Færsluflokkur: Evrópumál
Bakari hengdur
3.6.2022 | 18:23
Orkukreppa. Fæðukreppa. Lífskjarakreppa. Allt Rússunum að kenna segja falsfréttamiðlar og ráðamenn Vesturlanda og reyna að hengja bakarann, Rússland, og útskúfa heilli þjóð með stríðsæsingum, fölsunum og lygum. Kreppusmiðirnir eru leiðtogar Vesturlanda.
-Orkukreppan stafar af rangri pólitík í 2 áratugi: Höft á eldsneytisframleiðslu og offjárfesting í vindmyllum og sólarpanelum sem geta ekki uppfyllt þarfirnar og gefa of dýra orku. Rússar framleiða ríflega 10% af olíu og 17% af jarðgasi heimsins sem fjöldi framleiðenda gætu hlaupið í skarðið fyrir. Öfgafullar aðgerðir ESB og NATO hafa veitt eldsneytinu til Asíu svo Evrópulönd þurfa að kaupa dýrar og lengra að.
-Fæðukreppan stafar, auk orkukreppunnar, af viðskipabönnum á Rússland sem eru orðin að alsherjarárás (líklega komnar þúsundir af bönnum!). Rússland framleiðir um 11% af hveiti heimsins en ræður um 19% af heimsmarkaðnum þannig að höft NATO og ESB skrúfa upp verðið í Evrópu og valda skorti og jafnvel hungursneyð víðar. Úkraína framleiðir aðeins ríflega 3% og hefur því lítil áhrif þó leiðtogar Vesturlanda segi að skortur á Úkraínuhveiti valdi hungursneyð! Rússar eru ekki eins og NATO og ESB, þeir stöðva ekki útflutning frá Úkraínu, kornið getur farið um Svartahafshafnir (þegar Úkraínuherinn er búinn að fjarlægja sín tundurdufl), Mariupol, Dóná, Hvítarússland osfrv.
-Lífskjarakreppan í Evrópu er komin af of dýrri orku og viðskiptabönnum á Rússland á m.a. áburð, iðnvöru, matvöru. Hömlur á skipaflutninga stífla aðfangakerfin, höft á bankaviðskipti og þjónustu valda vandræðum.
Smiðir kreppunnar eru ESB- og NATO-lönd. Bakarinn, Rússland, fór með brauðið til Asíu.
https://www.frjalstland.is/2022/04/03/vaxandi-fataekt/
Evrópumál | Breytt 4.6.2022 kl. 10:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Alsherjar hervæðing
31.5.2022 | 18:38
Sú ógnvænlega staða blasir nú við að þjóðirnar sem komu af stað tveim heimsstyrjöldum ætla að fara saman í alsherjar hervæðingu.
Ísland hefur dregist með í "aðgerðir" og vopnaflutninga fyrir stríðsrekstur Úkraínu. Spurning vaknar hvar eru mörkin fyrir þátttöku Íslands í stríðsaðgerðum á vegum ESB og NATO?
https://www.frjalstland.is/2022/05/31/evropusambandid-hervaedist/
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 18:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Að vakna af draumi
28.5.2022 | 14:12
Raunveruleikinn birtist á endanum, líka loftslagsskrumurunum: Nútíma þjóðfélag þarf jarðefnaeldsneyti! Þjóðverjar og fleiri þjóðir í ESB eru óðum að vakna af draumnum um "kolefnishlutleysi" og ætla að reka kolaorkuverin áfram. Og Bretar ætla að opna nýjar olíu- og gaslindir. Þeir eru líka vaknaðir af "net zero" draumnum sem var orðinn martröð.
Það veður erfitt hjá miðstjórninni í Brussel að skálda upp nýjar tilskipanir um "gróðurhúsalofttegundir" og "loftslagsbreytingar" eftir að skinheilögustu loftslagstrúarlöndin hafa gengið úr skaftinu. En nú er lag að afsaka sig: Þetta er auðvitað allt Rússunum að kenna! Umhverfistrúarpostularnir, og auðrónarnir sem halda þeim uppi, eru franir að tárfella.
(Við fáum "loftslags"- tilskipanirnar hingað með EES, nú er bara að vona að ruglið hætti)
Það er enginn hörgull á kolum, olíu og gasi í heiminum, næg framleiðsla og næg jarðlög að ganga í. Rússland framleiðir aðeins ríflega 10% af olíu og um 17% af gasi heimsins. En það er hagkvæmast að kaupa frá nágrönnunum, fyrir ESB-lönd frá Rússum en þau eru orðin svo valdasjúk að þau settu viðskiptabönn á Rússland sem bitna verst á almenningi í ESB! (þeir sem ekki kunna að fara með vopn skjóta sig í fótinn).
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 14:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Dýrt umboðsstríð
24.5.2022 | 20:16
Það er dýrt að reka umboðsstríð við Rússland. ESB- og NATO-lönd eru þegar búin að eyða mörgum milljarðatugum dala í valdarán, leppstjórn, hergögn, áróður og spillingu í Úkraínu sem rekur stríðið í þeirra umboði. Bandaríkin ætla að bæta 40 milljörðum við, ESB-lönd ætla að senda tugi milljarða og vopn. Þetta eru meiri peningar en Rússar eyða árlega í hervarnir.
Refsiaðgerðir ESB og NATO gegn Rússum eru að setja fyrirtæki í Evrópu í þrot og borgara í fátækt. Áróður NATO- og ESB-landa er orðinn svo uppblásinn og lygarnar svo augljósar að sá hluti almennings sem leitar eftir réttum fréttum er hættur að hlusta á meginfjölmiðlana. Bretar hafa sett upp sérstaka áróðursstöð (lygamiðstöð) gegn Rússum.
Joe og Boris fara hnatthorna í milli og reyna að kaupa sér stuðning við umboðshernaðinn í Úkraínu. En þungaviktarar, Kína, Indland ofl. brosa að stríðsmöngurunum sem eru orðnir ómarktækir orðhákar. Joe, Boris og Stoltenberg halda stríðsæsingaræður eins og Göbbels, ungir menn eru tældir til að berjast fyrir frelsið en láta lífið fyrir valdagræðgi ESB og NATO nema Rússarnir leyfi þeim að gefast upp.
Rússarnir koma nú vörnum við fyrir landa sína í Austur-Úkraínu en lepparnir í Kænugarði voru búnir að valda dauða 14000 manns þegar Rússarnir komu til hjálpar fyrir 3 mánuðum.
bloggið skrifar Friðrik Daníelsson
Evrópumál | Breytt 25.5.2022 kl. 15:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Spillt heimsvald
20.5.2022 | 20:21
Heimsvaldasinnaðir leiðtogar og klíkur vilja að ein af umdeildum stofnunum Sameinuðu þjóðanna verði yfirþjóðlegt valdabákn sem fær að leika lausum hala. Þá getur hún, WHO, alþjóða heilbrigðisstofnunin, haldið áfram í spillingunni, leynt og hylmt yfir smituppsprettur (fyrr þá sem borga) og dreift falsspám.
Sú öfugþróun hefur orðið að sumar af stofnunum Sameinuðu þjóðanna eru orðnar gíslar sérstakra hagsmunaaðila og bábiljusöfnuða en halda samt sínum áhrifum á alþjóðavísu. Fyrir Ísland með algera sérstöðu fyrir góðan árangur íslensks heilbrigðisstarfsfólks yrði auðvitað feigðarflan að láta stofnun sem Íslendingar hafa ekkert yfir að segja hafa yfirstjórn með heilbrigðismálum hér
https://kristinthormar.blog.is/blog/kristinthormar/
https://jonasg-eg.blog.is/blog/jonasg-eg/#entry-2279116
https://www.frjalstland.is/2022/01/06/spillt-og-vanhaef-althjodasamtok/
Evrópumál | Breytt 22.5.2022 kl. 12:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Tyrkir til bjargar
17.5.2022 | 12:47
Tyrkir reyna nú að bjarga Aust-Norðurlöndum frá því að lenda í NATO. Líklega rennur þeim blóðið til skyldunnar, Væringjar sem réðu sig sem málaliða urðu sumir að tyrkneskum borgurum. Og ekki má gleyma að Óðinn, sem var Rússi ættaður frá Azov, átti lendur í Tyrklandi einum 1000 árum áður, það eru því margir Tyrkir afkomendur Svía (Snorri Sturluson, Heimskringla)
Tyrkir eru í NATO og þekkja vel stríðsæsingarnar. En þeir eru ekki í ESB og ekki víst að þeir vilji blanda sér of mikið í endurvakta hernaðardraumóra gömlu stríðsþjóðanna. En það eru auðvitað þær þjóðir, ESB-leiðtogarnir, sem hafa afgerandi áhrif á að Svíar og Finnar eru að missa hlutleysið og gefast upp fyrir stríðsæsingum.
