Færsluflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál

Lygaframleiðsla

pinocchio-2917652_960_720Hin alræmda bandaríska "alþjóða-þróunarstofnun", USAID, er nú í afhjúpun hjá Trump. USAID fjármagnar m.a. lygar fjölmiðla. The New York Times fékk t.d. milljónir dollara fyrir að gefa út lygasögu um "illvirki Rússa" í Bucha þar sem Úkraínumenn settu á svið ummerki um fjöldamorð á götum bæjarins. BBC kom líka og útvarpaði sömu skáldsögu https://www.bbc.com/news/world-europe-60967463 Þarmeð var hægt að afsaka meiri vopnasendingar frá NATO/ESB. BBC er einn helsti móttakandi lygapeninga frá USAID.

Mikið flóð er af lygum um Rússa en illvirkjum Úkraínumanna er leynt, nú síðast morðum í Rússlandi og fjöldadrápum í Kurskhéraði landsins.

Frægar eru lygarnar um afskipti Rússa af forsetakosningunum 2016 þar sem Politico og fleiri fjölmiðlar gengu í samsæri með USAID um lygadreifinguna og yfirhylminguna um Hunter Biden.

Fjölmiðlar Úkraínu eru reknir að mestu leyti með fé frá USAID og mynda víðfeðmt lyganet sem heldur Úkraínsku þjóðinni í blekkingum vestræns gerviheims og stríðsæsinga.

USAID hefur fjármagnað valdarán, mútur, kúgun og manndráp og unnið með annari álíka kræsilegri stofnun, CIA. Frægir niðurrifsmenn, m.a. Georg Soros, vinna með USAID að lygadreifingu, óeirða- og manndrápaaðgerðum  í ýmsum löndum. Frægt er blóðuga valdaránið í Úkraínu fyrir 11 árum sem markaði upphafið að stríði sem varir enn. https://www.frjalstland.is/2022/05/05/bloduga-valdaranid-i-ukrainu/

Falsréttamiðlar NATO- og ESB-landa hafa nú risið upp á afturlappirnar og ráðast með urri og gelti á Trump og Musk fyrir að dirfast að afhjúpa þá.

Því miður er ekki líklegt að Trump nái að afhjúpa kraðakið af breskum lygamiðlum (og um leið ESB- og Norðurlandafalsarana) en þeir eru jafnvel enn lygnari og verr haldnir af ofsóknaræði en þeir amerísku.

 


Trump byrjar að afhjúpa

tank-5125073_960_720Trump er ekkert að leyna tilganginum með stríðsrekstri Bandaríkjanna, né heldur aðferðunum.

-Palestína: Bandaríkin eiga að hirða Gasa og byggja fyrirmyndar "Rivieru Miðausturlanda" á rústunum og flytja Palestínuþjóðina burt https://apnews.com/article/trump-netanyahu-washington-ceasefire-1c8deec4dd46177e08e07d669d595ed3

Gaslindir Gasa verða Bandarísk/Ísraelsk eign. https://daysofpalestine.ps/stolen-treasure-all-eyes-on-gazas-gas-fields/

-Úkraína fær árfamhaldandi "stuðning" við að reka hernað gegn Rússum ef Úkraína afhendir Bandaríkjunum verðmæt jarðefni. https://www.theguardian.com/world/2025/feb/04/ukraine-war-briefing-trump-demands-rare-earths-from-kyiv-in-exchange-for-aid Vopnasendingarnar stöðvuðust snöggvast þegar Trump tók við embætti en hafa nú komist í fyrra horf, hernaðarbákn Bandaríkjanna græðir nú á tá og fingri og ætlar að koma af stað stórstyrjöld með aðstoð ESB og NATO hvað sem Trump segir!

-USAID: Eitt afkastamesta gjöreyðingarvopn Bandaríkjanna, glæpsamleg stofnun sem splundrar og hleypir upp samfélögum, fjármagnar valdarán og stríð https://abcnews.go.com/Politics/turmoil-inside-usaid-doge-reps-offices-senior-officials/story?id=118368900


Dósasöfnun DúnuToggu

hydrogen-bomb-63146_960_720Rússarnir eru að koma eins og okkar "varnarsérfræðingar" hafa japlað á í 80 ár. Þeir og ráðherrarnir/frýrnar sem fara með varnarmál segja okkur nú að búa okkur undir stríð. Þ.e. safna niðursuðudósum. https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/02/01/aukin_ahersla_a_samtal_um_varnarmal/?origin=helstu

Best væri að grafa jarðhús sem hægt er að skríða ofaní áður en kjanorkusprengjurnar lenda á Kanahreiðrinu í Keflavík.

Áróður varnarsérfræðinganna er að sjálfsögðu tilefnislausar stríðsæsingar ættaðar frá NATO-bullum, og fjármagnaðar af heriðnaðarsamstæðum Bandaríkjanna, Bretlands og Frakklands. Og í seinni tíð hvattar áfram af skrækjum frá Eystraseltingum (bæði Tataralýðveldunum og Norðurlöndunum) þar sem geðheilsunni hefur hrakað mjög.

Upphlaupin og ásakanirnar  út af skemmdarverkum Rússa eru eins og venjulega byggð á lygum, áróðri og ágiskunum:

-Skip með rússneskri áhöfn sem Eystraseltingar sögðu að skemmdi kapla var fært til hafnar í Noregi en sleppt aftur þar eð engar vísbendingar um skemmdarstarfsemi fundust. https://maritime-executive.com/article/norway-detains-reefer-cargo-ship-for-investigation-into-cable-damage

-Njósnarbúnaður við Skotland, sem Bretar sögðu að væri Pútíns, var hvalur að leysa vind. https://www.thesun.co.uk/news/32995393/navy-fears-russian-drones-farting-whale/

-Kjarnorkukafbátar NATO að verja okkur koma svo nálægt strönd að strákar að veiða festa veiðarfærin í þeim. https://www.thebarentsobserver.com/security/norwegian-fishermen-snagged-us-nuclearpowered-submarine/420357

-Bandaríkin og Noregur sprengdu gasleiðslu Rússa í Eystrasaltinu https://www.youtube.com/watch?v=rPvfqm_XmaQ

 


Varnir þarf að efla

nato-26848_960_720Rússar undirbúa nú árás á Vestur-Evrópu, fremja njósnir og skemmdarverk, slíta kapla og leiðslur.

Breski herinn fann "tækjabúnað" á hafsbotni við Skotlandsströnd sem þeir töldu vera tæki Putins til að fylgjst með kafbátum Breta. Dátar og áróðurspípur Hennar Hátignar hlupu upp til handa og fóta og létu ásakanirnar á Rússa óma í öllum helstu (fals)fréttamiðlum Breta. Í ljós kom að "tækjabúnaðurinn" var hvalur sem hlustunartæki Breta höfðu heyrt leysa vind! https://www.thesun.co.uk/news/32995393/navy-fears-russian-drones-farting-whale/

Norskir strákar sem voru að dorga upp í fjöru fengu kjarnorkukafbát á öngulinn. Hann reyndist vera bandarískur að efla varnirnar í Norðurhöfum vegna yfirvofandi árásar Rússsa. https://www.thebarentsobserver.com/security/norwegian-fishermen-snagged-us-nuclearpowered-submarine/420357

(ATH: Rússar hafa eldrei sýnt áhuga á að ráðast á Vestur-Evrópu, hafa nóg með víddir Rússlands. Slit sæstrengjanna sem falsfréttamiðlarnir kenna rússneskum "skuggaflota" hafa reynst vera slys eða handvöm. Leiðslurnar sem voru slitnar voru gasleiðslur Rússa og Þjóðverja sem Bandaríkin og Noregur sprengdu.)


Ætluðu að myrða Putin

kremlmoscow-3617070__340Tucker Carlson, hinn þekkti bandaríski fjölmiðlamaður, segir að ríkisstjórn Joe Biden hafi ætlað að myrða Vladimir Putin Rússlandsforseta. Og hafi reynt það amk. einu sinni með árás dróna á Kreml 2023.Tucker segir að Blinken utanríkisráherra Bidens hafi reynt allt sem hann gat til þess að koma Bandaríkjunum í beint stríð við Rússland

https://www.bignewsnetwork.com/news/274994654/biden-administration-tried-to-kill-putin---tucker-carlson?utm_source=feeds.bignewsnetwork.com&utm_medium=referral

Bandarísk stjórnvöld hafa ekki enn látið rússnesk stjórnvöld í sér heyra um friðarsamninga. Það er eðlilegt, Bandaríkin og þeirra verktakar, Úkraínustjórn (umboðslaus), eru þegar búin að tapa stríðinu og hafa ekkert samningstromp á hendi. Það sem ruglar Ameríkanana er að NATO- og ESB-leiðtogar eru sumir í villtum stríðsham og vilja halda árfram stríðinu, og þenja það út, það er nú að verða 11 ára og hefur valdið ógnvekjandi hörmungum. Á meðan heldur rússneski herinn áfram að frelsa byggðir Donbass undan útrunnu leppstjórninni í Kænugarði og hreinsa upp hroðann sem hún skilur eftir sig.


Línan frá NATO

f-16-thunderbird-2678839_960_720Okkar utanríkisráðherra/frú fór til aðalritara NATO, gáfnaljóssins Mark Rutte, til þessa að fá línuna sem hann hefur reyndar þegar lagt út:

-Koma á stríðsanda (og undribúa stríð við Rússa)

-Rússarnir eru að koma (hafa aldrei sýnt áhuga á að ráðast á V-Evrópu)

-Veita framlögum til velferðarmála í varnarmál (vaxandi fátækt í NATO-löndum)

-Úkraína forgangsverkefni NATO (Úkraína hafnaði aðlid að NATO 2010)

 


Maduro & Mette

sniper-1009657_960_720Bandaríkin bjóða nú 3,5 milljarða fyrir Maduro. Hann er forseti olíuríkasta lands heims, Venezúela, og vill verja olíulindirnir fyrir Bandaríkjunum.

Hann hefur lengi verið hundeltur af atvinnumorðingjum Bandaríkjanna.

Bandaríkin ætla líka að leggja undir sig Grænland. Það er reyndar óþarfa fyrirhöfn, það hefur lengi verið bandarísk herstöð á Grænlandi og Bandaríkin geta gert það sem þeim sýnist á Grænlandi (eins og á Íslandi). Þeirra fyrirtæki eru velkomin þar (eins og á Íslandi).

En það er von að Danir, núverandi herraþjóð Grænlendinga, séu sárir, þeir hafa verið undirgefnasta strengjabrúða Bandaríkjanna í áratugi og tekið virkan þátt í manndrápaferðum Bandaríkjanna og NATO um heiminn. Varla hafa Bandaríkin mundað byssu án þess að danski herinn hafi flýtt sér með í drápin, í Írak, Afganistan og nú síðast senda þeir öll sín vopn til að leggja Úkraínu, og helst Rússland, undir Bandaríkin.

Forsætisráðherra/frú Dana, Mette Frederiksen, verður að hætta að malda í móinn gegn innlimun Grænlands í Bandaríkin. Annas gætu Bandaríkin farið að bjóða nokkra milljarða, amk. 2,  fyrir hana.


Tapað stríð

peace-dove-2667123_960_720"Úkraína er búin að tapa stríðinu við Rússa - landið er gjörspillt og gegnumrotið - í samfélagi þjóða eins og rakki með hundaæði sem þarf að skjóta - NATO er að hrynja skjálfandi á beinunum í sínu eigin hlandi og ræður ekki við Rússland - Ameríka þarf að hypja sig frá Úrkaínu svo stríðið hætti-"! https://www.youtube.com/watch?v=EzJ8pcnULDU

Þetta er meðal skoðana Scott Ritter, bandaríska vopnaeftirlitsmannsins sem þekkir stríðsrekstur glögglega (hann veit of mikið og sætir því farbanni á sínu heimili í Bandaríkjunum).

Ísland hefur dregist með í árásarstríð NATO/ESB gegn Rússlandi vegna áróðurs frá Bandaríkjunum, Bretlandi og Brussel.  Undirbúningurinn að stríðinu, og vopnasendingarnar frá Bandaríkjunum, hófust löngu fyrir 2014 þegar stríðið sjálft byrjaði.

Árásarstríð NATO/ESB á Rússa hefur þegar haft geigvænlegar afleiðingar. Stór hluti Úkraínu og suð-vesturhluti Rússlands er rústir, brotajárn og sprengjur. Nærri helmingur Úkraínubúa er flúínn, á aðra milljón ungra Úkraínumanna hafa fallið auk þúsunda erlendra málaliða og tuga þúsunda Rússa. Höft NATO/ESB á Rússland og þjófnaður á rússneskum peningum hafa haft alvarlegar afleiðingar á efnahag og velmegun Evrópu. Donald Trump hefur áttað sig á að árásarstríð gegn Rússlandi, sem Obama/Biden stjórnin hóf, er ekki hægt að vinna og vill Bnadaríkin út en hefur heriðnaðarfinngálknið og stórfyrirtækjaveldið, sem þénar á vopnakaupum alríkisins, að kljást við.


