Færsluflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál
Hryðjuverk í Sýrlandi
10.12.2024 | 16:32
Hryðjuverkasamtök á vegum Ísrael og Bandaríkjanna, HTS þekkt sem illræmdustu sjálfsmorðsárasasamtök gegn almennum borgurum, hafa nú hertekið Sýrland. HTS er afsprengi hryðjuverkaflokka sem Bandaríkin og Ísrael hafa fóstrað á svæðinu, AlKaida, ISIS. Forsætisráðherra Ísrael og mistakaforsetinn Biden monta sig nú af að eiga heiðurinn af sigri hryðjuverkamannanna.
Kannske tekst Biden eftir allt saman að koma af sað 3. heimsstyrjöldinni þó Rússar hafi setið á sér að svara árásum leppa hans á Rússland hingað til. Ísrael gerir áfram stöðugar árásir á Sýrland og hefur nú hertekið Sýrlandshluta Golanhæða.
Falsfréttamiðlar á Vesturlöndum kalla hryðjuverkamennina nú "uppreisnarmenn" af því að þeir vinna nú fyrir stríðsríkin! https://edition.cnn.com/2024/12/06/world/video/abu-mohammad-al-jolani-syria-rebel-leader-karadsheh-digvid
Eftir að hafa haldið Sýrlandi í fátækt, örbirgð og borgarastyrjöld með því að einangra landið, útiloka það frá viðskiptum með refsiaðgerðum, hersetið það og stolið útflutningsvöru landsins, hefur Bandaríkjunum og Ísrael nú tekist að að láta sína hryðjuverkamenn hernema landið. Kúgaðir Sýrlendingar komast nú undan einræðisherra og undir hryðjuverkamenn! Bandaríska setuliðið hefur stolið obbanum af útfutningsvöru (olíu) Sýrlands og Ísrael hóf núverandi stríð með Bandaríkjunum af heimatilbúnu tilefni til þess að komast yfir auðlindir Palestínu og Sýrlands.
Þetta er svipuð aðferð og stríðsþjórðir NATO og Evrópusambandsins hafa notað í Írak, Libíu og Úkraínu, eyðileggja efnahag landanna og koma af stað borgarastyrjöld. Í Úkraínu lentu þeir í flasinu á Rússum sem hafa langa reynslu af að berja niður ræningja og drápssveitir stríðsþjóða.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 18:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hernaður okkar
6.12.2024 | 14:16
Stríðið í Úkraínu og Rússlandi er orðið 11 ára en er vonandi að ljúka ef treysta má loforðum Donald Trump. https://www.frjalstland.is/2024/11/24/ny-vidhorf-i-heimsmalum
Þeir sem trúa að Rússland eigi upptök að stríðinu hafa treyst á vestræna stórfjölmiðla sem flytja oft áróður stjórnvalda í dulargervi frétta. Ísland hefur dregist með í stríðsreksturinn og hafa stjórnvöld landsins gert mjög alvarleg mistök í tengslum við stríðið sem taka mun langan tíma að ráða bót á.
Fjölmiðlamaðurinn Tucker Carlson tók viðtal við Sergey Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, sem er Íslendingum að góðu kunnur. Rússneski fjölmiðillinn Sputnik birtir viðtalið sem þekkingarþurfi Íslendingar geta kynnt sér í opnum aðgangi
eða á vef Tucker https://tuckercarlson.com/. Afhjúpun Tucker um áróður og lygar og forsetakosningarnar vestra hafa haft mikil áhrif en hann spáði að reynt yrði að ráða Trump af dögum þegar ljóst yrði að hann mundi vinna kosningarnar. Það reyndist rétt.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 20:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Stríðssamband
3.12.2024 | 16:46
Evrópusambandið er orðið stríðssamband eins og vísir menn sáu að mundi gerast þegar helstu stríðsþjóðir V-Evrópu stofnuðu til bandalags fyrir 7 áratugum. Meira að segja dátunum í NATO er nú orðið nóg um og segjast alveg geta ráðið sjálfir við Rússa!
