2022 ár sannleikans?

icebergs-932963_960_720Lygarnar sem meginfjölmiðlar á Vesturlöndum flytja okkur eru nú í vaxandi mæli hraktar af sjálfstæðu og kjarkmiklu fólki. Raunveruleikinn og náttúrulögmálin eru ólygin og hjálpa stundum til.

Þriggja áratuga lygi um að loftslag sé að hlýna hefur svæft fyrirhyggjuna. Nú þegar hin náttúrulega loftslagskólnun er hafin aftur reka heilaþvegnir stjórnendur upp stór augu: Snjór upp í klof, 23 stiga frost, vegir og flugvellir lokaðir! (svipað og 1966-1995 þegar núverandi stjórnendur voru með snuð). Skortur á hitaveituvatni, lélegur snjóruðningur, lélegar veðurspár (oft frá útlöndum þar sem stofnanir í gíslingu loftslagsskrumara dreifa ruslvísindum) og flugfélögin fljúga inn í lokanir á flugvöllum.

Landsins Forni Fjandi er að færast nær, snjó- og ísþekja Norðurhvelsins hefur ekki mælst meiri síðan mælingar hófust 1966.

https://www.frjalstland.is/wp-content/uploads/2021/03/Loftslag-%C3%A1-%C3%8Dslandi.pdf


Bloggfærslur 22. desember 2022

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband