Hestvagnar í Berlín
4.12.2022 | 14:42
Evrópusambandsgáfnaljósin hafa samþykkt verðþak á rússneska olíu, 60 dollara á tunnu. Rússar selja á markaðsverði, það eru nógir kaupendur hvort sem er. https://www.euractiv.com/section/global-europe/news/eu-agrees-60-russian-oil-price-cap-after-poland-backs-deal/
Enda von, vindmylluhagkerfi Evrópusambandsins slokknar þegar kalt er.
ESB hefur stöðugt verið að gefa út bönn á viðskipti við Rússland. Bönnin eru barnsleg sýndarmennska skriffinna í fílabeinsturni Brussel sem venjulegt fólk og fyrirtæki geta ekki tekið mark á.
Útflutningur Rússlands á olíu og gasi hefur aukist á þessu ári og tekjurnar hækkað. Gasið þarf að flytja með skipum og er dýrara en rörgasið úr leiðslunni sem gáfnaljósin í ESB (les NATO-lepparnir) sprengdu. Bandaríkin stórgræða nú á gasi til ESB í staðinn fyrir gasið úr leiðslunni sem þeir sprengdu.
Ástæða þess að fálm ESB er ómarktækt er að ekkert land getur verið án jarðefnaeldsneytis. Evrópusambandið hefur í hyggju að banna dísel frá Rússlandi 5. febrúar. Það gæti orðið gaman að ferðast um Berlín á hestvögnum í sumar!
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Evrópumál | Breytt s.d. kl. 16:25 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.