Sóttvarnalæknir með ruslvísindi?
26.1.2020 | 17:31
Okkar sóttvarnalæknir virðist ætla að afsaka vaxandi offjölgunarþrýsting og fólksinnflutning úr hitabeltinu með að fátæklingar þaðan flýi hingað undan hlýnandi loftslagi! (Mbl 26.1.2020) Það er að vísu rétt að loftslag á Íslandi er svalt og hefur ekki hlýnað í 8 áratugi. En það sama gildir um lönd þar sem áreiðanlegar mælingar eru til: Loftslag á Jörðinni er ekki að hlýna svo sannað sé, áróðurinn um hlýnun loftslags er sprottinn úr valdagræðgi og fjárplógstilraunum og byggður á undirmálsvísindum
Loftslagsvísindi hrjáð af fölsunum
Það er alvörumál ef okkar æðstu embættismenn byggja á undirmálsvísindum. Þeim er þó viss vorkunn því stofnanir Sameinuðu þjóðanna (IPCC, UNEP, WMO, WHO) og ESB-báknið eru hlutaðeigendur.
Vísindafélag Ísladns leggur nú til að meira fé verði varið í grunnrannsóknir. Íslendingar eiga meira undir loftslagi en flestir. Með reynsluna af vísindafölsunum síðustu áratuga er sýnt að Íslendingar þurfa að afla meiri eigin þekkingar á loftslagsvísindum og leggja fé í það.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 27.1.2020 kl. 11:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)