Upplausn siðmenningar

nato-26848_960_720Forstjóri Geisla,- efna- og sýklavarna Rússlands var "felldur" segja vestrænir fjölmiðlar eins og hann hafi fallið á vígvelli. Það rétta er að Úkraínustjórn lét myrða hann (undir leiðsögn frá Bandaríkjunum) fyrir utan heimili hans. Hann hafði afhjúpað sýklavopnaþróun Bandaríkjanna í Úkraínu og notkun úkraínuhers á bönnuðum efna-og sýklavopnum.

Úkraínskir, breskir og bandarískir fjölmiðlar hafa hrósað morðingjanum og kallað hryðjuverkið "lögmætt"! Það þýðir að Rússar geta farið að senda leigumorðingja á forstjóra eða herforingja í NATO/ESB-löndum og myrt þá "löglega"!

Úkraínustjórn heldur úti leigumorðingjum og hryðjuverkamönnum í Rússlandi. Aðallega hafa fréttir af morðum á blaðamönnum, rithöfundum og áhrifavöldum lekið út. Vestrænar falsfréttasmiðjur (t.d. MI5, MI6, UK Foreign Office, US State Department, CIA ofl) dreifa með aðstoð til dæmis Reuters, AfP, AP ofl. fölsunum um "rússnesk skemmdarverk", s.s. skemmdir á sæstrengjum eða byrlanir. Og NATO/ESB-lepparnir lepja falsanirnar upp og halda fundi um að auka "varnirnar"!

Einu skemmdarverkin sem sannast hafa eru eyðilegging Bandarikjanna á gasleiðslu í Eystrasalti.

Stjórnvöld, fjölmiðlar og áhrifamenn stunda í auknum mæli falsanir og áróður. Ábyrgir, heiðarlegir og fróðir fréttamenn, stjórnmálamenn og álitsgjafar heyrast varla í stórfjölmiðlunum. Þegar við heyrum að maður hafi verið felldur eins og hermaður á vígvelli þegar hann var myrtur við heimili sitt eru siðleysingjar eða falsarar að tala. Og þegar ákveðnum þjóðum eru kennd skemmdarverk að ósönnuðu máli eru siðlausir menn að bera út níð eða lygar.

Hin rómaða (af okkur) vestræna siðmenning er greinilega að leysast upp í óhróðri lygalaupa.


Við erum í óþokkaflokki

mourning-5501796_960_720"Framlögin til velferðarmála þarf að færa til hermála! - Rússarnir eru að koma"!

Þetta segir aðalgáfnaljós NATO, Mark Rutte aðalritari. https://www.nato.int/cps/en/natohq/opinions_231348.htm Þetta er sama slitna grammófónplatan sem Churchill og Trumann byrjuðu Kalda Stríðið með fyrir 8 áratugum.

Churchill ætlaði í stríð við Rússland strax og Rauði herinn hafði sigrað nasistana og tekið Berlín (ekki segja, þetta er leyndarmál, vitrari menn gátu stöðvað áformin). Trumann lét varpa kjanrorkusprengjum á Japan þó landið hafi í raun þegar gefist upp vegna þess að Rauði Herinn var á leiðinni og Japanir vildu með engu móti fá sömu útreið og Þjóðverjar.

Mark Rutte, sem er aflóa stjórnmálamaður frá ESB/NATO-landi, þarf að breiða yfir að Rússar eru að verjast landvinningahernaði NATO sem hófst fyrir 11 árum með árás á höfðuðborg Úkraínu og blóðugu valdaráni

Rutte og gáfnaljós NATO segjast ætla að sigra Rússland hernaðarlega. Þetta geta Rússarnir ekki misskilið enda hafa þeir heyrt þetta áður frá Napoleon og Hitler.

NATO hefur aldrei gert neitt gagn, allra síst fyrir friðinn, en mikið ógagn og stundað manndráp á okkar vegum. Ísland getur ekki verið þekkt fyrir að vera í slíkum óþokkaflokki og þarf að segja sig úr.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband