Maduro & Mette
11.1.2025 | 14:02
Bandaríkin bjóða nú 3,5 milljarða fyrir Maduro. Hann er forseti olíuríkasta lands heims, Venezúela, og vill verja olíulindirnir fyrir Bandaríkjunum.
Hann hefur lengi verið hundeltur af atvinnumorðingjum Bandaríkjanna.
Bandaríkin ætla líka að leggja undir sig Grænland. Það er reyndar óþarfa fyrirhöfn, það hefur lengi verið bandarísk herstöð á Grænlandi og Bandaríkin geta gert það sem þeim sýnist á Grænlandi (eins og á Íslandi). Þeirra fyrirtæki eru velkomin þar (eins og á Íslandi).
En það er von að Danir, núverandi herraþjóð Grænlendinga, séu sárir, þeir hafa verið undirgefnasta strengjabrúða Bandaríkjanna í áratugi og tekið virkan þátt í manndrápaferðum Bandaríkjanna og NATO um heiminn. Varla hafa Bandaríkin mundað byssu án þess að danski herinn hafi flýtt sér með í drápin, í Írak, Afganistan og nú síðast senda þeir öll sín vopn til að leggja Úkraínu, og helst Rússland, undir Bandaríkin.
Forsætisráðherra/frú Dana, Mette Frederiksen, verður að hætta að malda í móinn gegn innlimun Grænlands í Bandaríkin. Annas gætu Bandaríkin farið að bjóða nokkra milljarða, amk. 2, fyrir hana.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 14:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Útlend stofnun ræðst inn
8.1.2025 | 17:53
Eftirlitsstofnunin með að við hlýðum Evrópusambandinu (EES-samningnum), ESA, réðst inn í íslenskt fyrirtæki!
Þetta hefur ekki gerst áður. Sjálfstæðar þjóðir heimila ekki erlendum efirlitsstofnunum að taka hús á sínum bogurum.
Það var EES-samningurinn sem afsalaði framkvæmdavaldi til Brussel. Nú eru afleiðingarnar að koma í ljós: Útlendir valdsmenn ráðast inn í íslensk fyrirtæki og væna þau um lögbrot (á Evrópusambandslögum)! Alþingi álpaðist til að gera samkeppnislög ESB að íslenkum lögum 1993. ESA fékk heimild til að sekta Íslendinga, það var fáheyrður ræfildómur hjá Alþingi að leyfa erlendum aðila að ganga að borgurum landsins með févíti. https://www.althing.is/lagas/nuna/2005044.html
Þetta sannar og sýnir að EES-samningurinn brýtur stjórnarskrá lýðveldisins: Ólöglegur, ekki marktækur. Eftirlitsmenn frá Brussel hafa ekki neitt erindi hér og eiga að hypja sig.
Evrópumál | Breytt 9.1.2025 kl. 17:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bábiljustjórnmál
6.1.2025 | 19:53
Við höfum greinilega fengið enn einn bábiljuráðherrann/frúna í utanríkismálin. Ferilinn byrjaði hún með að hringja í útrunna stjórn Úkraínu til þess að lofa stuðningi við árásarstríð NATO og ESB gegn Rússum sem Úkraínustjórn hefur látið sína hermenn heyja í ellefu ár. Hún sagði Rússa stærstu ógnina við Evrópu https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2024/12/31/Thorgerdur-Katrin-raeddi-vid-utanrikisradherra-Ukrainu/
(Eins og kunnugir vita eru Rússar langstærsta þjóð Evrópu og meir en 40% af Evrópu er Rússland. Rússar hafa aldrei ógnað Vestur-Evrópu en þurft að stugga burt manndrápaskríl þaðan, Kalla 12, Napoleon og Hitler til baka heim til sín. Stærsta ógnin við Evrópu eru spilltir og fákunnugir forustumenn Evrópusambandsins og NATO)
Svo hringdi hún í utanríkisráðhera Noregs og lofaði samvinnu um EES, fullveldisafsalssamninginn sem er að gera Ísland að fátækralandi eins og Evrópusambandið. Hún lýsti sinni þrá eftir Evrópusambandsaðild sem Norðmenn hafa hafnað rækilega í tvígang https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/01/06/thorgerdur_greindi_eide_fra_aaetlunum_rikisstjornar/
Það þarf greinilega að veita utanríkisráherrrum/frúm lágmarks skólun í utanríkismálum.
https://www.frjalstland.is/2024/01/27/vaxandi-hernadur-gegn-russlandi/
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tapað stríð
4.1.2025 | 23:43
"Úkraína er búin að tapa stríðinu við Rússa - landið er gjörspillt og gegnumrotið - í samfélagi þjóða eins og rakki með hundaæði sem þarf að skjóta - NATO er að hrynja skjálfandi á beinunum í sínu eigin hlandi og ræður ekki við Rússland - Ameríka þarf að hypja sig frá Úrkaínu svo stríðið hætti-"! https://www.youtube.com/watch?v=EzJ8pcnULDU
Þetta er meðal skoðana Scott Ritter, bandaríska vopnaeftirlitsmannsins sem þekkir stríðsrekstur glögglega (hann veit of mikið og sætir því farbanni á sínu heimili í Bandaríkjunum).
Ísland hefur dregist með í árásarstríð NATO/ESB gegn Rússlandi vegna áróðurs frá Bandaríkjunum, Bretlandi og Brussel. Undirbúningurinn að stríðinu, og vopnasendingarnar frá Bandaríkjunum, hófust löngu fyrir 2014 þegar stríðið sjálft byrjaði.
Árásarstríð NATO/ESB á Rússa hefur þegar haft geigvænlegar afleiðingar. Stór hluti Úkraínu og suð-vesturhluti Rússlands er rústir, brotajárn og sprengjur. Nærri helmingur Úkraínubúa er flúínn, á aðra milljón ungra Úkraínumanna hafa fallið auk þúsunda erlendra málaliða og tuga þúsunda Rússa. Höft NATO/ESB á Rússland og þjófnaður á rússneskum peningum hafa haft alvarlegar afleiðingar á efnahag og velmegun Evrópu. Donald Trump hefur áttað sig á að árásarstríð gegn Rússlandi, sem Obama/Biden stjórnin hóf, er ekki hægt að vinna og vill Bnadaríkin út en hefur heriðnaðarfinngálknið og stórfyrirtækjaveldið, sem þénar á vopnakaupum alríkisins, að kljást við.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 5.1.2025 kl. 01:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Kaldasta árið
2.1.2025 | 17:51
frá 1998 var síðasta ár, 2024. En "vísindastofnanir" í útlöndum segja margar að það hafi verið hlýjasta árið!
Er Ísland kannski ekki á Jörðinni? Eða er bara verið að ljúga að okkur. https://www.frjalstland.is/2025/01/02/kolnandi-loftslag/
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gleðilegt ár!
1.1.2025 | 19:47
Ég óska landsmönnum öllum nær og fjær árs og friðar.
Ég vona að þið njótið hagsældar og minni loftslagskólnunar og missið ekki orkulindirnar, gjaldmiðilinn og það sem eftir er af sjálfstæðinu á kjörtímabilinu. Ég óska þess að Ísland verði aftur herlaust land, hætti hernaðarþátttöku og endurheimti sitt friðarmannorð.
Friðrik Daníelsson
Frjálst land
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Lýðræðið í uppnámi
30.12.2024 | 18:35
Nærri þriðjungur landsmanna fékk ekki fulltrúa á Alþingi í kosningunum, stjórn landsins hefur ekki meirihluta landsmanna a bak við sig, aðeins 40%.
Ef ekki tekst að bæta framkvæmd lýðræðisins getur landið setið uppi með algert valdaleysi í eigin málum, gjaldmiðil annarra manna og auðlindirnar komnar í eigu útlendinga.
https://www.frjalstland.is/2024/12/30/islenska-lydraedid-i-uppnami/
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Stefnuyfirlýsing
28.12.2024 | 17:24
nýju ríkisstjórnarinnar byrjar vel og lofar góðu um margt þó greinilega sé margt sagt af bjartsýni enda nýliðar að byrja sem þurfa frið til að átta sig. Verðmætasköpun, menningu og heilbrigði á að auka, vonandi gengur það vel.
Það á að hagræða og einfalda stjórnsýslu, breyta húsnæðismarkaðnum, herða eftirlit með starfsmannaleigum, auka orkuöflun. Og auðlindir landsins verði þjóðareign. Allt ágætt en nýja ríkisstjórnin á eftir að reka sig á að hún getur ekki stjórnað öllu, það þarf að afnema (eða hunsa) margs konar reglu-og lagaákvæði frá EES til þess. Til dæmis eiga aðilar í EES rétt til að eiga jarðlendur með orkulindum og að nýta orkuna, þar er forgangur þjóðarfyrirtækja Íslendinga andstæður EES. Húnæðismarkaðurinn kemst ekkí í lag meðan bankarnir eru reknir með regluverki EES og "fjárfestar" fá að braska með íbúðir.
Svo koma tískumálin í yfirlýsingunni: Styrkja við orkuskipti, vindorkunýtingu, kolefnishlutleysi. Alt saman draumórar sem stjórnað er frá Brussel og mundu kosta þjóðarauðinn verði reynt að koma þeim í framkvæmd.
Í lok stefnuyfirlýsingarinnar kemur svo vondur hortittur:
-" utanríkisstefnu sem byggir á - náinni samvinnu við Evrópusambandið, - norræn ríki og NATO - þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna (les aðlögunar) um aðild Íslands að Evrópusabmbandinu - erlendum sérfræðingum falið að vina skýrslu um kosti og galla krónunnar-".
Nýja ríkissjórnin verður að fá tíma til að átta sig á hvað eru hagsmunir landsmanna. Sjálfstæð og hlutlaus utanríksstefna er fyrirskrifuð af okkar lýðveldisstofnendum. Aðild að Evrópusambandinu yrði til þess að sökkva Íslandi niður í vandamál deyjandi fátæktar- og hernaðarsambands. Missir eigin gjaldmiðils yrði stjórnlaus peninga- og efnahagsstefa sem gerði Ísland að bónbjargarlandi sem þyrfti að reiða sig á annarra manna peninga. https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/12/21/stefnuyfirlysing_rikisstjornarinnar_i_heild_sinni/
Stjórnmál og samfélag | Breytt 29.12.2024 kl. 22:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Upplausn siðmenningar
18.12.2024 | 16:38
Forstjóri Geisla,- efna- og sýklavarna Rússlands var "felldur" segja vestrænir fjölmiðlar eins og hann hafi fallið á vígvelli. Það rétta er að Úkraínustjórn lét myrða hann (undir leiðsögn frá Bandaríkjunum) fyrir utan heimili hans. Hann hafði afhjúpað sýklavopnaþróun Bandaríkjanna í Úkraínu og notkun úkraínuhers á bönnuðum efna-og sýklavopnum.
Úkraínskir, breskir og bandarískir fjölmiðlar hafa hrósað morðingjanum og kallað hryðjuverkið "lögmætt"! Það þýðir að Rússar geta farið að senda leigumorðingja á forstjóra eða herforingja í NATO/ESB-löndum og myrt þá "löglega"!
Úkraínustjórn heldur úti leigumorðingjum og hryðjuverkamönnum í Rússlandi. Aðallega hafa fréttir af morðum á blaðamönnum, rithöfundum og áhrifavöldum lekið út. Vestrænar falsfréttasmiðjur (t.d. MI5, MI6, UK Foreign Office, US State Department, CIA ofl) dreifa með aðstoð til dæmis Reuters, AfP, AP ofl. fölsunum um "rússnesk skemmdarverk", s.s. skemmdir á sæstrengjum eða byrlanir. Og NATO/ESB-lepparnir lepja falsanirnar upp og halda fundi um að auka "varnirnar"!
Einu skemmdarverkin sem sannast hafa eru eyðilegging Bandarikjanna á gasleiðslu í Eystrasalti.
Stjórnvöld, fjölmiðlar og áhrifamenn stunda í auknum mæli falsanir og áróður. Ábyrgir, heiðarlegir og fróðir fréttamenn, stjórnmálamenn og álitsgjafar heyrast varla í stórfjölmiðlunum. Þegar við heyrum að maður hafi verið felldur eins og hermaður á vígvelli þegar hann var myrtur við heimili sitt eru siðleysingjar eða falsarar að tala. Og þegar ákveðnum þjóðum eru kennd skemmdarverk að ósönnuðu máli eru siðlausir menn að bera út níð eða lygar.
Hin rómaða (af okkur) vestræna siðmenning er greinilega að leysast upp í óhróðri lygalaupa.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Við erum í óþokkaflokki
14.12.2024 | 15:17
"Framlögin til velferðarmála þarf að færa til hermála! - Rússarnir eru að koma"!
Þetta segir aðalgáfnaljós NATO, Mark Rutte aðalritari. https://www.nato.int/cps/en/natohq/opinions_231348.htm Þetta er sama slitna grammófónplatan sem Churchill og Trumann byrjuðu Kalda Stríðið með fyrir 8 áratugum.
Churchill ætlaði í stríð við Rússland strax og Rauði herinn hafði sigrað nasistana og tekið Berlín (ekki segja, þetta er leyndarmál, vitrari menn gátu stöðvað áformin). Trumann lét varpa kjanrorkusprengjum á Japan þó landið hafi í raun þegar gefist upp vegna þess að Rauði Herinn var á leiðinni og Japanir vildu með engu móti fá sömu útreið og Þjóðverjar.
Mark Rutte, sem er aflóa stjórnmálamaður frá ESB/NATO-landi, þarf að breiða yfir að Rússar eru að verjast landvinningahernaði NATO sem hófst fyrir 11 árum með árás á höfðuðborg Úkraínu og blóðugu valdaráni
Rutte og gáfnaljós NATO segjast ætla að sigra Rússland hernaðarlega. Þetta geta Rússarnir ekki misskilið enda hafa þeir heyrt þetta áður frá Napoleon og Hitler.
NATO hefur aldrei gert neitt gagn, allra síst fyrir friðinn, en mikið ógagn og stundað manndráp á okkar vegum. Ísland getur ekki verið þekkt fyrir að vera í slíkum óþokkaflokki og þarf að segja sig úr.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 17:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ingadúnatogga! Fljótt, fljótt!
12.12.2024 | 14:46
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hryðjuverk í Sýrlandi
10.12.2024 | 16:32
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Að glata auðlindum
8.12.2024 | 15:28
Stjórnmál og samfélag | Breytt 15.12.2024 kl. 16:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hernaður okkar
6.12.2024 | 14:16
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Stríðssamband
3.12.2024 | 16:46
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 18:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)