Færsluflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál
Brjóstvörn
30.10.2024 | 18:20
Útrunni fv. forseti Úkraínu segist vera "brjóstvörn vestrænna "gilda" (mbl.30.10.2024) og Vesturlanda sjálfra gegn landvinningastefnu. Rússa! Han snýr þessu auðvitað á haus eins og honum hefur verið kennt enda leppur mestu lygasmiðja heims í Washington og London.
Lögleg stjórn Úkraínu hafnaði aðild að NATO 3.6.2010 og að ESB 21.11.2013 en þá settu "friðarbandalögin" (NATO og ESB) af stað árás á stjórnvöld landsins til að koma þeim frá.
Það var Obama/Biden-stjórn Bandaríkjanna sem framdi vopnaða valdaránið í Úkraínu, byssumenn þjálfaðir af CIA í Póllandi drápu mikinn fjölda stjórnarstarfsmanna auk venjulegra borgara. Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna kom til valda leppstjórn með aðstoð úkraínskra nýnasista sem hóf strax í febrúar 2014 borgarastyrjöld með hernaði gegn rússneskum svæðum Donbas. Þegar NATO og ESB höfðu svikið alla samninga við Rússland og fyllt Úkraínu af vopnum skarst rússneski herinn í leikinn 2022 og er nú smám saman að frelsa svæðin sem leppstjórnin hefur undirokað með landvinningahernaði NATO og ESB en þau lýstu yfir sjálfstjórn þegar séð var fram á að leppar NATO og ESB mundu taka völdin.
Fjárfestar og hrægammar Ameríku (s.s. Black Rock) hafa þegar náð undir sig miklu af auð Úkraínu, meir en þriðjungi landbúnaðarlands, þess besta í Evrópu. Rotchildbankinn er farinn að fjármagna hernað leppstjórnarinnar að hluta enda alvanur að fjármagna stríð. Bidenfeðgar bröskuðu líka í skjóli spillingar valdsins. Þegar endurreisn Úkraínu hefst verður erfiðast að losna við ruplarana frá Vesturlöndum. Þeir einu sem kunna það eru Rússar enda hundeltir af þjófum Vesturlanda í mannsaldra.
En Zelenski væri góður sem brjóstvörn Úkraínumanna gegn vestrænum svikurum og ræningajalöndum sem hafa þegar stolið 600 milljörðum dala frá Rússum og láta nú leppstjórnina í Úkraínu fórna blómanum úr úkraínsku þjóðinni við að berjast fyrir "vestrænum gildum"!
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 20:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Útrunninn Zelenski
28.10.2024 | 17:53
Kjörtímabil hans rann út í maí. En gáfnaljósin á Norðurlöndum bjóða honum samt á montfund þar sem hann getur betlað meiri vopn og pening. Norðurlönd eru öll orðin hjálendur Bandaríkjanna og kjölturakka þeirra í London og Brussel og hlýða þeim í blindni og hefur verið talin trú um að þau eigi að "styðja Úkraínu"!
Það er nærri búið að tæma vopnageymslur ESB/NATO og Zelenski hefur lítið gagn af Norðurlandavopnum, Rússarnir eru fljótir að eyða þeim.
Eins og glöggir vita er svo kallaður "stuðningur við Úkraínu" stuðningur við landvinningahernað NATO og ESB. Nýnasistarnir í Úkraínu og hermenn frá NATO/ESB eru meira að segja farnir að ráðst inn í Rússland.
Norðurlandaráð ætlar að fjalla um öryggi á norðurslóð en Rússland á og stjórnar stærsta hlutanum af þeim slóðum. Gáfnaljós Norðurlanda hafa ekki vit á að fá Rússa til viðtals um norðurslóðir, þeir trúa enn lygaþvættingnum í Churchill og Truman um hættulegu Rússana.
Norðurlandaráð var lengi fylleríissamkoma norðurlandakrata og ber enn dám af góðlátlegu tilgangsleysi þeirra hittinga. Lönd heimsins horfa nú á Norðurlönd með undrun og eru farin að stilla saman strengi gegn manndrápum og rupli á vegum NATO- og ESB-landa, þessa stundina í Úkraínu og Palestínu. https://brics-russia2024.ru/en/
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Heimssamvinna
18.10.2024 | 16:56
BRICS eru vaxandi samtök sjálfstæðra þjóða sem standa utan stríðsbandalaganna (NATO og ESB) og vinna gegn valdi þeirra, aðallega á efnahagssviðinu. Efnahagsumfang BRICS er orðið stærra en gömlu iðnveldanna. Samtökin halda nú fund í Kazan þangað sem forsetar Kína, Indlands og Rússlands ásamt fleiri þjóðarleiðtogum mæta. https://brics-russia2024.ru/en/
Þetta er umhugsunarefni fyrir Ísland sem er orðið hjálenda ESB og NATO á meðan heimsbyggðin eflir sína efnahagssamvinnu og sjálfstæði og stefnir a frið. Þeir sem gerðu Ísland sjálfstætt 1944 sáu fyrir sér hlutlaust land með vináttu og samvinnu við allar þjóðir. Þeir voru sviknir strax 1949 af forustumönnum frá Sjálfstæðisflokki, Krötum og Framsóknarflokki, Bjarna Benediktssyni, Emil Jónssyni og Eysteini Jónssyni sem fóru til Washington og gerðu Ísland að NATO-landi en með í kaupunum var að hér yrði ekki her á friðartímum. Það var auðvitað líka svikið. Bestu menn áttuðu sig strax á að NATO yrði kúgunarher Ameríku- og Breta-auðvaldsins og efndu til mikilla mótmæla 30 mars 1949 þar sem lögregla ífærð breskum herskrúða var látin slást við mótmælendur.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 17:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hættuleg ríkisstjórn
16.10.2024 | 14:18
Ein hættulegasta ríkisstjórn sem komist hefur til valda í landinu er nú loksins að fara frá. Hún hefur komið landinu í stríð við vina-og viðskiptþjóð af uppspunnu tilefni sríðsæsingamanna NATO og Evrópu-sambandsins/EES. Hinn heimatilbúni óvinur er enginn annar en eitt helsta kjarnorkuveldi heims!
https://www.frjalstland.is/2022/08/19/island-tekid-i-strid/
Hún eyðir skattfé landsmanna í vopn og stríðsaðföng.
Hún stundar refsingar gegn vinveittum þjóðum og veldur hruni útflutningstekna og gjaldþroti fyrirtækja.
Hún hefur komið yfir landið vaxandi fjölda af lögum og reglum Evrópusambandsins/EES um orkumál og umhverfismál sem stöðva uppbyggingu hérlendis.
Hún hefur sökkt landinu dýpra í okurdýrar en óþarfar, gagnslausar og barnslegar "loftslagsskuldbindingar" sem Evrópusambandið stjórnar og hirðir fé af.
Hún hyggst láta Alþingi samþykkja að lög Evrópusambandsins, sem er nú að breytast í hernaðarsamband, sem berast með EES-tilskipunum, séu æðri landslögum. Og brjóta þannig stjórnarskrána einn ganginn enn.
Hún og núverandi Alþingisheimur þurfa að koma sér burt áður en meiri skaði skeður. Við skulum vona að landsmenn beri gæfu til þess að kjósa sér betri fulltrúa til Alþingis í komandi kosningum.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 17.10.2024 kl. 01:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Kjarnorkuver í hættu
7.10.2024 | 17:44
Njósnarar Breta og Bandaríkjanna hjálpuðu Úkraínustjórn að skipuleggja eyðileggingu kjarnrokuversins í Kúrsk segir njósnastjóri Rússlands. https://www.rt.com/russia/605375-kursk-nuclear-threat-svr/
Úkraínuher réðst inn í Kúrsk hérað 6 ágúst sl. en var stöðvaður nálægt landamærunum af rússneska hernum. Úkraínuher (það er drápssveitir á vegum NATO og ESB) halda áfram að senda sprengjuskeyti á Kursk kjarnorkuverið sem Rússlandsher hefur hingað til skotið niður. Kænugarðsstjórnin reynir stöðugt að sprengja Zaporozhie kjarnorkuverið sem stendur við stórfljótið Dnépr.
Það er orðin brýn nauðsyn fyrir nágrannalönd Úkraínu, og reyndar heimsbyggðina, að láta hryðjuverkastjórnina í Kænugarði hætta hernaði og hryðjuverkunum áður en nýtt Chernobylslys verður.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 17:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Stríðsglæpir NATO
5.10.2024 | 14:38
Franskur rithöfundur og leikstjóri, Patrick Pasin, hefur lagt fram kæru hjá saksóknara í Brussel á hendur fyrrum framkvæmdastjóra NATO, Stoltenberg, fyrir stríðsglæpi.
Hann hafi brotið bæði mannréttindalög, stofnskrá Sameinuðuþjóðanna og NATO og aukið stríðið í Úkraínu og ekki dregið úr stríðsaðgerðum þegar hann gat það.
Það eru vaxandi raddir í Evrópu og Bandaríkjunum sem fordæma stríðsrekstur NATO og ESB gegn Rússlandi. Aðildarlönd ESB/EES og NATO hafa þverbrotið nærri því hvern einasta alþjóðasamning um ríkjasamstarf, réttindi og skyldur sem hægt er að brjóta og reynt að einangra Rússland frá samskiptum við aðrar þjóðir. Árangurin er m.a efnahagshrun og stjórnmálaleg upplausn sem er þegar farin að valda hörmungum sérstaklega í Evrópusambandinu og Bretlandi.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 15:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nýr Göbbels?
3.10.2024 | 17:20
Hernaðarklúbburinn NATO hefur nú fengið nýjan framkvæmdastjóra í staðinn fyrir Stoltenberg sem minnti mikið á Göbbels í sínum stríðsæsingaræðum. Mark Rutte er ekki mikið líkur Göbbels nema kannske í sinni. https://www.mbl.is/frettir/erlent/2024/10/01/rutte_hefur_engar_ahyggjur_af_trump/
Rutte og hans meðreiðarsveinar töpuðu síðustu kosningum í Hollandi sem gerði lítið til, úreltu flokkarnir í Evrópusambandslöndum hafa getað haldið svo kölluðum "hægri öfgaflokkum" og "populistum" (það eru flokkarnir sem kjósendur vilja frekar en þá úreltu) frá völdum með ólýðræðislegum aðferðum (Frakkland, Þýskaland, Austurríki, Svíþjóð ofl.)
Ástæða þess að Rutte er gerður að NATO-framkvæmdastjóra er að hann er haldinn ólæknandi Rússahræðslu enda frá Hollandi, næsta nágrenni Bretlands þar sem Churchill hóf Kalda Stríðið gegn Rússum strax eftir að Rússar höfðu ráðið niðurlögum Nasistanna í Berlín vorið 1945. https://www.frjalstland.is/2024/03/30/ovinur-buinn-til/
https://www.frjalstland.is/2024/07/19/ognin-vid-heimsfridinn/
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 17:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Erum við heimsk þjóð?
28.9.2024 | 14:18
Eða eru það kannske bara okkar forustumenn sem eru heimskir og fákunnugir um söguna? Af hverju tekst okkur ekki að koma þeim frá? Þeir ætla að henda skattfé okkar fimmta árið í röð í hernað stríðsþjóðanna og nú á að dobla það! Hildur Þórðardóttir gerir grein fyrir þáttöku Íslands í henaði NATO/ESB gegn Rússlandi í Morgunblaðinu í dag, 28.9.2024.
Litla friðsama Ísland sturtar milljörðum í stríð sem Bandaríkin og ESB-lönd hófu (2014) og reka nú áfram af vaxandi stríðsæsingi, með vopnum, miðunartækjum í NATO, hermönnum, sérfræðingum, peningum og lygum. Árásirnar á rússneskan almenning verða sífellt hryðjuverkakenndari.
Tilgangur stríðsins kemur Íslandi ekki við og Úkraínu ekki heldur. Það er græðgi NATO- og ESB-manna sem er á bak við stríðsreksturinn sem saklausir (eða heimskir?) skattgreiðendur NATO/ESB borga. Það á að opna Úkraínu og Rússland fyrir rupli fyrirtækja í NATO/ESB.
https://www.frjalstland.is/2024/02/29/ukraina-logd-i-rust/
https://www.frjalstland.is/2024/08/15/nidurrif-russlands/
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 19:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimm leigumorðingjar á Trump
24.9.2024 | 14:19
Fimm hópar leigumorðingja voru á eftir Trump um það leyti sem síðasta morðtilraunin var gerð í Flórida samkvæmt upplýsingum leyniþjónustumanns, þetta segir þingmaður á Bandaríkjaþingi. https://www.youtube.com/watch?v=pxNxkdRBeQg
Kemur ekki á óvart, kunnáttumenn hafa spáð að þegar dómsmálaráðuneyti Biden/Harris hefur mistekist að koma Trump í tugthús verði reynt að myrða hann. Og erlendar leigumorðingasveitir eru með. Síðast reyndi andlegur félagi nýnasistanna í Úkraínustjórn.
Hagsmunir auðveldisbáknsins, sérstaklega hernaðarfinngálknsins, eru miklir. Þeir eru hræddir um að Trump stöðvi stríðsrekstur og vopnakaup en hann hefur m.a. lofað að stöðva skuldasöfnunina sem stafar af kverkataki heriðnaðarsamstæðunnar á ríkissjóði Bandaríkjanna. Trump gæti tekist að leysa NATO upp, afhjúpa loftslagssvindlið og koma efnahagsuppbyggingu fátækari svæða í gang. Hann ætlar að stöðva innflæði þróunarlandamanna og glæpagengja.
Han ætlar að efla atvinnuna og setja verndartolla á láglaunalönd, Kína og Mexíkó. Það er svosem ekkert nýtt, Bandaríkin urðu iðnaðarstórveldi með verndartollum fyrir meir en öld og vita að aðferðin er gulltrygg þó nýfrjálshyggjuáróðurinn segi annað.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 25.9.2024 kl. 18:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Stríðsyfirlýsing ESB
20.9.2024 | 13:55
Svo kallað þing Evrópusambandsins (málfundasamkoma félagsskaparins í Strassborg) hefur nú samþykkt að nýnasistastjórnin í Úkraínu megi nota langdræg vopn frá ESB til þess að ráðast langt inn í Rússland.
Þessi samþykkt jafngildir stríðsyfirlýsingu á hendur Rússlandi og getur leitt til þess að Rússar beiti kjarnorkuvopnum sér til varnar. Kænugarðsstjórnin hefur verið látin reka óyfirlýst stríð á vegum "bandamanna okkar", NATO og ESB, gegn rússneskum íbúum Úkraínu síðustu 10 árin sem hefur nýlega verið víkkað út í árásir á landamærahéruð Rússlands sjálfs.
Evrópusambandið er ekki samband ábyrgra stjórnvalda, stjórnir leiðandi ESB-landa eru flestar rúnar trausti og stuðningi sinna þjóða og orðin aftengd raunveruleikanum eftir 80 ára valdafáokun. Aftur á móti hlýða þau hverri vitfirringunni á fætur annarri frá stjórnvöldum Bandaríkjanna.
Við fáum ekki miklar fréttir af allri ósvinnunni sem fer fram á vegum okkar bandamanna í Úkraínustríðinu. Við vöknum upp við að máttlítil stjórnvöld herlausa litla Íslands eru að senda milljarða til að kosta dráp NATO og ESB á Rússum. Hryðjuverkum Úkraínustjórnar er haldið leyndum. Okkur er ekki skýrt frá upphafi og tilgangi Úkraínustríðsins. Okkur er ekki sagt frá sívaxandi hernaðaruppbyggingu NATO og ESB við landamæri Rússlands. Okkur eru sagðar lygasögur um hverjir sprengja gasleiðslur, tónleikasali, íbúðabyggð og listamenn. Okkur er ekki sagt að NATO- og ESB-lönd dreifa lygum um Rússland og Úrkaínustríðið og ritskoða fréttaflutning. Við fáum ekki að fylgjast með stjarnfræðilegum þjófnaði NATO- og ESB-landa á eignum Rússa. Hörmungar stríðsins eru kenndar aðeins öðrum aðilanum.
Herlausa Ísland getur staðið uppi í miðju kjarnorkustríði ef forustumenn NATO/ESB halda áfram hernaðarrekstrinum.
https://www.swissinfo.ch/eng/putin-ally-warns-west-of-nuclear-war-over-ukraine/87581212
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 14:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)