Falsfréttamiðlun

sweden-916799_640Vestrænir fjölmiðlar bera okkur falsfréttir en þegja yfir raunverulegum fréttum. Þeir segja að Rússar hafi sprengt skóla og sjúkrahús í Poltava. Þeir segja okkur ekki að "skólinn" var þjálfunarstöð NATO fyrir úkraínska hermenn. Þeir þegja um að allir stjórnendur SAAB hergagnadeildarinnar (AEW&C)voru felldir. https://www.facebook.com/groups/298181905998233/posts/541428685006886/?_rdr Þá voru liðin 315 ár frá því að Rússar gersigruðu innrásarher Svía við Poltava 8. júlí, 1709, þar sem þúsundir Svía vor felldir en Svíar hafa síðan þjáðst af ofsóknarbrjálæði gagnvart Rússlandi.

Alls voru 600 felldir og særðir núna 3.september, 2024, að sögn eins af forsprökkum úkraínskra nýnasista. https://www.rt.com/russia/603462-poltava-signal-academy-ukraine/ Líklega fæstir Úkraínumenn, þá er búið að strádrepa eða flæma úr landi. Hermenn /"hersérfræðingar" frá Bretlandi, Póllandi, Frakklandi, Bandaríkjunum, Svíþjóð og fleiri stríðslöndum NATO hafa væntanlega verið í meirihluta í líkpokunum sem voru fluttir frá Poltava.

Utanríkisráðherra Svíþjóðar sagði af sér í kjölfarið. Falsfréttamiðlarnir útvörpuðu að hann hefið talið sig eiga skilið frí, verandi búiin að gera nóg gagn með því að koma Svíþjóð í NATO! Sem eru verstu utanríkispólitísku mistök Svía frá dögum Kalla tólfta. Ástæða brottreksturs hans er auðvitað misheppnaðar stríðsaðgerðir gegn Rússlandi. Poltava 2.

 

 


Upplausn og endurreisn

eu-flageurope-1045334_960_720Flokkarnir sem hafa ráðið Evrópu í 80 ár eru að missa völdin. Gömlu stjórnvöldin, sem þriðjungur eða minna af kjósendum styður, eru orðin úrelt en eru þaulsætin og "neita að vinna með" nýju flokkunum jafnvel þó þeir séu stærri.

Í Frakklandi, Þýskalandi, Hollandi og Bretlandi eru farnar kröfugöngur sem enda í götubardögum. Stjórnvöld senda vopnaðar sveitir á mótmælendur og stimpla þá sem "glæpamenn" eða "hægriöfgamenn". Að rökræða við þá um málefni dettur ráðamönnum ekki í hug.

Almenningur í Evrópu hefur verið hrakinn í vaxandi fátækt. https://www.frjalstland.is/2023/07/01/fataektarmenning/ Fyrirtæki sæta höftum á aðföng og orkuöflun er eyðilögð. Regluverkið er orðið of hamlandi. Vind-og sólorkuver og lög gegn eldsneyti hafa sprengt upp  kostnað heimila og komið af stað gjaldþrotum iðnaðar og landbúnaðar. Stærsta bílaverksmiðjan er að molna, framleiðir rafbíla sem kaupendur vilja ekki https://fortune.com/europe/2024/09/03/volkswagen-german-factory-closure-ev-layoffs/ Bændurninr koma með mykju í kerrunum og sturta á götur höfuðborganna.

Heimskulegar stríðsæsingar ráðamanna eru afsökun fyrir dýrari heriðnaði og hernaðarrekstri. Óhóflegur innflutningur þróunarlandamanna, sem flúið hafa hernað NATO-landa, er orðinn þjóðfélagsvandamál. 

Nýju stjórnmálaöflin (sem sum eru reyndar áratuga gömul en hefur tekist að halda niðri) vilja hverfa frá þessum villum vega og hefja endurreisn. En því miður lítur út fyrir að þurfi að beita valdi til þes að koma úreltum stjórnmálaflokkum úr valdastólunum. Upplausn Evrópu endar þá eins og oft áður með vopnuðum innanlandsátökum sem verða undanfari endurreisnar.


ESB-lög æðri íslenskum?

landsvirkjunimagesEvrópusambandið vill að Alþingi samþykki allsherjarreglu sem segir að verði árekstur milli EES-reglna og landslaga "-skuldbindur Ísland sig til þess að setja lagaákvæði þess efnis að EES-reglur gildi í þeim tilvikum" https://www.frjalstland.is/2020/10/15/esb-log-aedri-islenskum-logum/.

Núverandi ríkisstjórn, sem obbi landsmanna styður ekki, virðist nú ætla að láta Alþingi samþykkja þetta (bókun 35 við EES) svo lítið beri á https://heimssyn.blog.is/blog/heimssyn/entry/2305649/. Samþykktin yrði stjórnarskrárbrot og mundi í raun gera EES-samninginn marklaust plagg.

Stjórnvöld Íslands hafa mótmælt og jafnvel tekist að tefja sum skaðlegustu valdahrifs ESB, sem ESA sér um að nöldra um, þó Alþingi hafi oftast samþykkt EES-lögin möglunarlaust og án faglegs mats. Og Stjórnarráðið hefur gefið út óbreyttar þýðingar á EES-reglugerðum án gilds mats. Frjálst land spurðist fyrir um kröfu ESB um að ESB-fyrirtæki sitji við sama borð og íslensk fyrirtæki við úthlutun nýtingarréttar fallvatna og jarðvarma og svöruðu íslensk stjórnvöld þannig:

"Við skoðun málsins hafa komið fram rökstuddar efasemdir um að  þjónustutilskipunin eigi við um raforkuframleiðslu. Íslensk stjórnvöld hafa því ákveðið að fresta fyrirhuguðum lagabreytingum uns betri vissa er fengin fyrir því hvaða þjóðrétarlegu skuldbindingar hvíla á íslenska ríkinu að þessu leyti. Frumvarpið sem vísað er til í þingmálaskrá verður því ekki lagt fram á Alþingi á þesum vetri" (en meiningin hafði verið veturinn 2020 að setja í íslensk lög jafnt aðgengi ESB-fyrirtækja og íslenskra að jarðvarma og fallvötnum landsins) https://www.frjalstland.is/2020/04/10/svar-forsaetisraduneytis-vid-fyrirspurn-um-uthlutun-nytingarrettar-orkuaudlinda/

Ætli núverandi forsvarsmenn Íslendinga viti hvaða valdi hefur verið afsalað til útlanda?


Varnir Íslands?

hermennKongkamsripexels-photoFriðar-Ísland er nú æfingavöllur fyrir hernað Bandaríkjanna og þeirra leppríkja. Þúsund hermenn æfa hernað hér, herþotur drynja yfir okkur og dýrunum okkar. Utanríkisráðfrúin okkar segir: "Það er augljóst að svona æfing er mikilvægari í þeim raunveruleika sem við horfum upp á í dag, þ.e.a.s. þar sem stórveldi hóf allsherjarinnrás inn í frjálst og fullvalda ríki í Evrópu og er, auðvitað ofan á það, að ástunda fjölþátta ógnir í allnokkrum aðildarríkjum" (hvaða, Evrópusambandsins?)

Raunveruleiki ráðfrúarinnar er eftirgrennslanalaus trú á áróður og lygar. Stórveldið sem hóf innrás í frjálst og fullvalda ríki er einmitt ríkið sem er að æfa hermenn sína og sinna kjölturakka hér á Íslandi: Bandaríki Norður-Ameríku, okkar "herverndarar", það voru einmitt Bandaríkin sem hófu hernað gegn frjálsu og fullvalda ríki, Úkraínu, og lögðu það undir sig veturinn 2014 og hófu síðan hernað gegn rússneskum íbúum þess. https://www.frjalstland.is/2023/12/19/stridsundirbuningur/ Gáfnaljósin í Washington og Brussel hafa nú þanið hernaðinn út og hafið stríð gegn Rússlandi sjálfu, einu helsta kjarnorkuveldi heims.

Mikil stríðsvá steðjar að Evrópu og heimsbyggðinni allri a.m.k. meðan mistakaforsetinn situr í Hvíta húsinu og illa upplýstir leiðtogar hanga á valdastólunum í Evrópusambandinu og Bretlandi.

Á meðan þetta tilgangslausa vopnaskak glymur hér á og við Klakann er Landhelgisgæslan, sem er okkar eini verjandi fyrir raunverulegum hættum, í svelti og getur ekki verndað sæfarendur og varið okkur gegn veiðiþjófum eða glæpalýð. Hvað þá NATO-ríkinu Bretlandi sem er eina ríkið sem hefur sýnt Íslandi fjandskap og otað byssukjöftum að okkur.

(Mbl 31.8.2024)


Græðum á Klakanum

tré í snjópexels-photo-10637368Loksins getum við farið að græða á hinni Guðsvoluðu eyðimörk sem Ísland hefur reynst Íslendingum. Samkvæmt hinum alræmda EES-samningi þjóna íslenskir fasteignasalar ekki bara Íslendingum heldur líka ESB- og EES-ingum. Þá vantar land undir t.d. vindmyllur og tískubóluna "kolefnisjöfnun" sem er orðin góð afsökun til að ná undir sig landareignum á Íslandi undir því yfirskini að rækta skóg og vinna gegn hlýrra loftslagi sem Íslendinga hefur dreymt um í 1150 ár.

Meira að segja afdalir á Norðurlandi eru á þeirra áhugasviði (Mbl 28.8.2024). Best að drífa í þessu áður en landabraskararnir komast að því að skógur á Norðurlandi drepst í kuldahretum, það sem er að byrja núna verður búið að drepa flest barrtré á Norðurlandi eftir nokkra áratugi.

En þó einhverjir gróðakeppir geti grætt á að selja land á Klakanum gera bændurnir í Vatnsdalnum meira gagn, þeir útvega landsmönnum hollan mat með því að rækta grænt gras. Grasið tekur up mikið af koltvísýring úr loftinu og skilar okkur honum í góðum mat.


Næsta valdarán

Georgiapexels-photo-4550542Bandaríkjamenn skipuleggja nú næsta valdarán á áhrifasvæði Rússa, og gömlu Ráðstjórnarríkjanna, það á að verða í Georgíu en áður hefur verið reynt að þvinga landið til hlýðni við bæði Bandaríkin og Evrópusambandið. Þetta segir leyniþjónusta Rússlands sem hefur oft reynst sannspá.

Valdaránið verður með svipuðu sniði og í Úkraínu fyrir rúmum tíu árum sem var upphafið að Úkraínustríðinu. Peningum er úthlutað til hreyfinga, óeirðaseggir ráðnir, rússlandsandstæðingar virkjaðir. https://www.interpressnews.ge/en/article/133086-russian-foreign-intelligence-americans-are-preparing-a-color-revolution-in-georgia/


Við styðjum hryðjuverk

nuclear powerplantpxclimateaction-4168906_960_720Úkraínuher reyndi að skjóta sprengju á kjarnorkuverið í Kursk og hefur hvað eftir annað reynt að sprengja kjarnorkuverið i Zaporozhie við Dnéprfljótið. Rússneska hernum hefur hingað til tekist að forða alvarlegum skemmdum. https://www.rt.com/russia/602975-attack-kursk-nuclear-plant/

Sprengjuárásir á kjarnokuver geta komið af stað stjórnlausu útrennsli geislavirkra efna (sbr. Chernobyl í Úkraínu 1986). Rússnesk yfirvöld hafa margsinnis kvartað við Alþjóða kjarnorkustofnunina án árangurs en fulltrúar hennar eru þó núna væntanlegir til Kursk kjarnorkuversins.

Þeir sem reyna að skjóta sprengjum á kjarnorkuver er ekki hægt að kalla annað en hryðjuverkamenn. Athæfi Kænugarðsstjórnarinnar, sem er undir yfirstjórn hernaðaryfirvalda Bandaríkjanna, er orðið mesta vá sem hangir yfir Evrópu og reyndar heimsbyggðinni allri. Ísland getur ekki verið þekkt fyrir að styðja hryðjuverkamenn og á að beita sínu friðarmannorði (er kannski búið að sólunda því?) til að kalla á friðarsamninga.


Lygar um ríkisfyrirtæki

pinocchio-2917652_960_720Spilltir eða óforsjálir stjórnmálamenn vilja koma fyrirtækjum í almannaeign í hendur gróðabrallara vina sinna og flokkseigenda.

Þeim tókst að framkvæma mesta þjófnað Íslandssögunnar í dagsbirtu með svokallaðri einkavæðingu þegar mörgum bestu fyrirtækjum landsins var kastað í gin braskara sem fjármagna stjórnmálaflokka. Afsakanirnar eru eins og áður að þurfi að auka hagkvæmni og spara í ríkisrekstri, upplognar forsendur.

https://www.frjalstland.is/2024/08/21/lygar-um-rikisfyrirtaeki/


Innrás í Rússland

Leopardtank-2892790_960_720Nasistar gerðu innrás í Rússland 22. júní 1941. Nýnasistastjórn Úkraínu gerði innás í Rússland 6. ágúst 2024. NATO-hermenn stjórnuðu innrásinni sem var á vegum NATO og ESB, framvíglínusveitin var þjálfuð í Bretlandi.

Þátttaka NATO í stríðinu í Úkraínu hefur aukist dag frá degi og er orðin slík að hægt er að tala um að hernaðinum sé stjórnað af NATO en hann hefur frá byrjun verið að frumkvæði og á vegum Bandaríkjanna og leikbrúða þeirra í Evrópu. Hernaðaraðgerðir leppstjórnarinnar, sem Bandaríkin komu til valda í Kænugarði, hófust strax eftir valdaránið fyrir nærri 11 árum. Þær voru árásir á austurhérðuð Úkraínu þar sem margir Rússar búa en héruðin lýstu yfir sjálfstæði þegar ljóst var að Bandaríkin og nýnasistar tækju völdin í landinu. https://www.frjalstland.is/2022/05/05/bloduga-valdaranid-i-ukrainu/

Hernaður Rússa snýst um að verja rússnesku íbúana og frelsa austurhéruðin undan kúgun og árásum hinnar ólögmætu Kænugarðsstjórnar og halda vopnum NATO frá landamærum Rússlands eins og Gorbasjof var lofað. Her Rússlands er langt kominn með að frelsa austurhéruðin undan Kænugarðsstjórninni þó stór hluti af vopnabúrum NATO hafi verið sendur til þeirra. Stríðsæsingamenn meðal leiðtoga Vesturlanda, sem reka hernaðinn gegn Rússlandi https://www.frjalstland.is/2024/01/27/vaxandi-hernadur-gegn-russlandi/, eru farnir að missa stjórn á sér og grípa til hættulegra sýndarúrræða eins og innrásin núna virðist vera. Stórstríðshættan vex með vaxandi vitfirringu NATO- og ESB-leiðtoga, þeirra fálm er leikur að eldinum

Rússar gruna NATO/ESB um að hafa ætlað að ná undir sig kjarnorkuverinu í Kursk til að geta hótað með "kjarnorkuslysi" (ala Chernobyl sem er í Úkraínu). Úkraínuher hefur síðustu ár stöðugt gert árásir á kjarnorkuverið í Zaporizhzhie en Rússum hefur tekist að verja það hættulegum skemmdum hingað til.

Hin ólögmæta stjórn Úkraínu notar hryðjuverk kinnroðalaust á vegum Bandarikjanna og verndarríkja þeirra í Evrópu. Þar eru stjórnvöld látin horfa uppá að Bandaríkin eyðileggi orkubúskap Evrópu og sprengi gasleiðslur til þeirra. Og þora ekki að mótmæla.


Koltvísýringur er lífgjafi

tomatoes-vegetables-food-frisch-53588Koltvísýringur er útmálaður sem mesta vá mannkyns og alls lífs á jörðinni. Þeir sem einhverja þekkingu hafa á umhverfi Jarðaryfirborðsins vita að andstæðan er sönn: Koltvísýringur er grunnefni lífsins á jörðinni og getur alrei orðið of mikill, áhrif hans á hitafar Jarðar eru mettuð.

Lofttegundin er mikilvægasta sporefnið í andrúmsloftinu þó hún sé aðeins 0,04% af loftinu, en þó hefur verið nærri 20-sinnum meira á blómatíma gróðursins síðustu 500 milljón árin.

Gróðurhúsaræktendur vita þetta. Þeir reyna að fá koltvísýring á hagstæðu verði en gróðurvöxturinn stóreykst hjá þeim ef þeir auka koltvísýringinn í gróðurhúsinu.

En staðan er orðin þannig að þeir verða að kaupa fokdýran koltvísýring á tönkum af Evrópusambandsfyrirtæki sem hefur náð einokun hér. Mikilli orku hefur verið eytt í að þrýsta koltvísýringnum á tankana sem gerir hann óhagkvæman.

Í landi þar sem hver einasti hver og gufuvirkjun blæs út koltvísýringi í miklu magni er þetta vægast sagt þjóðlegur ræfildómur. Það á að hreinsa koltvísýringinn frá gufuvirkjunum og leiða hann í rörum á lágum þrýstingi, og þar með lágu verði, til  góðurhúsasvæðanna. Þau hafa þegar varma og jafnvel rafmagn frá jarðhitanum, viðbótin með koltvísýringinn yrði hagkvæm. Og góð fyrir grænmetisneysluna og lýðheilsuna í landinu.

(Sjá Bændablaðið 15.8.2024)

 

 


Niðurrif Rússlands.

Tilraunir Bandaríkjanna og þeirra bandamanna til að rífa niður Rússland hafa staðið lengi, eru reknar áfram af fjármagnseigendum, stórfyrirtækjum og bönkum. Í áætlunum Bandaríkjanna, sem lesa má um í skýrslum Rand Corporation, um hernað, kúgun og...

Óþarfur dómstóll

Svo kallaður EFTA-dómstóll var settur á með EES-samningnum og er úrskurðaskrifstofa fyrir meint brot á honum. EES-samningurinn átti að ná yfir allt EFTA en stærsta landið hafnaði honum og er því laust við dómstólinn. Nafnið á honum er því rangnefni....

Þýskir skriðdrekar komnir aftur til Kursk

NATO lét sína nýnasistísku stríðsverktaka í Úkraínu gera árás á Rússland á þriðjudaginn var, inn í Kursk hérað. Þar var stærsta skriðdrekaorusta sögunnar sumarið 1943 þegar Þjóðverjar réðust inn í Kursk-hérað. Rússar gersigruðu innrásarher Þjóðverja og...

Falskar vonir

Ein draumkenndasta EES-tilskipunin er nú í rörunum frá ESB: https://gagnagrunnur.ees.is/32024r1735 . Reglugerð til að auka kolefnisfría framleiðslu https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/HTML/?uri=OJ:L_202401735, síðasta valdboð frá ESB í langri...

Venezúela

/ Myndin er úr Best Diplomats https://bestdiplomats.org/largest-oil-reserves-by-country/ Nicolas Maduro, hinn nýkjörni forseti Venezúela, sætir nú vaxandi árásum af hendi stríðsríkja NATO og ESB. Falsfréttamiðlar hafa verið virkjaðir. Hin ríku...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband