Vonsviknir skriffinnar ESB

euflagpexels-photo-113885.jpgTveir stórskriffinnar ESB skrifa grátrullu í Fréttablaðið í dag og sjá eftir Bretum og lofa áframhaldandi "reglufastri" áþján á þá sem druslast enn með í ESB/EES. Og þykjast ætla að bjarga heiminum: -"við þurfum að bregðast við alþjóðlegum áskorunum-":

"Loftslagsbreytingum"-  Íslendingar, sem borga fúlgur í gagnslausa loftslagsbaráttu ESB, berjast við loftslagsbreytingar með snjóflóðavörnum, vel einangruðum húsum og orkuframleiðslu

"Tölvuglæpum"- ESB reynir eins og unnt er að setja stein í götu þróuðustu upplýsingatæknifyrirtækjanna, þau eru bandarísk.

"Hryðjuverkum"- ESB flytur inn milljónir múslima, m.a. hryðjuverkamenn

"Ójöfnuði"- Á Íslandi er almennt meiri jöfnuður og hærri meðallaun en í ESB

Barnaskapur, draumórar og tískustjórnmál ráða ferðinni hjá ESB-skriffinnskubákninu. Baráttumálin eru Íslendingum fjarlæg og baráttuaðferðir gagnslausar.


Bloggfærslur 3. febrúar 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband