Kjarnorkuver í hættu
7.10.2024 | 17:44
Njósnarar Breta og Bandaríkjanna hjálpuðu Úkraínustjórn að skipuleggja eyðileggingu kjarnrokuversins í Kúrsk segir njósnastjóri Rússlands. https://www.rt.com/russia/605375-kursk-nuclear-threat-svr/
Úkraínuher réðst inn í Kúrsk hérað 6 ágúst sl. en var stöðvaður nálægt landamærunum af rússneska hernum. Úkraínuher (það er drápssveitir á vegum NATO og ESB) halda áfram að senda sprengjuskeyti á Kursk kjarnorkuverið sem Rússlandsher hefur hingað til skotið niður. Kænugarðsstjórnin reynir stöðugt að sprengja Zaporozhie kjarnorkuverið sem stendur við stórfljótið Dnépr.
Það er orðin brýn nauðsyn fyrir nágrannalönd Úkraínu, og reyndar heimsbyggðina, að láta hryðjuverkastjórnina í Kænugarði hætta hernaði og hryðjuverkunum áður en nýtt Chernobylslys verður.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 17:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Stríðsglæpir NATO
5.10.2024 | 14:38
Franskur rithöfundur og leikstjóri, Patrick Pasin, hefur lagt fram kæru hjá saksóknara í Brussel á hendur fyrrum framkvæmdastjóra NATO, Stoltenberg, fyrir stríðsglæpi.
Hann hafi brotið bæði mannréttindalög, stofnskrá Sameinuðuþjóðanna og NATO og aukið stríðið í Úkraínu og ekki dregið úr stríðsaðgerðum þegar hann gat það.
Það eru vaxandi raddir í Evrópu og Bandaríkjunum sem fordæma stríðsrekstur NATO og ESB gegn Rússlandi. Aðildarlönd ESB/EES og NATO hafa þverbrotið nærri því hvern einasta alþjóðasamning um ríkjasamstarf, réttindi og skyldur sem hægt er að brjóta og reynt að einangra Rússland frá samskiptum við aðrar þjóðir. Árangurin er m.a efnahagshrun og stjórnmálaleg upplausn sem er þegar farin að valda hörmungum sérstaklega í Evrópusambandinu og Bretlandi.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 15:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nýr Göbbels?
3.10.2024 | 17:20
Hernaðarklúbburinn NATO hefur nú fengið nýjan framkvæmdastjóra í staðinn fyrir Stoltenberg sem minnti mikið á Göbbels í sínum stríðsæsingaræðum. Mark Rutte er ekki mikið líkur Göbbels nema kannske í sinni. https://www.mbl.is/frettir/erlent/2024/10/01/rutte_hefur_engar_ahyggjur_af_trump/
Rutte og hans meðreiðarsveinar töpuðu síðustu kosningum í Hollandi sem gerði lítið til, úreltu flokkarnir í Evrópusambandslöndum hafa getað haldið svo kölluðum "hægri öfgaflokkum" og "populistum" (það eru flokkarnir sem kjósendur vilja frekar en þá úreltu) frá völdum með ólýðræðislegum aðferðum (Frakkland, Þýskaland, Austurríki, Svíþjóð ofl.)
Ástæða þess að Rutte er gerður að NATO-framkvæmdastjóra er að hann er haldinn ólæknandi Rússahræðslu enda frá Hollandi, næsta nágrenni Bretlands þar sem Churchill hóf Kalda Stríðið gegn Rússum strax eftir að Rússar höfðu ráðið niðurlögum Nasistanna í Berlín vorið 1945. https://www.frjalstland.is/2024/03/30/ovinur-buinn-til/
https://www.frjalstland.is/2024/07/19/ognin-vid-heimsfridinn/
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Erum við heimsk þjóð?
28.9.2024 | 14:18
Eða eru það kannske bara okkar forustumenn sem eru heimskir og fákunnugir um söguna? Af hverju tekst okkur ekki að koma þeim frá? Þeir ætla að henda skattfé okkar fimmta árið í röð í hernað stríðsþjóðanna og nú á að dobla það! Hildur Þórðardóttir gerir grein fyrir þáttöku Íslands í henaði NATO/ESB gegn Rússlandi í Morgunblaðinu í dag, 28.9.2024.
Litla friðsama Ísland sturtar milljörðum í stríð sem Bandaríkin og ESB-lönd hófu (2014) og reka nú áfram af vaxandi stríðsæsingi, með vopnum, miðunartækjum í NATO, hermönnum, sérfræðingum, peningum og lygum. Árásirnar á rússneskan almenning verða sífellt hryðjuverkakenndari.
Tilgangur stríðsins kemur Íslandi ekki við og Úkraínu ekki heldur. Það er græðgi NATO- og ESB-manna sem er á bak við stríðsreksturinn sem saklausir (eða heimskir?) skattgreiðendur NATO/ESB borga. Það á að opna Úkraínu og Rússland fyrir rupli fyrirtækja í NATO/ESB.
https://www.frjalstland.is/2024/02/29/ukraina-logd-i-rust/
https://www.frjalstland.is/2024/08/15/nidurrif-russlands/
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 19:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
EES: Orkuskortur, þrælahald
26.9.2024 | 13:24
Landsvirkjun fær ekki að virkja, EES-regluverkið stendur í vegi. Og versnar stöðugt. EES-lög stöðva þróun byggðar
Íslenskir afturhaldsmenn hjálpa til, gera athugasemdir, kæra og koma á "rammaáætlun" (uppbyggingarhöftum). Íslensk stjórnvöld eru of hrædd við ESB til að losa Ísland úr EES og setja íslensk lög.
Hundraðþúsund fátækir atvinnuleysingjar frá jaðarsettum svæðum Evrópusambandsins/EES eru fluttir til Íslands stjórnlaust í samræmi við EES-reglur og margir leigðir út af "starfsmannaleigum" og látnir búa í alls kyns hreysum, tilskipun 2008/104/EB https://www.althingi.is/lagas/nuna/2005139.html
Þenslan margumtalaða er aðallega afleiðing af "ESB-frelsinu", stjórnlausri fólksfjölgun og hægt að lækna ef íslensk stjórnvöld hefðu eitthvert bein í nefinu og segðu EES upp og settu íslensk lög í stað þess að treysta stöðugt á vaxtaokur.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 14:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimm leigumorðingjar á Trump
24.9.2024 | 14:19
Fimm hópar leigumorðingja voru á eftir Trump um það leyti sem síðasta morðtilraunin var gerð í Flórida samkvæmt upplýsingum leyniþjónustumanns, þetta segir þingmaður á Bandaríkjaþingi. https://www.youtube.com/watch?v=pxNxkdRBeQg
Kemur ekki á óvart, kunnáttumenn hafa spáð að þegar dómsmálaráðuneyti Biden/Harris hefur mistekist að koma Trump í tugthús verði reynt að myrða hann. Og erlendar leigumorðingasveitir eru með. Síðast reyndi andlegur félagi nýnasistanna í Úkraínustjórn.
Hagsmunir auðveldisbáknsins, sérstaklega hernaðarfinngálknsins, eru miklir. Þeir eru hræddir um að Trump stöðvi stríðsrekstur og vopnakaup en hann hefur m.a. lofað að stöðva skuldasöfnunina sem stafar af kverkataki heriðnaðarsamstæðunnar á ríkissjóði Bandaríkjanna. Trump gæti tekist að leysa NATO upp, afhjúpa loftslagssvindlið og koma efnahagsuppbyggingu fátækari svæða í gang. Hann ætlar að stöðva innflæði þróunarlandamanna og glæpagengja.
Han ætlar að efla atvinnuna og setja verndartolla á láglaunalönd, Kína og Mexíkó. Það er svosem ekkert nýtt, Bandaríkin urðu iðnaðarstórveldi með verndartollum fyrir meir en öld og vita að aðferðin er gulltrygg þó nýfrjálshyggjuáróðurinn segi annað.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 25.9.2024 kl. 18:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Stríðsyfirlýsing ESB
20.9.2024 | 13:55
Svo kallað þing Evrópusambandsins (málfundasamkoma félagsskaparins í Strassborg) hefur nú samþykkt að nýnasistastjórnin í Úkraínu megi nota langdræg vopn frá ESB til þess að ráðast langt inn í Rússland.
Þessi samþykkt jafngildir stríðsyfirlýsingu á hendur Rússlandi og getur leitt til þess að Rússar beiti kjarnorkuvopnum sér til varnar. Kænugarðsstjórnin hefur verið látin reka óyfirlýst stríð á vegum "bandamanna okkar", NATO og ESB, gegn rússneskum íbúum Úkraínu síðustu 10 árin sem hefur nýlega verið víkkað út í árásir á landamærahéruð Rússlands sjálfs.
Evrópusambandið er ekki samband ábyrgra stjórnvalda, stjórnir leiðandi ESB-landa eru flestar rúnar trausti og stuðningi sinna þjóða og orðin aftengd raunveruleikanum eftir 80 ára valdafáokun. Aftur á móti hlýða þau hverri vitfirringunni á fætur annarri frá stjórnvöldum Bandaríkjanna.
Við fáum ekki miklar fréttir af allri ósvinnunni sem fer fram á vegum okkar bandamanna í Úkraínustríðinu. Við vöknum upp við að máttlítil stjórnvöld herlausa litla Íslands eru að senda milljarða til að kosta dráp NATO og ESB á Rússum. Hryðjuverkum Úkraínustjórnar er haldið leyndum. Okkur er ekki skýrt frá upphafi og tilgangi Úkraínustríðsins. Okkur er ekki sagt frá sívaxandi hernaðaruppbyggingu NATO og ESB við landamæri Rússlands. Okkur eru sagðar lygasögur um hverjir sprengja gasleiðslur, tónleikasali, íbúðabyggð og listamenn. Okkur er ekki sagt að NATO- og ESB-lönd dreifa lygum um Rússland og Úrkaínustríðið og ritskoða fréttaflutning. Við fáum ekki að fylgjast með stjarnfræðilegum þjófnaði NATO- og ESB-landa á eignum Rússa. Hörmungar stríðsins eru kenndar aðeins öðrum aðilanum.
Herlausa Ísland getur staðið uppi í miðju kjarnorkustríði ef forustumenn NATO/ESB halda áfram hernaðarrekstrinum.
https://www.swissinfo.ch/eng/putin-ally-warns-west-of-nuclear-war-over-ukraine/87581212
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Erindrekstur fyrir ESB
18.9.2024 | 14:47
Ríkisstjórn Íslands gengur erinda Evrópusambandsins og ætlar að láta Alþingi samþykkja nærri 60 mál, nærri þriðjung þingmálanna í vetur, sem eru EES-fyrirskipanir, sumt mál sem ESA hefur nöldrað um, sum málin eru með mörgum tilskipunum eða reglugerðum frá Brussel. https://www.frjalstland.is/2024/09/17/thingmalaskra-155-loggjafarthings-2024-2025-ees-mal/
EES-tilskipunum er aldrei breytt efnislega þær eru bara þýddar og samþykktar af Alþingi eftirgennslanalaust. Samtök sem studdu aðild Ísland að EES eru nú farin að kvarta yfir að EES-tilskipanirnar séu "innleiddar með meira íþyngjandi hætti" en í ESB og kalla það "gullhúðun". Oft byggt á misskilningi, vandamálið er frekar að eftirlitsstofnanirnar sem eiga að framfylgja reglunum hérlendis taka sér meiri völd en meðalhófi gegnir en þær mega nota tilskipanirnar beint út úr hestmúla Brussel (þegar sameiginlega EES-nefndin hefur stimplað þær) og þurfa því ekki að fletta i því sem ráðuneytin gefa út. Þannig er nú búið að spilla virðingu íslenska Stjórnarráðsins okkar.
Stofnanirnar okkar þekkja ekki vinnubrögð eftirlitsiðnaðarins í Evrópusambandinu en þar eru menn vanir valdboðum frá opinberum skriffinnum sem oftast vita lítið um það sem þeir eru að setja reglur um. Eftirlitsstofnanirnar í Evrópu (það er í stóru skriffinnskulöndunum Frakklandi, Þýskalandi og fleirum) nota yfirleitt aðeins úr þeim það sem eðlilegt má teljast en horfa framhjá hinu. Okkar eftirlitsstofnanir eru svo hræddar við ESB að þær þora ekki að gera það.
Það að fjarlægir skriffinnar sem ekki þekkja íslenskt samfélag setji því reglur er vandamálið með EES-samninginn.
Það er semsagt Evrópusambandið sem segir Alþingi og Stjórnarráðinu fyrir verkum. Íslendingar eru svo hræddir við sambandið að þeir hlýða öllu svamlinu þaðan, miklu þægari en Norðmenn að sögn eins gamals EES-sérfræðings (Baudenbacher, sjá Mbl 16.9.2024)
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 15:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
EES-útboð, EES-ok
16.9.2024 | 12:08
Ein af verstu kvöðunum sem EES-samningurinn kom á var um að verk skyldi bjóða út á EES-svæðinu sem þýðir í raun öllu ESB ef verkin ná tiltekinni stærð. Þetta hefur leitt til ýmissa vandræða. Nú býður Orkuveitan út 18 milljarða verkefni á EES-svæðinu.
Svona útboð eru ekki í samræmi við hagsmuni þjóðarinnar. Íslensk fyrirtæki geta séð um þetta, hvort sem er sjálf eða með þátttöku þeirra sem þau velja sér til samstarfs. Færni og þekkingu á þessu sviði þarf að halda í landinu og byggja frekar upp en ekki fá fjarlæg fyrirtæki í verkin.
Það þarf ekki að vera með æsing út af orkuskorti vegna "orkuskipta" yfir í rafmagn, það liggur ekkert á. "Orkuskiptin" eru byggð á fölsunum en koma að því marki sem þau borga sig með tímanum og þróun tækninnar. Niðurgreiðslur til að koma þjóðinni á rafbíla eru bæði dýrar og hættulegar og taka raforku frá atvinnutækjum landsins. Rafbílavæðingunni þarf að hagræða með því að hætta niðurgreiðslunum. Og taka tíma í að byggja frekar upp nýtingu jarðvarmans til raforkuframleiðslu fyrir fyrirtæki og heimili landsins, bensín og díselolía verða alltaf besti, hagkvæmasti og vistvænsti orkugjafinn fyrir bílana.
Svona verkefni, eins og okkar almannafyrirtæki Orkuveitan ætlar að ráðast í, á auðvita að bjóða út í minni þáttum hér meðal íslenskra verktaka. Þeir eiga að fá verkefnin og eftir þörfum að byggja sig upp og leita samstarfs til að ráða við þau. Það liggur ekkert á þegar mesta auðlind landsins er annars vegar. Orkufyrirtækin eiga ekki að fá að bjóða fjarlægum aðilum að óþörfu til að ná í jarðhita Íslands heldur standa með og byggja upp íslensk fyrirtæki í jarðvarmageiranum. (Mbl 16.9.2024)
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 12:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þórdís boðar 15 mál
13.9.2024 | 12:05
Utanríkisráðuneytið boðar 15 mál til samþykktar Alþingis í vetur, eitt lagafrumvarp og fjórtán þingsályktanir, allar nema 2 EES-fyrirmæli frá Evrópusambandinu https://www.stjornarradid.is/rikisstjorn/thingmalaskra/ Ekki eitt einasta mál frá Íslendingum sem eiga að stjórna Íslandi.
Lagafrumvarpið er hin alræmda bókun 35 til þess að gera lög og reglur Evrópusambandsins æðri íslenskum lögum. https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/09/12/thordis_bodar_eitt_frumvarp_bokun_35/ Þingsályktanirnar eru haugur af tilskipunum pakkað saman í 12 mál sem koma í bakið á landsmönnm sem áþján af misskaðlegu og óþörfu regluverki.
Utanríkisráðuneytið er orðið óþarft. Brusselbáknið stjórnar utanríkismálunum alfarið, hvort sem er að fara í stríð eða setja höft á aðrar þjóðir eða koma á reglugerðum sem við þurfum ekki. Best og ódýrast væri að fá Brussel til að senda tilskipanirnar beint til Alþingis til stimplunar.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 23:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ísland á sakamannabekk
12.9.2024 | 15:39
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 15:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Auðlindunum fórnað
10.9.2024 | 17:06
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 17:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Falsfréttamiðlun
8.9.2024 | 14:16
Evrópumál | Breytt 9.9.2024 kl. 00:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Upplausn og endurreisn
7.9.2024 | 16:47
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
ESB-lög æðri íslenskum?
4.9.2024 | 12:35
Evrópumál | Breytt 5.9.2024 kl. 11:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)