-Kaja Kallas er orðin kommissar í utanríkismálum og öryggismálum Evrópusambandsins af því að hún borðar Rússa í morgunmat (að eigin sögn) og var ónothæf heima í Litháen. https://commission.europa.eu/about/organisation/college-commissioners/kaja-kallas_en
-Andrius Kublius er orðinn stríðskommissar Evrópusambandsins af því að hann hefur verið Rússahatari í áratugi og vann í brunarústum Litháen eftir að landið lenti í Evrópusambandinu og misti ungu kynslóðina til útlanda. https://www.politico.eu/article/andrius-kubilius-defense-space-chief-european-parliament-hearing-russia/
-Annalena Baerbock, utanríkisráð"herra" Þýskalands, er vinsæl hjá gáfnaljósum Evrópusambandsins af því að hún hreytir svívirðingum í Rússa og Kínverja (mikilvægustu viðskiptalönd Þýskalands). https://sputnikglobe.com/20241203/cringe-diplomacy-germanys-fm-unleashes-tirade-of-threats--accusations-during-china-trip-1121079546.html
-Ursula var með spillingarmál yfirvofandi (í hermálaráuneyti Þýskalands) en er illa haldin af Rússahræðslu og var því gerð að forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins https://commissioners.ec.europa.eu/ursula-von-der-leyen_en
Og ræfils Norðurlönd eru búin að fá stríðsæsingaluðrur sem leiðtoga sem hegða sér eins og óðir hundar.
Með þetta fólk sem leiðtoga á Evrópusambandið og lepparnir, EES, ekki eftir annað en að verða kjarnorkustríði að bráð.
https://www.frjalstland.is/2023/12/19/stridsundirbuningur/
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 18:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Ný viðhorf í heimsmálum
24.11.2024 | 18:26
Tekst Trump að stöðva Úkraínustríðið, Palestínustríðið og loftslagssvindlið? Hann er fyrsti alheimsleiðtoginn sem vill takast á við helstu hættur nútímans.
Nú er líka vaxið fram nýtt afl í heimsmálunum, samtökin BRICS sem þegar eru farin að hafa áhrif gegn yfirgangi NATO-og Evrópusambandslanda.
https://www.frjalstland.is/2024/11/24/ny-vidhorf-i-heimsmalum/
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 25.11.2024 kl. 13:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Úkraínustríðið 11 ára
21.11.2024 | 14:38
Þennan dag fyrir 11 árum, 21. nóvember, 2013, markast upphaf Úkraínustríðsins þegar löglega kjörin stjórnvöld Úkraínu höfnuðu aðild að Evrópusambandinu. Þing landsins hafði þremur og hálfu ári áður hafnað aðild að NATO. Hernaðarbandalögin, NATO og Evrópusambandið, höfðu lagt mikið fé og fyrirhöfn í að ná landinu inn í bandalögin, utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna hafði eytt 5 milljörðum dollara í málið að sögn Victoriu Nuland, aðstoðarutanríkisráðherra Obama/Biden-stjórnarinnar. Þegar hér var komið sögu áttuðu sig forustumenn NATO og ESB á að hervaldi þyrfti að beita til þess að innlima Úkraínu í bandaglögin. https://www.frjalstland.is/2022/05/05/bloduga-valdaranid-i-ukrainu/
Skyttur, sérþjálfaðar af CIA, voru sendar inn í Kænugarð til þess að skjóta ríkisstarfsmenn, stjórnendur, lögreglumenn. Skemmdarvargar og óeirðaseggir voru ráðnir á launum við að kveikja elda, brjóta rúður og misþyrma lögreglumönnum. Í lok febrúar 2014 var úkraínskum sérsveitum skipað, af sendimönnum Bandaríkjanna, að skjóta á mannfjöldann. Falsfréttamiðlar Vesturlanda voru látnir flytja fregnir af "uppreisn almennings" og "morðum ríkisstjórnarinnar". Það sem var að gerast var blóðugt valdarán Bandaríkjanna. Forseti landsins flúði og valdaránsmenn komu að leppstjórn sem hóf hernað gegn austurhéruðum Úkraínu. Þau klufu sig frá Kænugarðsstjórninni og lýstu yfir sjálfstæði. Krím hélt þjóðaratkvæðagreiðslu um miðjan mars 2014 og ákvað með yfirgnæfandi meirihluta að sameinast Rússlandi.
Áróðurssmiðjur NATO og ESB dreifa stöðugt blekkingum um að Rússar hafi "innlimað Krím" og gert "tilefnislausa alsherjarinnrás" í Úrkaínu. Það rétta er að innrásin var gerð til þess að verja rússneska íbúa austurhéraðanna eftir að samningar um réttindi þeirra höfðu verið þverbrotnir enda ætlaðir til þess að fá tíma til þess að vopnavæða Úrkaínu fyrir stríð við Rússland. NATO hafði lofað Rússum að þenja ekki út bandalagið til Austur-Evrópu en það var líka svikið. Hótunin um að NATO mundi innlima Úkraínu og gera sín herhreiður við landamæri Rússlands var stór þáttur í að Rússlandsher var kallaður til Donbass. NATO og ESB hafa nú útvíkkað stríðið með eldflaugaárásum bandarískra og breskra hemanna á rússneskt land.
Mchael Flynn hershöfðingi og fleiri áhrifamenn í Bandarkjunum krefjast þess nú að Biden verði settur af og lögsóttur fyrir að hætta bandarísku þjóðinni út í kjarnorkustríð með því að leyfa skot langdrægra flauga inn í Rússland. https://www.youtube.com/watch?v=9UhTC5ddOaU
Stríðsherrum Washington, London og Brussel hefur tekist að koma af stað stríði helstu kjarnorkuvelda heims sem endar illa nema Trump hætti að senda nýnasistabullunum í Kænugarði vopn og Rússar sitji á sér og sínum kjarnorkuvopnum.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 19:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðja heimsstyrjöldin
18.11.2024 | 14:10
Biden fráfarandi forseti Bandaríkjanna ætlar að gera sem mestan usla áður en hann hættir. Hann sendir nú Úkraínu eldflaugar sem draga langt inn í Rússland. En það verða ekki Úkraínumenn sem skjóta þeim heldur sérþjálfaðar skyttur frá NATO sem miða og skjóta. Hermenn frá NATO-löndum hafa verið virkir í Úkraínu í þúsundavís en ekki opinberlega í árásum á Rússland eins og þeir verða nú.
Mistakaforsetinn er búinn að koma okkur, NATO, í stríð við eitt helsta kjarnorkuveldi heims. Aðgerðir Bandaríkjanna, Evrópusambandsins og NATO síðustu 33 árin, samningssvik, lygar og svo hernaður síðustu 11 árin, stefna heimsbyggðinni í þriðju heimsstyrjöldina. Bandaríkjamenn hafa reyndar áttað sig og fá ábyrgan forseta í janúar en Evrópusambandsleiðtogar þjást ennþá af stríðsæsingum og eru hættulegir sjálfum sér og heimsbyggðinni.
Þeir sem vit hafa vara nú sterklega við að hernaðarrekstur NATO og ESB gegn Rússlandi þróist í kjarnorkustyrjöld. Einn þekktasti alþjóðahagfræðingurin, Jeffrey Sachs, varar vð aðsteðjandi hættu. https://eadaily.com/en/news/2024/11/16/ukrainians-are-doing-the-united-states-a-good-service-by-dying-for-them-jeffrey-sachs
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 19.11.2024 kl. 13:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
700.000 drepnir og særðir
12.11.2024 | 15:10
Breskur herforingi montar sig við breska falsfréttamiðla að Rússar hafi misst 700.000! https://www.bbc.com/news/articles/cp3nv7j1xkxo Manndrápin voru framin með vopnum frá og undir stjórn NATO-og ESB-aðila. Íslendingar eru meðsekir um drápin.
Úkraínustríðið, sem verður ellefu ára 21. nóvember næstkomandi, er orðið að ógnvekjandi blóðbaði á borð við manndráp Bandaríkjanna/NATO í Írak og Vietnam. Upphafsmenn stríðsins, Obama/Biden stjórn Bandaríkjanna og þeira leppar í ESB og NATO, hófu það með valdaráni og hernaði gegn rússnesku héruðum Austur-Úkraínu (Donbass) sem höfðu lýst yfir sjálfstjórn. Þegar NATO/ESB-ríkin og Úkraínustjórn höfðu svikið alla samninga um NATO og réttindi Úkraínu-Rússa og drepið þúsundir manna kom rússneski herinn íbúum Donbass til varnar.
Það er viss huggun í að ekki er orð að marka það sem kemur frá breskum yfirvöldum um Rússa eða Úkraínustríðið. Breskir herforingjar koma reglulega í falsfréttamiðla Bretlands (s.s.BBC, Sky) og segja lygasögur um að Úkraína (les NATO/ESB) sé að vinna stríðið!
Trump getur vonandi bundið endi á stríðið. En stríðsæsingamenn og heimskir leiðtogar NATO/ESB-ríkja vinna áfram að Rússadrápum. Mistakaforsetinn Biden og stríðsmangarar NATO, Starmer, Macron og þeirra líkar, bæxlast nú og eru að flýta sér að drepa sem flesta meðan mistakaforsetinn situr enn í Hvíta Húsinu.
Hversu margir hafa dáið eða limlests í Úkraínu og Rússlandi í þessu landvinningastríði NATO og ESB gegn Rússum verður sjálfsagt afhjúpað með tímanum. En hvernig sem fer eru allt of margir drepnir fyrir græðgi NATO og ESB. https://www.frjalstland.is/2024/02/29/ukraina-logd-i-rust/
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 20:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ábyrgur leiðtogi
6.11.2024 | 14:10
Donald Trump var kosinn forseti Bandaríkjanna í annað sinn í gær. Ábyrgur leiðtogi kemst þarmeð aftur til valda eftir fjögurra ára eyðimerkurgöngu embættisins undir mistakaforsetanum Biden og félaga hans. Okkar öflugu nágrannar og bandamenn sýna enn einu sinni sinn mikla endurnýjunarmátt, senda vanhæft lið heim og setja nýja menn í verkin.
En hernaðarbáknið og kratahluti áhrifamanna í Bandaríkjunum eru nú á barmi hjartaáfalls. Trump ætlar að stöðva skuldasöfnun alríkisins sem stafar af taumlausri eyðslu í heriðnarbáknið. Þar eru óskammfeilnir aðilar sem vilja láta skattgreiðendur og alríkissjóðinn halda áfram að borga fyrir vopnaframleiðsluna og hernaðinn í útlöndum. Og safna skuldum. Þeir munu áfram reyna að stöðva Trump. Þegar hefur tvisvar verið reynt að myrða hann.
Miklar vonir eru bundnar við Trump. Hann er ekki lyginn og svikull eins og venjulegur stjórnmálamaður heldur hefur staðið við orð sín. Hann vill stöðva manndrápin í Úkraínu og Palestínu. Mögulega tekst honum að leysa NATO upp og kalla fjölmörg setulið Bandaríkjanna heim og stöðva vegferð NATO og ESB að Þriðju Heimsstyrjöldinni. https://www.frjalstland.is/2022/08/19/island-tekid-i-strid/
Hann getur vonandi stöðvað loftslagssvindlið og gert orkuna ódýrari. Hann ætlar að stöðva þróunarlandamannaflóðið til landsins. Hann ætlar að efla efnahag og velsæld landsins og endurvekja tækifærin og ameríska drauminn.
Falsfréttamiðlar Vesturlanda (85% bandarískra og fjöldi vesturevrópskra) eru í áfalli, þeirra lygar um Trump hafa nú slegið þá til baka. Á RÚV í nótt mætti háskólakona til að ræða kosningarnar vestra en sagðist hafa meiri áhyggjur af norður-kóreskum hermönnum í Úkraínu! (þeir eru sagðir 10 þúsund sem er óstaðfest en tugir þúsunda Vesturlandahermanna hafa tekið þátt og taka þátt í hernaði i Úkraínuleppstjórnarinnar gegn Rússlandi). Ríkisfréttamiðlar í V-Evrópu, s.s. BBC, DR, RÚV hafa smíðað þéttan lygavef um Trump og skjóta áróðrinum inn í "fréttaflutninginn" í tíma og ótíma. RÚV mun ekki hætta slíku athæfi fyrr en stofnunin hefur verið gerð sjálfstæð og hlutlaus, eins og alltaf var meiningin, og fengin ábyrga stjórnendur.
