Niðurrif atvinnulífsins

tentphoto-of-teepee-on-a-starry-sky-2666598_1357815.jpgISAL ætlar að draga saman seglin og kaupa minna af orku, í framhaldinu væntanlega minna af þjónustu og störfum; tekjur landsins dragast saman. Nýlega reyndu eigendur álversins að selja það. Þessi þróun mála hefur verið í deiglunni lengi. Markaðir iðnvara eins og áls sveiflast, það eiga stjórnvöld okkar sem stjórna þjóðarorkuframleiðandanum Landsvirkjun/Landsneti að vita. Þau verða auðvitað að standa með fyrirtækjunum í landinu þegar gefur á bátinn svo þau ekki gefist upp. Stjórnvöldum okkar er í lófa lagið að láta fyrirtæki þjóðarinnar, Landsvirkjun, sem mokgræðir á að selja orku á of háu verði, stilla verðlagningu í hóf þegar orkukaupendur eiga erfitt. Það hefur ekki verið gert við ISAL sem borgar of hátt orkuverð (Mbl 25.1.2020).

Það er orðin lífsnauðsyn að leiðrétta stefnuna í orkumálum svo framleiðsla geti þrifist í landinu. Rekstur orkufyrirtækjanna, sem nýta sameiginlegu orkuauðlindina, verður að miðast við að hann þjóni þjóðarhagsmunum en sé ekki háður EES-regluruglinu, tískustjórnmálum og draumórum öfgamanna.

Atvinnuuppbyggingin komin í uppnám

Öfgastjórnmálmönnum hefur verið sleppt í ráðherraembætti og stefna þeir nú að því að Ísland (þ.e. eyðimörkin sem Ísland er að mestu) verði þjóðgarður. Landsmenn geta þá lifað á að selja ferðamönnum lunda úr tjöldum við hringveginn umhverfis þjóðgarðinn, framleiðslan verður öll lögð niður og orkan leidd til útlanda.

 


Bloggfærslur 25. janúar 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband