Færsluflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál
Þórdís boðar 15 mál
13.9.2024 | 12:05
Utanríkisráðuneytið boðar 15 mál til samþykktar Alþingis í vetur, eitt lagafrumvarp og fjórtán þingsályktanir, allar nema 2 EES-fyrirmæli frá Evrópusambandinu https://www.stjornarradid.is/rikisstjorn/thingmalaskra/ Ekki eitt einasta mál frá Íslendingum sem eiga að stjórna Íslandi.
Lagafrumvarpið er hin alræmda bókun 35 til þess að gera lög og reglur Evrópusambandsins æðri íslenskum lögum. https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/09/12/thordis_bodar_eitt_frumvarp_bokun_35/ Þingsályktanirnar eru haugur af tilskipunum pakkað saman í 12 mál sem koma í bakið á landsmönnm sem áþján af misskaðlegu og óþörfu regluverki.
Utanríkisráðuneytið er orðið óþarft. Brusselbáknið stjórnar utanríkismálunum alfarið, hvort sem er að fara í stríð eða setja höft á aðrar þjóðir eða koma á reglugerðum sem við þurfum ekki. Best og ódýrast væri að fá Brussel til að senda tilskipanirnar beint til Alþingis til stimplunar.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 23:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Auðlindunum fórnað
10.9.2024 | 17:06
EES-samningurinn og hin hugmyndafræðilega mengun hnattauðmagnsins sem honum hefur fylgt hefur opnað Ísland fyrir "fjárfestingum" Evrópusambands-fyrirtækja í auðlindum Íslendinga.
Nú vilja afkomendur Ingvars heitins Kamprads, IKEA-kempunnar, og þeirra kumpánar "fjárfesta" í auðsuppsprettum Íslendinga. https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2024/09/10/atta_milljarda_fjarmognunarlotu_lokad/
Ein öruggasta leið minni þjóða til þess að missa sjálfstæðið og steypa landsmönnum í fátækt er að opna sínar dyr fyrir fjárfestingum hnattauðmagnsins í sínum auðsuppsprettum. Mörg lönd hafa gert það undir áhrifum hnattvæðingaráróðursins og mörg hafa orðið fórnarlömb stríðsríkjanna í NATO og ESB sem hafa hafið hernað á löndin til að tryggja sinn aðgang að auðsuppsprettum landanna.
Olíuríki Mið-Austurlanda hafa sætt innrásum og manndrápum stríðsríkjanna í áratugi. Bandaríski herinn stelur um 80% af olíu Sýrlands. Suðurameríkulönd hafa mátt þola eitt valdaránið eftir annað. Ísraelar vilja komast yfir olíu- og gaslindir undan strönd Palestínu og leggja nú landið í rúst. Bandaríkin með NATO og ESB reka hernað gegn Rússum í Donbas m.a. til þess að komast yfir auðlindir svæðisins sem eru trilljarða virði að sögn bandaríska öldungadeildarþingmannsins Lindsey Graham https://english.almayadeen.net/news/politics/graham-urges-more-aid-to--trillion-dollars--worth-of-mineral
Reyndar eiga bandarískir "fjárfestar", s.s. Blackrock, Blackstone, State Street og Vanguard auk annarra hnattvæddra fyrirtækja í ESB og víðar, nú þegar um þriðjung af landbúnaðarlandi Úkraínu. Og sjálfur Rotchildbankinn er farinn að fjármagna nýnasistastjórnina í Kænugarði og fær verðmætar auðsuppsprettur Úrkaínu sem veð! Vanir bankamenn!
Á sama tíma og fjarlægir "fjárfestar" skipuleggja gróðaherferð gegn stærstu auðsuppsprettu Íslendinga til framtíðar eru íslenskir vísindamenn, sem eru meðal þeirra fremstu á heimsvísu i jarðhitarannsóknum og nýtingu, búnir að finna mörg fleiri jarðhitasvæði í landinu. https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/09/10/arangur_af_jardhitaleit_kominn_fram_ur_vonum/
Það eru auðvitað þeir sem eiga að sjá um að virkja og nýta jarðhita landsins fyrir okkur og framtíðar íbúa þessa lands. Ef stjórnvöld Íslands skilja þetta ekki eiga þau að fara frá.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 17:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Falsfréttamiðlun
8.9.2024 | 14:16
Vestrænir fjölmiðlar bera okkur falsfréttir en þegja yfir raunverulegum fréttum. Þeir segja að Rússar hafi sprengt skóla og sjúkrahús í Poltava. Þeir segja okkur ekki að "skólinn" var þjálfunarstöð NATO fyrir úkraínska hermenn. Þeir þegja um að allir stjórnendur SAAB hergagnadeildarinnar (AEW&C)voru felldir. https://www.facebook.com/groups/298181905998233/posts/541428685006886/?_rdr Þá voru liðin 315 ár frá því að Rússar gersigruðu innrásarher Svía við Poltava 8. júlí, 1709, þar sem þúsundir Svía vor felldir en Svíar hafa síðan þjáðst af ofsóknarbrjálæði gagnvart Rússlandi.
Alls voru 600 felldir og særðir núna 3.september, 2024, að sögn eins af forsprökkum úkraínskra nýnasista. https://www.rt.com/russia/603462-poltava-signal-academy-ukraine/ Líklega fæstir Úkraínumenn, þá er búið að strádrepa eða flæma úr landi. Hermenn /"hersérfræðingar" frá Bretlandi, Póllandi, Frakklandi, Bandaríkjunum, Svíþjóð og fleiri stríðslöndum NATO hafa væntanlega verið í meirihluta í líkpokunum sem voru fluttir frá Poltava.
Utanríkisráðherra Svíþjóðar sagði af sér í kjölfarið. Falsfréttamiðlarnir útvörpuðu að hann hefið talið sig eiga skilið frí, verandi búiin að gera nóg gagn með því að koma Svíþjóð í NATO! Sem eru verstu utanríkispólitísku mistök Svía frá dögum Kalla tólfta. Ástæða brottreksturs hans er auðvitað misheppnaðar stríðsaðgerðir gegn Rússlandi. Poltava 2.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 9.9.2024 kl. 00:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Varnir Íslands?
2.9.2024 | 13:15
Friðar-Ísland er nú æfingavöllur fyrir hernað Bandaríkjanna og þeirra leppríkja. Þúsund hermenn æfa hernað hér, herþotur drynja yfir okkur og dýrunum okkar. Utanríkisráðfrúin okkar segir: "Það er augljóst að svona æfing er mikilvægari í þeim raunveruleika sem við horfum upp á í dag, þ.e.a.s. þar sem stórveldi hóf allsherjarinnrás inn í frjálst og fullvalda ríki í Evrópu og er, auðvitað ofan á það, að ástunda fjölþátta ógnir í allnokkrum aðildarríkjum" (hvaða, Evrópusambandsins?)
Raunveruleiki ráðfrúarinnar er eftirgrennslanalaus trú á áróður og lygar. Stórveldið sem hóf innrás í frjálst og fullvalda ríki er einmitt ríkið sem er að æfa hermenn sína og sinna kjölturakka hér á Íslandi: Bandaríki Norður-Ameríku, okkar "herverndarar", það voru einmitt Bandaríkin sem hófu hernað gegn frjálsu og fullvalda ríki, Úkraínu, og lögðu það undir sig veturinn 2014 og hófu síðan hernað gegn rússneskum íbúum þess. https://www.frjalstland.is/2023/12/19/stridsundirbuningur/ Gáfnaljósin í Washington og Brussel hafa nú þanið hernaðinn út og hafið stríð gegn Rússlandi sjálfu, einu helsta kjarnorkuveldi heims.
Mikil stríðsvá steðjar að Evrópu og heimsbyggðinni allri a.m.k. meðan mistakaforsetinn situr í Hvíta húsinu og illa upplýstir leiðtogar hanga á valdastólunum í Evrópusambandinu og Bretlandi.
Á meðan þetta tilgangslausa vopnaskak glymur hér á og við Klakann er Landhelgisgæslan, sem er okkar eini verjandi fyrir raunverulegum hættum, í svelti og getur ekki verndað sæfarendur og varið okkur gegn veiðiþjófum eða glæpalýð. Hvað þá NATO-ríkinu Bretlandi sem er eina ríkið sem hefur sýnt Íslandi fjandskap og otað byssukjöftum að okkur.
(Mbl 31.8.2024)
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 3.9.2024 kl. 15:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Næsta valdarán
26.8.2024 | 11:51
Bandaríkjamenn skipuleggja nú næsta valdarán á áhrifasvæði Rússa, og gömlu Ráðstjórnarríkjanna, það á að verða í Georgíu en áður hefur verið reynt að þvinga landið til hlýðni við bæði Bandaríkin og Evrópusambandið. Þetta segir leyniþjónusta Rússlands sem hefur oft reynst sannspá.
Valdaránið verður með svipuðu sniði og í Úkraínu fyrir rúmum tíu árum sem var upphafið að Úkraínustríðinu. Peningum er úthlutað til hreyfinga, óeirðaseggir ráðnir, rússlandsandstæðingar virkjaðir. https://www.interpressnews.ge/en/article/133086-russian-foreign-intelligence-americans-are-preparing-a-color-revolution-in-georgia/
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 13:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Við styðjum hryðjuverk
23.8.2024 | 12:11
Úkraínuher reyndi að skjóta sprengju á kjarnorkuverið í Kursk og hefur hvað eftir annað reynt að sprengja kjarnorkuverið i Zaporozhie við Dnéprfljótið. Rússneska hernum hefur hingað til tekist að forða alvarlegum skemmdum. https://www.rt.com/russia/602975-attack-kursk-nuclear-plant/
Sprengjuárásir á kjarnokuver geta komið af stað stjórnlausu útrennsli geislavirkra efna (sbr. Chernobyl í Úkraínu 1986). Rússnesk yfirvöld hafa margsinnis kvartað við Alþjóða kjarnorkustofnunina án árangurs en fulltrúar hennar eru þó núna væntanlegir til Kursk kjarnorkuversins.
Þeir sem reyna að skjóta sprengjum á kjarnorkuver er ekki hægt að kalla annað en hryðjuverkamenn. Athæfi Kænugarðsstjórnarinnar, sem er undir yfirstjórn hernaðaryfirvalda Bandaríkjanna, er orðið mesta vá sem hangir yfir Evrópu og reyndar heimsbyggðinni allri. Ísland getur ekki verið þekkt fyrir að styðja hryðjuverkamenn og á að beita sínu friðarmannorði (er kannski búið að sólunda því?) til að kalla á friðarsamninga.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 12:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Innrás í Rússland
19.8.2024 | 14:44
Nasistar gerðu innrás í Rússland 22. júní 1941. Nýnasistastjórn Úkraínu gerði innás í Rússland 6. ágúst 2024. NATO-hermenn stjórnuðu innrásinni sem var á vegum NATO og ESB, framvíglínusveitin var þjálfuð í Bretlandi.
Þátttaka NATO í stríðinu í Úkraínu hefur aukist dag frá degi og er orðin slík að hægt er að tala um að hernaðinum sé stjórnað af NATO en hann hefur frá byrjun verið að frumkvæði og á vegum Bandaríkjanna og leikbrúða þeirra í Evrópu. Hernaðaraðgerðir leppstjórnarinnar, sem Bandaríkin komu til valda í Kænugarði, hófust strax eftir valdaránið fyrir nærri 11 árum. Þær voru árásir á austurhérðuð Úkraínu þar sem margir Rússar búa en héruðin lýstu yfir sjálfstæði þegar ljóst var að Bandaríkin og nýnasistar tækju völdin í landinu. https://www.frjalstland.is/2022/05/05/bloduga-valdaranid-i-ukrainu/
Hernaður Rússa snýst um að verja rússnesku íbúana og frelsa austurhéruðin undan kúgun og árásum hinnar ólögmætu Kænugarðsstjórnar og halda vopnum NATO frá landamærum Rússlands eins og Gorbasjof var lofað. Her Rússlands er langt kominn með að frelsa austurhéruðin undan Kænugarðsstjórninni þó stór hluti af vopnabúrum NATO hafi verið sendur til þeirra. Stríðsæsingamenn meðal leiðtoga Vesturlanda, sem reka hernaðinn gegn Rússlandi https://www.frjalstland.is/2024/01/27/vaxandi-hernadur-gegn-russlandi/, eru farnir að missa stjórn á sér og grípa til hættulegra sýndarúrræða eins og innrásin núna virðist vera. Stórstríðshættan vex með vaxandi vitfirringu NATO- og ESB-leiðtoga, þeirra fálm er leikur að eldinum
Rússar gruna NATO/ESB um að hafa ætlað að ná undir sig kjarnorkuverinu í Kursk til að geta hótað með "kjarnorkuslysi" (ala Chernobyl sem er í Úkraínu). Úkraínuher hefur síðustu ár stöðugt gert árásir á kjarnorkuverið í Zaporizhzhie en Rússum hefur tekist að verja það hættulegum skemmdum hingað til.
Hin ólögmæta stjórn Úkraínu notar hryðjuverk kinnroðalaust á vegum Bandarikjanna og verndarríkja þeirra í Evrópu. Þar eru stjórnvöld látin horfa uppá að Bandaríkin eyðileggi orkubúskap Evrópu og sprengi gasleiðslur til þeirra. Og þora ekki að mótmæla.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 20:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Niðurrif Rússlands.
15.8.2024 | 18:00
Tilraunir Bandaríkjanna og þeirra bandamanna til að rífa niður Rússland hafa staðið lengi, eru reknar áfram af fjármagnseigendum, stórfyrirtækjum og bönkum.
Í áætlunum Bandaríkjanna, sem lesa má um í skýrslum Rand Corporation, um hernað, kúgun og yfirgang við önnur lönd, er að finna smáatriðalýsingar á aðgerðum. Ein aðferð við að veikja Rússland felur í sér að fórna Úkraínumönnum í stríði við Rúsland eins við erum vitni að nú.
https://www.frjalstland.is/2024/08/15/nidurrif-russlands/
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þýskir skriðdrekar komnir aftur til Kursk
10.8.2024 | 17:35
NATO lét sína nýnasistísku stríðsverktaka í Úkraínu gera árás á Rússland á þriðjudaginn var, inn í Kursk hérað. Þar var stærsta skriðdrekaorusta sögunnar sumarið 1943 þegar Þjóðverjar réðust inn í Kursk-hérað. Rússar gersigruðu innrásarher Þjóðverja og héldu áfram að reka flóttann þar til er búið var að eyða nasistunum í Berlín tveim árum síðar.
Rússar þekkja sína sögu vel, þeim varð um og ó þegar þýskir skriðdrekar birtust aftur á þriðjudaginn á sláttum Kursk. Það er málaliðaher margra NATO-þjóða sem berst, þeir taka af sér herklæði sinna landa og fara í feluföt og fá borgað fyrir að koma til Úkraínu og skjóta á Russa.
Menn spyrja sig nú hvort Rússarnir geri aftur eins og þegar þeir sigruðu þýsku nasistana: Reki flóttann (til Brussel) og láti NATO/ESB gefast upp skilyrðislaust.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 17:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Venezúela
5.8.2024 | 18:41
/ Myndin er úr Best Diplomats https://bestdiplomats.org/largest-oil-reserves-by-country/
Nicolas Maduro, hinn nýkjörni forseti Venezúela, sætir nú vaxandi árásum af hendi stríðsríkja NATO og ESB. Falsfréttamiðlar hafa verið virkjaðir.
Hin ríku Vesturlönd, sem við héldum vað væru heimili lýðræðis og sanngirni, hafa haldið mörgum fátækari löndum í örbirgð og einangrun með viðskiptahöftum, valdaránum og manndrápum. Og nú á að leggja áherslu á undirokun Venezúela, olíuríkasta lands heims. https://www.frjalstland.is/2024/08/05/venezuela/
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 6.8.2024 kl. 16:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)