Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Hlákustjórn
29.11.2021 | 14:30
Í hlákunni í gær varð gamla ríkisstjórnin sem ný eftir fegrunaraðgerð og verður nú hátísku ríkisstjórn sem berst gegn hláku framtíðarinnar, loftslagsbreytingum.
Stjórnarsáttmálinn er að stofni til erlendar tilskipanir um hátískudraumana. Fremst í sáttmálanum eru áherslurnar, -"baráttan við loftslagsbreytingar með samdrætti í losun, orkuskiptum og grænni fjárfestingu-". Á mannamamáli: Nothæft eldsneyti verður bannað; nota rafhlöður þar sem þær henta illa; fjárfestingar í tapverkefnum sem kostaðar eru með "losunarkredit" og almannafé.
Ekkert vitlegt um að halda eignum þjóðarinnar í landinu eða nýtingu auðlinda. Ekkert vitlegt um að aflétta EES-tilskipanadræsunni.
Engin stefna er tekin um stærsta hagsmunamál landsins, endurheimt löggjafarvalds Alþingis og framkvæmdavalds Stjórnarráðsins sem Evrópusambandið hefur tekið í krafti EES-samningsins. Staðan verður því áfram sú að ríkisstjórn Íslands og Alþingi hafa takmarkað vald til að stjórna landinu.
https://www.mbl.is/media/41/11641.pdf
Stjórnmál og samfélag | Breytt 30.11.2021 kl. 00:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvert á að selja loðnuna?
27.11.2021 | 14:09
Íslensk stjórnvöld álpuðust til að taka þátt í refsiaðgerðum gegn Rússum þegar Úkraína neitaði að sækja um aðild að ESB sem Rússum var kennt um. Rússar svöruðu í sömu mynt og settu bann á ESB og leppana sem þýddi að Ísland missti risamarkað fyrir útflutningsvörur eins og loðnuafurðir. Þannig launa Íslendingar þeim sem staðið hafa með landinu frá upphafi gegnum þykkt og þunnt í vðskipta- og auðlindastríðum við gömlu stríðsþjóðir ESB. https://www.frjalstland.is/2018/06/30/esb-akvedur-utanrikisstefnu-islands/
Síldarvinnslan, eitt mikilvægasta fyrirtæki landsins, ætlar að veiða mikið af loðnu enda mestu veiðihemildir um langt skeið. En þeir selja ekkert á sinn fyrrum stóra markað, Rússland, meðan við erum með í viðskiptastríði ESB/EES gegn Rússlandi.
-"hætt er við að viðskiptabann Rússa munni bíta fast á komandi vertíð en þar hefur verið einn stærsti makaður Íslendinga fyrir frosna loðnu og miklivægur hrognamarkaður-"(forstjóri Síldarvinnslunnar)
https://www.mbl.is/200milur/frettir/2021/11/27/vidskiptabann_a_russa_bitur_fast_segir_sildarvinnsl/
En Færeyingar létu ekki tæla sig í refsiaðgerðir gegn Rússum og geta nú selt loðnu, lax og reyndar hvað sem er á einn sinn stærsta markað.
Það væri líklega best að nýta loðnuna vel og leyfa Færeyingum að veiða hana, þeir standa sig alltaf og launa okkur örugglega.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Orkan okkar í matinn
20.11.2021 | 17:53
Við þurfum ekki að leiða rafmagnið okkar til Evrópu í sæstreng. Við þurfum ekki að láta "græna" fjárfesta setja vindmyllugirðingar fyrir útsýnið. Við þurfum ekki að eyða rafmagninu okkar í að framleiða hættulegt eldsneyti fyrir Evrópulönd.
Við getum sett orkuna okkar í grænmetið og selt það út: Rafmagnið til að lýsa og jarðgufuna til að hita og gefa koltvísýring til vaxtaraukningar. Gúrkutíðin er hafin hjá gróðurhúsafólkinu.
https://www.bbl.is/frettir/gurkutid-i-odru-veldi
Og góðærið og aukinn gróðurvöxtur (m.a. vegna hækkunar koltvísýringsstyrks loftsins) gefur nú meiri og betri afurðir í sauðfjárræktinni en áður og annars staðar (Framúrskarandi íslenskir sauðfjárbændur, Hafliði Halldórsson Bbl 18.11.2021)
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Loftslagsráðstefnunni
14.11.2021 | 16:40
í Glasgow lauk án árangurs eins og þeim fyrri enda um ekki neitt.
-"það væri mikill akkur fyrir vaxandi mannkyn ef koltvísýringurinn í loftinu héldi áfram að aukast og þar með uppskera nytjajurta sem mannkyn lifir á. Það verða svo jurtirnar sem koma til með að stöðva aukninguna, án Sameinuðu þjóðanna og Evrópusambandsins. Vonandi ekki á næstu öldum-" https://www.frjalstland.is/2021/11/14/loftslagsradstefnur/
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hræðslan við Brussel
12.11.2021 | 13:58
Nú ganga bílasölumenn á lagið og nýta sér hræðslu okkar ráðamanna við yfirvaldið í Brussel og reyna að fá klámfengnar upphæðir frá skattgreiðendum í afslætti af opinberum gjöldum af rafdollum fyrir leiguakstur. Tilskipanirnar frá mannvitsbrekkunum í Brussel segja nefnilega að eigi að útrýma eldsneyti (Mbl. 11.11.2021)
Ekki fara með alla fjölskylduna á rafdollu út á Keflavíkurflugvöll og alls ekki norður ef veðrið er kalt og vont, það gætu allir króknað á leiðinni.
Eftirlitsskrifstofa EES (ESA) lætur okkur ekki í friði og fyrirskipar nú að leyfa eigi alls kyns leigubílafyrirtæki. Samgönguráðherrann bukkar sig og beygir, hann er hræddur við að "þurfa að fara að verjast fyrir dómstólum" í Brussel (sem á reyndar að vera ein af hanns embættisskyldum) (Fréttabl. 12.11.2021).
Hræðsla ráðherrans er óþörf, "dómar" EFTA-dómstólsins (EFTA óviðkomandi) eru ekki sérlega marktækir eða aðfararhæfir hér, aðeins "ráðgefandi".
Sirkus um neyðarástand
10.11.2021 | 13:57
Umhverfistrúarsöfnuðir hafa fyllst eldmóði útaf loftslagssirkusnum í Glasgow, samkoma sem ætlar að binda endi á velsæld og eldsneytisnotkun. Þau lönd sem brenna mestu, Kína, Indland og fleiri, eru ekki áhugasöm um "kolefnishlutleysi" nema kannske eftir hálfa öld eða svo. Koltvísýringurinn mun því halda áfram að aukast.
Formaður Landverndar vill að Ísland lýsi strax yfir neyðarástandi í loftslagsmálum. Eins og sæmilega upplýstu fólki er kunnugt ríkir ekkert, og mun ekki ríkja, neyðarástand í loftslagi vegna koltvísýrings um fyrirsjáanlega framtíð. Svaml formanns Landverndar (grein í Mbl. 10.11.2021) sýnir hversu veruleikafirrt umhverfissamtökin hér eru orðin https://www.frjalstland.is/2021/02/26/loftslagsbreytingar/
Forstjóri Landsvirkjunar vill nota íslenskar orkulindir til að framleiða "rafeldsneyti" (grein í Mbl. 10.11.2021). Þar er átt við tilbúin efni úr rafgreiningarvetni og kolefnissamböndum sem kosta í framleiðslu margfalt á við jarðefnaeldsneyti og er ein versta sóun á raforku sem hægt er að hugsa sér. "Raf-metanól" skilar ekki helming af orkunni sem fór í framleiðslu þess. "Raf-metan" verður margfalt dýrara en jarðgas (metan að mestu) sem til er í ómældu magni um alla Jörð. Og eldsneyti framunnin úr slíkum efnum verða enn kostnaðarsamari. Losunarkvótabraskkerfin geta ekki til lengdar haldið slíkri framleiðslu gangandi, það verða alltaf á endanum notendur sem þurfa að borga.
Það er enginn hörgull á eldsneyti á Jörðinni og og verður ekki um fyrirsjáanlega framtíð. Það er sóun þjóðarauðs að nota íslenska raforku til að framleiða eldsneyti sem fæst betra og hagkvæmlegar á heimsmarkaði þó svindlarar og ruslvísindamenn, með fulltingi Sameinuðu þjóðanna, segi að það megi ekki út af loftslagi https://www.frjalstland.is/2021/08/27/hvernig-a-ad-nyta-islenska-raforku/
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bændur í tjóðri
7.11.2021 | 13:13
Skriffinnarnir okkar eru orðnir vanir að fá reglugerðirnar tilbúnar frá Brussel, allt fer í handaskol ef þeir eiga sjálfir að koma einhverju viti í þær. Umhverfisráðuneytið ætlar nú að setja nýja reglugerð á bændur og hermir eftir EES-tilskipun 2018/813 og leiðbeiningum frá aðal fölsunarmiðstöðinni fyrrir loftslag, IPCC, til að fá fram ónýta þvælu. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/PDF/?uri=CELEX:32018D0813&from=EN
-"verstu reglugerðardrög sem sést hafa-" (Bbl 4.11.2021)
-"Búnaðarsamband Suðurlands leggur eindregið til að reglugerðin verði ekki samþykkt-"
-"Sveitastjórn leggst eindregið gegn því að reglugerðin verði samþykkt-" (Eyjafjarðarsveit)
https://samradsgatt.island.is/oll-mal/$Cases/Details/?id=3053
Falsfréttahrota
1.11.2021 | 15:20
Í tilefni af loftslagssirkus Sameinuðu þjóðanna (SÞ) í Bretlandi er nú lygavertíð hjá helstu falsfréttamiðlunum þar. Í gær sýndu tvær stærstu sjónvarpsstöðvarnar fátæklinga á strönd Bengalflóa vera að byggja sjóvarnargarða úr drullu með berum höndum, sagt var að ástæðan væri hækkun sjávarborðs vegna loftslagshlýnunar! Það rétta er að Bengalströnd sígur stöðugt vegna oftöku grunnvatns.
Sjónvarpsstöðvarnar töluðu við fjölda fólks sem vissi ekkert um loftslag enda valið þess vegna. Alþjóða veðurfræðistofnun SÞ sagði að síðustu sjö árin væru þau hlýjustu-! Hið rétta er að hlýjustu árin voru fyrir 8000 árum, þau hlýjustu á þessari öld fyrir 18 árum!
Það er ógnvekjandi að samtök okkar allra , SÞ, ástundi lygar og falsanir óaflátlega. Það lítur út fyrir að þeir sem eiga að stjórna samtökunum hafi sem markmið að rífa þróuð samfélög Vesturlanda til grunna. Frægustu fölsunarstofnanir SÞ eru í loftslagslygunum (IPCC, UNEP, WMO o.fl.) Við höfum líka fengið falsanir frá Alþjóða hvalveiðiráði SÞ og nýlega frá Alþjóða heilbrigðisstofnun SÞ. Nú koma SÞ í gang flutningi 60 hælisleitenda með framandi trú 6600 km leið hingað, það gætu reyndar orðið góð býtti ef við gætum í staðinn fengið hæli í Bretlandi fyrir 50 óþurftarlinga sem þegar eru komnir til Glasgow á loftslagssirkusinn. Okkur gengur best þegar hlekkjað Alþingi, máttlaus langar-að-halda-áfrm-ríkisstjórn og umhverfistrúarprelátar gera ekki neitt.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gaggalagó
28.10.2021 | 14:02
Sósíalistarnir og þróunarlandabúarnir á hanaprikunum hjá Sameinuðu þjóðunum eru farnir að gala af æsingi og hóta aðildarlöndum með hörmungum, sömu og síðustu 33 árin:
-" við erum enn á leiðinni í hamfarahlýnun upp á 2,7 gráður Celsíus. Vísindamennirnir eru skýrir á staðreyndunum. Leiðtogar þurfa að vera jafn skýrir í áætlunum um að forðast hamfarahlýnun"-
https://twitter.com/antonioguterres/status/1453027775024095234
-António Guterres (@antonioguterres)
Vandaðir sjálfstæðir vísindamenn vísa fölsunum frá Sameinuðu þjóðunum á bug. "Hamfarahlýnunin" er þegar orðin -1°C (kólnun) á þessari öld, hér og víðar. Loftslagsbreytingar
Litla Ísland, sem á heimsmet í koltvísýringslausri orkuframleiðslu, sendir 50 manns á loftslagssirkusinn í Grænugróf. Ætli þeir geti kolefnisjafnað skemmtiferðina? Hver ætli borgi? Kannske þeir sömu og borga fyrir barnalegar loftslagsaðgerðir ESB/EES?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Reglugerðaáþjánin
26.10.2021 | 20:19
Leiðari Morgunblaðsins 26.10 segir að ríkisstjórnin þurfi að standa við stóru orðin um að grisja regluverkið. Það er fróm ósk en til of mikils mælst. Nýkjörið Alþingi og langar-að-sitja-áfram-ríkisstjórnin þarf að losa landið undan EES samningnum ef Ísland á aftur að fá að setja eigin lög og reglugerðir að vild. En langar-að-sitja-áfram-ríkisstjórnin ætlar að leggja áherslu á "loftslagsmál" ESB og SÞ.
Í leiðaranum eru dæmi frá eftirlitsbákninu:
-"Samkeppniseftirlitið sá á dögunum ástæðu til að hnýta í forsvarsmenn hagsmunasamtaka í atvinnulífi fyrir að hafa lagt orð í belg á vettvangi fjölmiðla um rof á aðfangakeðjum, yfirvofandi vöruskort, verðhækkanir - Samkeppniseftirlitið minnti á að samkeppnislög settu hagsmunasamtökum skorður í hagsmunagæslu og því yrðu forsvarsmenn þeirra að forðast umræðu um verð og verðlagningu. Af lagabókstafnum að dæma stendur Samkeppniseftirlitið raunar ekki mjög taustum fótum um þetta og langsótt að ætla forvígismönnum hagsmunasamtakanna að hafa með þessu reynt að ota tota félagsmanna sinna. En það er líka fjarstæðukennt hjá Samkeppniseftirlitinu að láta sem samkeppnislög upphefji á einhvern hátt tjáningarfrelsi nokkurs manns, sem tryggt er með stjórnarskrá"-.
(Taka ber fram að samkeppnislögin eru ESB-lög og stjórnarskrárbrot).
https://www.frjalstland.is/2019/08/25/samkeppnislogin-standa-i-vegi-fyrir-throun/
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)