Lygaframleiðsla
8.2.2025 | 16:32
Hin alræmda bandaríska "alþjóða-þróunarstofnun", USAID, er nú í afhjúpun hjá Trump. USAID fjármagnar m.a. lygar fjölmiðla. The New York Times fékk t.d. milljónir dollara fyrir að gefa út lygasögu um "illvirki Rússa" í Bucha þar sem Úkraínumenn settu á svið ummerki um fjöldamorð á götum bæjarins. BBC kom líka og útvarpaði sömu skáldsögu https://www.bbc.com/news/world-europe-60967463 Þarmeð var hægt að afsaka meiri vopnasendingar frá NATO/ESB. BBC er einn helsti móttakandi lygapeninga frá USAID.
Mikið flóð er af lygum um Rússa en illvirkjum Úkraínumanna er leynt, nú síðast morðum í Rússlandi og fjöldadrápum í Kurskhéraði landsins.
Frægar eru lygarnar um afskipti Rússa af forsetakosningunum 2016 þar sem Politico og fleiri fjölmiðlar gengu í samsæri með USAID um lygadreifinguna og yfirhylminguna um Hunter Biden.
Fjölmiðlar Úkraínu eru reknir að mestu leyti með fé frá USAID og mynda víðfeðmt lyganet sem heldur Úkraínsku þjóðinni í blekkingum vestræns gerviheims og stríðsæsinga.
USAID hefur fjármagnað valdarán, mútur, kúgun og manndráp og unnið með annari álíka kræsilegri stofnun, CIA. Frægir niðurrifsmenn, m.a. Georg Soros, vinna með USAID að lygadreifingu, óeirða- og manndrápaaðgerðum í ýmsum löndum. Frægt er blóðuga valdaránið í Úkraínu fyrir 11 árum sem markaði upphafið að stríði sem varir enn. https://www.frjalstland.is/2022/05/05/bloduga-valdaranid-i-ukrainu/
Falsréttamiðlar NATO- og ESB-landa hafa nú risið upp á afturlappirnar og ráðast með urri og gelti á Trump og Musk fyrir að dirfast að afhjúpa þá.
Því miður er ekki líklegt að Trump nái að afhjúpa kraðakið af breskum lygamiðlum (og um leið ESB- og Norðurlandafalsarana) en þeir eru jafnvel enn lygnari og verr haldnir af ofsóknaræði en þeir amerísku.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 9.2.2025 kl. 00:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Borgarstjóri með vit
7.2.2025 | 12:49
Einar Þorsteinsson gerði Reykvíkinga svo hissa að margir eru ekki enn búnir að ná sér. Hann vill hafa Reykjavíkurflugvöll á sínum stað. Og auk þess telur hann að of hart sé sótt að fjölskyldubílnum!
Að heyra borgarstjóra Reykjavíkur tala af viti um stærstu mál Reykvíkinga er alveg nýtt, slíkt hefur ekki heyrst í áratugi. Reykvíkingar sjá nú fram á betri tíð á nothæfu gatnakerfi og minni tímaeyðslu og orkusóun í umferðateppur. Íbúar höfuðborgarsvæðisins geta nú líka farið að vona að þeir þurfi ekki að eyða sínum frítíma í að labba út í boragarlínuskýli, detta í hálkunni og fá kvef meðan þeir eyða tímanum í að bíða eftir borgarlínuvagninum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Trump byrjar að afhjúpa
5.2.2025 | 14:52
Trump er ekkert að leyna tilganginum með stríðsrekstri Bandaríkjanna, né heldur aðferðunum.
-Palestína: Bandaríkin eiga að hirða Gasa og byggja fyrirmyndar "Rivieru Miðausturlanda" á rústunum og flytja Palestínuþjóðina burt https://apnews.com/article/trump-netanyahu-washington-ceasefire-1c8deec4dd46177e08e07d669d595ed3
Gaslindir Gasa verða Bandarísk/Ísraelsk eign. https://daysofpalestine.ps/stolen-treasure-all-eyes-on-gazas-gas-fields/
-Úkraína fær árfamhaldandi "stuðning" við að reka hernað gegn Rússum ef Úkraína afhendir Bandaríkjunum verðmæt jarðefni. https://www.theguardian.com/world/2025/feb/04/ukraine-war-briefing-trump-demands-rare-earths-from-kyiv-in-exchange-for-aid Vopnasendingarnar stöðvuðust snöggvast þegar Trump tók við embætti en hafa nú komist í fyrra horf, hernaðarbákn Bandaríkjanna græðir nú á tá og fingri og ætlar að koma af stað stórstyrjöld með aðstoð ESB og NATO hvað sem Trump segir!
-USAID: Eitt afkastamesta gjöreyðingarvopn Bandaríkjanna, glæpsamleg stofnun sem splundrar og hleypir upp samfélögum, fjármagnar valdarán og stríð https://abcnews.go.com/Politics/turmoil-inside-usaid-doge-reps-offices-senior-officials/story?id=118368900
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sjálfbærar fjárfestingar
3.2.2025 | 17:31
Fjárfestingar í "sjálfbærum" verkefnun eru einn aðaldraumur ESB/EES. Þetta þýðir að fjárfestar/lánastofnanir á Íslandi eiga að setja sitt fé í tapverkefni s.s vindmyllur, sólarpanela, rafeldsneyti, gerjunareldsneyti, rafhlöðudrifin tæki. Bankarnir okkar og lífeyrissjóðir sitja fastir í snörunni. https://www.frjalstland.is/2025/02/03/esb-hrifsar-stodugt-til-sin-vold-yfir-fjarmalafyrirtaekjunum/
Þar sem men vilja fá afrakstur af sínum fjárfestingum, til dæmis Vestanhafs, eru slík regluverk á útleið. Stóru bankarnir í Bandaríkjunum eru hættir við að einskorða sínar fjárfestingar við "sjálfbær" og "kolefnishlutlaus" verkefni. https://www.downtoearth.org.in/climate-change/green-banks-coalition-goes-bust-biggest-american-fossil-funders-exit-net-zero-alliance
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Dósasöfnun DúnuToggu
1.2.2025 | 15:06
Rússarnir eru að koma eins og okkar "varnarsérfræðingar" hafa japlað á í 80 ár. Þeir og ráðherrarnir/frýrnar sem fara með varnarmál segja okkur nú að búa okkur undir stríð. Þ.e. safna niðursuðudósum. https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/02/01/aukin_ahersla_a_samtal_um_varnarmal/?origin=helstu
Best væri að grafa jarðhús sem hægt er að skríða ofaní áður en kjanorkusprengjurnar lenda á Kanahreiðrinu í Keflavík.
Áróður varnarsérfræðinganna er að sjálfsögðu tilefnislausar stríðsæsingar ættaðar frá NATO-bullum, og fjármagnaðar af heriðnaðarsamstæðum Bandaríkjanna, Bretlands og Frakklands. Og í seinni tíð hvattar áfram af skrækjum frá Eystraseltingum (bæði Tataralýðveldunum og Norðurlöndunum) þar sem geðheilsunni hefur hrakað mjög.
Upphlaupin og ásakanirnar út af skemmdarverkum Rússa eru eins og venjulega byggð á lygum, áróðri og ágiskunum:
-Skip með rússneskri áhöfn sem Eystraseltingar sögðu að skemmdi kapla var fært til hafnar í Noregi en sleppt aftur þar eð engar vísbendingar um skemmdarstarfsemi fundust. https://maritime-executive.com/article/norway-detains-reefer-cargo-ship-for-investigation-into-cable-damage
-Njósnarbúnaður við Skotland, sem Bretar sögðu að væri Pútíns, var hvalur að leysa vind. https://www.thesun.co.uk/news/32995393/navy-fears-russian-drones-farting-whale/
-Kjarnorkukafbátar NATO að verja okkur koma svo nálægt strönd að strákar að veiða festa veiðarfærin í þeim. https://www.thebarentsobserver.com/security/norwegian-fishermen-snagged-us-nuclearpowered-submarine/420357
-Bandaríkin og Noregur sprengdu gasleiðslu Rússa í Eystrasaltinu https://www.youtube.com/watch?v=rPvfqm_XmaQ
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Varnir þarf að efla
30.1.2025 | 14:28
Rússar undirbúa nú árás á Vestur-Evrópu, fremja njósnir og skemmdarverk, slíta kapla og leiðslur.
Breski herinn fann "tækjabúnað" á hafsbotni við Skotlandsströnd sem þeir töldu vera tæki Putins til að fylgjst með kafbátum Breta. Dátar og áróðurspípur Hennar Hátignar hlupu upp til handa og fóta og létu ásakanirnar á Rússa óma í öllum helstu (fals)fréttamiðlum Breta. Í ljós kom að "tækjabúnaðurinn" var hvalur sem hlustunartæki Breta höfðu heyrt leysa vind! https://www.thesun.co.uk/news/32995393/navy-fears-russian-drones-farting-whale/
Norskir strákar sem voru að dorga upp í fjöru fengu kjarnorkukafbát á öngulinn. Hann reyndist vera bandarískur að efla varnirnar í Norðurhöfum vegna yfirvofandi árásar Rússsa. https://www.thebarentsobserver.com/security/norwegian-fishermen-snagged-us-nuclearpowered-submarine/420357
(ATH: Rússar hafa eldrei sýnt áhuga á að ráðast á Vestur-Evrópu, hafa nóg með víddir Rússlands. Slit sæstrengjanna sem falsfréttamiðlarnir kenna rússneskum "skuggaflota" hafa reynst vera slys eða handvöm. Leiðslurnar sem voru slitnar voru gasleiðslur Rússa og Þjóðverja sem Bandaríkin og Noregur sprengdu.)
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 31.1.2025 kl. 12:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ætluðu að myrða Putin
28.1.2025 | 14:46
Tucker Carlson, hinn þekkti bandaríski fjölmiðlamaður, segir að ríkisstjórn Joe Biden hafi ætlað að myrða Vladimir Putin Rússlandsforseta. Og hafi reynt það amk. einu sinni með árás dróna á Kreml 2023.Tucker segir að Blinken utanríkisráherra Bidens hafi reynt allt sem hann gat til þess að koma Bandaríkjunum í beint stríð við Rússland
Bandarísk stjórnvöld hafa ekki enn látið rússnesk stjórnvöld í sér heyra um friðarsamninga. Það er eðlilegt, Bandaríkin og þeirra verktakar, Úkraínustjórn (umboðslaus), eru þegar búin að tapa stríðinu og hafa ekkert samningstromp á hendi. Það sem ruglar Ameríkanana er að NATO- og ESB-leiðtogar eru sumir í villtum stríðsham og vilja halda árfram stríðinu, og þenja það út, það er nú að verða 11 ára og hefur valdið ógnvekjandi hörmungum. Á meðan heldur rússneski herinn áfram að frelsa byggðir Donbass undan útrunnu leppstjórninni í Kænugarði og hreinsa upp hroðann sem hún skilur eftir sig.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 14:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Frystir erlenda aðstoð
26.1.2025 | 14:26
Trump hefur hætt erlendri aðstoð með undantekningu fyrir Ísrael og nokkra aðra. Þetta er stórfrétt og greinilega fyrsta skrefið í að stöðva stríð eins og hann lofaði en "aðstoð" Bandaríkjanna hefur innifalið fjármögnun valdarána, niðurrifsafla og hernaðar.
Bandarískar stofnanir sem hafa úthlutað "aðstoð" eru USAID og NED sem ásamt fleiri stofnunum og félögum (s.s. Open Society Foundation Georgs Soros) hafa skipt sér af innanríkismálum margra landa á vegum Bandaríkjastjórnar. Þær fjármagna mútur, "mótmælagöngur", óeirðir, eyðileggingu og manndráp. Lengi voru aðallega Suðurameríku- og Miðausturlönd ásamt löndum í Afríku og Asíu fórnarlömb "aðstoðarinnar". Eftir upplausn Ráðstjórnarríkjanna urðu Austurevrópulönd líka fórnarlömb.
Í Gerogíu reyna erindrekar frá Bandaríkjunum og ESB-löndum stöðugt að koma af sað stjórnarskiptum eins og í Úkraínu. Á dagskrá núna eru fleiri lönd sem Bandaríkin, ESB og NATO ætla að "aðstoða" við að koma á leppstjórnum: Belarus, Serbía og Slóvakía. Valadaránsmenn frá Úkraínuráninu 2014 eru komnir á vetvang. Önnur ríki Austurevrópu hafa verið innlimuð í NATO og/eða Evrópusambandið.
Eftirtektarvert er að Evrópusambandið er að reyna að taka meiri þátt í fjármögnun manndrápa og valdarána þó fátækt og ósætti standi i vegi. https://www.lemonde.fr/en/international/article/2024/02/27/estonian-prime-minister-kaja-kallas-we-must-provide-more-weapons-to-ukraine_6562529_4.html
Hvort Trump tekst að stöðva stríð Bandaríkjanna er háð því að hann nái að stjórna "kerfinu", djúpríkinu sem hefur hundelt hann í áratug. Búast má við málaferlum, áróðursherferðum fjölmiðla, morðtilraunum og áframhaldandi sprikli kratanna sem hafa náð í tíð síðustu krataforseta að að koma sér fyrir í "kerfinu". https://www.mbl.is/frettir/erlent/2025/01/25/bandarikin_frysta_erlenda_adstod/
John Perkins var erindreki við "aðstoð" Bandaríkjanna og hefur skrifað bækur um sína reynslu: Confessions of an Economic Hitman, The Secret History of The American Empire ofl.
https://www.frjalstland.is/2025/01/26/trump-frystir-erlenda-adstod/
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Loftslagsmartöð Noregs
24.1.2025 | 17:21
Norska ríkisstjórnin er í fallhættu, kratarnir vilja lögleiða 4. orkupakka ESB/EES sem er ótrúlegt samsafn af draumórum sem geta aldrei ræst en mundu stefna Noregi og ESB í enn meiri orkuskort og fátækt. Miðflokkurinn, hinn stjórnarflokkurinn, vill ekki sjá 4. orkupakkann.
https://www.consilium.europa.eu/en/policies/green-deal/
(tilskipanapakkarnir frá Evrópusambandinu eru oft langir með mörgum valdboðum og óþörfu skriffinnasvamli og erfitt að átta sig á hvað þeir raunverulega segja, ákvarðanir ESB í "loftslagsmálum" eru orðnar margar)
Nú hafa þau vatnaskil orðið að helsta iðnaðarland heims hefur stöðvað loftslagssvindlið þarlendis sem verður þess valdandi að feigðarflan ESB í "loftslagsmálum" mun fjara út. Hvort Norðmenn komast fram með að hafna 4. orkupakka EES á eftir að koma í ljós en ljóst virðist að Noregur er á leið að losa sig undan áþján Evrópusambandsins og segja EES-samningnum upp, fyrr eða síðar.
Ísland ætti að taka frumkvæðið og vera á undan, brýn nauðsyn er orðin fyrir Ísland að aflétta EES-samningnum, hér þarf að fara að virkja en til þess þarf að afnema lög úr EES-tilskipunum sem hafa gert íslenskt lagasafn martröð líkast.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Loftslagssvindlið strand
22.1.2025 | 13:28
Bandaríkin segja nú upp aðildinni að Parísarsakomulaginu. Tíu ár eru liðin frá því boðað var til múgsefjunarsamkundu í París yfir glösum af frönsku víni þar sem ríki heims "skuldbundu" sig til að draga úr nýtingu jarðefnaeldsneytis.
Skemmst er frá að segja að engin ríki, nema þau sem eru í hraðri hrörnun eins og ríki Evrópusambandsins, hafa getað staðið við "skuldbindingarnar" sem voru í raun bara óskhyggja. Notkun mannkyns á jarðefnaeldsneyti hefur aldrei verið meiri en nú! Samt er loftslagið ekkert að hlýna. Það er að kólna! Parísarsamkomulagið var byggt á fölskum forsendum.
Það var alltaf ljóst að þyrfti öfluga leiðtoga eins og Trump til þess að stöðva loftslagssvindlið. Það verður spenandi að sjá hvaða leiðtogi verður næstur (nú eru 4 ríki utan samkomulagsins).
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Orkuver út á sjó
20.1.2025 | 17:32
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 20:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
EES-rafmagn og hveiti
18.1.2025 | 17:45
Bloggar | Breytt 19.1.2025 kl. 18:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Línan frá NATO
17.1.2025 | 20:19
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Virkjanastopp EES
15.1.2025 | 20:25
Evrópumál | Breytt 16.1.2025 kl. 17:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Maduro & Mette
11.1.2025 | 14:02
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 14:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)