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Svandís upprétt
4.11.2024 | 13:44
Svandís reis upp og fór að tala af visku strax og hún losnaði úr hættulegu ríkisstjórninni: -"öryggi Íslands er betur tryggt utan NATO".
Blaðamaður reyndi að fanga hana í net kaldastríðslyga til að segja að við þyrftum að vera í NATO til að verja okkur. En hún lét ekki fanga sig heldur lýsti með sannfæringu að Rússagrýlan væri ekki eina öryggishættan. https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/11/03/segir_oryggi_islands_betur_tryggt_utan_nato/?origin=helstu
Þó ekki sé hátt risið á Vinstrigrænum núna hafa allir eitthvað til síns máls eins og Svandís í viðtalinu. Hennar flokkur í hættulegri ríkisstjórn dró Ísland í hernað NATO og ESB. Og klappaði Svía og Finna inn í hernaðarklúbbinn NATO í andstöðu við grundvallarstefnu frumherjanna.
Svandís gæti verið á leið að endurnýja Vinstrigrænaflokkinn með baráttu fyrir hagsmunum Íslands, sjálfstæði og fullveldi, friði og herleysi. Ef henni tekst að þvo grænu glýjuna framan úr flokknum og segja hann frá stríðsmangi NATO og ESB á hann langa framtíð fyrir sér. https://www.frjalstland.is/2020/12/10/graena-glyjan/
https://www.frjalstland.is/2024/01/27/vaxandi-hernadur-gegn-russlandi/#more-3204
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Brjóstvörn
30.10.2024 | 18:20
Útrunni fv. forseti Úkraínu segist vera "brjóstvörn vestrænna "gilda" (mbl.30.10.2024) og Vesturlanda sjálfra gegn landvinningastefnu. Rússa! Han snýr þessu auðvitað á haus eins og honum hefur verið kennt enda leppur mestu lygasmiðja heims í Washington og London.
Lögleg stjórn Úkraínu hafnaði aðild að NATO 3.6.2010 og að ESB 21.11.2013 en þá settu "friðarbandalögin" (NATO og ESB) af stað árás á stjórnvöld landsins til að koma þeim frá.
Það var Obama/Biden-stjórn Bandaríkjanna sem framdi vopnaða valdaránið í Úkraínu, byssumenn þjálfaðir af CIA í Póllandi drápu mikinn fjölda stjórnarstarfsmanna auk venjulegra borgara. Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna kom til valda leppstjórn með aðstoð úkraínskra nýnasista sem hóf strax í febrúar 2014 borgarastyrjöld með hernaði gegn rússneskum svæðum Donbas. Þegar NATO og ESB höfðu svikið alla samninga við Rússland og fyllt Úkraínu af vopnum skarst rússneski herinn í leikinn 2022 og er nú smám saman að frelsa svæðin sem leppstjórnin hefur undirokað með landvinningahernaði NATO og ESB en þau lýstu yfir sjálfstjórn þegar séð var fram á að leppar NATO og ESB mundu taka völdin.
Fjárfestar og hrægammar Ameríku (s.s. Black Rock) hafa þegar náð undir sig miklu af auð Úkraínu, meir en þriðjungi landbúnaðarlands, þess besta í Evrópu. Rotchildbankinn er farinn að fjármagna hernað leppstjórnarinnar að hluta enda alvanur að fjármagna stríð. Bidenfeðgar bröskuðu líka í skjóli spillingar valdsins. Þegar endurreisn Úkraínu hefst verður erfiðast að losna við ruplarana frá Vesturlöndum. Þeir einu sem kunna það eru Rússar enda hundeltir af þjófum Vesturlanda í mannsaldra.
En Zelenski væri góður sem brjóstvörn Úkraínumanna gegn vestrænum svikurum og ræningajalöndum sem hafa þegar stolið 600 milljörðum dala frá Rússum og láta nú leppstjórnina í Úkraínu fórna blómanum úr úkraínsku þjóðinni við að berjast fyrir "vestrænum gildum"!
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 20:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)