Hamfarahlýnunin er dýr

icebergpexels-photo-694218Hamfarahlýnunin undir stjórn ESB sogar vaxandi fúlgur af "kolefnisgjöldum" frá okkur til ESB. Braskararnir þéna vel á losunarheimilda-verslunarkerfi ESB, ETS, og okkar ríkisvaldi er mútað til að spila með, það fær hluta af braskpeningnum (segið þið svo að ESB kunni ekki að fá með sér undirmálsstjórnmálamenn aðildarlanda EES!) Í ESB eru fyrirtæki sem framleiða eitthvað eða kaupa orku að fara, þau standa ekki undir braskinu. Braskararnir fara til Tortola. Það endar eins hjá okkur. Kvótabraskið sogar milljarða árlega frá íslenskum flugfélögum, iðnfyrirtækjum og orkufyrirtækjum. Og stöðugt hækka "losunarheimildirnar" í verði (Pétur Blöndal Mbl 22.9.2021)

Okkar stjórnmálamenn þurfa að taka á sig rögg í loftslagsmálum, hafísinn nálgast og snjókoman vex. "Við höfum bara 10 ár til að bjarga heiminum"- segja hæstu hænsnin hjá ESB og SÞ.

Loftslag á Íslandi


Hnignun EES og flokkarnir

fátæktpexels-photo-1058063Samtökin Frjálst land spurðu framboðin um afstöðu þeirra til fullveldis, lýðræðis og sjálfstæðis https://www.frjalstland.is/

Í ljós kom að sum framboðin eru með alvarlegar ranghugmyndir um EES-samninginn og viðskiptaumhverfi Íslands. Dæmi:-"Sjálfstæðisflokkurinn vill tryggja áfram opinn og frjálsan aðgang að innri markaði ESB - vill því áfram byggja samskipti sín við ESB á EES"-

Sviss og Bretland eru með tollfrían og kvótafrían aðgang að mörkuðum ESB án þess að vera aðilar að "innri markaðnum" og eru utan EES og laus við stjórn Brussel. Margar þjóðir sem ekki eru á "innri markaðnum" hafa samið um aðgang að mörkuðum ESB, s.s. Kanada og Suðurameríkuríki. "Samskipti" stjórnvalda Íslands við ESB snúast mest um að uppfylla kvaðir EES-samningsins og koma tilskipunum ESB í framkvæmd hér.

-"Viðskiptahagsmunum Íslands  - væri mun verr þjónað með hefðbundnum fríverslunarsamningi - EES færir okkur þáttöku í fjórfrelsinu"- (Viðreisn).

Hefðbundinn fríverslunarsamningur er um frjáls viðskipti en ekki um að annar aðilinn stjórni hinum eins og EES-samningurinn.

"Þátttaka" í fjórfrelsinu (stjórnlaus millilandaflutningur á fjármagni, vörum, fólki og þjónustu) hefur fært okkur snjóhengju af gjaldeyri og bankarhun, undirmáls matvörur, stjórnlausan fólksinnflutning og braskara sem gera ungt fólk að leiguliðum.

Stærstu viðskiptaþjóðir Íslands síðan fyrir löngu eru utan EES/ESB. Markaðir ESB rýrna með hverju ári, ESB var með 30% heimsverslunarinnar 1980 en er nú með minna en 15%. Það eru ranghugmyndir og kjarkleysi íslenskra stjórnvalda að loka okkur inni með hnignandi löndum sem sigla hraðbyri í heimagerða orkukreppu og fátækt.

 


Bábiljustjórnmál

foolpexels-photo-5541210Samtökin Frjálst land spurðu framboðin til kosninganna um afstöðu þeirra til fullveldis, lýðræðis og sjálfstæðis  https://www.frjalstland.is/. Í ljós kom að sumir eru með bábiljur um EES-samninginn, dæmi:

-"EES opnar fyrir aðgengi Íslendinga að fjórfrelsi ESB sem tryggir Íslendingum aukið frelsi og aðgang að mörkuðum"- (Samfylkingin).

Aðgengið að fjórfrelsinu var svo opið að upp hlóðst snjóhengja af gjaldeyri hér og Darling setti bankana á hausinn. "Aðgangur" EES að hrörnandi mörkuðum ESB (sem Ísland fékk þegar 1972 með fríverslunarsamningi) hefur sett viðskipahöft ESB (NTB) á aðgang Íslands að alþjóðamörkuðum.

-"Við fáum aldrei betri samning við ESB en EES-samninginn"- (Píratar). Þetta er ein versta bábiljan um EES. Mörg viðskiptalönd ESB hafa svipaða eða betri samninga en Ísland. Sviss og Bretland hafna EES en hafa tollfrían og kvótafrían aðgang að ESB. Sviss er með uppfærðan fríverslunarsamning frá 1972 eins og Ísland, hann dugir þeim og setur Sviss ekki undir tilskipanavald Brussel eins og EES gerir.

Stærstu og auðugustu viðskiptaþjóðir Íslands eru utan EES. Okkur er því ekki lengur stætt á að hírast innan múra EES, undir tilskipanavaldi ESB, með löndum sem sigla hraðbyri í heimatilbúna orkukreppu og fátækt. Tvöfalt meiri útflutningur frá Íslandi er nú í bandaríkjadölum en evrum. Um 60% útflutnings er sagður til ESB en stór hluti af því er til Rotterdamhafnar og áfram um allan heim.  Rússland var stór markaður áður en Ísland dróst með í viðskiptaþvinganir ESB.


Markaðsverð á orku segir ESB

GLEYMUM EKKI ÞESSARI KRÖFU ESB UM MARKAÐSVERÐ OG NÝTINGARRÉTTI ORKUAUÐLINDA: https://frjalstland.blog.is/blog/frjalstland/entry/2265436/

Markaðsverð orku

 

 


Orkukreppa ESB versnar

pexels-photo-4516243.jpgOrkuverðið er nú komið upp úr öllu valdi í ESB, mörg fyrirtæki og heimili geta ekki borgað lengur. Ein aðalástæðan eru barnslegar hugmyndir ESB um "kolefnishlutleysi" sem hefur hleypt verði á losunarheimildum koltvísýrings í hæstu hæðir sem leggst á orkuframleiðendur. Þetta er erfitt fyrir ríkisstjórnir ESB sem hafa skrúfað sig upp í glórulaus loforð fyrir loftslagsráðstefnuna í Glasgow í nóvember en kostnaðurinn lendir á kjósendum sem eru orðnir þreyttir á Covid-mistökum stjórnvalda og efnahagsþrengingum.

https://www.bloomberg.com/news/articles/2021-08-05/europe-faces-an-energy-shock-after-gas-and-power-prices-rocket


Sjóræningjaviðreisn

cat-2092451_1920.jpgÍ svörum stjórnmálaflokka við spurningum samtakanna Frjálst land, Heimssýn og Orkan okkar eru skemmtilegar rassbögur. Spurningunni hvort flokkurinn vildi auka eða minnka vald ESB hérlendis svöruðu Píratar: "ESB hefur ekkert vald hérlendis". Viðreisn svaraði "ESB hefur ekkert vald á Íslandi". https://www.frjalstland.is/

Þessir flokkar hafa setið á Alþingi fjóra vetur og verið með í að taka á móti tilskipunum ESB og setja nokkur hundruð ESB/EES-lög inn í íslenskar lögbækur og valdboð í reglugerðasafnið. Meira að segja á Kóvíðþinginu síðasta vetur stimplaði Alþingi 26-EES-tengd mál(samkv. Mbl).

Það þarf að setja vekjara á borðin hjá sjóræningjaviðreisninni á Alþingi sem blikkar þegar ESB sendir tilskipun og tengja beint við takka í Brussel.


Vindmyllustórslys

windmillsunnamed_1372844.pngHér koma nýjustu fréttir af "græna hagkerfinu".

Umhverfisverndartrúðarnir básúna stöðugt út að hagkvæmasta orkuframleiðslan sé með vindmyllum og að þær verði hagkvæmari með hverjum deginum! Nú er komin þriggja áratuga reynsla á vindmyllurnar í V-Evrópu og N-Ameríku. Hún er ekki fögur frekar en við var að búast of verkum trúðanna. Danir hafa mikla reynslu, hún er sú að raforkan í Danmörku er sú dýrasta í heimi!

I Englandi hefur Gordon Hughes frá Edinborgarháskóla rannsakað kostnað vindmylla. Og niðurstaðan þar er ekki heldur fögur: Vindmyllurnar eru tvöfalt dýrari og kosta fjórfalt meir að reka nú en fyrir 10 árum.

https://www.ref.org.uk/Files/performance-wind-power-uk.pdf

Svipaða sögu er að segja vestanhafs.

https://www.manhattan-institute.org/dismal-economics-offshore-wind-energy

Umhverfisstórslys er í uppsiglingu. Vindmyllurnar endast stutt, ónýt blöð hlaðast nú upp í tugþúsundatali og ekkert hægt að gera við þau annað en moka yfir.

https://www.bloomberg.com/news/features/2020-02-05/wind-turbine-blades-can-t-be-recycled-so-they-re-piling-up-in-landfills


Reglugerðadræsur

sitelogoEin fljótvirkasta leiðin til að lyfta atvinnu og efnahag upp úr Kóvinu er að einfalda reglugerðirnar og afnema EES-tilskipanir sem snerta rekstur og verðmætasköpun. https://www.frjalstland.is/2018/09/07/regluverk-ees-gerir-islensk-fyrirtaeki-osamkeppnishaef/

Stór hluti, 83%, fyrirtækja í Samtökum iðnaðarins segja í nýrri könnun að regluverkið þurfi að einfalda en eins og kunnugt er kemur góður hluti þess frá ESB/EES milliliðalaust.

"Við söknum þess oft við lagasetningu að lagt sé mat á áhrif löggjafans á atvinnulífið, þar á meðal samkeppnishæfni Íslands" (Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri SI í Mbl 8.9.2021)


Stuðningur frá Noregi

Norwaypexels-photo-141876Þrír af stjórnmálaflokkum Noregs vilja að Noregur styðji baráttu Íslendinga við ESA (EES-eftirlitið). Flokkarnir, SV, Sp og Rödt, gætu komist í ríkisstjórn eftir kosningar í haust. Þeir vilja að Noregur gangi úr EES og gagnrýna stjórnvöld Noregs fyrir undirlægju við ESB og skort á stuðningi við "nokkur hundruð þúsund Íslendinga í baráttunni fyrir fullveldi gagnvart ESB" https://www.aftenposten.no/norge/politikk/i/rE815m/sp-sv-og-roedt-stoetter-island-og-vil-la-norske-lover-gaa-foran-eoes-dir

Íslensk stjórnvöld fá stöðugar ávirðingar frá ESA. Í mars 2011 kom bréf um að þau leyfðu ekki fyrirtækjum í ESB/EES að fá aðgang að orkuauðlindunum og brytu þar með gegn EES. Ríkisstjórnin var búin að búa til frumvarp til að hlýða ESA en dró það til baka í fyrra https://www.frjalstland.is/2020/04/10/svar-forsaetisraduneytis-vid-fyrirspurn-um-uthlutun-nytingarrettar-orkuaudlinda/

En Noregur hefur þegar hafnað kröfunni frá ESA. https://www.frjalstland.is/wp-content/uploads/2021/04/190604-Svar-fra-dept-til-esa.pdf

Í apríl 2012 kom bréf um að Ísland þyrfti að útskýra af hverju dómar Hæstaréttar væru ekki samkvæmt ESB-lögum. Því bréfi var ekki svarað þá. Og áfram bréfastraumur: Þann 30. september 2020 sendi ESA "rökstutt álit" í 79 liðum um að Ísland hafi látið undir höfuð leggjast að láta innleidd EES-lög verða æðri íslenskum lögum. Ríkisstjórnin hafði svarað samskonar bréfi 10.9.2020 og sagt að ekki væri tímabært að huga að breytingum á lögum meðan óvissa ríkir almennt í málum á EES- https://www.frjalstland.is/2020/10/15/esb-log-aedri-islenskum-logum/


Vetnisdraumurinn

Birdskilledbywindmills11-DSCN0086Draumurinn um að vetni verði orkumiðlari mannkyns er kominn að fótum fram. Hann rætist ekki. Ástæðan er að vetni er ómeðfærileg gastegund og lélegt eldsneyti (orkuinnihald um 3 en í jarðgasi 10 Wh/L). Bara raforkan til að framleiða "græna" vetnið kostar 5-10 sinum meira en jarðgasið. Það þýðir að sauðsvartur þarf að borga 10-20 falt jarðgasverð fyrir grænt vetni. https://www.frjalstland.is/2020/10/28/graent-vetni/

Orkukerfi ESB er að stirðna í "grænum orkugjöfum", fúafeni grænna skatta, grænna styrkja, losunarkvóta, losunarkredits. Jarðgasverðið stökk nýlega upp í ($12,5/MMBtu) 7-falt verðið í fyrrasumar þó það verði væntanlega ekki viðvarandi. En ESB ætlar að banna allt gott eldsneyti og niðurgreiða "grænt" vetni í staðinn, framleitt með vindmyllum og sólpanelum.  Fyrirtæki þaðan ætlar að framleiða vetni í Hvalfirði handa ESB með vindmyllum á Laxárdalsheiði og Múla, lélegum orkuverum sem framleiða dýra og stopula orku og spilla landsfegurð og umhverfi og drepa fugla.

Það er auðvitað ekki hægt að breyta okkar tækniþróaða hagkerfi í vetnishagkerfi með vindi nema einhverjir borgi fyrir skemmtunina. Það er vel líklegt að ESB geti látið lafhrædda skattgreiðendur og hlýðin fyrirtæki (og heimska Íslendinga) borga í einhvern tíma. En þegar sannleikurinn kemst í hámæli og orkuverðið, húskuldinn og fátæktin verða komin á það stig að lýðurinn hættir að trúa bábiljunum, og atvinnufyrirtækin verða farin, hrynur blekkingavefurinn. Eins og hjá Napóleon og Hitler. Þá er betra fyrir íslensk orkuver, sem nota fallvötn og jarðhita, að halda sig við að selja orkuna til einhvers sem vit er í. https://www.frjalstland.is/2021/08/27/hvernig-a-ad-nyta-islenska-raforku/


Ónýt utanríkisstefna

Rússlandsmarkaður keypti mikið magn og greiddi gott verð. Vörur sem áður fóru til Rússlands hafa í staðinn leitað inn á markaði m.a. í Afríku þar sem ómögulegt er að fá jafn hátt verð. Á þessum sex árum hefur rússneskur sjávarútvegur styrkst töluvert og...

Viltu rafeldsneyti?

Ein af heimskulegustu hugmyndunum (á eftir rafbílum, vindmyllum og endurheimt mýravilpna) í "loftslagsaðgerðum" ESB/EES er að framleiða "rafeldsneyti". Það er í sjálfu sér hægt að búa til eldsneyti með rafmagni þó engum efnaverkfræðingi detti það í hug....

Pútín kaupir atkvæði

Þegar okkar stjórnmálamenn auka greiðslur til ellilífeyrisþega er ekki sagt að þeir séu að kaupa atkvæði en ef Pútín gerir það er málið annað: Þá segir pressan í V-Evrópu að Pútín sé að kaupa atkvæði (frétt Mbl vísar í AFP:...

NATO-hæli

NATO ætlar að senda okkur hælisleitendur úr Múslimaheiminum. Forsætisráðherra okkar segir -"að það væri alveg skýrt að tekið yrði á móti fleiri hælisleitendum-" (Mbl 21.8.2021). NATO var árangursríkt félag sem stóð að brottrekstri kommúnista úr...

Stjórnmálaflokkar spurðir

Frjálst land hefur sent stjórnmálaflokkum og framboðum styttan spurningalista, áður (20.7.) sendu Heimssýn , Orkan okkar og Frjálst land sameiginlegan lista með 7 spurningum en flokkarnir svara aðeins 3 einföldum spurningum. Spurningarnar eru um ESB, EES...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband