Færsluflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál

Hernaðarsamningur Íslands

eu-flageurope-1045334_960_720EES-samningurinn er orðinn hernaðarsamningur Evrópusambandsins og hjálenda þess, Noregs, Íslands og Liechtenstein. https://www.consilium.europa.eu/en/press/press-releases/2024/03/19/if-we-want-pemace-we-must-prepare-for-war/

 

https://www.youtube.com/watch?v=UpUetTGCS84 Tilskipanavaldið yfir Íslandi, sem EES-samningurinn færði Evrópusambandinu, hefur blandað Íslandi í hernað á erlendri grund gegn landi sem Ísland á ekkert sökótt við. https://www.frjalstland.is/2022/08/19/island-tekid-i-strid/

Þrælslund íslenskra stjórnvalda gagnvart Evrópusambandinu er komin á það stig að lítið er eftir af sjálfstæði Íslands í utanríkismálum. Tilskipanir um refsiaðgerðir og stuðning við hernað koma frá ESB, að jafnaði byggðar á áróðri eða fölsunum. Bandaríkin, sem Ísland er með varnarsamning við, vinna nú að friði sem Evrópusambandið reynir að spilla. https://www.telegraph.co.uk/politics/2025/03/23/starmer-ukraine-peacekeeping-plan-political-theatre/


Ísland að athlægi

skriffinnskatax-consultant-3094819_960_720Okkar frúr Þórdís og Þorgerður utanríkisráðherrar hafa gert Ísland að athlægi. Þær ásaka Rússa um að hafa ógnað starfsfólki sendiráðsins í Moskvu og létu loka því. Þær létu líka loka sendiráði Rússlands hér og svöruðu með lítilsvirðingu þegar Rússar kvörtuðu yfir semmdarverkum sem voru unnin á sendiráðinu.

Hinar raunverulegu ástæður lokananna voru fyrirmæli frá Evrópusambandinu/EES og NATO sem tóku að berast síðvetrar 2014 strax eftir að Bandaríkjastjórn Obama hafði framið valdarán í Úkraínu og sett nýnasista til að stjórna landinu á sínum vegum.

María Sakharova, talsmaður utanríkisráðuneytis Rússlands, var spurð út í orð Þorgerðar um að Rússar hefðu ekki tryggt öryggi íslenska starfsfólksins í sendiráðinu. "Hver sagði það? Utanríkisráðherra Íslands? Heitir hún kannske Annalena Baerbock-2? spurði Sakharova hlæjandi, vísaði hún þar til Önnulenu Baerbock, utanríkisráherra Þýskalands sem er ekki hátt skrifuð hjá Kremlverjum (enda einhver verst uppaldi krakkinn sem situr á stól ráðherra Evrópusambandslanda). Sakharova sakaði Þorgerði um lygar. https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/03/20/segjast_ekki_hafa_fengid_neina_kvortun/

Vestrænir fjölmiðlar halda áfram að dreifa lygum um Úkraínustríðið og þagga niður svik og hryðjuverk Úkraínuklíkunnar. Trump og Putin sömdu um hlé á árásum á orkuinnviði sem Úkraínustjórn braut strax og sprengdi upp gastengistöð á flóttanum frá Kursk https://www.youtube.com/watch?v=_J1IY7gnDpg. Og kenna Rússum um að hafa sprengt sína eigin stöð!

Nýnasistaklíkan í Kænugarði vill engan frið heldur stríð og illa gefnir ráðamenn í Vestur-Evrópu mæla stríðsæsingarnar upp í þeim á eilífum fundum um "friðargæslu"!


RÚV-óhróður

RÚVimagesEinhver Friðjón var fenginn til að segja frá ræðu Trumps á Bandaríkjaþingi. Hann tafsaði einhverja þvælu og óhróður um Trump "heimurinnn horfir á með hryllingi"! Það er hreint öfugmæli, heimurinn að talsverðum hluta bíður spenntur eftir að Trump hætti stríðsrekstri.

RÚV er orðið áróðurs- og óhróðurssjónvarp gegn þeim sem ekki fylgja spillingaröflum og tískustjórnmálum. Fréttir frá útlöndum, oft komnar frá vestrænum falsfréttamiðlum en einnig með einhverjum óhróðursbólgnum Friðjónum sem sleppa á skjáinn, eru oftar en ekki mjög óáreiðanlegar og hreinn áróður blandaður með lygum. https://www.ruv.is/sjonvarp/spila/frettir/30762/b0j8gg

Landsmenn sem kosta RÚV eiga heimtingu á að fá sannar fréttir, óblandaðar með óhróðri.

Bandaríkin eru mikilvægasta vinaríki Íslands sem þýðir að íslenskar stofnanir eins og RÚV eiga að gera málefnum Bandaríkjana sannferðurg skil en forðast að láta einhverja áróðurspésa bera óhróður á borð.


Vanhæf ríkisstjórn

Hvítahúsiðpexels-photo-129112Þorgerður og Kristrún hafa nú afhjúpað sig sem vanhæfa ráðherra sem fleipra með stóryrðum og grófum ásökunum um forustu mikilvægustu bandamannaþjóðar Íslendinga. Þær segja um fund Selenski í gær (28.2) með forustu Bandaríkjanna -"þetta var eins og þeir hefðu einsett sér að mæta þarna-forsetinn og varaforsetinn- til þess að niðurlægja Selenski"!. Það sem gerðist var að Selenski hagaði sér eins og dóni og móðgaði bandarísk stjórnvöld og bar fram eina lygina eftir aðra framan í forsetann og varaforsetann. Og var því vísað á dyr! (mbl 1.3.2025)

Ráðherrar okkar spilla fyrir friðarumleitunum Bandaríkjastjórnar og framlengja stríðið með óhróðri um forustu Bandaríkjanna. Og "stuðningi við Úkraínu", peningum frá íslenskum skattgreiðendum svo Banderítaklíkan (nasistinn Stefan Bandera er þjóðhetja þeirra) í Kænugarði geti haldið áfram að drepa Rússa með vestrænum vopnum.

Þorgerður heldur að "Evrópa" (les NATO-Evrópa) sé með burði til að tryggja varnir Íslands og vill "Evrópu standa enn sterkar og Ísland þar á meðal" með glórulausum stríðsæsingum og vopnavæðingu. Þeir sem þekkja eitthvað í sögunni vita að Ísland hefur aldrei getað treyst á stuðning eða varnir Evrópulanda en fengið að horfa upp í fallbyssukjafta þeirra og orðið fyrir tilraunum þeirra til að setja Ísland í þrot (1952, 2008), þeir sem helst stóðu að því, Bretar, vilja nú senda sinn her inn í Úkraínu til þess að "tryggja öryggi"!. Við Íslendingar höfum ekkert að gera með "varnir" þessarra landa, okkar verjendur til 74 ára, Bandaríkin, eru eitt helsta herveldi heims.

"-Það er Rússland sem er ofbeldismaðurinn í þessu öllu saman"- segir ráðherrann og bergmálar blekkingar um að innrás Rússa hafi verið tilefnislaus. Það er fjarri lagi. Bandaríkjastjórn Barak Obama og aðilar í ESB komu leppstjórn að völdum sem hóf stríðið gegn rússneskum íbúum Austur-Úkraínu á vegum NATO- og ESB-landa fyrir réttum 11 árum. Árið 2022 var búið að þenja Úkraínuher upp í að vera stærri en nokkur her NATO-Evrópu. Rússlandsher var sendur inn í Úkraínu þegar her Banderítanna hafði rekið stríðið gegn Rússum Austur-Úkraínu í 8 ár. Og eftir að Bandaríkin, NATO- og ESB-lönd höfðu viljandi brotið alla samninga sem gerðir höfðu verið við Rússland (samningarnir voru m.a. um stækkun NATO og ofsóknir gegn rússneskum borgurum Úkraínu (Minsk).) Það er því eðlilegt framhald nú að ábyrg stjórnvöld, sem nú hafa tekið völdin i Bandaríkjunum, bindi endi á stríðið sem Obama og Biden og evrópskar strengjabrúður hófu.

Óhróður forsætisráherra og utanríkisráðherra Íslands er fyrir neðan allar hellur og samræmist ekki þeirri ábyrgð sem þeim hefur verið falin. Fleipur íslenskra ráðherra er að gera okkar öflugustu bandamenn og vinaþjóðir, Bandaríkjamenn og Rússa, að óvinum íslensku þjóðarinnar. Forsætisráðherra og utanríkisráðherra eiga að segja af sér án tafar.

 


Kjarnorkukafbátur

submarine-168884_960_720Mikil vá steðjaði að Eyjafirði þegar kjarnorkukafbátur kom inn á fjörðinn til að fá nýja áhöfn á þriðjudaginn. Kjarnorkukafbátar mega alls ekki koma inn á íslenska firði og ekki heldur inn á íslensk fiskimið. Það geta orðið slys á þeim sem geta geislamengað fiskimiðin í mannsaldra óafturkræft.

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/02/25/kjarnorkukafbatur_skiptir_um_ahofn_i_eyjafirdi/

Hvað eru okkar stjórnvöld að gaufa? Þau þurfa að segja okkar verjendum, Bandaríkjunum, að halda kjarnorkukafbátum fjarri Íslandi en þau virðast í staðinn ekki gera annað en hlýða skipunum frá Brussel, þeytast til útlanda og ausa skattfé landsmanna í hernað nýnasistaklíku gegn öruggu vinalandi, Rússlandi, og sitja á stríðsæsingfundum með Norðurlandakrötum og Tataralýðveldum sem þjást af ofsóknarbrjálæði.


Stríðsríkisstjórn

peace-dove-2667123_960_720Nýja ríkisstjórnin hefur haft tvo mánuði til að sanna sig en hefur nú sýnt að hún er ekki ábyrgðinni vaxin. Frú forsætisráherra hennar fór til hins stríðandi lands, Úkraínu, og lofaði áframhaldandi stuðningi. (Mbl 24.2.2025) Það þýðir á mannamáli beina aðild að stríðsrekstri Kænugarðsstjórnarinnar en bandarískir embættismenn hafa nú viðurkennt að Rússland hafi ekki verið upphafsaðili stríðsins."Rússar voru egndir í stríð" segir Steve Witkoff.

Meðan okkar stríðsríkisstjórn álpast til að blanda íslensku þjóðinni í stríð í fjarlægum löndum eru okkar mikilvægustu bandamenn, Bandaríkjamenn, að reyna að stöðva vopnasendingarnar til striðsins og koma á friði. Líklega hefur þessi framgangsmáti ábyrgðarlausu stríðsríkisstjórnar Íslands ekki verið ræddur við Bandaríkin.

Landsmenn spyrja sig nú, hvernig hefur ríkisstjórn Íslands fengið umboð til þess að blanda íslenskri þjóð í stríð? Sem vinnur gegn okkar mikilvægustu bandamönnum?


Kristrún ruglar

sniper-1009657_960_720"Það fer ekki á milli mála hver árásaraðilinn sé í innrásarstríði Rússlands í Úkraínu-" segir frú forsætisráherra sem ætlar til Úrkaínu til að sýna landinu stuðning. https://www.mbl.is/frettir/erlent/2025/02/21/kristrun_fer_ekki_a_milli_mala_hver_redst_a_hvern/

Þetta er sami uppspuninn og lygasmiðjur NATO- og ESB-landa hafa haldið að okkur á annan áratug.

Það sem Kristrún þyrfti að vita er að þennan dag, 22. febrúar árið 2014 var löglega kjörinn forseti Úkraínu flæmdur úr embætti af vopnuðum sveitum ríkisstjórnar Obama. Aðstoðarutanríkisráherra hans, Victoria Nuland, sá um framkvæmdina sem hafði verið lengi í undirbúningi og kostað 5 milljarða dollara. Þátt tóku nýnasistar Úkraínu en nasistinn Stefan Bandera er þjóðhetja landsins. Ýmsir aðilar í ESB og NATO voru líka þátttakendur. https://www.frjalstland.is/2022/05/05/bloduga-valdaranid-i-ukrainu/

Leppstjórnin sem var komið að völdum eftir valdaránið hóf innrásarstríð gegn Donbasshéruðunum sem höfðu lýst yfir sjálfstæði enda útlit fyrir að nýnasistar og erindrekar USAID og CIA tækju völdin. Kænugarðsstjórnin setti af stað kúgunaraðgerðir gegn Rússum Úkraínu sem varð til þess að gerðir voru samningar, Minsk I og II,  um réttindi þeirra 2014 og 15. Þeir samningar voru þverbrotnir án tafar eins og loforð NATO um að þenja hernaðarbandalagið ekki til Austur-Evrópu.

Árið 2021 fengu rússnesk yfirvöld njósnir af áætlunum Bandaríkjanna um að setja upp herstöðvar í Austur-Úkraínu. Í febrúar 2022 var Rússneski herinn sendur inn í Úkraínu, aðallega til hjálpar Donbassbúum en einnig til að reyna að afvopna Kænugarðsstjórnina. Hún hafnaði fyrirliggjandi friðarsamningum vorið 2022 að fyrirmælum bresks fulltrúa frá NATO.

Í janúar sl. urðu þau straumhvörf í Bandaríkjunum að til valda kemur forseti sem tekur til við að vinda ofan af Rússahatrinu sem hefur stjórnað utanríkismálum Vesturlanda síðan á dögum Trumanns og Churchill. Hann hefur nú ákveðið að stöðva Úkraínustríðið sem hefur verið stríð Bandaríkjanna frá upphafi. Það er auðvitað mistök hjá okkar ráðherra að fara til Úkraínu til þess að styðja stríð sem er ekki þeirra stríð og Bandaríkin eru að stöðva.


Togga veðjar á rangan hest

skjaldarmerkiFrú utanríkisráherra okkar segir að  Evrópa sé að stíga upp og axla aukna ábyrgð á varnar- og öryggismálum, að Evrópa sé að þétta raðirnar, Ísland þurfi að vera fullir (helst ekki meir en rallhálfir) þátttakendur í þeirri heild sem sé að myndast í Evrópu. Hún dregur þessa röngu ályktun af nýlegum fundum þar sem stríðsæsingar ESB opinberuðust og andstaða pótentáta sambandsins við friðarsamninga.

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/02/18/evropa_thettir_radirnar_og_island_a_ad_taka_thatt/

Það þyrftu að vera mörk á því hvað ráðherrar vita lítið. Það þarf að upplýsa frú ráðherra um að Ísland er ekki háð Evrópu í "varnarmálum", við höfum haft varnarsamning við eitt helsta herveldi heims í 74 ár.

 


Stríðsæsingar jarðaðar

usfalgfourth-of-july-394504_960_720"Ógnin sem ég hef mestar áhyggjur af vegna Evrópu er ekki Rússland, er ekki Kína, er ekki einhver ytri aðili. Það sem ég hef áhyggjur af er innri ógn. Fráhvarf Evrópu frá sumum af sínum grundvallar gildum-" sagði JD Vance, varaforseti Trumps, á fundi í Munchen. https://www.spectator.co.uk/article/jd-vance-what-i-worry-about-is-the-threat-from-within/

Hann lýsti áhyggjum af fjöldainnflutningi fólks og hvernig kjósendur væru hunsaðir og málfrelsi heft. -"Ef þið flýið í hræðslu frá ykkar eigin kjósendum getur Ameríka ekki gert neitt fyrir ykur".

Striðsæsingabullur Evrópusambandsins og NATO urðu mjög taugaóstyrkir við þessar opinberanir frá Ameríku, Evrópusambandið og NATO hafa jú verið að hjálpa Ameríku við að verjast "tilefnislausri alsherjarárás Rússa" á Úrkaínu. En Vance veit vel að Úkraínustríðið er stríð Bandaríkjanna gegn Rússlandi sem hófst á vegum ríkisstjórnar Obama 2014. Þegar Bandaríkin hætta að reka stríðið hættir það hvað sem stríðsæsingabullur Evrópu segja. Þeir hafa ekkert að gera við samningaborð Trumps og Putins, mundu aðeins tefja fyrir með sinni venjulegu skriffinnskuþvælu.

Nú hefur Macronapoleon boðað stríðsmangara ESB og NATO á neyðarfund í París. Kannske ætlar hann að stofna "Evrópuher" í anda síns 200 ára fyrirrennara, eins og útrunni hryðjuverkastjórinn í Úkraínu vill. https://www.mbl.is/frettir/erlent/2025/02/16/stadfestir_neydarfund_leidtoga_evropurikja/

En fullljóst virðist að NATO er orðið óþarft.

 


Farnir á taugum

Hvítahúsiðpexels-photo-129112Fundahetjur Evrópusambandsins, Úkraínu og NATO eru farnar á taugum. Bandaríkin, sem hófu Úkraínustríðið 2014 ásamt með leppum í Evrópu, hafa nú fengið leiðtoga sem vill frið. Það vilja fundahetjur Evrópu forðast fyrir alla muni. Kemur ekki á óvart, ESB-þjóðir hafa komið af stað heimsstyrjöldum sem Rússland og Bandaríkin hafa þurft að stöðva, síðast 1945. Sagan endurtekur sig. https://www.mbl.is/frettir/erlent/2025/02/12/trump_hringdi_i_putin_hefja_vidraedur_an_tafar/

Fundahetjurnar (Kaja Kallas, von der Lyen, Þorgerður Katrín, Macron, Tusk, Rutte) vilja áfram stríð "eins lengi og þarf" til þess að sigra helsta kjarnorkuveldi heims!

Það er komið enn meira fát á Úkraínunasistana en verið hefur, þeir senda nú sprengjudróna á hræið af Chernobyl kjarnorkuverinu og sprengja bíl Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar sem var við kjarnorkuverið í Zaporozhie! Og þeir vilja endilega vera með Trump í að semja við Rússa þó þeir hafi hafnað friðarsamningum áður og eigi upphafið að Úkraínustríðinu sem verktakar NATO/ESB. Stjórn Úkraínu rann út á sínu lýðræðislega umboði í maí 2024 og hefur ekkert með að koma nema fallbyssufóðrið sem þeir álpuðust til að láta áróður og lygar véla sig í að fórna.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband