarskeyti sem Úkraína fær frá NATO-löndum sem sprengdi spítalann, mögulega af klaufaskap Úkraínuhers sem staðsetur drápstól í íbúðahverfum)

Þeir einu sem hafa gert árás á Evrópu síðustu 78 árin er NATO sem skaut sprengjum á Belgrað (1999) og Bandaríkin/NATO sem réðust á lögmæta ríkisstjórn Úkraínu í Kænugarði (2014). NATO-lönd láta nú markamiðara sína beina sprengjum Úkraínuhers á Rússland. Það þarf því greinilega að verja Evrópu gegn hernaði NATO og þyrfti að ræða það á stríðsráðsfundinum.  https://www.frjalstland.is/2024/06/19/haetulegt-folk-og-bjargvaettir/

 


Valkyrjur í stafni

tank-5125073_960_720Ursula og Kaja verða leiðtogar í skriffinnskubákni ESB. Ursula var hermálaráðherra Þýskalands (þar til hún varð uppvís af að kaupa þjónustu fyrir herinn af vinum og kunningjum). Kaja er forsætisráherra Eista (sem bíða nú í ofvæni eftir að hún fari til Brussel svo hægt sé að hreinsa upp dræsurnar eftir hana).

Tignakerfi Evrópusambandsins tekur ónothæfa stjórnmálamenn aðildarlanda sem eru yfirlýstir "Evrópusinnar" (trúa öllum lygum Evrópusambandsins) og setur þá í embætti í Brussel. Ursula verður áfram forseti framkvæmdastjórnarinnar og Kaja talskona "utanríkismála" ESB (ath að ESB er ekki ríki þó brusselskriffinna dreymi um það)

Kaja hatar Rússa (sögð hafa þá í morgunmat) og Ursula heldur að ESB geti það sem forverar hennar í Whermacht gátu ekki. Þær eru báðar stríðsæsingakonur, þess vegna fá þær hæstu embætti í Brusselbákninu sem vill stríð við Rússland.

Lesendur verða að átta sig á að gáfnaljósin í Brussel eru ekki eins og venjulegt fólk heldur hluti af ímynduðum veruleika (eins og í skáldsögum og Hollywood) þar sem allt er leyfilegt og mögulegt: Evran og kúgun almennings og bænda, hringrásar- og vindmylluhagkerfi, eldsneytisbann, innlimun annarra landa og sigur á kjarnorkuveldinu Rússlandi

https://www.frjalstland.is/2022/05/31/evropusambandid-hervaedist/#more-2672


Mistakaforseti

usfalgfourth-of-july-394504_960_720Joe Biden hefur nú afhjúpast fyrir augum kjósenda sem vitsmunalega ófær um að gegna embætti forseta hinna miklu Bandaríkja, það gerðist í kappræðum við Donald Trump.

Biden er kominn langleiðina með að draga Bandaríkin í kjarnorkustyrjöld.

https://www.dailymail.co.uk/news/article-13542455/Biden-gets-surprise-boost-CNN-debate-Trump-despite-mounting-age-concerns-Follow-politics-blog-biggest-stories-day.html

Það er því mikill léttir ef ábyrgur forseti kemst aftur til valda sem stöðvar hernaðinn. Og bremsar hraðvaxandi hrörnun hins mikla lands. Stríðsfélagar Bidens í Evrópu eru líka hver af öðrum að afhjúpast og vitrari menn að taka við. Hrópandi undantekning er Evrópusambandið: Verðandi forsvarskvennmenn þess (Ursula og Kaja) eru hættulegir stríðsmangarar á vegum sambands sem sígur dýpra í afturför og fátækt en vaxandi vopnaframleiðslu. https://www.frjalstland.is/2023/12/19/stridsundirbuningur/


Julian slapp

Australiaeastern-grey-kangaroo-5348449_960_720Maðurinn sem fletti ofan af manndrápum Bandaríkjanna og bandamanna er laus eftir að hafa verið hundeltur af vestrænni réttvísi í 14 ár. Julian Assange var látinn  laus gegn því að viðurkenna að hann hafi brotið lög en hann sagðist hafa talið að stjórnarskráin (bandaríska) og hið fjölrómaða "vestræna tjáningarfrelsi" mundi verja hann. Hann hefur verið sviptur frelsinu svo lengi að dómurunum þótti nóg að gert ef hann viðurkenndi sök. Það boðar ekki gott fyrir sannleiksbera. https://www.mbl.is/frettir/erlent/2024/06/26/assange_frjals_madur_og_er_a_heimleid/

En manndrápin hætta ekki. Julian á sem betur fer líkasinnaða: Chelsea Manning, Edward Snowden, Jack Teixeira https://www.foxnews.com/politics/pentagon-leak-suspect-jack-teixeira-appear-federal-court-friday , krakkarnir sem hafa kjark til að fletta ofan af manndrápum okkar bandamanna. https://www.frjalstland.is/2022/08/19/island-tekid-i-strid/#more-2731 Þeir hafa afhjúpað Úkraínustríðið, árásarstríð á vegum NATO og ESB gegn rússneskum íbúum Úkraínu og nú Rússlandi, þangað eru send vopn, miðunartæki, hermenn og vaxandi fjöldi hernaðarsérfræðinga NATO sem hafa stjórnað hernaðinum þau 10 ár sem hann hefur verið í gangi.

Breska frelsishetjan Nigel Farage hefur lagt sannleiksberunum lið við að stöðva manndrápin, lygalaupar og lygaverksmiðjur Breta gelta og urra á hann eins og áður https://news.sky.com/video/nigel-farage-says-west-provoked-russias-invasion-of-ukraine-with-nato-expansion-13156934


Útskúfaðar þjóðir

war-5064697_960_720Norður Kórea og Viet Nam, sem hafa verið útskúfuð í mannsaldra og sætt árásum og manndrápum, hafa nú verið boðin aftur inn í samfélag þjóða. Það gerir Rússland sem hefur stuðning vaxandi fjölda heimsþjóða í baráttu sinni við Bandaríkin sem lögðu þessi lönd í rúst og útilokuðu þau frá umheiminum með aðstoð sinna leppríkja.

Bandaríkin sprengdu Norður Kóreu aftur til steinaldar 1950-1953, ekkert land hefur verið sprengt eins mikið, sem næst allar borgir landsins voru lagðar í rúst. Afskipti Kína og Rússlands urðu svo til þess að gert var vopnahlé. En Bandaríkin og leppar þess hafa haldið Norður Kóreu í höftum og einangrun síðan og rekið áróður gegn landinu. Vestrænir fjölmiðlar eru látnir kalla þjóðina "paría" (ósnertanlega) og landið "útlagaríki". Gleðin var mikil þegar diggustu bandamennirnir, Rússar, komu í heimsókn með stuðning og vinarhug.

VietNam sigraði nýlenduveldið Frakkland 1954 en þá komu bara aðrir stríðsherrar. Bandaríkin hófu brátt manndráp, milljónir voru drepnar áður en Bandaríkin lögðu niður skottið og fóru heim með sína byssumenn. Þá hafði VietNam verið nærri lagt í eyði. Nú hefur Rússland, sem studdi VietNam gegn stríðsherrunum, gert viðskipta- og samstarfssamning við sína fyrrum bandamen, Vietnama.


Hættulegt fólk og bjargvættir

kremlmoscow-3617070__340Forustumenn Vesturlanda, margir með takmarkaða þekkingu á sögunni og aldir upp í stríðsæsingum, koma margir fram með eina staðhæfinguna annarri fáráðnlegri og hvetja til meiri blóðsúthellinga. Meira að segja íslenskir ráðamenn verða þjóðinni til skammar með stríðsæsingum  frá vopnlausa friðarklettinum Íslandi. https://www.frjalstland.is/2024/06/19/haetulegt-folk-og-bjargvaettir/

 

 

 


Þjófaflokkurinn G7

nátttröllpexels-photo-7797151Nú hittast G7-iðnríkin, þ.e. Bandaríkin og þeirra klapplið, þó þau séu ekki lengur flokkur 7 stærstu iðnríkja heims, sífelt fleiri ríki fara fram úr þeim. Aðalumræðuefnið er að stela peningum frá Rússum https://www.mbl.is/frettir/erlent/2024/06/13/fagnar_sogulegu_lani_til_ukrainu/

til þess að fjármagna stríðið gegn Rússum sem nú er komið á 11. ár og gleypir síffellt hærri fúlgur þar eð NATO- og ESB-lönd halda áfram að útvíkka stríðið.https://apnews.com/article/italy-g7-summit-ukraine-biden-pope-a7771f3f8932653b44e21217a121854b

Þau senda síffelt meira af vopum, langdrægari sprengjum, "ráðgjöfum" og hermönnum. Og nú láta þau aftur nasistaflokka Úkraínu fá sprengjur til að skjóta yfir landamæri Rússlands. https://www.youtube.com/watch?v=R6JxJARC_jk

Mistakaforsetinn í Hvíta húsinu er að koma af stað heimsstyrjöld með leppana í Evrópusambandinu í fremstu víglínu. https://www.mbl.is/frettir/erlent/2024/06/13/nato_med_300_000_hermenn_i_vidbragdsstodu/ Leiðtogar þess eru margir komnir með alvarlegt stríðsgeðrof sem teygir sig hingað og hefur slæmar afleiðingar fyrir Ísland. https://www.aljazeera.com/news/2024/6/11/europe-preparing-for-war-as-ukraine-conflict-looms-large-report-finds

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband