Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Hver stjórnar skattkerfinu?
14.5.2021 | 13:03
Varmaaflfræðilegt sjálfsmorð
12.5.2021 | 13:19
Loftslagsmál ESB taka á sig allt fáráðnlegri myndir, banna á eldsneyti (ESB fær það frá Rússum og Aröbum) en nota vetni eða eitthvað enn óhöndulegra í staðinn. Faxaflóahafnir hafa nú ánetjast: "-Evrópusambandið er með mjög metnaðarfulla vetnisstefnu þar sem það vill auka hlutfall græns vetnis-".
Framleiðsla metanóls úr vetni og kolsýru frá Járnblendiverksmiðjunni var skoðuð fyrir um 4 áratugum. Eldsneyti úr rafgreiningarvetni (og vetnisafleiður s.s. ammóníak, hydrasín, metanól sem inniheldur kolefni) verður margfarlt dýrara og lélegra en venjulegt eldsneyti og þarf margfalt meiri orku en það skilar. Á máli verkfræðinnar heitir slík framleiðsla "varmaaflfræðilegt sjálfsmorð"!
Grænjaxlar halda að rafgreiningarvetni (og afleiður) geti orðið almennt eldsneyti. Kannske í alræðisríkjum en ekki hjá venjulegum Jarðarbúum.
https://www.frjalstland.is/2020/10/28/graent-vetni/
EES-pokar
10.5.2021 | 13:43
Nú bannar Brussel okkur að nota maíspoka af því að í þeim er plast: "- ef annað hvort íblöndunarefnum hefur verið bætt við náttúrulegt efni eða það hefur verið meðhöndlað með efnafræðilegum hætti þá er það plast-" !
Þetta er dæmigerð efnafræði EES-tilskipana sem þýðir að pappírspokar eru líka plast í ESB/EES, við framleiðslu þeirra er náttúrulegt efni meðhöndlað með efnum (t.d. vítissóda, súlfíti, klóri). Og taupokarnir eru úr efnameðhöndluðum trefjum. ESB þarf líklega að taka af okkur pappírspokana og tauið líka nema Brussel- skriffinnarnir fái námskeið í efnafræði.
Við getum reddað okkur, við förum bara með skúringafötuna í búðina ef hún er úr járni.
Mbl 10.5.2021
Stjórnmál og samfélag | Breytt 11.5.2021 kl. 16:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sjálfstæðismálið á dagskrá
8.5.2021 | 12:50
Eftir aldarfjórðungs eyðimerkurgöngu undir ESB/EES er nú loks kominn möguleiki að sjálfstæðismálið komist á dagskrá stjórnmálanna. Arnar Þór Jónsson, sem hefur tjáð sig gegn valdi ESB á Íslandi, gefur kost á sér til framboðs til Alþingis. Hann hefur ákveðna stefnu í sjálfstæðismálinu sem gæti þannig komist á dagskrá þingkosninganna í haust.
Mbl.8.5.2021
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Norðmenn gegn ESB yfirráðum
5.5.2021 | 12:49
Það fjölgar í sjálfstæðisbaráttunni í Noregi, nú hefur Framfaraflokkurinn gengið í lið með Rauðum og Miðflokknum um að taka Noreg undan ACER, orkustofnun ESB/EES.
https://www.nationen.no/politikk/frp-slar-seg-sammen-med-rodt-sv-og-sp-i-omkampen-mot-acer/
Samtökin Nei til EU eru að hefja dómsmál til að hnekkja samþykkt Stórþingsins á 3. orkupakka ESB/EES. Eins og kunnugt er samþykkti Alþingi hann eins og önnur valdboð frá ESB/EES.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 6.5.2021 kl. 00:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Skapandi orka
3.5.2021 | 18:51
Lífið verður ekki endalaust fiskur og ferðamenn. Talsmenn iðnaðar skrifa góða grein í Mogga í dag og tala fyrir -"fimm málefnum sem helst hafa áhfrif á framleiðni og samkeppnishæfni; menntun, innviðir, nýsköpun, starfsumhverfi og orku- og umhverfismál" - "tækifærin verði sótt í orkusæknum iðnaði og hugverkaiðnaði-" (Árni Sigurjónsson og Sigurður Hannesson). Viturlega mælt en vantar lykilatriði:
Nýsköpun, bætt starfsumhverfi, hagkvæm orka krefjast frelsis, fyrst og fremst frelsis frá þungum kvöðum og reglugerðum frá ESB. Það verða litlar fjárfestingar í orkusæknum iðnaði meðan losunarheimildir þaf að kaupa í ESB og brask með upprunablekkingar orku verður leyft. Landbúnaður og iðnaður tengdur honum hrörnar meðan niðurgreidd vara frá ESB flæðir inn í landið. Öflug uppbygging krefst sjálfstæðra ákvarðana: EES-samningnum þarf að segja upp!
Talsmaður skapandi greina skrifar góða grein og bendir á að "menning og listir hafi gildi sem aldrei verði metið til fjár"-. Hún vill öflugt þekkingarsetur um skapandi greinar (Anna Hildur Hildibrandsdóttir). Viturlega mælt en vantar lykilatriði:
Það þarf að setja meira fé í að ala krakkana okkar upp í listum og menningu og kenna þeim betur íslensku. Og setja stofnanakerfið í gang við að efla íslenskuna. Bækur, tónlist og fleiri listverk héðan eru orðin eftirsótt og afla mikils fjár. Þegar Ísland var sjálfstætt voru ritaðar bækur sem urðu mikil útflutningsvara, menning hefur verið verðmæti á Íslandi í aldaraðir. Sjálfstæðar þjóðir skapa menningu. Udirsátar hlýða tilskipunum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvaða mengun?
30.4.2021 | 17:12
Heimsumspannandi Umhverfistrúarkirkjan er orðin stór eins og Katólska kirkjan, fagnaðarerindi hennar er að hafna þróun mannsins og banna nútímann: Eldsneyti, plast, kjarnorku. Umhverfistrúarkirkjan boðar að Vesturlandamenn séu orsök alls ills og mengi Jörðina. Í marga daga hafa landsmenn fengið að trúa að mengunin í höfuðborginni sér frá mönnum, skarinn af opinberum starfsmönnum hafa ekki komið til skila hvað er á seyði. Enda ekki hægt að kenna mönnum um þessa mengun, ekki einu sinni hinum hataða einkabíl.
Loksins klukkan 14.09 í dag, eftir 5 daga remmu og hósta, kom sannleikurinn í ljós: Mengunin er ekki frá mönnum, hún er úr Fagradalsfjalli sem líklega er búið að búa til nærri 200.000 tonn af brennisteinssýru (álíka mikið og ESB) síðan það byrjaði. Það var Einar Sveinbjörnsson sem dæmdi hina vondu Vesturlandabúa saklausa og upplýsti hvað olli menguninni: Umhverfið sjálft!
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2021/04/30/osynilegt_lok_utskyrir_mistur_i_borginni/
Reykveita Reykjavíkur GmbH
28.4.2021 | 14:57
"Loftslagsváin ágerðist á síðasta ári - Sameinuðuþjóðaritarinn sagði að mannkynið stæði á brún hyldýpis-" (Bjarni Bjarnason og Edda Sif Pind Aradóttir Mbl 26.4.2021). Hið rétta er að það kólnaði á síðasta ári, sameinuðuþjóðaskriffinnar hafa gefið út falsspár um loftslag á hverju ári í þrjá áratugi.
Orkuveita Reykjavíkur rekur áróður fyrir dælustöð fyrir innfluttan reyk til að dæla niður í karsprungið Reykjanesið enda komin lög frá ESB. Dæla á niður 3 milljónum tonna á ári sem er aðeins meira en Fagradalsfjall spýr út og um 0,0003% af því sem náttúran sjálf spýr út (án manna og eldfjalla). Það eru svo fáir sem búa á Reykjanesinu að það gerir lítið til þó fýlan af Ruhr gjósi úr hrauninu, Reyknesingar eru orðnir vanir fýlu upp úr jörðinni.
Óraunsæjar tilskipanir um loftslagsmál
Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.5.2021 kl. 17:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ríkisstjórnin og ESB
26.4.2021 | 09:31
Á afrekslista núverandi ríkisstjórnar hefur eftirfarandi löggjöf ESB verið innleidd á Íslandi á þeirri forsendu að viðskiptasamningur (EES) krefjist þess af samkeppnisástæðum:
Tilskipanir ESB um fjármálastofnanir þar sem eftirlit er í höndum erlendra ESB stofnanna og ágreiningur er í höndum erlends ESB dómstóls.
Tilskipanir um fyrirkomulag raforkumarkaða ESB(3ji Orkupakkinn), þar er Orkustofnun bein framlenging Orkustofnunar ESB(ACER) um framkvæmd allra tilskipanna og ágreiningur í höndum erlends ESB dómstóls. (Vindmyllum og sæstreng er ekki hægt að hafna þó við höfum ekkert við það að gera)
Þrátt fyrir mikla andstöðu og alvarlegar athugasemdir um að verið væri að brjóta stjórnarskránna og færa ákvörðunarvald stjórnvalda úr landi þorði ríkisstjórnin ekki að hætta við, eftir heimsóknir evrópskra ráðherra og þrýsting Noregs og ESB.
Alvarleiki þessa máls er sá að allar tilskipanir sem koma héðan í frá frá ESB verða teknar upp óbreyttar, hvað sem stjórnarskránni líður, því Alþingi er skipað til af ríkisstjórnum hvers tíma og hlýðir. Hjálendan Ísland er aftur komin undir stjórn evrópskra hagsmunaaðila sem búnir eru að fá aðgang að orkuauðlindum landsins og næsta auðlind bíður þeirra við hornið.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Dagur Jarðar
22.4.2021 | 18:59
Leiðtogar stórþjóða koma nú hver af öðrum í stórfjölmiðlana og gefa fyrirfram svikin loforð í einhverjum tískumálum. En Dagur Jarðar var upprunalega baráttudagur til að stemma stigu við stærstu vá sem að Jörðinni steðjar: Offjölgun mannkyns.
En það er ekki í tísku núna. Það er heldur ekki til nein alvöru baráttuáætlun um hvernig á að stemma stigu við ógninni af sýklum þó þeir leggi nú undir sig heiminn á ógnar hraða. Ekki heldur hvernig á að stöðva vaxandi mengun sjávar. Eða hvernig á að bregðast við vaxandi stríðshættu og stækkandi vopnabúrum. Og búið er að gleyma hvernig á að bregðast við nýrri ísöld sem spáð var af "færustu vísindamönnum" um svipað leyti (1970) og Dagur jarðar var stofnaður. Og hvernig var með alþjóðlegu glæpastarfsemina? Eða geimgeislastormana? Og loftsteinana?
Dagur jarðar er notaður til að bera út áróður en aðal umhverfisváin er ekki í tísku.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)