Azov-stálverið er nú aftur að verða Rússneskt, 260 Úkraínumenn gáfust upp fyrir Rússum þar í gær (16.5), þar af margir úr ný-nasistasveitum Azov-herdeildarinnar.
Sammanfattning på svenska:
Turkarna försöker nu rädda Öst-Norden från att hamna i NATO. Möjligtvis är det inte bara svenska importen av terrorister sem är orsak till Turkarnas motstånd. Det är kanske släktskapet med Väringarna och tidigare själva Oden (han var Ryss, från Azov vid Donmynningen och godsägare i Turkiet) som väcker Turkarnas omtanke. Turkarna känner krigshetsarna i NATO bättre än många. Men det är troligen förlusten av självständighet p.g.a EU-medlemsskapet som har gjort att Svenskar och Finnar har blivit för modlösa för att upprätthålla neutralitet och alliansfrihet och ger upp för krigshetsarna.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 15:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Finnafirra
15.5.2022 | 15:49
Hvað kom fyrir Finna, sjálfstæðu, óháðu friðelskandi skógarþjóðina? Ekki var það Koskenkorva, það er orðið of dýrt. Svo það er aðeins ein líkleg skýring: Húsbændurnir, Evrópusambandið (maríónettur NATO), lætur boð út ganga um hernaðaruppbyggingu þó markmiðið með stofnun ESB hafi verið að sameina stríðsþjóðirnar í friðsamlega samvinnu. ESB og NATO eru búin að telja sjálfum sér trú um að nú þurfi virkilega að hervæðast gegn Rússlandi sem þeim hefur tekist að egna í hernað með svikum, lygum og valdaráni
Gömlu herveldi ESB sem stjórna sambandinu reyndu að leggja Rússland undir sig oft áður án árangurs en drápu nokkra tugi milljóna manna í leiðinni.
Finnar eru orðnir gleymnir. Þegar Þjóðverjar óðu síðast yfir báðu Rússar Finnana um skika undir landvarnir. Finnar sögðu nei sem varð til þess Rússarnir tóku skikana með byssum (finnska vetrarstríðið 39/40) en létu svo Finnana í friði.
Nú ætlar finnsk ríkisstjórn að endurtaka mistökin frá 1939 og hunsa Rússana: Ganga í klúbb stríðsmangara og vopnaframleiðenda sem stefna að því að leggja Rússland undir sig. Meira að segja hefur einn stríðsmangarinn, forsætisráðherra Breta, mætt og gert "samninga" við Finna og Svía um að "verja" þá fyrir Rússum (Bretar mundu tala þýsku nú ef Rússar hefðu ekki bjargað þeim)
En það er einn leiðtogi NATO-lands sem líst ekkert á að fá Finna og Svía í NATO. Tyrklandsforseti segir að löndin séu skálkaskjól hryðjuverkamanna. En kannske vill hann bara bjarga Finnum og Svíum, hann þekkir NATO betur en aðrir og veit að það er ekkert varnarbandalag lýðræðisins.
Við hér á Klakanum getum ekkert gert nema þegja og vona að Rússar láti okkur ekki gjalda aust-norrænu gleymskunnar. Við erum langt í burtu en þvældumst í sakleysi með í NATO í byrjun.
Evrópumál | Breytt 16.5.2022 kl. 12:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Niðurlæging Alþingis
9.5.2022 | 14:01
Alþingi hefur í 28 ár samþykkt allar tilskipanir ESB og ekki hafnað neinni. Og nú eykst enn á niðurlæginguna. ESB ásamt með NATO, sem hafa tekið sér alvald um utanríkisstefnu Íslands, urðu þess valdandi að Alþingi þurfti að hlusta á áróðurspredikara frá leppstjórn þeirra í Úkraínu á föstudaginn var.
Það gleymdist að kynna predikarann. Hann hefur forsetatitil í einræðis-leppstjórn sem bannaði 11 stjórnmálaflokka 20. mars. Hann hefur ásmat með ESB og NATO brotið helstu samninga sem gerðir hafa verið við Rússland. Stuðningsflokkar hans eru m.a. fasistar og öfgamenn sem hafa stundað níðingsverk í landinu. https://www.frjalstland.is/2022/05/05/bloduga-valdaranid-i-ukrainu/
Hann er mikill auglýsingamaður en ómarktækur forseti. Hann ásamt með stríðsmöngurum NATO og ESB ata ungum Úkraínumönnum í dauðann, þeim er lofað hjálp þótt barátta þeirra sé vonlaus. Hermennirnir taka minna og minna mark á predikaranum, þeir eru farnir að sleppa almennum borgurum sem þeir hafa notað sem skildi og gefast upp. Óhugnaleg saga þeirra er farin að leka út í meginfjölmiðla í NATO- og ESB-löndum, inn á milli falsfréttanna.
Það er niðurlæging að láta ómarktækan lepp stríðsvelda, sem fótum treður mannréttindi og lýðræði, reka áróður á Alþingi, elstu lýðræðisstofnun Norðurálfu.
Í dag eru 77 ár síðan Rússland hrakti hernaðarárás á Evrópu til baka til einnar af höfuðborgum núverandi NATO- og ESB-landa.
bloggið skrifar Friðrik Daníelsson
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 16:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Blóðuga valdaránið í Úkraínu
5.5.2022 | 20:31
Bandaríkin með aðstoð ESB og aðila frá NATO-löndum frömdu blóðugt valdarán í Úkraínu 27. febrúar 2014 sem leiddi til borgarastyrjaldar og hernaðaríhlutunar Rússlands sem vill ná fram einhverjum efndum á þverbrotnum samningum við NATO og leppstjórnina í Kænugarði.
https://www.frjalstland.is/2022/05/05/bloduga-valdaranid-i-ukrainu/
Evrópumál | Breytt 6.5.2022 kl. 11:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hnignun Svíþjóðar
2.5.2022 | 15:22
Ungkratarnir sem tóku við völdum í Svíþjóð fyrir 54 árum sögðu strax að þeir ætluðu að breyta Svíþjóð í alþjóðlegt sæluríki. Landið skaraði þá framúr á mörgum sviðum.
En ungkratarnir höfðu ekki mikinn áhuga á sínu landi þegar upp var staðið en meiri á að skipta sér af öðrum þjóðum. "Jafnréttið" varð trúarsetning, hyskni, agaleysi og bruðl með skattfé í takti. Um 26 árum eftir að ungkratarnir tóku völdin var óráðsían komin út yfir allan þjófabálk og opinberi geirinn í nærri 2/3 af þjóðartekjunum (fleiri en kratar stjórnuðu á tímabilinu en þeir komust að með því að taka upp stefnumál kratanna). Það varð til þess að Svíþjóð missti forskotið á mörgum sviðum. Góðu fyrirtækin fluttu burt eða komust í hendur annarra. Svíþjóð missti sjálfstæðið 1995, Evrópusambandið gúlpaði Svíþjóð í sig. Hópinnflutningur fólks af framandi siðum til sæluríkisins hófst með ungkrötunum og hefur náð miklum hæðum í samvinnu við ESB. Svíþjóð líkist meir og meir þróunarlandi. Óeirðir á götum úti, glæpagengi ráða svæðum, lögreglan ræður illa við ástandið. Siðmenningarhnignun.
Einn af lokahnykkjunumu í hnignun hinnar sjálfstæðu og hlutlausu Svíþjóðar gæti orðið aðild að NATO. Gömlu Svíarnir sáu fyrir að NATO yrði ekki varnarfélag heldur hernaðarbandalag til þess að reka hernað á vegum stríðsveldanna. Þeir reyndust sannspáir. En gildi Svía eru orðin svo brengluð að kratarnir geta nú látið Svía halda að NATO geti varið Svíþjóð! Góða sænska amma, sem alltaf barðist fyrir kjarnorkuvopnabanni, ætlar nú að ganga í hernaðarbandalag kjarnorkuvelda!
Gamla sænska sjálfstraustið er að dvína. Fyrir 54 árum datt engum Svía með sjálfsvirðingu í hug að draga Svíþjóð inn í hernaðarbákn eða útilokunarklíku gömlu stríðsveldanna: NATO og ESB.
Svíþjóð var stóra fyrirmynd og stolt norrænna þjóða. Nú er hnignunin, og grænjaxlarnir sem stjórna Svíþjóð, að verða ógn, það sem gerist í Svíþjóð varðar okkur, norræna félaga.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 20:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)